Morgunblaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 1
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR1. JÚLÍ1993 BLAÐ
Verðlaun
Tónlistarverðlaun fyriráriÖ
1993 (The 1993 WorldMusic
Awards) voru afhent á dögun-
um. Margt þekktasta popptón-
listarfólk heims ogföldi
þekktra leikara mœttu á hátíð-
ina, á meðalþeirra sem komu
fram má nefria Tinu Turner,
Rod Stewart, INXS ogMichael
Jackson. Upptakafráverð-
launaafhendingunni verður á
dagskrá Stöðvar 2 laugardag-
inn 3. júlí klukkan 21.20 ►
Vígaslóð eða The Killing Time
er bandarísk spennumynd frá
1987. Lögreglumaður er á leið-
inni tii smábæjarins Santa Alba
að taka við nýju starfi. Ókunnur
maður ræðst á hann og myrðir
hann. Hann villir síðan á sér
heimildir og gengur inn í hlut-
verk hins látna. Heimamenn í
Santa Alba taka komumanni
opnum örmum og hafa ekki
hugmynd um að þar fer úlfur í
sauðagæru. Beau Bridges og
Kiefer Sutherland fara með að-
alhlutverkin í þessari spennu-
mynd sem verður á dagskrá
Sjónvarps laugardaginn 3. júlí
klukkan 23.10.
GEYMIÐ BLAÐIÐ