Morgunblaðið - 07.03.1993, Side 17
B 17
____________________________MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993
AF SPJÖLDUM GLÆPASÖGUNNAR/Þar sem Melvin David Rees var dæmdur fyrir glæpi
í einu ríki komst hann undan dauðadómnum í Virginíu. Hann var því dæmdur í ævilangt
fangelsi og var þegar síðast fréttist í fangelsi skammt frá Springfield í Missouri-ríki.
KVENNAMORÐIN
Á ÞJ ÓÐVEGINUM
SVO virðist sem kynferðisleg brenglun hafi leitt Melvin
David Rees út á glæpabrautina, en hann skildi eftir sig
blóði drifna slóð um austurströnd Bandaríkjanna, þar sem
konur urðu einkum fyrir barðinu á honum. Aðferðin var
yfirleitt sú sama: Hann þvingaði bifreiðir á þjóðvegum til
að stöðva, og neyddi svo konur, sem í þeim voru, til samræð-
is við sig, og myrti þær síðan.
Melvin
David Rees
með dans-
meynni
Patriciu
Routt, en
reyndar
kemur hún
ekkert við
sögu i
morðmál-
um Rees.
Melvin David Rees, sem
stundað hafði nám í
Maryland-háskóla árið
1953, var handtekinn 12. mars
1955, sakaður um líkamsárás eftir
að hafa reynt að neyða 36 ára konu
upp í bíl sinn. Konan féll síðar frá
ákæru.
Rees settist síðan að í kjallara í
mannlausu húsi í nánd við Anna-
polis í Maryland-ríki í Bandaríkjun-
um. Hann þakti veggina með klám-
myndum, og hengdi þar einnig upp
mynd úr árbók Maryland-háskóla
af Wanda Tipson, sem lauk loka-
prófí frá háskólanum árið 1955.
26. júní 1957 var Rees á ferð í
grænni Chrysler-bifreið skammt frá
Annapolis og fór þá fram úr bifreið
sem Margaret Harold var farþegi
í. Rees neyddi ökumann bifreiðar-
innar til að aka út af, og með
skammbyssu að vopni ruddist hann
inn í aftursæti bifreiðarinnar. Þegar
Margaret missti stjórn á sér af
hræðslu skaut Rees hana í höfuðið.
Okumaður bifreiðarinnar, liðþjálfí
úr hernum, stökk í flýti út úr bif-
reiðinni og hljóp á brott eftir króka-
leiðum til að forðast að verða fyrir
skoti. En Rees skaut ekkert á lið-
þjálfann. Eftir nærri tveggja kíló-
metra hlaup kom liðþjálfinn að
bóndabæ þar sem hann kom við til
að hringja í yfirvöld í Annapolis.
Lögreglan kom á vettvang og fann
lík Margaret Harold í bílnum.
Hálfu öðru ári síðar var Rees
akandi í Virginíuríki. Hann
stillti á háu ljósin og ók rétt á eftir
öðrum bíl. Þegar hinn bíllinn, sem
vörubílstjórinn Carroll Jackson ók,
jók ferðina eða hægði á sér gerði
Rees það einnig. Svo jók Rees ferð-
ina og ók upp að hlið bifreiðar Jack-
sons. Jackson, sem var 29 ára, dró
úr ferðinni og Rees ók fram fyrir
Jackson og neyddi hann til að nema
staðar. Jacksoh fór út úr bílnum,
en skildi konu sína, Mildred, og
dæturnar Susan, fjögurra ára, og
Janet, átján mánaða, eftir í bílnum.
Rees kom út úr bifreið sinni og
hljóp til Jacksons vopnaður skamm-
byssu. Rees skipaði fjölskyldunni
að koma út úr bílnum, batt hand-
leggi Jacksons með herrabindi, og
skipaði fjölskyldunni að fara inn í
skottið á bíl sínum. Daginn eftir
fann ættingi Jacksons, frú H.M.
Ballard, bíl Jacksons og gerði Will-
is E. Proffitt lögreglustjóra viðvart.
Bremsuför eftir bifreið Rees fund-
ust, og þar hjá veski Mildred Jack-
sons, bíllyklar og dúkkur.
4. mars fannst lík Carrolls Jack-
sons á vegabrún nálægt Fredericks-
burg í Virginíu. Jackson hafði verið
skotinn í höfuðið, og dóttir hans
Janet hafði kafnað eftir að Rees
hafði stungið henni undir lík föður
hennar. Nokkru síðar voru tveir
piltar að leik skammt frá árásar-
staðnum og fundu þar hárlokk.
Þeir létu lögregluna vita, og hún
fann lík Susan Jacksons, sem hafði
verið höfuðkúpubrotin. Móðurinni,
Mildred Jackson, hafði verið nauðg-
að, og hún síðan kyrkt og barin til
bana. Lögreglunni tókst að rekja
morðin til kjallarans í Annapolis,
en þar höfðu fundist samskonar
hnappar og voru á kjól frú Jackson.
Eftir mikla umfjöllun í fjölmiðlum
fékk lögreglan margar ábend-
ingar frá borgurum sem höfðu tek-
ið eftir dularfullum náunga í grænni
eða blárri Ford-bifreið. Lögreglan
fékk einnig bréf frá manni 'í Nor-
folk í Virginíu, sem sagði að Rees
hefði myrt Jackson-fjölskylduna og
Margaret Harold. Með fylgdi lýsing
á Rees. Bréfritari kvaðst hafa verið
með Rees þegar Margaret Harold
var myrt, og að Rees hefði verið á
amfetamíni. Þegar bréfritarinn fékk
síðar bréf frá Rees póststimplað í
West Memphis í Arkansas lét hann
lögreglu vita. Lögreglan fann Rees
þar sem hann var að selja píanó í
hljómtækjaverslun. Rees var hand-
tekinn sakaður um flótta undan
ákæru um morðið á Margaret Har-
old.
Rees varstillt upp til sakbending-
ar ásamt fleirum hjá lögreglunni,
og þar þekkti liðþjálfinn, sem ekið
hafði Margaret Harold, hann. Full-
trúar Alríkislögreglunnar gerðu
húsleit heima hjá foreldrum Rees
og fundu þar skammbyssu í kassa
undan saxófóni uppi á háalofti.
Þeir fundu einnig mynd af Mildred
Jackson, sem klippt hafði verið út
úr dagblaði, og áfast við myndina
var texti sem hljóðaði svo: „Gripin
á fáförnum vegi ... eftir að hafa
stöðvað þau var miðað á þau byssu
og þeim skipað að fara út úr bílnum
og inn í skott á bíl sem eiginmaður-
inn opnaði og bæði bundin ..." Frek-
ari rannsókn tengdi Rees við morð-
in á Shelby Jean Venable, 16 ára,
og Mary Elizabeth Fellers, 18 ára,
en lík þeirra höfðu fundist í ám í
Maryland. Hann tengdist einnig lík-
amsárásum og morðum á Ann Ry-
an, 14 ára, og Marie Shomette, 16
ára, skammt frá Maryland-háskól-
anum.
Eftir að Rees hafði verið fundinn
sekur og dæmdur til ævilangrar
fangelsisvistar árið 1961 í Balti-
more, var hann sendur til Virginíu
til að svara til saka varðandi morð-
in á Jackson-fjölskyldunni. Þar var
hann einnig fundinn sekur og
dæmdur til dauða. Þar sem Rees
var dæmdur fyrir glæpi í fleiri ríkj-
um komst hann undan dauðadómn-
um í Virginíu. Síðast þegar fréttist
var hann í fangelsi skammt frá
Springfield í Missouri-ríki.
Brids
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsfélag Breiðfirðinga
Hafinn er barómeter með þátttöku
34 para.
Staðan eftir 5 umferðir:
HallgrimurHallgrimsson - Sveinn Sigurgeirss. 107
Sveinn R. Þorvaldsson - Páll Þ. Bergsson 101
Júlíus Thorarensen - Ingvi Guðjónsson 69
AlbertÞorsteinsson-KristóferMapússon 63
Ingibjörg Halldórsd. - Sigvaldi Þorsteinsson 49
Sævin Bjarnason - Hjördís Siguijónsd. 45
Jón ViðarJónmundsson - EjjólfurMagnússon 42
Sturla Snæbjörnsson - Helga Bergmann 39
Bridsfélag Reylgavíkur
Nú er búið að spila í fimm kvöld
af sex í aðalsveitakeppninni og hefir
Tryggingamiðstöðin nokkuð vænlega
stöðu, hefir hlotið 197 stig af 250
mögulegum og 16 stigum meira en
sveit Glitnis sem er í 2. sæti.
Staðan:
Tryggingamiðstöðin 197
Glitnir 181
Hrannar Erlingsson 176
Símon Símonarson 176
Gunnlaugur Kristj ánsson 170
Landsbréf 170
í elleftu umferð spila m.a. saman:
Tryggingamiðstöðin gegn Gunnlaugi
Kristjánssyni. Glitnir gegn Símoni
Símonarsyni. Hrannar Erlingsson
gegn Landsbréfum.
Utsala — Utsala
Traktorsvagnar - sturtuvagnar
5 tonna. Verð aðeins kr. 239.600 m/vsk. Örfáir vagnar.
Hannaðir og smíðaðir fyrir íslenskar aðstæður. Varahluta-
þjónusta fyrir alla okkar framleiðslu.
Allar gerðir af kerrum, vögnum og dráttarbeislum.
Veljum íslenskt.
VÍKUR- VA GNAR,
Dalbrekku 24, símar43911 og 45270.
Fyrirlestur um
UMHVERFISMAT
- framkvmd og próun -
Briatl D. Clark, framkvæmdastjóri
CEMP (Miðstöð fyrir umhverfisstjómun og
skipulag) í Aberdeen verður með opinn
fyrirlestur í Odda, stofu 101,
kl. 2030 mánudaginn 8. mars.
Skipulag ríkisins
Umhveifisráðuneytið
Hefur bú skoðað afsláttarstandinn í Pelsinum?
40%
afsláttur
DÆMI UM ÞESSA VIKU:
Minkapelskápur og jakkár,
pelsfóðurkápur og jakkar,
kasmírkápur, ullarkápur,
leðurkápur og jakkar.
Greiðslukjör við allra hæfi.
Fallegur fatnaður frá
PEISINN
Kirkjuhvoli • sími 20160
4