Morgunblaðið - 14.05.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.05.1993, Blaðsíða 18
(018 ÍB S'MORGUNBLAÐIÐ, FASTEIGNIRToítTiv GUR 14./MAI 1)993 KAUPMIÐLUN FASTEIGN ASALA AUSTURSTRÆTI 17 - SÍMI 62 1 7 00 Lögm. Ásgeir Pótursson, Róbert Árni Hreiðarsson. Opið á laugardögum kl. 10-14 Laugavegur áv, Falleg og sórstök rúml. 90 fm íb. í uppg. húsi. Parket á öllu. Stórar svalir. Mikil lofthæð. Skúlagata Sérlega glæsil. íb. á efstu hæö fyrir eldri borgara í þessu nýja húsi. Stæði ( í bílageymslu. Stórir gluggar. Þrennar' svalir á hæðinni. Klapparstígur Glæsil. 3ja herb. ca 90 fm íb. á 4. hæö í nýju fjölbhúsi á Völund- arlóðinni. Glæsil. innr. og útsýni. Stæði í bílageymslu. Áhv. 5,3 millj. byggsj. Vesturgata 2ja herbergja íbúð á 1. hæð ásamt rými fyrir 2 herb. í kjallara. Áhv. húsbréf 1,4 j m. Hagst. verð. Sýnishorn úr söluskrá Tjarnarmýri Seltjn. ný 2ja h. Baldursgata. 2ja h. Vogatunga - Kóp. 2ja-3ja h. Engihjalli. 3ja herb. Mikið áhv. Efstaland. 3ja-4ra h. Rauðás. 3ja h. jarðh. Mikið áhv. Hraunbær. 3ja h. m/aukah. Hverfisg. 3ja h. + kj. Hagst. verð. | Rimahverfi. Sérl. glæsil. 3ja h. Ljósheimar. 4ra h. m./útsýni. Miðhús. 116 fm sérh. Mikið áhv. Víðiteigur Mos. 3ja h. raðh. Breiðv. Hf. 140 fm raðh. | m/bflsk. Vesturberg. 145 fm parhús + bflskúr. Stekkir. Rúml. 300 fm einbh. Lindarsmári. 200 fm parh. Tilb. u. trév. Vantar einbhús í Gbæ. Sumarbúst. i Eilífsdal. Mikil' rækt. V. 2,0 m. Erum með fjölda sumarbústaða og sumarbústaðalönd á söluskrá. VALIÐ ER AUÐVELT — VELJIÐ FASTEIGN iP Félag Fasteignasala Hlíðasmári 8. — Húsið er fjórar hæðir og um 3.500 ferm. Það stendur við Hlíða- smára 8 í Kópavogi á horni Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar. Húsið er nú tilbúið til innréttinga en hæðir grófmálaðar. Húsið er hannað af teiknistofunni Kvarða. Búið er að stilla þarna upp skrifstofu til sýnis því, hvernig skrifstofa muni líta út í þessu húsnæði. 3.500 ferm ■ Fjórar hæóir ■ Hámarksnýtlng ílýjar leióir í byggmga starfsemi liafa skil- að árangri I Tliójiiiini — segir Magnús Hreggvlðsson, stjórnarformaóur Frjáls framtaks Á Arnarneshæð er nú risið stórt hús, sem stendur hátt og áberandi og blasir því við sjónum þeirra, sam aka Reykjanesbrautina. Þar er að verki Fijálst framtak, sem byggir þetta hús í samvinnu við bygg- ingarfyrirtækið Faghús hf. Húsið er fjórar hæðir og um 3.500 ferm. og er ætlað fyrir skrifstofur og þjónustufyrirtæki. Það hefur þegar verið auglýst til sölu, en allar hæðir þess eru tilbúnar til innrétting- ar. Á næstu árum eiga eftir að rísa mörg hús af svipaðri gerð á þessu svæði. Enn stendur þetta hús því eitt og sér líkt og miðheiji á miðju vallar í leikbyijun, sem bíður þess, að aðrir liðsmenn sínir raði sér upp. Húsið stendur í Smárahvamms- landi í Kópavogi á homi Reykjanesbrautar og Arnarnesveg- ar. Það hefur á sér hefðbundið yfir- bragð, er byggt úr steinsteypu, en holplötur eru milli hæða, þannig að engar súlur ákvarða stærð her- bergja. Að innan er hver hæð því eins og stór víðttu- mikill salur enda eftir Magnús 760 fermetrar. Sigurðsson Húsið er með hefð- bundinni einangrun að innan en klætt að utan með marmarasalla, sem er varanlegt efni og viðhaldsf- rítt. í því er eitt stigahús og ein lyfta mjög hraðgeng og öflug. Að- koma og inngangur er að austan- verðu. Tjarnarmýri, Seltjarnarnesi Mjög glæsileg ný 2ja herb. íbúð á jarðhæð. Engar tröppur. Sérbílastæði. Bílageymsla. 8 fm sérgeymsla. Fallegar innréttingar. Flísalagt bað. Til afhendingar núþegar. Suðurgarður. Borgartúni 31, 105 Reykjavík FJÁRFESTING Sími 62 42 50 FASTEIGNASALA? Lögfr.: Pétur Þór Sigurðsson, hdl. © Góð bflastæði verða bæði fyrir framan húsið og bak við það. Lóð verður afhent frágengin og götur og bflastæði verða malbikuð og hell- ur lagðar meðfram húsinu. Þarna verður einnig lögð snjóbræðsla og gengið frá niðurföllum og grænum svæðum á lóðinni ásamt lýsingu. Mikið og gott útsýni er frá hús- inu, til suðurs yfír Garðabæ og Hafnarfjörð en til vesturs yfir Álfta- nes, út á Faxaflóa og til Snæfellsjö- kuls. Til norðurs sést yfir Kópavog til Reykjavíkur og Esjunnar og síðan til austurs til Bláfjalla. Vegna þess hve húsið stendur hátt, mun útsýnið skerðast lítið í framtíðinni af öðrum byggingum, sem eiga eftir að rísa í nágrenninu. Miðja höfuðborgarsvæðisins — Þetta byggingasvæði er land- fræðilegur miðpunktur höfuðborg- arsvæðisins, sagði Magnús Hregg- viðsson, stjórnarformaður Fijáls framtaks í viðtali við Morgunblaðið. — Þegar ákveðið var í að finna þessu svæði heiti, en það heitir auðvitað Smárahvammsland, var valið nafnið Miðjan, sem nota má með sama hætti og Mjóddin er notuð fyrir mjóddina og BYKO notar heitið Breiddin. Við köllum -þetta svæði okkar því Miðjuna og ætlun okkar er að vinna þessu heiti fastan sess í framtíðinni. Frjálst framtak og Faghús gerðu með sér samning um byggingu þessa húss og fjármagna bygging- una að öllu leyti saman. Byijað var Horft niður eftir sameign húss- ins, sem er máluð í mildum en nútímalegum litum. á smíði hússins í aprílmánuði í fyrra og voru áætluð byggingarlok 15. apríl á þessu ári. — Sú tímasetning hefur staðizt fullkomlega, segir Magnús. — Byggingarkostnaður er 53.000-58.000 kr. á fermetra, sem verður að teljast hagkvæmt. Við hönnun hússins var það haft að leið- arljósi að ná fram hámarks nýtingu með lágmarks tilkostnaði, án þess að það bitni á gæðum. Þetta bygg- ist á svoköllaðri mátlínu, sem er 1,2 metrar. Hefðbundin skrifstofuher- bergi eru 2,4, 3,6 og enn stærri 4,8 m á breidd, allt eftir óskum kaup- andans. Þetta skiptir höfuðmáli, hvað varðar nýtingu á húsnæðinu, þegar til innréttinga kemur. Með þessu má spara mikið húsnæði mið- að við það, sem tíðkazt hefur. Auk byggingarstarfseminnar á Fijálst framtak einnig útgáfufyrir- tækið Fróða hf., sem hefur með höndum umfangsmikla tímarita- og bókaútgáfu. — Eg hef oft notað það sem viðmiðun, að starfsemi Fróða hf. kemst nú fyrir í 1.100 fermetra húsnæði. Ef henni yrði komið fyrir í húsnæði eins og þessu, þá kæmist hún fyrir á 800 fermetrum. Þannig mætti spara 300 fermetra húsnæði. Magnús var spurður að því, hvort hann hygðist flytja starfsemi Fróða í þetta hús og svaraði hann þá: — Það er ekki búið að taka endanlega ákvörðun um það, en það gæti farið svo og sú ákvörðun yrði þá vænt- anlega tekin síðar á þessu ári. Vönduð sameign Sameign hússins er máluð í mild- um en nútímalegum litum og- mjög slitsterkar steinflísar eru þar á gólf- um. — í allri hönnun þessa húss var lögð áherzla á góða og vandaða sameign, segir Magnús ennfremur. — Með því fær viðskiptavinurinn, sem kemur inn í bygginguna, góða tilfínningu gagnvart þeim fyrirtækj- um, sem í byggingunni eru. Vandað- ur frágangur á sameign skiptir nú æ meira máli. Við hliðina á þessu húsi er þegar kominn grunnur að öðru húsi, sem Fijálst framtak byggir í samvinnu við Faghús. — Allt skipulag á þessu svæði byggist á tveimur stærðum af húsum, sem báðar miðast við það að fá fram sem bezta nýtingu á húsnæðinu, segir Magnús. — Minni húsin, eins og það sem grunnur hefur verið lagður að hér við hlið- ina, verða 3ja hæða og hver hæð 450-470 fermetrar hver hæð og húsið því alls 1.400-1.500 ferm. Áformað er að ljúka smíði þess fyr- ir lok þessa árs. Þriðja húsið verður svo af stærri gerðinni. Stefnt er að byggingu þess á næsta ári og að því verði lokið vorið 1995. Sá samstarfssamningur, sem Fijálst framtak hefur gert við bygg- ingafyrirtækið Faghús, gerir ráð fyrir stórfelldum byggingafram- kvæmdum á þessu svæði á næstu árum. Samkvæmt honum verða byggðir 20.000-22.000 fermetrar af skrifstofu-, þjónustu og verzlun- arhúsnæði, 1.500-3.000 ferm á ári fyrstu þijú árin og síðan 5.000- 6.000 ferm á ári eftir það, unz upp- byggingu svæðisins er fulllokið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.