Morgunblaðið - 01.07.1993, Page 12
Veist þú faiisHarorðið?
Fyllið út svarseðilinn og senmmof^ir #6. júlí 1993
«• Toyo'a f*arle*að rerðmæti iir. 939 ooo
Ԛsϒsr^
jwouhu do veromæti kr. 25.544
Krinoi ’ 15‘ Mlíche,í flu9ustangarsett
Kringlusport að verömæti kr. 14 810-
MÓÐSAGA
Dregið
verður úr
réttum
lausnum
þ. 17 júlí
á Bylgjunni
12 C dagskrá
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JULI 1993
Virki - Hús Madonnu hefur allan öryggisbúnað sem hægt er að
kaupa.
Öryggisgæsla - Madonna
með vígalegan lífvörð sér við
hlið.
Þekkl fólk í Bandaríkjunum
kaupir öryggið dýrum dómum
Öryggisverðir
græða á tá og
fingri í
Hollywood
Oryggisgæsla fyrir ríkt og
frægt fólk er stór atvinnugrein
í Beverly Hills i Bandaríkjun-
um. Hollywood-stjörnur óttast
um líf sitt og eru tilbúnar að
greiða háar fjárhæðir fyrir ör-
yggisgæslu. Engu að síður segja
sérfræðingar að ekki sé til nein
fullkomlega örugg vamarað-
ferð og ef einhver vill gera
manneskju illt er mjörg erfitt
að stöðva viðkomandi.
„Ef einhver vill drepa mann þá
er maður dauður," segir Anthony
Pelicano, sérfæðingur í öryggis-
málum sem vinnur í Beverly Hills.
Þrátt fyrir að Pelicano segi þetta
við viðskiptavini sína eru þeir til-
búnir að greiða honum um hálfa
milljón bandaríkjadala á ári fyrir
öryggisgæslu í þeirri von að hann
hafí rangt fyrir sér. Það er að
miklu leyti fjárhagur fræga fólks-
ins sem ræður því hversu mikið
öryggi það getur keypt.
Heimili sem virki
Heimsfrægur
skemmtikraftur sem
ferðast mikið þarf
að borga allt frá
250.000 til 500.000
dollara til lífvarða
sinna á ári.
Skemmtikraftur get-
ur eytt svipaðri upp-
hæð til þess að gera
heimili sitt að víga-
legu virki. Á tveggja
ekru landareign þarf
þrjár til fjórar
myndavélar til að
fylgjast með öllu
svæðinu. Síðan er
hægt að setja upp
grindverk sem
skynjar hreyfingu.
Myndavélarnar og
girðingin kosta sam-
anlagt um 125.000
dollara. Þetta er
dæmi um lágmarks-
öryggi á landareign
sem er lítil á mæli-
kvarða ríka fólksins
í Beverly Hills.
í íbúðarhúsinu
sjálfu má koma fyrir
þjófavarnarkerfí sem kostar á bil-
inu 5 -10.000 dollara. Til þess að
gera öryggið enn meira er hægt
að setja hnappa víðsvegar um
húsið sem eru tengdir við útkalls-
kerfi lögreglunnar eða öryggis-
þjónustu í einkaeign eins og Bel
Air Patrol. Skemmtikraftur getur
sett punktinn yfír i-ið með því að
byggja sérstakt öryggisherbergi í
húsinu. Slíkt herbergi á að stand-
ast bæði eld og sprengjur. í því
er matur og vatn sem á að endast
í dágóðan tíma, þarfaþingið sími
og vararafstöð.
Ekki fullkomin vörn
Öryggisverðir segja engu að
síður að þessi öryggisherbergi séu
ekki fullkomin vörn. Moshe Alon,
fyrrverandi starfsmaður ísraelsku
leyniþjónustunnar sem rekur nú
Professional Security Consultant,
segir að margir telji skemmtikröft-
um í trú um að öryggisherbergi
sé fullkömin vörn en þau séu í
raun gagnslaus. Anthony Pelicano
er sammála Alon. Hann segir að
þessi herbergi séu gildrur.
Allir öryggisverðir ráðleggja
viðskiptavinum sínum frá því að
vera vopnaðir. Að sögn Pelicano
vill hann ekki að viðskiptavinir
hans beri vopn vegna þess að sá
sem ræðst á þá getur hæglega
náð byssu af þeim og notað hana
gegn þeim.
Ástin varhugaverð
Kvikmyndin „Bodyguard", með
Whitney Huston og Kevin Costner
í aðalhlutverkum, segir frá ástar-
sambandi söngkonu við lífvörð.
Lífverðir þurfa að vinna mjög náið
með viðskiptavinum sínum en allir
sérfræðingar segja engu að síður
að nauðsynlegt sé að halda ákveð-
Ráðgjöf - Sylvester Stallone er viðskipta-
vinur Anthonys Pelcanios, sérfræðings í
öryggismálum.
„The Bodyguard" - Kvik-
myndin „The Bodyguard" með
Whitney Huston og Kevin
Costner fjallað um ástarsam-
band frægrar söngkonu við líf-
vörð.
inni fjarlægð. Þeir segja að ástin
geri menn hættulega af þvi að hún
beinir athyglinni frá starfínu. Hins
vegar segja öryggisverðir að nauð-
synlegt sé að gott samband sé á
milli þeirra og viðskiptavina
þeirra. Eins og Moshe Alon segir:
„Ef lífverði semur illa við mann-
eskjuna sem hann á að vernda er
spurning hvort hann sé tilbúinn
að fórna lífí sínu fyrir viðkom-
andi.“
Öryggisráð fyrir
stórstjörnur
Að lokum fylgja hér nokkur ráð
sem öryggisverðir gefa viðskipta-
vinum sínum:
Þegar maður fer út úr húsi er
best að athuga alltaf fyrst hvort
einhver sé fyrir utan sem á ekki
að vera þar.
Þegar keyrt er að heiman á allt-
af að fylgjast með því hvort ein-
hver eltir.
Maður á að forðast að klæðast
á áberandi hátt til þess að vekja
ekki eftirtekt.
Þegar ferðast er í bíl á alltaf
að hafa allar dyr læstar og passa
sig á því að festast ekki í umferða-
röngþveiti.
Varast skal sviðsetta minnihátt-
ar árekstra. Ef keyrt er á bíl sem
maður er í þá á aldrei að fara út
úr bílnum heldur taka niður
númerið og keyra á næstu lög-
reglustöð.
Maður á aldrei að opna útidyra-
hurðina nema maður viti hver er
að koma.