Morgunblaðið - 07.03.1993, Page 8

Morgunblaðið - 07.03.1993, Page 8
8 B -Sr.VA’fe WfiWÁVViMrýÚfe VttákrWfi&rólfitftNi' _ MORGUNBLAÐIÐ SÚNNUDAGUR"7. MARZ 1993 1902 Sögufélagið stofnað. 1922 Ráðuneyti Sigurðar Eggerz skipað. 1929 Einar Árnason skipað- ur fjármálaráðherra. 1930 Útvegsbankinn stofn- aður. 1933 d. Stefán frá Hvítadal. 1954 Áburðarverksmiðjan tekur til starfa. 0 0 0 0 1274 d. Tómas frá Aquino, ítalskur heim speking- ur og guðfræð ingur. Höfundur Summa Theo- logiae og fremsti fulltrúi skóla speki miðalda. 1714 Friðurinn í Rastadt (Ra- statt). Austurríkis menn og Frakkar kom ast að samkomulagi og staðfesta Utreecht-sátt- málann, sem batt enda á spænska erfða stríð- ið. 1912 Frakkinn Henri Seimet flýgur fyrstur manna í einum áfanga frá Lond- on til Parísar, á þrem- ur klukkustund um. 1926 Fyrsta símtalið milli New York og London. 1941 Bretar ráðast inn í Abyssiníu (Eþíópíu). 1945 Bretar sækja til Mand- alay í Burma. 1963 Fyrsta heimsókn opin- bers fulltrúa Sovét- stjórnarinnar í Páfa- garði. 1971 Svissneskir karlar sam-þykkja að veita konum kosningarétt. 1974 Austur-Þjóðverjar og Vestur-Þjóðverjar ákveða að skiptast á sendiherrum. AFMÆLISDAGAR Josephe Niepece 1765. Franskur læknir og upphafs- maður Ijósmyndunar. Varð fyrstur manna til að festa mynd á Ijósnæma plötu 1826. Edwin Landseer 1802. Enskur myndlistarmaður, kunnur fyrir dýramyndir og stytturnar af Ijónunum á Trafalgartorgi í London. Tómas Masaryk 1850. Aðal- stofnandi og fyrsti forseti Tékkóslóvakíu, 1919-1935. Maurice Ravel 1875. Franskt tónskáld, höfundur Rapsodie Espagnole og Bolero. Ernest Bevin 1881. Leiðtogi Sambands brezkra flutninga- verkamanna (TGWU) og verka- lýðsmálaráðherra Churchills. Utanríkisráðherra 1945-1951 og einn aðalforvígismaður vest- rænnar samvinnu. Helgi Þorgils Friðjónsson 1953. Listmálari sem hefurvak- ið athygli fyrir sérstæðan og afar persónulegan stíl. Fær einkaleyfi á talsíma 1876Uppfinningamaður af skozkum ættum, Alexander Graham Bell, fékk í dag einka- leyfi á nýju tæki, sem valda mun byltingu — svokölluðum talþræði eða talsíma. Bell er heyrnleysingjakennari í Boston o g komst að lögmálum uppfínn- ingar sinnar í fyrra. Síðan hef- ur honum fyrstum manna tek- izt að sýna fram á hvemig Skothríd á þakí heimsins 1989Kínverskar öryggissveitir skutu á tíbezka munka og borgara í borginni Lhasa á „þaki heimsins" í dag. Tólf voru felldir samkvæmt opin- berum tölum, en mörg hundr- uð að sögn vestræns heimild- armanns. Hundruðum hefur verið varpað í fangélsi. Skot- vopnum hefur verið beitt gegn andófsmönnum síðan þeir efndu til mótmæla í fyrradag og minntust uppreisnarinnar gegn Kínveijum í Tíbet fyrir 30 árum. Átökunum er ekki lokið. Kínverjar líta á Tíbet sem kínverskt hérað, en Tíbet- ar hafa barizt fyrir sjálfstæði síðan 1985. Kínveijar hafa aldrei brugðizt eins harkalega við og nú og afstaða þeirra lofar ekki góðu fyrir hreyfingu lýðræðissinna í Peking. nýta má rafstraum til þess að flytja hljóð. Að hans sögn verð- ur hægt að senda boð langar leiðir með málmþráðum eða símalínum. Hugsazt getur að hægt verði að gera þetta nýja tæki að verzlunarvöru og ef það reynist rétt getur Alexander Graham Bell orðið stórríkur á uppfinningu sinni. Ný tónlist frá Nýja heiminum 1917Ný tónlist með „sveiflu" varð til í Bandaríkjunum í dag. Hún nefnist jazz og er hljómlist blökkumanna, en Dixieland- jazz frá New Orleans sam- kvæmt nákvæmari skilgrein- ingu. Victor-fyrirtækið hefur gefið út fyrstu grammófóns- plötuna með músík af þessu tagi. Platan var tekin upp í New York, nefnist The Dixieland Jazz Band One-Step og flytj- endur eru Nick La Rocca og hljómsveit hans, Original Dixie- land Jazz Band. Tónlistarmenn- irnir eru frá New Orleans og allir hvítir, en hafa lært að spila með aðferð, sem þeir hafa lært af blökkumönnum borgar- innar. Marzakóngurinn John Philip Sousa telur að þessi nýstárlega tónlist eigi framtíð fyrir sér. „Jazzinn mun stand- ast tímans tönn,“ segir hann, „svo lengi sem menn hlusta á hann með fótunum, en ekki heilanum." Nokkur bið verður á því að svartir tónlistarmenn geti spilað tónlist sína inn á grammófónsplötur, því að til þess verða þeir að fara til New York eða Chicago. án orða -- er ekki úr bók og fylgir sérstaklega. Rfnarhér- Hðin á valdi Hitlers 1936 Hitler hefur sent herlið inn á vopnlausa svæðið á aust- urbakka Rínar í trássi við Ver- salasamninginn 1919 og ibú- arnir fagna komu þýzku her- mannanna. Frakkar vilja taka í taumana til þess að varðveita jafnvægi í Evrópu í samræmi við Locarno-sáttmálann, en hik hamlar aðgerðum. Stjórn Baldwins í Bretlandi vill ekki styggja Þjóðverja eftir nýgerð- an flotasamning, sem heimilar þeim að koma á fót öflugum sjóher. Bretar og Frakkar hafa verið með allan hugann við árás ítala á Abyssiníu og vilja halda vinfengi Mussolinis, sem hefur reiðzt refsiaðgerðum Þjóða- bandalagsins. Bretar segja að Þjóðverjar hafi aðeins „skropp- ið út í bakgarðinn“ og líkur á franskri íhlutun dvína stöðugt. Þjóðabandalagið er máttlaust og Frakkar setja traust sitt á Maginot-línuna. Hitler hefur styrkt vesturlandamærin og getur snúið sér í austur. Astandið er ótryggt. 1 JRMgtUlMlllNO' 1,0.0 II. ikl. - r. n«... IIU rnmtmmUt, M..f»kUU«. 5jón l'órðarson frambjóbandi álfstæðisfíokksins i Dalasýslu ..’XDAnMCNN .( (ilM!U.mlðk Slil(UK<i.m.nn. 1 Dalatfalu (J.lr ikSmmn íkv.aui (r.mboJ (lokk. iln, | Mrtlmu vll . .IblnfkikoMiinf.r. Var bar nmbjkkl nð (.>• bcu i ■4 rrWfa Mríaiwn töff.mðlnf. .0 fcl. luMiiir til Inm- Kr(ur huw 0,6,4 vM bcirri tek. — A«u> h.(4> ba»Ulnn rinuon .ý.lunuSur, >■ uin lanft >kc,4 v.r binfmaiur D.I.- Malenkoi i eftirmoður Stulins Miklar breytin&ar gerð- ar á stjórn Rússlands 1 Hnkata.jU III Mkl. Iri NT»-Wrr.: /nOSKVV, C man: — Klukkan (IJ* 1 daf rtUr tai. tbna tUkjltatl rifharr. Rúmta.d. MUr ttalta.: Mmltatta kMa >mmr •tMur hlnnar .>]. tajinúr. Vwta»ll« nnnkitaK tal« mm mm. ADVH llR DALASfSLU „buUUf i r.lU.tr4nd, h,n wuar tr,4 IKS. Er tuiu, þ, •«• |,rltufur .6 .Idri. kui THo III Englands 16. man TilM til Eniland*. 1 boðl ciuku NTB-Reutcr. Heimsækja Washinglon .VASHINOTON. C. nurx — Ad- | ny (ALCNKOV, hinn .jtklb>i alda taun úntraUaUlaltakk, riu.nl 1M3 o, hrlur .tanli Hcnn trhnr vlf tankmtu U NikWal Sv.rnUÍ., Matatar taknr d* »(l.r vtf tann f.mta rniWtU - ta**n gUatlktarífmrrx. Bmta 'taknr vtf.mhmtll Innanrtkta/iahrrr. H («r J.I.Inml ml NJ*r» ————————“• VCICAMINNI J Greinarffokkuc KM^.!tah^7»^í£^J um friðormálin 'u™ vuuSS taw u •mMrttl utanriktarifk.tr. na I DAG blrttat i bta. 1. innur vrrfur |tan> 1 MnS tUUtu- J..UU 1 frvtaannkkl tan ,Lu,i,|taltar,i «f__ta(n- ilrfnur". — H.fundtan b*rf nnnn. Bulfanta mankiUinn ura luiraduin, rn 1 ft.taum Í'/.T n Udfnfur afalrltarl bruum neilr hann frlf jntcln ndtata rikta. . lllLu kTbktara m ÍT.f; UMI. *° rUNDARLOKUM Fridjón og Malenkov á forsíbu 1953 Á forsíðu Morgunblaðsins fyrir fjörutíu árum, 7. mars 1953, eru tvær myndir, annars vegar af Friðjóni Þórðarsyni lögfræðingi og hins vegar af Andrei Malenkov, eins af helstu forystumönnum sovéska kommúnistaflokksins. Myndin af Frið- jóni fylgir frétt blaðsins um framboð Sjálfstæðisflokksins í Dalasýslu þar sem Friðjón hafði ákveðið að gefa kost á sér, en hann átti síðan eftir að sitja á þingi fyrir Sjálfstæðisflokk- inn um árabil. Hins vegar greinir Morgunblaðið einnig frá því á forsíðu að Malenkov hafði verið skipaður eftirmaður Stal- íns, sem þá var nýfallinn frá-og raunar eru fleiri fréttir á forsíðunni þennan dag tengdar andláti Stalíns. Her Bandamanna sækir yfir Rín 1945Nákvæmlega níu árum eftir að Hitler hernam Rinarhéruð- in og gerði heimsstyijöld óumflýjanlega hafa Bandaríkjamenn náð á sitt vald hemaðarlega mikilvægri brú yfír Rín fyrir hreina tilviljun og hafið sókn inn í Þýzkaland. í fyrradag sótti 1. banda- ríski herinn til Kölnar og þegar skriðdrekasveit kom til Remagen í dag reyndist Ludendorff-brúin óhreyfð- Þjóðveijar höfðu verið of seinir að átta sig á því að bandarískir skriðdrekar nálguðust og tvær tilraunir til að sprengja brúna í loft upp fóru út um þúfur. í kvöld streymdi herlið Bandamanna yfír brúna við Re- mag en og reynt er að tryggja yfirráð yfir fleiri stöðum, þar sem auðvelt er að komast yfir fljótið. Um leið sækir sovézkt herlið til Berlínar, en Bandaríkjamenn einbeita sér að því að ná undir sig Suður-Þýzkalandi, þar sem talið er að nazistar muni veijast til síðasta manns í fjöllunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.