Morgunblaðið - 07.03.1993, Side 7

Morgunblaðið - 07.03.1993, Side 7
B 7 MORGUNBLAÐIÐ MANNLÍFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993 SIÐWRÆÐI/Hejyrir einhver andardráttinn? Smælingi smælingjanna BARN, nakið undir skuggaleg- um himni, finnur vindinn næða um sig. Það dregur andann af veikum mætti, getur ekki leng- ur grátið á kaldri jörðinni. Ekki er von á neinum manni. Lungun þenjast út og dragast aftur sam- an... Barn fæðist. Móðirin hatar það. Hún var fangi í nauðgunar- búðum í nokkra mánuði. Henni var sleppt þegar þungun hennar var orðin augljós. Dag eftir dag var henni nauðgað af einkennis- klæddum mönn- um með númer saumuð í jakka. Enginn veit hver faðirinn er. Hann er aðeins gleymt númer sem fékk skipun um að nauðga og þvinga eftir Gunnar Hersvein konur til samfara með hömlulausu ofbeldi. Glæpur gegn mannkyninu var framinn á saklausri móður barnsins. Getnaðurinn var skipu- lagður af andlitslausum mönnum sem sitja snauðir af ást bak við skrifborð. Hatursfullum mönnum sem beijast um völd og semja um vopnahlé á viðurkenndum sýndar- ráðstefnum. Karlmönnum í hrein- um jakkafötum með flekkaðar hendur. Morðingjum sem hafa bæði tíma og frið til að drepa. Osjálfrátt fyllir bamið lungun í fyrsta sinn. Loftið er sama eðlis og allir anda að sér á jarðkringl- unni, en það er blandið mannleg- um harmi. Faðirinn veit ekki af fæðingunni. Hann er númer í hem- um, leiksoppur stríðsherranna. Hann var nauðgari í fangelsi hinna saklausu. Eins og hræddur hundur hlýðir hann skipunum. Bamið mun aldrei njóta föðurhlýju. Það getur ekki tekið hann sér til fyrirmyndar eða verið stolt yfir afrekum hans. Ástin hefur verið krossfest í land- inu. Faðirinn er þó manneskja, en ekki númer eins og honum er talin trú um. Hann hefur verið skírður nafni, nafni sem barnið mun aldr- ei heyra nefnt. Bamið grætur kröftuglega eins og öll heilbrigð böm gera. Mjólkin bíður volg í stórum bijóstum, en móðirin vill ekki sjá barnið. Hún er bitur. Hún var niðurlægð, barin og pínd. Framtíð hennar hefur verið eyðilögð. Hermenn komu í þorpið, fluttu fólk í fangabúðir, pyntuðu og drápu. Þeir brenndu hús, myrtu menntamenn og nauðguðu konum. Henni var mis- þyrmt og hún send til baka með barn undir kviði. Þegar heim kom uppgötvaði hún að eiginmaður hennar var enn á lífi, en hann hrækti framan í hana. Hann var smánaður. Hún bar ekki hans barn og var óhrein í augum hans. Hann barði hana, langaði til að drepa hana en gat það ekki. Henni var hafnað af þeim sem eftir voru af ættinni. Hún fékk taugaáfall og reyndi að fremja sjálfsmorð en það mistókst. Lífið var orðið óbærilegt og barn óvinarins var inni í henni. Hún hafði verið sátt við lífið, mennina og guð en nú var ekkert eftir, ekkert nema ijúkandi rústir sakleysisins. Hatrið er eina til- finningin sem gefur henni kraft til að lifa. Naflastrengurinn er klipptur. Bamið er skilið frá móður sinni. Það er eitt í fjandsamlegum heimi og á enga stuðningsmenn. Á jörð- inni gæta hermenn friðarins með drápstólum. Hermenn sameinaðra LÆIiNISFRÆDlÆ/7/ vísindi bcebi tilgóds og ills? Metsiníkov og Tolstoj RÚSSNESKA Stórskáldið Lév Tolstoj lét ekki við það sitja að skrifa löngu snilldarverkin um Önnu Karenínu og Stríð og frið. Eitt hinna mörgu skáldrita hans í smærra formi er sagan um Ivan Iljitsj og dauða hans. Sá ívan var ekki hugarfóstur Tolstojs heldur maður sem lifði og dó en banalega hans og dauði varð skáldinu yrkisefni. Bróðir ívans hét Ilja Metsjníkov og var háskólamenntaður dýrafræðingur en heillaðist snemma af smásjánni og komst í grúski sínu inn á nýjar leiðir. Hann ........ iimii !■! i M fæddist $ Úkraínu árið 1845 og varð prófessor í fræð- um sínum við Odessa-háskóla 28 ára gamall. Dvölin þar varð honum erfið, skap hans var stórt og sveiflótt og oftar en einu sinni reyndi hann að stytta sér aldur. Eftir áratug í kennaraembætti lenti hann í deilum við stjórn háskólans og hvarf á braut. Leiðin lá til Ítalíu og í Mess- ínu á Sikiley hófst frægðarferill vísindamannsins. Þar dundaði hann við að skoða í smásjá lirfur kross- físka en þær eru gagnsæjar og því auðvelt að fylgjast með því sem fram fer inni í kvikindunum. Þegar hann sá frumur á flakki fram og aftur um lirfurnar kom honum í hug að ef til vill væru þessar frum- Mr vamarlið hins litla líkama. Hann potaði örsmáum rauðum litarkorn- um inn í lirfurnar og flökkufrum- umar bragðu við skjótt og gleyptu litinn. Hann gaf þeim nafnið át- frumur og með margvíslegum til- raunum komst hann að því að hvítu blóðkornin í æðum og vefjum manna og annarra lífvera eru líka eftir Þórarin Guónason Tolstoj (t.v.) og Metsjníkov. átframur sem gleypa í sig aðskota- dýr eins og bakteríur og annað ill- þýði. Ef maður stingur sig á þymi eða særist af eggvopni komast sýklar inn í holdið, það bólgnar og eftir nokkra daga safnast gröftur kringum þyrnisoddinn eða í skurð- inn eftir hnífínn. Gröfturinn er aragrúi af hvítum blóðkomum sem liggja dauð í valnum eins og falln- ir liðsmenn eftir orastu. Þau hlýddu kallinu sem átfrumur, grönduðu sýklum og fórnuðu lífi sínu fyrir sigur föðurlandsins. Þetta var stórkostleg uppgötvun sem kom eins og fagnaðarboðskap- ur í kjölfar uppljóstrana þeirra Pasteurs, Listers, Kochs og ann- arra stórspámanna bakteríuvís- inda. Efnafræðingurinn Pasteur kunni líka að meta framlag dýra- fræðingsins Metsjníkovs og bauð hann velkominn til starfa í stofnun sinni í París. Þar vann hann til dauðadags 1916 og stjómaði Pasteur-stofnuninni þegar upp- hafsmaður hennar var fallinn frá. Árið 1908 hlaut Metsjníkov læknis- fræðiverðlaun Nóbels ásamt Paul Ehrlich sem bjó til sárasóttarlyfið salvarsan. Þegar Tolstoj var rúmlega átt- ræður heimsótti Metsjníkov rithöf- undinn aldna á aðalssetri hans Jasnaja Poljana. Gesturinn lýsti þeirri heimsókn síðar og gefur í skyn að erindi hans hafí einkum verið að ræða við skáldið um af- stöðu þess til vísinda og þá ekki síst þeirra sem snertu heilsu- og læknisfræði. Tolstoj hafði á efri áram talað og skrifað um læknis- fræði af mikilli andúð og skilnings- leysi á þeim tilraunum og rann- sóknum sem að flestra dómi vora að leiða lækningar út úr þoku hindurvitna og fáfræði liðins tíma: „Læknisfræði vorra daga,“ skrifar hann í dagbók sína „gerir að líkind- um meira tjón en gagn“. Hann tók samt vel á móti Metsjníkov en ræddi ekki við hann um alvarleg málefni meðan aðrir heyrðu til heldur bauð honum að aka með sér í litlum hestvagni út í sveit og í þeirri för losnaði um málbeinið á skáldinu. „Þeir hafa mig fýrir rangri sök,“ mælti hann „sem telja mig hatast við bæði trú og vísindi. Sannleikurinn er sá að ég er trúað- ur en er á öndverðum meiði við kirkjuna sem afskræmir sanna trú. Sama máli gegnir um vísindi. Ég dáist að sönnum vísindum sem styðja að velferð manna og ham- ingju en gef lítið fyrir hin sem leggja allt kapp á að fræðast um stærð og þyngd tunglanna um- hverfís Satúmus og annað álíka þarflegt." Vel fór á með þeim félög- um og komust þeir að sameigin- legri niðurstöðu um að annar væri efnishyggjumaður en hinn trúmað- ur, og þar við sat. Þegar heim kom var tekin myndin sem fylgir þess- um línum. þjóða skjóta eftir settum reglum undir vissum kringumstæðum. Það er fætt í heim græðginnar og hatursins. Það skynjar enga ást, aðeins harm, þó er það saklausara en hið saklausa og langar aðeins til að sjúga bijóst. Það langar til að drekka dísæta mjólkina en móðurtilfínningin hef- ur verið troðin undir jámhæl valds- herranna miklu. Móðurástinni var eytt í nauðgunarbúðum heimsins og ættfólk bamsins trúir í blindni á siðareglur og boð og bönn trúar- setninganna. Ástin á engan stað í hjörtum mannanna. Hatrið ríkir eitt. Hijúfar og ókunnar hendur taka barnið og einhver gengur með það undir viðsjárverðan himin. Barnið er kalt og hungrað í mjólk ástarinnar. Það er einmana undir af- skiptalausum himni. Það hefur numið óttann, ugginn og angistina. Það grætur af öll- um lífsins og sálarkröftum en eyru mannanna era lokuð fyrir sakleysinu. Barnið reynir að sjá hver ber það út en augun láta ekki að stjórn og skothríð í fjarska truflar athygli þess. Og það sér ekki heldur sjónvarpstökumann- inn sem festir það á fílmu til að flytja heiminum nýjar og ferskar fréttir af sigurgöngu mannskepnunnar á jörðinni. Bamið skelfur. Utburðar- maðurinn gengur með það hæfilega langt til að hinn óþægilegi grátur berist ekki neinum til eyrna. Það er skilið eftir á ör- æfum mannlegrar um- hyggju. Hulið blindum augum. Krafa bamsins er þó einöld og skýr: Að fá að drekka mjólk í heitu móðurfangi. Enginn réttir því hjálparhönd. Morðingjar skipu- lögðu dauða þess í smáatriðum og út um víða veröld horfa mennimir þegjandi á. Máttur bamsins fer þverrandi. Gráturinn fjarar út. Myrkrið grúf- ir yfír. Tómið er móðir þess og myrkrið faðir. Sterkur ljósgeisli beinist skyndilega að barninu og það sér stjörnu í huganum. Það ímyndar sér að það sé meðal vina og brosviprar sjást andartak á andliti þess. Ástin bærist í smáu bijóstinu. Það langar til að gefa, þiggja og þakka. En sjónvarp- stökumaðurinn slekkur á ljóskast- aranum og flýtir sér í burtu. Stjarnan hrapar og í morgunskím- unni kemur e.t.v. einhver og gref- ur litla holu. m Félagsmálapakki VALS Vilt þú vera virkur í íþróttafélagi án þess að svitna mikið? Knattspyrnufélagið Valur býður upp áýmsa valkosti: BRIDGE: Hið árlega Valsmót í tvímenningi í bridge verður haldið í mars; tveggja kvölda mót, sem verður nánar auglýst síðar. Áhuga- menn um reglulegar bridgeæfingar á vegum félagsins skrái sig hjá húsvörðum. Nú er bara að láta slag standa og vera með. DANS: Á hverju þriðjudagskvöldi kl. 21.00 er dansæfing þar sem Henný Hermanns kennir samkvæmisdansa. Henný hefur það á orði að það sé gaman að kenna Vals-mönnum vals... GETRAUNIR: Á laugardögum frá kl. 10.00-13.00 er tilvalið fyrir tippara lýð- veldisins að mæta á Hlíðarenda, því þá starfar getraunanefnd félagsins. Enska knattspyrnan, tölvukerfi, kaffi og kökur. PÍLUKAST: Á mánudagskvöldum frá kl. 20.00 er stundað pílukast undir stjórn íslenska pílukastfélagsins. Samhæfing hugar og handar er allt sem þarf. Skemmtilegt sport. TÓNLIST: Einu sinni í viku eru opnir tónfundir með Valsbandinu. Hljóð- færaleikarar, söngvarar og áheyrendur eru velkomnir. Fyrst var það Guðjón, svo Ragga. Hvaða óslípaði demantur verður uppgötvaður næst? SKÁK: Fyrsta fimmtudagskvöld í hverjum mánuði eru skákæfingar undir leiðsögn traustra manna. Taktu taflið og skákklukkuna með. KÓR: Næsta haust hitnar enn í kolunum, því þá fer Valskórinn af stað. Fylgist vel með frekari auglýsingum um málið. ALLAR ofangreindar uppákomur eru í Valsheimilinu að Hlíðarenda. ÞÆR ERU OPNAR ÖLLUMl Knattspyrnufélagið Valur, simar 12187 og 11134.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.