Morgunblaðið - 07.03.1993, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
VELVAKANDI - ■
•g iwBbM 1
SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993
a
B 25
uu
Morgunblaðið/RAX
„Ólíkt hafast
þau að...“
Nú, eftir að snjóa fór að
leysa, má búast við að þeim
fjölgi á götum bæjarins sem
stunda skokk sér til
heilsubótar. Þó hafa ekki allir
látið ófærð hamla því að þeir
sinni þessari iðju sinni, því í
hríðarbyl og frosti mátti
stundum sjá fólk hlaupandi
með veðrið í fangið. Enn aðrir
stunduðu skíði og svo var
skautasvellið á Tjörninni vel
nýtt, jafnt af ungum sem
öldnum.
En áhugamál manna eru jafn
misjöfn og þeir eru margir
og sumir láta bara fara vel
um sig og aðra sjá um erfiðið.
Sendibréf frá blindri konu
Frá Ingibjörgu Jóhannsdóttur:
HEILIR og sælir hollvinir mínir.
Hugur minn gleðst ætíð þegar ég
minnist ykkar. Ég er aiin upp í
faðmi norðlenskra fjalla, unnandi
landi og þjóð líkt og þið munduð
gera. Ég hefí nú dvalið þijú ár og
fimm mánuðum lengur á aðhlynn-
ingarheimilinu Skjóli hér í Reykja-
vík. Notalegt er að vita að hér er
hjúkrunarlið sem leysir hlutverk
sitt af höndum með hlýju og skiln-
ingi. Við Skjólveijar eigum hér líka
prest sem fylgist með okkur á gleði-
og alvörustundum líkt og góðar
mæður gera. Margbreytileg glað-
værð drepur hér oft að dyrum, telja
má að fimmtudagar séu hér aufúsu-
gestir. Þá eru ýmist sýndar kvik-
myndir eða skuggamyndir til
skemmtunar, ellegar aldraða fólkið
í húsinu mælir sér mót til við-
ræðna. Þar fjúka oft kviðlingar og
kímnir bragir, hlegið dátt og sagðar
furðusögur, en þið megið nú ekki
anda, líkt og á sér stað á dansleikj-
um nútímans? Það má vera
skemmtilegur glymjandi eða há-
reisti svo ég taki það fram yfir
þagnar- og kyrrðarstundir.
Vinur minn, ef þú ert þjáður af
áhyggjum og lífsleiða þá gakktu á
fund þagnarinnar. Ef einlægur
bænarandi umvefur þig þar örmum
sínum þá er þér borgið. Hann er
fær um að tengja þig við orkustöð
lífsins, gefa þér gleði og ljós inn í
sálina sem getur lýst þér á öllum
vegum og leiða þig fram hjá mörg-
um torfærum. Einu sinni fyrir
mörgum árum lá ég magnþrota á
gólfí í svefnherbergi mínu að nóttu
til. Ég bað um hjálp og mér var
lyft upp í rúmið mitt svo ég dó
ekki úr kulda. Þannig getur andi
bænarinnar bjargað okkur.
Ég ætla annars að segja þér frá
nokkru öðru sem gleður mig.
Blindrafélagið hér í Reykjavík hefur
í hyggju að hefjast handa á næst-
unni með útgáfu hljóðsnældutíma-
rits. Það verða aðeins þtjár hljóð-
snældur gefnar út á ári í sambandi
við sumarmál, vetrarkomu og jól.
Þar fáum við að kynnast hugsunum
þroskaðra innlendra og erlendra
mannvina sem vilja að við lifum líf-
inu lifandi. Þar verða frásagnir um
menn sem unnið hafa sigra á sjálf-
um sér. Þetta tímarit verður okkur
bæði til gagns og gamans.
Gerið sjálfum ykkur og blindrafé-
laginu greiða með því að gerast
áskrifendur. Það er nauðsynlegt
fyrir væntanlega útgefendur að vita
sem fyrst vilja landsmanna í þessu
máli. Ég þakka þér fyrir komuna
hingað vinur minn og megi það
besta sem býr í þér og þínum vaxa
til blessunar fyrir land og lýð.
INGIBJÖRG JÓHANNSDOTTIR
frá Löngumýri,
Skjóli, Reykjavík.
Útveggir
- erum við á réttri leið?
Á ráðstefnunni um útveggi munu heistu
sérfræðingar flytja erindi um málefnið.
Hún verður haldin að Holiday Inn, 11.-12.
mars nk. Þeir sem tengjast byggingum og
byggingariðnaði á einhvem hátt láta ráðstefnuna
og sýninguna um útveggi ekki fram hjá sér fara.
Útveggir, nýbyggingar, viðhald endurbygg-
ingar, verkefni næstu ára.
Sjá nánar aug’lýsingu á bls. 11B
FAGOR FE83
Magn af þvotti 4,5kg
Pvottakerfi 17
Þeytivinda 850/500
Afgangsraki 63%
Hitastillir *-90°C
Rúmmál tromlu 42 1
Hraðþvottur o
Áfangaþeytivinda o
Sjálfvirkt vatnsmagn o
Hæg vatnskæling o
Bamavemd o
Hljóðlát o
FAGOR
KYNNINGARVERÐ
GERÐ FE83 - STAÐGREITT KR.
45900
KR. 47990 - MEÐ AFBORGUNUM
RÖNNING
SUNDABORG 15
SÍMl 68 58 58
Blessuð laugin
halda að við séum með nein ólæti
héma, því við hegðum okkur yfir-
leitt heldur skikkanlega. Vikulega
era hér helgistundir á þriðjudögum
hjá prestinum okkar og bænastund-
ir á föstudögum í kapellunni fyrir
þá sem það kjósa, glæða vissu okk-
ar um að tvöfalda kærleiksboðorðið
er þýðingarmest allrar kenningar.
Þess vegna biðja hér öldruð bæna-
böm á hljóðum stundum öllum
blessunar sem í húsinu dvelja.
Viltu sýna mér þá vinsemd lesari
góður að bregða þér í andlegt ferða-
lag um stund og heimsækja mig?
Jæja, þú ert þá kominn, það er
ágætt. Ég býð þig velkominn og
vísa þér til sætis annað hvort á stóli
við hliðina á mér ellegar þá á gamla
koffortinu sem hún amma mín átti
sem stendur hér við skrifborðs-
endann. Ég veit að okkur mun báð-
um finnast leiksviðið litbrigðaríkt
þar sem mannsbamið teflir sína
örlagaleiki. Kaldur vetrarvindur
æðir um fasmikill úti fyrir og kveð-
ur við raust en við látum það okkur
engu skipta og göngum rakleitt í
sólvermda sumardaga liðinna ára.
Hvað hafa þessir dagar fært þér?
Þú íhugar svarið. Ég er á þessum
dögum þakklát fyrir gjafir þeirra
fyrir alla fegurðina, sem þeir hafa
sýnt mér bæði í ríki náttúrunnar
og fögmm listaverkum huga og
handa en hvaða gjafir flytur okkur
hinn dimmi dagur þá rökkva tekur?
Mér hefur aldrei fallið illa við
skammdegið þar hefur að baki mér
staðið sólskin frá liðnu sumri en
framundan beðið blessunarrík ljós
jólanna sem ég hlakkaði til að sjá.
Myrkrið getur líka fært mér mikla
fegurð í tali og tónum og andlega
snertingu við hugsanir göfugra
manna. Heldur þú að maður geti
hugsað nokkuð annað en yfirborðs-
hugsanir í mikilli háreisti eða glymj-
Frá MaríuSkagan:
Á SÍNUM tíma skrifaði ég nokkrar
greinar í dagblöð. Fjölluðu þær um
brýna nauðsyn þess að byggð yrði
sund- og æfingalaug hér við hús
Sjálfsbjargar að Hátúni 12. Enn-
fremur skrifaði Kristín Ema Guð-
mundsdóttir, yfirsjúkraþjálfari, hér
afbragðs góða grein um sama efni
í Sjálfsbjargarblaðið. Birtist út-
dráttur úr þeirri grein einnig í dag-
blöðum. Þessu ákalli um utanað-
komandi hjálp var ótrúlega vel tek-
ið af öllum almenningi þar með
talinni Hjálparstofnun kirkjunnar.
Hófst þegar mikil almenn söfnun í
byggingarsjóð laugarinnar, sem
vissulega var til staðar, enda hug-
myndin ekki ný og áður búið að
steypa gmnn, er reyndist alltof lít-
ill þegar til framkvæmda kom.
Tókst söfnunin svo vel að 22.
mars árið 1981 var blessuð laugin
vígð. Verður gefendum, sem gerðu
þennan draum að veraleika, aldrei
þakkað svo sem vert væri. Bið ég
þeim öllum allar blessunar og gæfu.
Við eram allnokkur hér í húsinu,
sem með dyggri og góðri aðstoð
getum notað laugina tvisvar í viku
okkur öllum til blessunar og bóta.
Verður starf hjálparfólks og sjúkra-
þjálfara aldrei metið að verðleikum.
Eg segi fyrir mig, að það sem ég
þó er, á ég lauginni að þakka, án
hennar væri ég vísast komin í kör.
En sem betur fer eiga ótal margir
aðrir lauginni mikið að þakka. Er
einkar ánægjulegt til þess að vita,
að fjöldi fatlaðra barna viða að úr
skólum kemur að staðaldri í laugina
og nýtur þeirra möguleika, sem
vatnið gefur hreyfihömluðum.
Einnig nýtur dagvistarfólk laugar-
innar svo og fjöldi fólks utan úr
bæ, sem á við ýmsa líkamlega kvilla
að stríða.
í fáum orðum sagt; laugin er
fjölda fólks lífselexír og verður gef-
endum aldrei fullþakkaður þeirra
skilningur og gjafmildi. Bið ég þeim
enn og aftur allrar gæfu og velfam-
MARÍA SKAGAN,
Hátúni 12, Reykjavík.
Pennavinir
Frá Ghana skrifar 26 ára stúlka
með áhuga á matargerð, ljósmynd-
un, ferðalögum og safnar póstkort-
um;
Patricia Mensah,
P.O. Box 49,
Oguaa Capital,
Ghana.
Belgískur piltur sem safnar póst-
kortum með landslags eða borga-
og bæjamyndum:
Luc Vanbegin,
Deschuyffeleerdreef 61,
1780 Wemmel,
Berlgium.
Átján ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist, bókmenntum o.fl.:
Aki Tsuchimoto,
516-10 Shikano-cho,
Nishiwaki-shi,
Hyogo 677,
Japan.
Frá Ghana skrifar 25 ára stúlka
með áhuga á ljósmyndun, tónlist,
skokki og ferðalögum:
Stella Andrews, .
P.O. Box 1183,
Oguaa Capital,
Ghana.
Landsbanki íslands auglýsir nú fjórða árið í röð eftir
umsóknum um NÁMU-styrki. Veittir verða 7 styrkir.
0] Einungis aðilar að NÁMUNNI, námsmannaþjónustu
Landsbanka íslands, eiga rétt á að sækja um þessa
styrki.
H[ Allir þeir sem gerst hafa félagar í NÁMUNNI fyrir
15. mars 1993 eiga rétt á að sækja um styrk vegna
þessa námsárs.
f§ Hver styrkur er að upphæð 150 þúsund krónur. Þeir
verða afhentir í apríl 1993 og veittir NÁMU-félögum
skv. eftirfarandi flokkun:
2 styrkirtil háskólanáms á íslandi, 2 styrkirtil náms
við framhaldsskóla hérlendis, 2 styrkirtil fram-
haldsnáms erlendis og 1 styrkurtil listnáms.
]U Umsóknum ertilgreini námsferil, námsárangur,
heimilishagi og framtiðaráform, skal skilað til Lands-
banka Islands eigi síðar en 15. mars næstkomandi.
§ Umsóknir sendist til:
Landsbanki íslands, Markaðssvið
b.t. Gunnbjörns Þórs Ingvarssonar
Bankastræti 7, 155 Reykjavík
L
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna