Morgunblaðið - 07.08.1993, Qupperneq 1
40 SIÐURB
STOFNAÐ 1913
175. tbl. 81. árg.
LAUGARDAGUR 7. AGUST 1993
Prentsmiðja Morg-unblaðsins
Skæðir skóg-
areldar í
Frakklandi
Ajaccio. Reuter.
ÞRIR slökkviliðsmenn brenndust
lífshættulega er þeir glímdu við
skæða skógarelda á frönsku Mið-
jarðarhafseynni Korsíku í gær.
Sex starfsbræður þeirra hlutu
sömuleiðis slæman bruna er þeir
reyndu að hefta skógarelda upp af
Rivierunni. Erfiðlega gekk að hemja
eldana á þessum slóðum, við Toulon
og Draguignan, vegna hvassviðris
sem stuðlaði að hraðri útbreiðslu
þeirra.
Samkyn-
hneigð pör
gefinsam-
an í Noregi
Osló. Reuter.
FIMM samkynhneigð pör voru
gefin saman í Osló í gær eftir
að Norðmenn urðu önnur þjóðin
í heiminum til áð viðurkenna
sambönd homma og lesbía með
lögum.
Um 1.000 manns fögnuðu pörun-
um að lokinni athöfninni en um 10
kristnir menn sem mótmæltu at-
höfninni féllu í skuggann.
Norsk stjórnvöld neita að kalla
athöfnina hjónavígslu, en munurinn
á milli löggilds sambands og hjóna-
bands er að samkynhneigð pör geta
ekki ættleitt börn. Önnur lög eru
annars sambærileg, að sögn tals-
manns norska bama- og fjölskyldu-
ráðuneytisins. Aðeins í Danmörku
er að finna svipuð lög.
Reuter
Aðgerðir undirbúnar
ALLT kapp er lagt á að orrustuþotur á flugmóðurskipum á Adríahafi verði tilbúnar til aðgerða ákveði
SÞ eftir helgi að loftárásir skuli gerðar á stöðvar Bosníu-Serba við Sarajevo. Myndin var tekin á flugmóð-
urskipinu Theodore Roosevelt í gær þar sem verið var að koma Sparrow-flugskeytum fyrir á orrustuþotum.
Rússneski
flotinn
að sökkva
Moskvu. Daily Telegraph.
SKIP úr Kyrrahafsflota Sov-
étrikjanna sálugn sökkva nú
eitt af öðru á legunni undan
flotastöðinni á Rússkíj-eyju á
Japanshafi vegna niðurníðslu.
Rússa skortir fjármuni til að
halda skipunum við. Hafa þeir boð-
ið mörg skip til niðurrifs til þess
að afla fjár til þess að halda hluta
flotans haffærum. Brotajárnskaup-
menn hafa engan áhuga sýnt, ekki
boðið í eitt einasta skip og því hafa
þau verið látin ryðga á legunni við
Rússkíj-eyju.
Fjárskortur flotans bitnar ekki
bara á skipunum. Foringjar í flota-
stöðinni á Rússkíj-eyju létu skera
niður kost fyrr á árinu með þeim
afleiðingum að fjórir dátar dóu úr
næringarskorti og fjöldi sýktist.
Nýlega sagði Alexander Rútskoj
varaforseti að rússneski flotinn
væri ekki bardagafær og einungis
væri hætt að stefna tveimur af
fimm flugmóðurskipum út á opið
haf.
Viðræður um frið í Bosníu hefjast aftur í Genf eftir helgi
Vaxandi andstaða við
árásir á Bosníu-Serba
Reuter
Hamadi látinn laus
LÍBANSKI mannræninginn Abbas Hamadi var látinn laus úr fangelsi í
Þýskalandi í gær og fluttur til Beirút þar sem eldri bróðir hans, Abdul
Hadi Hamadi, yfirmaður sveita Hizbollah-skæruliða, tók á móti honum.
Bróðir Hamadi, Mohammad Ali, afplánar lífstíðardóm í Þýskalandi fyrir
morð og mannrán er hann rændi þotu bandaríska flugfélagsins TWA
árið 1985. A myndinni fylgja tveir þýskir lögreglumenn Hamadi til flug-
vélar líbýska flugfélagsins Middle East Airlines í Frankfurt i gær.
Kaupmannahöfn, Sarajevo, Genf. Reuter.
SEX stunda fundur Ratkos Mladics, yfirhershöfðingi Bosníu-Serba,
og Rasims Delics, foringja hersveita múslima, með Francis Briquem-
ont yfirmanni herliðs Sameinuðu þjóðanna (SÞ) á flugvellinum í
Sarajevo í gær varð árangurslaus. Þar var til umræðu tilboð um
að sveitir sveitir Mladics hefðu sig á brott frá hæðum við borgina
sem þeir hafa nýlega tekið. Vilja þeir afhenda gæsluliðum Samein-
uðu þjóðanna yfirráðin en viðræður strönduðu á því að Mladic
vildi fá að halda áfram lykilsvæðum á hæðunum og vildi ráða því
hvar sveitir SÞ tækju sér stöðu. Briquemont sagði að þeir Mladic
hefðu ólíkan skilning á herfræðí og atriðum er lytu að yfirráðum
og eftirliti á hæðunum. Warren Christopher utanríkisráðherra
Bandarikjanna ítrekaði í gærkvöldi hótanir um loftárásir á Serba
slepptu þeir ekki kverkataki sínu á Sarajevo. Æ meira ber á gagn-
rýni á þá hugmynd Bandaríkjamanna að hefja beri loftárásir á
stöðvar Serba.
um að gæsluliðar SÞ yrðu fyrir
sprengjum í hugsanlegum loftárás-
um væri ástæðulaus.
Vi(ja opna flutningaleið
Talsmenn SÞ sögðu í gær að sam-
tökin hygðust opna á ný helstu flutn-
ingaleið á landi með hjálpargögn til
Sarajevo og annarra héraða í mið-
hluta Bosníu. Tækist þetta ekki
gætu rúmlega tvær milljónir manna
týnt lífi vegna skorts á brýnum
nauðsynjum á vetri komanda.
Owen lávarður, sáttasemjari Evr-
ópubandalagsins, sagði í gær að
fulltrúar Serba, Króata og múslima
hefðu samþykkt að taka á ný upp
þráðinn í friðarviðræðunum í Genf
éftir helgina. Hann sagði að enn
bæri mikið í milli, einkum væri deilt
um skiptingu Iandsins milli þjóða-
brotanna. Kröfur Serba um að skipta
einnig Saravejo mæta harðri and-
spyrnu múslima.
Danir gegn loftárásum
Utanríkisráðherra Dana, Niels
Helveg Petersen, sagði í viðtali við
Berlingske Tidende í gær að hann
væri andvígur ráðagerðum um loftá-
rásir. Helveg Petersen sagðist m.a.
byggia álit sitt á ummælum Owens
lávarðar, sem telur að hótanir um
loftárásir hafi aðeins þau áhrif að
múslimar verði síður fúsir til friðar-
viðræðna. Fulltrúar Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, munu á mánu-
dag halda áfram að ræða hvort heíja
beri loftárásir.
„Þær þjóðir sem hafa eins og við
herlið á svæðinu; Kanadamenn,
Frakkar, Spánveijar, Bretar og
fleiri, eru sammála okkur,“ sagði
Helveg Petersen. „Það er ástæðu-
laust að leyna því að það hefur ver-
ið ágreiningur í málinu milli Banda-
ríkjanna og Evrópuríkjanna. Aðal-
ástæðan er sú staðreynd að Banda-
ríkjamenn eru ekki með einn einasta
hermann þarna“. Yfirmaður herliðs
SÞ í Bosníu, Belginn Francis Brique-
mont, gagnrýnir einnig árása-hug-
myndina. Hins vegar sagði Richard
Vincent hermarskálkur, formaður
herstjórnarnefndar NÁTO, að ótti
Sælir með
feng af
alsælu
London. Reuter.
BRESKA lögreglan fagnaði
sigri í orrustu við fíkniefna-
sala er hún lagði í gær hald
á gífurlegt magn af fíkniefn-
inu alsælu í Loudon.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar er talið að verðmæti
efnisins, sem gert var upptækt,
nemi um 10 milljónum sterlings-
punda, jafnvirði 1,1 milljarðs
króna, miðað við algengt gang-
verð í London.