Morgunblaðið - 27.04.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1,993
C 3
LIA er ekki eini aðilinn sem er
að vinna í málinu, því að Rallíkross-
klúbburinn, sem rekur rallíkross-
brautina í Kapelluhrauni, er nú að
vinna að því að koma upp Go-kart
braut á svæðinu og fyrirhugar klúb-
burinn að kaupa allt að 10 Go-kart
bíla fyrir brautina. Þá eru menn
víðar á landinu farnir að skoða
möguleika á Go-kart brautum eins
og t.d. á Akranesi. Ólafur segist
vona að Go-kart mót verði allavega
komin á að ári, en til að slík keppni
verði leyfileg fyriryngstu ökumenn-
ina þyrfti undanþáguheimilid frá
umferðarlögunum.
Yngstu keppendur 8 ára
En hvað er Go-kart?
„Go-kart er er aksturskeppni á lok-
uðum brautum þar sem keppendur
eru allt frá 8 ára aldri. Reyndar er
lágmarksaldur nokkuð mismunandi
frá einu landi til annars, t.d. er 8
ára aldurstakmark í Svíþjóð og
Bretlandi, en í Noregi eru yngstu
keppendur 14 ára. Keppnin skiptist
í nokkra flokka eftir aldri keppenda
og afli bílanna, en í hverjum flokki
er ákveðin samanlögð þyngd fyrir
bíl og ökumann, þannig að allir
koma jafnir í brautina.
í yngstu flokkunum, 8-10 ára,
eru krakkamir að byija á beindrifn-
um 70 kúbika bílum og keppnis-
hraðinn er í kringum 60 km á klst.
14 ára eru þau komin á 100 kúbika
bíla, eins og í Formula Nordic sem
er einn algengasti flokkurinn á
Norðurlöndunum. Þá má samanlögð
þyngd bíls og ökumanns vera 130
kg fyrir 14 ára og 135 kg fyrir 16
ára og þau geta náð allt að 120
km hraða á klst.
Stóra breytingin kemur svo eftir
16 ára (nema í Noregi þá þurfa
menn að hafa náð 18 ára aldri),
því þá er er verið að keppa á 250
kubika bflum með þremur til sex
gírum, samanlögð þyngd má vera
180 kg og hraðinn getur orðið allt
að 200 km á klst. Það sem ég býst
við að við myndum byija með hér
eru 100 kúbika bflar,“ segir Ólafur.
Hann jánkar því að þama sé um
að ræða talsverðan hraða, „enda
fá menn yfirleitt áfall við tilhugsun-
ina eina um að krakkar séu að keyra
svo ekki sé minnst á að þau séu%á
einhveijum hraða. En þetta er þró-
unin og hún verður ekki stöðvuð.
Og ef út í það er farið þá hlýtur
að vera miklu gáfulegra að leyfa
krökkunum að spreyta sig á keyrslu
og kynnast hraða undir leiðsögn og
inni á lokaðri braut þar sem ströng-
ustu öryggisreglum er fylgt og
grasflatir eru umhverfis brautina,
fremur en að banna hluti sem við
vitum að ekkert þýðir að banna.
Það má benda á mótorhjólin í
þessum sambandi og það að engir
aðilar hafa barist eins hart fyrir
því að fá hertari reglur um mótor-
hjólaakstur en sjálft mótorhjóla-
fólkið sem veit nákvæmlega um
hvað það er að tala, þekkir aflið,
kraftinn og umferðina og hryllir við
tilhugsuninni um óreynda 17 ára
gamla ökumenn á stórum hjólum.
Svo við tölum nú ekki um yngri
hópinn, því það er nokkuð um unga
krakka á 125 kúbika torfæruhjólum
þótt þau hafi ekki aldur til að vera
með próf, hjólin eru hvorki skráð
né tryggð og við megum ekki leyfa
þeim að keppa á lokaðri braut af
því ökumennirnir hafa ekki náð til-
skyldum aldri. En við sjáum þá
kannski koma á hjólunum til að
horfa á keppnir," segir Ólafur.
Boð og bönn duga skammt
„Nú, fyrst við erum komin út í
þessa umræðu má líka benda á að
íslenskir krakkar eru að kynnast
akstri og afli á jafnvel 125 hestafla
snjósleðum hér uppi um öll fjöll.
Það verður ekki framhjá því horft
að boð og bönn duga skammt í
þessum efnum, krakkar sem vilja
ólm og uppvæg kynnast hraða og
akstri gera það með einhveiju móti
og þá er miklu betra að bjóða upp
á þau taki sín fyrstu spor í akstri
undir leiðsögn á lokaðri braut þar
sem þau mega keyra,“ segir Ólafur.
ve
FRÉTTIR
íslandsmótinu í vélsleðaakstri
lýkur á ísafirði 9. maí og er áætlað
að halda einskonar vélsleðahátíð í
bænum. Er búist
við miklum fjölda
keppenda annars
staðar af landinu,
enda munu þar ráð-
ast úrslit og meist-
aratitlar í hinum
ýmsu flokkum. Norðanmenn eru
líklegir til að hljóta marga titla eins
og síðustu ár.
Valur Vífilsson er að smíða nýja
spýmugrind fyrir kvartmíluna, en
hann hefur löngum þótt einn snjall-
asti bílasmiðurinn
meðal aksturs-
íþróttamanna.
Hann er nú
hálfnaður með
grind, sem keppa
mun í öflugasta
flokknum, þar sem hann mætir
margföldum kvartmílu- og sand-
spyrnumeistara, Sigurjóni Har-
aldssyni á Ford Pinto.
Svo kann að fara að Stilling-rallið,
sem er á keppnisdagsskránni 6.
júní verði búið að fá annað nafn
þegar þar að kem-
ur. Stilling á nú í
viðræðum við Mi-
litec-fyrirtækið,
framleiðanda Mi-
litec-1 smurbæti-
efnisins sem m.a.
er notað í kappakstursvélar og eru
góðar líkur á að Militec muni kosta
rallið.
Fimmtudaginn 29. apríl nk. verður
opnuð bilasýning Kvartmílu-
klúbbsins, sem að þessu sinni er
haldin í Faxafeni 10. Á þessari ár-
legu sýningu verða sýndir hinir
ýmsu keppnisbflar úr kvartmílunni
og fleiri greinum akstursíþrótta,
auk þess sem ýmsar
uppákomur verða
alla keppnisdagana.
Sýningunni lýkur
sunnudaginn 2. maí
og verður hún opin
til miðnættis alla sýningardaga.
Og áfram um kvartmíluna.
Kvartmiluklúbburinn, sem er einn
elsti íslenski akstursíþróttaklúbbur-
inn á stórafmæli fyrstu helgina í
júlí, 1995, þegar klúbburinn verður
20 ára. Undirbúningur fyrir afmæl-
ið er þegar hafinn og er í ráði að
fá hingað til lands Norðurlanda-
meistaramótið í kvartmílu það ár
og láta keppnina fara fram á af-
mælishelginni. Góðar líkur eru á
að af slíkri alþjóðlegri keppni verði.
Ævbtýpaferl
arsins i juli!
Fimm daga ævintýraferö á
vegum tfmaritsins 3T veröur
farin til Engiands þann 8. júlí.
Fyrst verður farið á heimsmeistara-
mótiö í Formula 1 kappakstri og
frægustu kappaksturslið heims
skoðuð í návígi. Þá verður brennt
á stærstu go-kart akstursbraut
Englands, þar sem Formula 1
ökumenn halda sér í æfingu og
ferðalangarnir etja kappi hvorn við
annan á tveggja véla go-kart
bílum í skipulagðri samkeppni
með ^lheyrandi verðlaunum.
Breski meistarinn í rally cross tek-
ur síðan menn í bíltúr á sérútbún-
eppnisbíl. Þá
ild Ford
og
Fyrir utan allf
vænlega veitingastað
diskótek London ko
ekki af einstöku tækifærij
þú getur getur framlengt ferðina
aö vild.
Upplýsingasími
67 77 66
HREYSTI
USAG styrkir Ferrari kappakstursliöið
og þessa íslensku rallökumenn
á Lancia Delta 4x4,16 ventla, túrbó.
Lancia Delta 4x4 nú á íslandi meö íslenskum ökumönnum.
Nú er hann kominn til landsins, þessi bíll sem er draumur rallökumanna og hefur gert garðinn frægan í
keppnum þeirra bestu um víða veröld. Bíllinn sem er árgerð 1991 og ekinn 10 þúsund kílómetra náði þeim
árangri að sigra Ástralíurallið árið 1991. USAG bíllinn er skráður til keppni í öllum rallkeppnum sumarsins
á íslandi, og verða ökumennirnir Ævar Sigdórsson, Ægir Ármannsson og Örn Stefánsson við stjórnvölinn.
Hamingjuóskir frá USAG umboöinu á íslandi.
"Það er okkur heiður að fá taekifæri til að styrkja þessa íþróttamenn til keppni í sumar. Bíllinn er frábær og
ökumennirnir til alls líklegir. I rallakstri má ekkert út af bera svo sigur vinnist, þess vegna hafa þeir valið
USAG handverkfærin sem notuð eru af ekki ómerkari ökumönnum en þeim sem aka í hinu virta Ferrari liði
í Formúla eitt kappakstrinum.
Við óskum ykkur til hamingju með nýja bílinn og hlökkum til samstarfsins í sumar."
t «
Óttar B. Ellingsen
Framkvæmdastjóri Ellingsen hf.
-Orugg viö
hendina.
Lancia Delta Integrale HF 4x4,
16 ventla túrbó árgerö 1991.
Sigurbraut: Ástralíumeistari árið 1991.
Tegundin: Heimsmeistari í flokki óbreyt-
tra og breyttra bíla árið 1992.
Útbúnaður: breytt til rallaksturs
samkvæmt reglum fyrir gengi N.
Vél: endursmíðuð af Mountune.
Hestöfl: 280
Ekinn: 10 þús. km.
Gírkassi: endursmíðaður hjá Abarth.
Fjöðrun: frá Bilstein.
Drif: læst framan og aftan.
Kúpling: frá Valeo.
Pústkerfi: frá Tony Law í Bretlandi.
Bremsukerfi: klossar frá Ferodo.
Felgur: úr magnesíum frá Automotive.
Dekk: Michelin 15".
Öryggisbúnaður: veltigrind og keppnis-
stólar frá Sparco. Öryggisbeltiin eru 5
punkta frá Sabelt.
Halon slökkvikerfi er í bílnum.
Bíllinn er til sýnis þessa viku hjá
aojiaoaaao
Nú standa yfir USÁG tiiboösdagar hjá EÍIingi