Morgunblaðið - 07.03.1993, Page 28

Morgunblaðið - 07.03.1993, Page 28
28 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993 Danslagakeppni Félag harmónikuunnenda heldur skemmtifund í dag kl. 15.00 í Templ- arahöllinni við Eiríksgötu. Bragi Hlíðberg leikur sex lög í danslagakeppni F.H.U. í Reykjavík og gestir velja bestu lögin. Hilmar Hjartarson og Guðmundur Samúelsson leika dúetta. Félagar úr Félagi harmónikuunnenda ó Suðurnesjum leika nokkur lög. Sigurbjörn Einarsson leikur einleik ó tvöfalda harmóniku. Þorleifur Finnsson leikur einleik. Síðast var uppselt - mætið tímanlega! Allir velkomnir Skemmtinefndin Tíu ára afmæli Gerðubergs MENNINGARMIÐSTÖÐIN Gerðuberg varð 10 ára 4. mars sl. og var þeim tímamótum fagnað með sérstökum hátiðartónleikum og útgáfu nýs tvöfalds geisladisks, „A Ljóðatónleikum Gerðubergs III“. Mánudaginn 8. mars kl. 20.30 verða afmælistónleikarnir endur- teknir þar sem söngvarar, sem prýtt hafa efnisskrá Ljóðatónleika Gerðu- bergs, koma fram: Anna Júlíana Sveinsdóttir mezzosópran, Bergþór Pálsson baritón, Elsa Waage kontraalt, Erna Guðmundsdóttir sópran, Hrafnhildur Guðmunds- dóttir mezzosópran, Ingibjörg Guð- jónsdóttir sópran, John Speight baritón, Ólöf Kolbrún Harðardóttir sópran, Signý Sæmundsdóttir sópr- an, Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran, Sigríður Gröndal sópran, Sverrir Guðjónsson kontratenór og Jónas Ingimundarson píanóleikari. Á þessum tónleikum eru eingöngu flutt sönglög eftir íslensk'tónskáld og er aðgangur ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Á geisladisknum „Á Ljóðatón- leikum Gerðubergs 111“ syngja eft- irtaldir söngvarar: Anna Júlíana Sveinsdóttir mezzosópran, Bergþór Pálsson baritón, Ema Guðmunds- dóttir sópran, Hrafnhildur Guð- mundsdóttir mezzosópran, Marta Guðrún Halldórsdóttir sópran, Ólöf Kolbrún Harðardóttir sópran, Signý Sæmundsdóttir sópran, Sigríður Jónsdóttir mezzosópran, Sverrir Guðjónsson kontratenór og Viðar Gunnarsson bassi. Meðleikari er Jónas Ingimundarson píanóleikari. Ríkisútvarpið hljóðritaði á tónleik- um og tónmeistari var Bjarni Rúnar Bjarnason. Á forsíðu diskbæklings er mynd af verkinu „Höfði og Mið- garðsormurinn" eftir Huldu Hákon v en ljóðaþýðingar eru eftir Reyni Axelsson. (Fréttatilkynning.) -----» ♦ ♦---- Fer ðamálafélag A-Húnvetninga Fallið verði frá að skatt- g 4 0 L2 3 NííLL^Uo .jssbss^ Hefurðu hugleitt hvemig það er að handleika þínar eigin tíu milljónir. Með skynsemi, þolinmæði og fyrirhyggju gæti það orðið að veruleika. Hafðu Sþarisjóð Hafnarfjarðar með í ráðum þegar þú leggur drög að bjartri framtíð. UPPSKRIfT AÐ TIU MILUONUM Þú leggur 15 þúsund krónur á mánuði í skipulagðan spamað í Sparisjóði Hafnarfjarðar og átt rúmar 10 milljónir að raungildi efdr 25 ár, m.v. 6% raunvexti. Þar af eru um 5,6 milljónir sem þú hefur fengið í raunvexti. Komdu í Sparisjóð Hafnarfjarðar og kynntu þér hvaða spamaðarmarkmið henta þér. SPARISJÓÐURINN SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR leggja ferða- þjónustuna HALDINN var á Hótel Blönduósi aðalfundur Ferðafélags Austur- Húnvetninga 18. febrúar sl. Fundurinn var vel sóttur. Fóru þar fram málefnalegar umræður um ferðamál í héraðinu ásamt hefðbundnum aðalfundastörfum. Formaður félagsins, Erlendur Eysteinsson, Stóru-Giljá, var endur- kjörinn og Ásrún Ólafsdóttir, hótel- stjóri Hótels Blönduóss, var kjörin í stjóm í stað Elízu Guðmundsdótt- ur. Ferðamálafulltrúi, Heiðar Ingi Svansson, hefur verið starfandi hjá félaginu í fullu starfi frá því í lok maí og í hálfu starfi frá 1. septem- ber á sl. ári. Flutti hann ársskýrslu félagsins og bar fram reikninga þess ásamt rekstraráætlun fyrir árið 1993. Rekstur félagsins gekk nokkuð vel á síðasta ári og unnið var að ýmsum verkefnum. Vonast er til að á þessu ári fari að skila sér áþreifanlegur árangur af starfi félagsins t.d. munu niðurstöður úr stefnumótunarverkefni í ferðamál- um héraðsins sem unnið hefur verið að í u.þ.b. ár verða kunngerðar í lok mars nk. og farið að vinna eft- ir tillögum sem þar koma fram á árinu. Nokkrar ályktanir voru sam- þykktar á fundinum og m.a. harð- orð ályktun til stjórnvalda varðandi skattlagningu á ferðaþjónustu. Ályktunin er eftirfarandi: „Aðalfundur Ferðamálafélags Austur-Húnvetninga haldinn á Hót- el Blönduósi þann 18. febrúar 1993 skorar eindregið á stjórnvöld að falla frá hugmyndum um virðis- aukaskatt á gistingu og fólksflutn- inga. Slík aðgerð er vanhugsuð og myndi hafa alvarlegar afleiðingar á aflcomu ferðaþjónustu í landinu sem og veikja samkeppnisstöðu íslend- inga sem ferðamannalands." (Fréttatilkynning) ......♦ ♦ ------ Harður árekst- ur á Akureyri HARÐUR árekstur varð milli tveggja bíla á gatnamótum Hlíða- brautar og Merkigils á Akureyri á áttunda tímanum á fimmtudags- kvöld. Var ekið aftan á bifreið sem ætlaði að beygja inn í Merkigilið og skemmdust báðir bílarnir mjög mikið við áreksturinn en engin slys urðu þó á fólki, samkvæmt upplýs- ingum lögreglunnar. tneð frönskum og sósu =995.- TAKIÐMEÐ - tilboð! TAKIDMED - tilboð! Jarlfnn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.