Morgunblaðið - 04.03.1993, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 04.03.1993, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1993 Siglingar og sjó- mannamenntun eftir Guðjón Ármann Eyjólfsson Um miðjan febrúar sl. birtist í Morgunblaðinu auglýsing frá dönsk- um sjóvinnuskóla (Nyborg söfarts- skole). Síðan hafa nokkrir hringt í Stýrimannaskólann og spurst frekar fyrir um þetta nám og möguleika á að taka það hér á landi. Grunnmenntun { sjóvinnuskólanum (söfartsskol- er) í Danmörku eða á dönskum skólaskipum fer fram 5 mánaða grunnmenntun og undirbúningur ailra sem ætla í farmennsku á dönsk- um skipum. Þeir sem ljúka námi skipstækna (skibsassistenter) sem er rúmlega tveggja ára nám (26 mánuðir), eru 8 mánuði í sjóvinnu- skóla við bóklegt og verklegt nám. í Danmörku eru 5 sjóvinnuskólar, en einnig er hægt að ljúka grunn- menntun um borð í skólaskipunum Danmark og Georg Stage. Til þess að fá skráningu á danskt kaupskip verða menn að hafa lokið grunnnámi skipstækna, nema þeir hafi lokið handverksmenntun, t.d. járnsmíðanámi og 6 vikna námskeiði í sjómennsku. Yfirstjórn danskrar sjómanna- menntunar (Söfartsstyrelsen) gerir ráð fyrir að á hvetju ári fram til 1996 ljúki 500 manns grunnnámi sjómanna og 300 námi skipstækna. Hinn 1. júlí sl. voru 615 skip skráð í danska verslunarflotanum, þar af 473 í alþjóðaskráningu (DIS). Stærð flotans er 5,4 milljónir brúttórúm- lesta eða um 8 milljónir burðartonna (DW). Skipstæknir (skibsassistent) Námi skipstækna er skipt í tvo áfanga. Fyrsti áfangi er 5 vikna nám eða samtals 200 kennslustundir í öryggismálum og slysavörnum, skyndihjálp, verklegri sjóvinnu og hvernig eigi að standa vaktir. Eftir fyrsta áfanga geta nemend- ur sem ætla að ljúka námi skips- tæknis farið á sjóinn í 6 mánuði sem lærlingar (skibsassistentelev), áður en þeir fara í 2. áfanga sjóvinnu- skóla. Að honum loknum fara nem- „Ef íslendingar ætla að halda velli sem fisk- veiði- og siglingaþjóð verður að auka mennt- un bæði undir- og yfir- manna.“ endur aftur í siglingar í 18 mánuði. Aðrir halda áfram námi í 2. áfanga í 15 vikur eða tæpa 4 mán- uði, en áfanginn er samtals 555 kennslustundir (kstd. 45 mínútur). í 2. áfanga er haldið áfram kennslu og þjálfun í öryggismálum, eldvörn- um o.fl.: samtals í 120 stundir ásamt kennslu í vinnuöryggi (auk 30 std. í 1. áfanga). í 2. áfanga er lögð mikil áhersla á verkmenntun; vélsmíði og vélfræði í samtals 150 stundir, verklega sjó- vinnu 60 stundir og viðhald skipa 120 stundir. í siglingafræði, sigl- ingareglum, stöðugleika og skyndi- hjálp eru 75 kennslustundir. Nemendur sem hafa lokið 1. og 2. áfanga og ætla ekki að læra til starfa yfirmanns í brú, vélarrúmi eða sem matsveinar og brytar eru skráð- ir óreyndir skipstæknar (ubefaren skibsassistent) í 18 mánuði. Námi skipstækna lýkur með 3. áfanga sem er rúmlega 3ja mánaða nám (13 vikur) og aðeins í boði við sjóvinnu- skólann í Fredrikshavn. Nemendur eru þá fullgildir skipstæknar (befar- en skibsassistent). Nám skipstæknis er því samtals 26 mánuðir, þar af 8 mánuðir á sjó- vinnuskóla og 18 mánuðir sem lærl- ingur á hinum ýmsu gerðum kaup- skipa. Störf skipstækna Skipstæknar vinna bæði á þilfari og í vélarrúmi. Mjög margir hafa áður en þeir fóru til sjós reynslu og menntun sem vélsmiðir. Skipstækn- ar ganga sjóvaktir (útverðir í brú verða að hafa vottorð um sjón og litskyggni), vinna að viðhaldi og við- gerðum, bæði í vélarrúmi og á þilf- ari. Þeir sjá um landfestar við komu og brottför skipsins og ganga í önn- ur þau verk sem tilheyra störfum sjómanna. Skipstæknar gegna sömu störfum og hásetar og aðstoðarmenn í vélarrúmi gegndu áður (matroser og motormænd). í Noregi er svipað fyrirkomulag á menntun undir- manna á farskipum og nefnist starf- ið á norsku „skibsmekaniker". Stýrimanna- og vélstj óramenntun Stærstu skipafélögin (t.d. A.P. Möller) bjóða æskumönnum, sem ætla að leggja fyrir sig sjómennsku hagstæðan starfssamning og náms- styrki. Félögin og samtök útgerðar- manna gefa út vandaða bæklinga til kynningar á starfi félagsins, sjó- mannamenntuninni og tækifærum ungs fólks til starfa við siglingar og sjómennsku. Margir nemendur sjómannaskól- anna (sjóvinnuskóla, stýrimanna- og vélskóla) gera því starfssamning við skipafélögin. Menntun yfirmanna á dönskum skipum veitir auk sér- menntunar möguleika á fjölbreyti- legum störfum í landi. Skipafélögin standa við bakið á fólki og styrkja nemendur fjárhagslega til náms í sjóvinnuskólum, stýrimanna- og vél- skólum og tryggja þeim starfsþjálf- un og atvinnu að loknu námi. Að loknu 5 mánaða grunnnámi sem hér hefur verið lýst eru stýri- mannsefni skráð sem lærlingar (asp- iranter) og sigla í 12 mánuði áður en þriggja ára bóklegt nám hefst í stýrimannaskóla (skólaárið er 42 kennsluvikur; önnin 21 vika; hér á landi er námsönnin 13-14 vikur). Þeir sem ætla að verða vélstjórar taka fyrst 12 mánaða verkstæðis- skóla og fara síðan á sjóinn. Að lokn- um 6 mánaða siglingatíma hefst bóklegt og verklegt nám í vélskóla. Þegar prófum á fyrsta ári lýkur fara vélstjóranemar aftur á sjóinn í 12 mánuði áður en þeir ljúka námi, sem er 3 ár eins og hjá stýrimönnum. Siglingaþjóð Alþjóðaskráning skipa (DIS) hef- ur verið dönskum og norskurri sigl- ingum mikil vítamínsprauta og veit- ir útlendingum heimild til allra starfa nema skipstjórnar á dönskum skip- um. Þrátt fyrir það leggja dönsku skipafélögin í verulegan kostnað til Guðjón Ármann Eyjólfsson að laða að sér ungt og vel menntað fólk í Danmörku, en í dönskum stýri- manna- og vélskólum eru gerðar kröfur sem eru langt fram yfir al- þjóðlegar lágmarkskröfur. Reynslan hefur sýnt að vel mennt- aðir sjómenn eru þegar til lengri tíma er litið besta fjárfesting skipafélag- anna sem kemur fram í betri og hagkvæmari rekstri. Útgerðarfélög- in vilja því helst hafa Dani sem yfir- og undirmenn á skipum undir dönsk- um fána. Störf sjómanna og dönsk skipafé- lög njóta velvilja stjórnvalda og vin- sælda hjá almenningi. Danir eru stoltir af að vera siglingaþjóð. Sigl- ingar eru einn af aðalatvinnuvegum þjóðarinnar og danski verslunarflot- inn meðal þeirra stærstu í heimi og sá fjórði stærsti í Evrópu. Við sigl- ingar þar í landi starfa um 35.000 manns, þar af eru 11-12 þúsund farmenn. Heildarveltan árið 1991 var um 45 milljarðar danskra króna. Stærsta skipafélagið, Rederiet A.P. Möller A/S, sem hér hefur oft verið vitnað til, hefur mörg járn í eldinum, rekur m.a. flugfélag, olíuborpalla o.s.frv., en það er eftirtektarvert að í kynningarriti félagsins (A.P. Möller uddannelse) er alltaf talað um félag- ið sem Útgerðarfélagið og það með stórum starf — Rederiet — til þess að leggja enn frekar áherslu á hver er undirstaða og upphaf þessa öfluga atvinnufyrirtækis. Hér á landi þykir fínna að nota flutningafyrirtæki en skipafélag. Danskir framhaldsskólar taka iðulega að sér sérstök skip (adop- tivskib) og nemendur skrifa bréf og senda pakka til áhafna skipanna. Framhaldsskólanemendur fá með þessu starfi lifandi áhuga á sigling- um og sjómennsku og kynnast því Afmæli lýðveldiskrónunnar eftir Önund Ásgeirsson íslendingar jafnt sem útlendingar eru algjörlega andvígir verðbólgu. Okkur hefír verið sagt, að verðbólga sé hér nú minni en í viðskiptalöndum okkar, og vei sé þeim sem Iætur annað í ljós. Þess vegna sé krónan okkar nú alltaf að hækka í verði, eins og við öll hljótum að sjá og skilja. Útflytjendur telja það raka- laust ósannindi, ef einhver skyldi halda öðru fram. Fljótlega eftir stríðslok komst á það jafnvægi í gjaldeyrismálum helztu viðskiptalanda okkar, að um 2 þýzk mörk voru jafngildi dollars og um 2 dollarar jafngildi sterlings- punds, eða um 4 mörk í pundi. íslend- ingar eru stöðugt að ræða um að það sé mjög bagalegt í alþjóðavið- skiptum, að stærsti gjaldmiðill heims, dollarinn, sé háður endalausum sveiflum, og er þá oftast miðað við hina staðfestu íslenzku krónu. Þann- ig lækkaði dollar í fyrradag um 33 aura, sem sýnir að krónan var að hækka í verði, en svo gleymum við því bara, að doilarinn hækkaði í gær um 44 aura. Við gerum auðvitað ekkert með það, þar sem útgerðar- menn og útflytjendur sjávarafurða segja okkur að þetta bæti hag lands- ins, og því sé það einskonar þjóðem- „í þessum óraunhæfa draumaheimi höfum við nú lifað í hálfa öld eða meir. Sex prósenta gengisfellingin 23. nóv- ember í fyrra var þar engin nýlunda. Hún var sama rökleysan og allar hinar sem á undan gengu.“ isást, að þegja um það að innfluttar neyzluvörur hækki til almennings. í þessum óraunhæfa draumaheimi höfum við nú lifað í hálfa öld eða meir. Sex prósenta gengisfellingin 23. nóvember í fyrra var þar engin nýlunda. Hún var sama rökleysan og allar hinar sem á undan gengu. Gullfóturinn Áður var verðmæti gjaldmiðla miðað við verð á gulli, og nefndist gullfótur. Þegar íslendingar stofnuðu til lýðveldis 1944, með stuðningi Bandaríkjanna, Breta, Sovétmanna og annarra Bandamanna í síðari heimsstyijöldinni, kostaði únsa af gulli um 240 dollara, á þáverandi gengi kr. 6,50 eða 1.560 GKR úns- an. Síðar gerðist það, að birtar voru í Financial Times myndir af sterlings- pundinu, þar sem það flaut niður Themesá með brezku þinghúsin, The Houses of Parliament, í baksýn, og fylgdu margar víxlverkanir á erlend- um gjaldmiðlum í kjörfarið. En krón- an okkar var alltaf jafn staðföst, og fylgdi jafnan þeim gjaldmiðli, sem mest felldi gengið, þegar hún féll ekki sjálf upp á sitt eindæmi. Nú kostar únsa af gulli um 360 dollara. Miðað við gullfót hefir dollar þannig lækkað um 50%. Hlutföll helztu gjaldmiðla eru nú þannig, að dollar kostar um DDM 1,50, og sterlings- pund um USD 1,50. Pundið kostar því nú um 2,25 þýzk mörk í stað um 4,00 áður. Hækkun þýzka marksins er því um 78% miðað við sterlings- pund. Brauðfóturinn Við lýðveldisstofnunina var verð- gildi krónunnar 6,50 fyrir dollar. Hún féll ört vegna sífelldra gengisfell- inga, og 1. janúar 1981 var hún ekki talin nothæf lengur og nefnd gamla krónan, GKR. Var nú strikað yfír tvö núll og gefín út ný króna, með verðgildinu NKR 6,25 jafnt doll- ar. Nú er sá dagur upp runninn að verðgildi dollars hefír náð 65 NKR, þannig að verðgildi nýju krónunnar er nú 1/1000. hluti eða 1 pró mill af gömlu lýðveldiskrónunni miðað við dollar, en 1/1500. hluti miðað við gullfót. Stöðumælagjald er nú 50.000 GKR á klukkustund. Jafnt gamla sem nýja krónan hafa staðið á brauð- fótum allan lýðveldistímann. Fjár- málastjóm lýðveldisáranna er mikil raunasaga. Afleiðing gengisfellinganna Vegna samfelldrar rýrnunar krón- unnar reiknar ríkisskattstjóri árlega samkvæmt skattalögum svonefndan verðbreytingarstuðul, til leiðrétting- ar á verðmæti eigna til skatts. Verð- breytingarstuðull ársins 1992 er ákveðinn 1,17%, þrátt fyrir 6% geng- isfellinguna 23. nóvember sl. Verð- breytingarstuðlar undanfarandi ára sýna hina opinberu verðlagsþróun, mælt í hundraðshlutum fyrir hvert ár: 1976 25,43 1985 28,68 1977 28,15 1986 28,43 1978 48,15 1987 17,95 1979 45,51 1988 18,48 1980 54,91 1989 22,24 1981 53,49 1990 19,16 1982 53,78 1991 6,18 1983 71,67 1992 1,17 1984 26,72 Mest er þetta afleiðing gengisfell- ingarstefnunnar. Þrjár gengisfelling- ar 1988 námu alls 18% og níu gengis- fellingar 1989 námu alls 21,32, sem sýnir samhengið. á hveiju þjóðin lifir. Þeim er síðan boðið sérstaklega um borð í þau fáu skipti sem skipin koma til danskra hafna, en 90% af siglingum danskra skipa eru á milli erlendra hafna (cross trade). Sjómannaskólar í Sveinborg í Sveinborg á Fjóni eru tveir sjó- vinnuskólar, stýrimannaskóli og vél- skóli, hvor tveggja glæsilegar menntastofnanir. Handan við götu við Vélskólann (Svendborg Maskinmesterskole) eru sérstakir nemendabústaðir, samtals 110 íbúðir (A.P. Möller kollegiet) en skipafélagið A.P. Möller (Mærsk- Line) studdi myndarlega við bakið á Vélskólanum og fleiri aðilum í Svein- borg, þegar þeir stóðu fyrir bygg- ingu námsmannaíbúða fyrir um 20 árum. Síðan hafa verið byggðir fleiri námsmannagarðar í Sveinborg og nú eru um 400 íbúðir fyrir náms- menn í sjómannaskólunum og öðrum sérskólum þar í borg, en í stjórn nemendaíbúðanna sitja m.a. skóla- stjórar og nemendur sjómannaskól- anna. Verkstæðisskóli Vélskólans er í eigu A.P. Möller-skipafélagsins, sem er stærsta skipaútgerð á Norð- urlöndum, en vélskólinn hefur á hendi allan rekstur og skipulag kennslunnar. Skipafélagið Lauritzen átti og rak lengi á eigin kostnað sjóvinnuskól- ann í Kogtved, sem er rétt við Svein- borg. Fyrir nokkrum árum gaf félag- ið sjóvinnuskólann sem var gerður að sjálfseignarstofnun og er nú rek- inn með 50% framlagi frá yfirstjórh dönsku sjómannaskólanna (Söfarts- styrelsen) og námskeiðsgjöldum nemenda sem útgerðirnar greiða að stórum hluta. Á 100 ára afmæli Lauritzen árið 1984 gaf félagið sjóvinnuskólanum 1.000 fermetra byggingu, sem kost- aði þá 10 milljónir danskar, en á eirplötu í byggingunni er m.a. ritað: „Gjöfin er viðurkenning á mikilvægi skólans fyrir menntun verðandi sjó- manna í Danmörku.“ íslensk viðhorf L Í i f I I Þetta jákvæða viðhorf til sjó- manna og farmannamenntunar til þess að efla með því siglingar í hönd- um íslendinga sjálfra finnst mér að vanti hér á landi. Þetta viðurkennir að sjálfsögðu enginn þeirra sem er málið skylt. En þegar erlendir sjómenn eru t.d. teknir fram yfir unga menn á skip í eigu íslendinga, þó að þeir hafi lokið farmannaprófi frá Stýrimanna- skólanum með svo góðum vitnis- burði að þeir voru hæstir á prófinu og fengu sem viðurkenningu svo- nefndan farmannabikar, sem ber nafn Eimskipafélags íslands er gaf hann á sínum tíma, þá tala verkin Önundur Ásgeirsson Gengisfellingar rýra allar eignir landsmanna, þar með talið inneignir manna hjá bönkum og innlánsstofn- unum, einnig spariskírteini og önnur skuldabréf ríkissjóðs. Bankar verða þannig íjárvana við hveija gengisfell- ingu og sömuleiðis fyrirtæki lands- manna. Bankar megna því ekki að veita fyrirtækjum nauðsynlega fyrir- greiðslu vegna fjármagnsskerðingar við gengisfellinguna, og verða að leita til Seðlabankans um aukið lánsfé. En Seðlabankinn býr ekki til neitt fé. Hann á aðeins um tvær leið- ir að velja, erlend lán eða aukið seðla- i i i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.