Morgunblaðið - 14.02.1993, Side 36

Morgunblaðið - 14.02.1993, Side 36
36 MORGU NBLAÐIÐ ATVINt\lA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1993 Konur, fötlun og samfélag DR. RANNVEIG Traustadóttir, þjóðfélagsfræðingur, flytur opin- beran fyrirlestur í boði Rannsókn- arstofu í kvennafræðum við Há- %kóla íslands þriðjudaginn 16. febrúar. Fyrirlesturinn nefnir hún Konur, fötlun og samfélag. Rannveig Traustadóttír varði doktorsritgerð við Syracuse-háskóla í New York-fylki í Bandaríkjunum í október sl. en hún stundaði þar nám í stefnumótun og skipulagningu í Minnisvarði afhjúpaður ur á Pat- reksfirði Minnisvarði um þá sem fórust í snjóflóðunum á Patreksfirði 22. jan- úar 1983 var nýlega afhjúpaður við hátíðlega athöfn. Gísli Pétursson sem missti móður sína og bróður í flóðunum afhjúpaði verkið, sem er eftir Hauk Halldórsson. Morgunblaðið/Ingveldur Hjartardóttir Saumagallerí fyrir ungbamaföt NYVERIÐ opnaði í Skólagerði 5 í Kópavogi Saumagallerí, sem sér- hæfir sig í að sauma ungbarna- og fyrirburafata. Mjög erfitt hefur verið að fá fyr- irburaföt á íslandi á undanfömum árum. Sem betur fer er eftirspurnin ekki mikil, því markhópurinn er ekki stór. Þessu þarf þó að sinna, og hef- ur framleiðslan mælst mjög vel fyr- ir. Inniliggjandi fyrirburar eru 16 til 24 á hveijum tíma, segir í tilkynn- ingu frá Saumagalleríinu. Langt mesti hluti framleiðslunnar er þó ungbarnafatnaður, sæng- urgjafir og rúmföt. Við hönnun og efnisval eru þarfir ungviðsins hafðar í huga. Leitast er við að nota 100% bómull eða önnur náttúrleg efni. Mikil hreyfivídd einkennir fötin. Aldrei er notast við rennilása eða smellur, einungis tölur og hnappa. Stroff eru mikið notuð þannig að gjarnan má kaupa flíkur vel við vöxt án þess að illa fari. Notkunartími lengist við þetta um a.m.k. hálft ár. Saumagalleríið er opið frá kl. 13-18 alla virka daga eða eftir sam- komulagi. (Fréttatilkynning) málefnum fatlaðra í sex ár. Ein af hliðargreinum í námi Rannveigar var kvennafræði og í doktorsritgerðinni samþættir hún fötlunarrannsónir og kvennarannsóknir með því að skoða framlag kvenna til þeirra umbóta sem hafa átt sér stað í þjónustu við fatlaða undanfama tvo áratugi. Þrátt fyrir að konur séu í miklum meiri- hluta þeirra sem sinna fötluðum í einkalífí og á opinberum vettvangi þá hefur framlag þeirra á þessu sviði verið nánast ósýnilegt og lítið um það fjallað. Í rannsóknum sínum hefur Rannveig skoðað þrjá hópa kvenna: Mæður fatlaðra barna, kon- ur sem starfa með fötluðum og kon- ur sem eru vinir fatlaðra. Meðal ann- ars beinast rannsóknir Rannveigar að því að athuga hvernig framlag kvenna til málefna fatlaðra tengist stöðu kvenna í nútímaþjóðfélagi og hefðbundnu ummönnunarhlutverki kvenna. Eftir Rannveigu hefur birst fjöldi greina á rannsóknarsviði henn- ar, bæði í íslenskum og bandarískum ritum. Fyrirlesturinn verður í stofu 101 í Odda kl. 17 og er öllum opinn. (Fréttatilkynning) Frá Saumagalleríinu. RAÐ/\ UGL ÝSINGAR %W TJÓNASKODUNARSTÖD Smlðjuvegi 2 - 200 Kópavogur Sími 683400 - Telefax 670477 Tilboð óskast í bifreiðar, sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. Bifreiðarnar verða til sýnis á Smiðjuvegi 2, Kópavogi, mánudaginn 15. febrúar 1993, kl. 8-17. Tilboðum sé skilað samdægurs. Vátryggingafélag íslands hf. - Tjónaskoðunarstöð - Tilboð Bifreiðaútboð á tjónabifreiðum er alla virka mánudaga frá kl. 9.00-18.00. Ljósmyndir af bifreiðunum liggja frammi hjá umboðsmönn- um SJÓVÁR-ALMENNRA víða um land. Upplýsingar í símsvara 91-671285. • Druyhálsi 14-16, 110 R r y kj a v i k, simi 671 í 20, trlefax 672620 Sjónvarpið útboð Kvikmyndagerðarmenn Sjónvarpið, innlend dagskrárdeild, óskar eft- ir hugmyndum að stuttri kvikmynd ætlaða yngstu áhorfendunum. Myndin er hluti af samnorrænum myndaflokki þar sem hver kvikmynd er sjálfstætt verk og verður sýnd á öllum Norðurlöndunum. Lengd myndarinn- ar þarf að vera um 20 mínútur. í útboðinu felst endanlegur kostnaður við gerð myndar- innar ásamt hugmynd að handriti sem verk- taki velur sjálfur. Tilboðum þarf að skila til Sjónvarpsins fyrir 1. apríl 1993. Kvikmyndin afhendist fullbúin eigi síðar en 1. júní 1994. Nánari upplýsingar veitir dagskrárfulltrúi barnaefnis, Sigríður Ragna Sigurðardóttir, ^Sjónvarpinu, Laugavegi 176, 105 Reykjavík, sími 693900. RÍK/SÚTVARP/Ð Röntgenfilmur Tilboð óskast í röntgenfilmur ásamt efnavör- um fyrir ríkisspítala og fleiri sjúkrahús til nota á næstu 1-2 árum. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 11.00 26. mars 1993 í viðurvist viðstaddra bjóð- enda. IIMIMKAUPASTOFIMUIM RÍKISIIMS _________BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK_ ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum í frágang inni og lóðarfrágang vegna viðbyggingar við Hlíðaskóla. Um er að ræða lagnir og allan frágang inni á 800 fm, svo og frágang á lóð þar í kring. Verkinu skai lokið 15. ágúst 1993. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með þriðju- deginum 16. febrúar, gegn kr. 15.000,- skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðviku- daginn 17. mars 1993, kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJ AVI KURBORGAR^ Frikirk|uvegi 3 Sinn 2b800 * -tr TJÓNASKOÐUNARSTÖÐ Smiðjuvegi 2 - 200 Kópavogur Sími 670700 - Telefax 670477 Tilboð óskast í eftirfarandi billiardborð sem eru lítið skemmd eftir tjón. 3 stk. pool-borð. 8 stk. snooker-borð (matchroom). Snooker-borðin eru keppnisborð. Borðin eru ósamsett og eru til sýnis þriðju- daginn 16. febrúar 1993 frá kl. 13.00-17.00 og miðvikudaginn 17. febrúar frá 13.00- 17.00 í Ármúla 3. Gengið er inn frá Hallarmúla. Borðin verða seld ein sér eða öll í einum pakka. Gott tækifæri fyrir félagasamtök að eignast góð borð. Allar upplýsingar veitir Smári Ríkarðsson í síma 670700. Háskóli íslands óskar eftir tilboði í stækk- un og. breytingar á byggingunni Hofsvalla- götu 53. Um er að ræða uppsteypu á tveim- ur hæðum að grunnfleti 426 m2 ásamt frá- gangi að utan. Bjóðendum verður gefinn kostur á að skoða aðstæður á byggingarstað þriðjudaginn 23. febrúar frá kl. 10.00 til 12.00. Verktími er til 31. ágúst 1993. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, frá og með fimmtudeginum 11. febrúar til og með fimmtudeginum 25. febrúar gegn 20.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 2. mars 1993 kl. 11.00. IIMIMKAUPASTOFIMUIM RÍKISIIMS BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK_ Eftirfarandi útboð eru til afhendingar á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík: 1. Þrif skólahúsnæðis á höfuðborgarsvæð- inu. Gögn seld á kr. 10.000,-. Opnun 9. mars kl. 11.00. 2. Ræsi v/vegagerðar. Opnun 19. febrúar kl. 11.00. 3. Verkútboð v/Hofsvalla 53. Skilatrygging kr. 20.000,-. Opnun 2. mars kl. 11.00. 4. Rykbindiefni. Opnun 23. febrúar kl. 11.30. 5. Röntgenfilmur. Opnun 26. mars kl. 11.00. 6. Röntgentæki. Opnun 24. febrúar kl. 11.00. 7. Boltar, skrúfur, rær. Opnun 1. mars kl. 11. IIMIMKAUPASTOFIMUIM RÍKISIIMS ________BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK Uppboð Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins á Hafnarbraut 25, Hólmavík, miðvikudaginn 24. febrúar 1993, sem hér segir á eftir- töldum eignum: Lækjartúni 7, Hólmavik, þinglýstri eign Guðveigar Hrólfsdóttur, eftir kröfu veðdeildar Landsbanka Islands. Miðtúni 7, Hólmavík, þinglýstri eign Guöþjörns M. Sigurvinssonar og Þórunnar Einarsdóttur, eftir kröfum veðdeildar Landsþanka ís- lands og Fjárheimtunnar. Sýslumaðurinn á Hólmavík, 10. febrúar 1993. Ríkarður Másson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.