Morgunblaðið - 07.08.1993, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993
13
Kynningarfundur
FRÁ kynningu á tillögnm listaháskólanefndar. F.v.: Þórunn J. Hafstein, deildarstjóri í menntamálaráðu-
neytinu sem var nefndinni til aðstoðar, Björn Bjarnason, formaður nefndarinnar, Ólafur G. Einarsson,
menntamálaráðherra, og Guðríður Sigurðardóttir, ráðuneytissljóri í menntamálaráðuneytinu.
Listaháskólanefnd skilar tillögum að fyrirkomulagi skólans
Listaháskóla fylgir um-
talsverð hagræðing
Umhverfismat hér á landi tilbúið
Mikilvægt skref til
að koma í veg fyr-
ir umhverfisslys
LÖG sem nýlega voru samþykkt á Alþingi vegna EES gera meiri
kröfur til þess að tekið sé tillit til umhverfisþátta þegar unnið er að
skipulagi svæða. Skipulag ríkisins hefur verið að undirbúa sig undir
þessar breytingar og nú hefur verið útbúið ítarlegt umhverfismat
fyrir Skútustaðahrepp en í honum eru meðal annars Mývatn og Dimmu-
borgir. Þetta umhverfismat er það fyrsta sinnar tegundar á íslandi
og var meðal annars unnið að bandarískri fyrirmynd. Hugmyndin er
að sá aukni kostnaður, sem fari í skipulagsgerð vegna umhverfis-
mats, skili sér til baka í markvissari framkvæmdum og færri umhverf-
isslysum svokölluðum.
NEMENDUM mun fækka úr 438 í 298 við að sameina myndlistar-
skóla, leiklistarskóla og tónlistarskóla á háskólastigi og ríflega sex
milljóna króna sparnaður nást. Þetta kom fram í áliti listaháskóla-
nefndar sem kynnti tillögur sínar að fyrirkomulagi skólans í gær.
Skólinn verður sjálfseignarstofnun undir sljórn sem skipuð verður
fulltrúum menntamálaráðuneytis, Rejkjavíkurborgar og félags sem
ætlað er að stofna um Listaháskóla Islands og tekur skólinn sjálfur
ákvarðanir um stefnumótun eftir að starfsemi hefst.
í tillögunum er gert ráð fyrir að
rekstarkostnaður eins skóla á há-
skólastigi í stað þriggja á framhalds-
skólastigi nemi tæplega 198 milljón-
um króna en kostnaður við skólana
þijá nemur nú rúmlega 204 milljörð-
um króna á ári. Ríkissjóður lagði
108,708 m.kr. til listaskólanna
þriggja á síðasta ári og borgarsjóður
77,800 m.kr, en áætluð framlög til
listaháskóla eru áætluð 164,233
milljónir króna.
Fækkun nemenda við sameiningu
stafar af því að nemendur sem nú
eru í undirbúningsnámi í listaskólun-
um munu sækja þá menntun á fram-
haldsskólastigi. Samt sem áður eiga
samanlögð skólagjöld á háskólastigi
að skila inn 21,5 m.kr. í stað 12
m.kr. í dag. Launagjöld munu hins
vegar lækka, þó ekki sem nemur
fækkun nemenda, auk. þesé sem
hagræðing á að nást með samnýt-
ingu húsnæðis, en skólinn verður á
Laugarnesvegi 91, í húsi sem var
áður í eigu SS.
Ekki er ljóst hvenær af stofnun
skólans verður, en að sögn Ólafs
G. Einarssonar, menntamálaráð-
herra, mun hann leggja fram frum-
varp til laga um skólann á næsta
Alþingi. Hann segir þó engar niður-
stöður fengnar um frágang hússins,
en samkvæmt síðustu áætlunum
kosti um hálfan milljarð króna að
koma því í endanlegt horf. Mynd-
lista- og handíðaskóli íslands flytur
inn í hluta húsnæðisins í haust, þótt
frágangi þess rýmis sé ekki fulllokið.
Óháð sjálfseignarstofnun
Björn Bjarnason, alþingismaður
og formaður listaháskólanefndar,
sagði að nefndin hefði verið einhuga
í áliti sínu um að nauðsynlegt væri
að koma á fót sjálfseignarstofnun
um starfsemi listaháskóla, óháðri
ríkisvaldinu, utan þess að verða að
uppfylla gæðakröfur menntamála-
ráðuneytisins um kennslu og náms-
árangur. Skólinn mun sjálfur taka
ákvarðanir um eigin þróun eftir að
hann tekur til starfa í samráði við
fjárveitingaraðila, s.s. hvort hann
bjóði síðar meir upp á kennslu í fleiri
listgreinum en nú eru ákveðnar.
Félag um listaliáskóla í bígerð
Að sögn Ólafs G. Einarssonar eiga
greiðslur frá menntamálaráðuneyti
ásamt styrkveitingum og skólagjöld-
um að standa undir öllum rekstrarút-
gjöldum skólans. Skólagjöld skulu
þó aldrei vera hærri en sem nemur
10% af árlegri greiðslu ráðuneytisins
fyrir hvert námsár. Kostnaður þess
nú er rúmar 1,5 milljónir á hvern
nemanda Leiklistarskóla Islands,
rúm hálf milljón á hvern nemanda
myndlistarskóla og um 320 þúsund
á tónlistarnemenda. Þessar upphæð-
ir eiga hins vegar ekki að verða
hærri en 981 þúsund á leiklistarnem-
anda, 518 þúsund á myndlistarnem-
anda og 524 þúsund á tónlistarnem-
anda
Þegar er búið að kynna tillögur
nefndarinnar fyrir aðstandendum
hlutaðeigandi skóla og fulltrúum
samtaka listamanna og sagði Ólafur
að undirtektir þeirra hefðu verið já-
kvæðar. Listaskólanefndin leggur til
að stofnað verði félag um skólann
hið fyrsta og verði það skipað ein-
staklingum, fyrirtækjum og samtök-
um listamanna og kjósi meirihluta
stjórnar.
Stefán Thors forstjóri Skipulags
ríkisins segir að vegna nýju laganna
verði framkvæmdir, sem gætu haft
umtalsverð áhrif á umhverfið og
náttúruauðlindir, háðar umhverfis-
mati og þurfi því m.a. að koma inn
á borð hjá Skipulagi ríkisins áður en
þær verði að veruleika.
Umhverfísmatið er í skýrsluformi,
þó þannig að ekki eru dregnar nein-
ar niðurstöður í lokin heldur er um
að ræða yfirgripsmikla samantekt á
eldri gögnum um svæðið auk þess
sem einhveijum nýjum upplýsingum
hefur verið bætt inn. Upplýsingarnar
í skýrslunni eru mikið til sótt í samt-
öl við sérfræðinga, sem kannað hafa
svæðið.
Sjónarmið um verndun og
nýtingu skoðuð
Fjórar tillögur að skipulagi Skútu-
staðahrepps eru settar fram í um-
hverfismatinu og miðast þær við allt
frá hinni mestu vemdun að hinni
mestu nýtingu að sögn Ingva Þor-
steinssonar ritstjóra skýrslunnar.
Þannig ætti Kísiliðjan t.d. að hætta
starfsemi skv. einni tillögunni en
hefja nám á öðrum stað skv. ann-
arri. Þegar síðan verður unnið að
framtíðarskipulagi Skútustaða-
hrepps verður að ákveða hvort ein
tillaga sé nógu góð eða hvort taka
verði inn í þætti úr öllum tillögunum.
Markmiðið er að finna jafnvægi milli
nýtingar og verndunar að sögn
Ingva.
Einn megin tilgangurinn með
umhverfismatinu er að áður en
skipulagslegar ákvarðanir eru teknar
sé hægt að fletta upp í skýrslunni
og sjá á fljótlegan hátt hvaða áhrif
mannvirkin munu hafa á umhverfíð.
Svæði íslands vel könnuð
Áætlað er að kostnaður við um-
hverfismat verði 10% til 30% af
kostnaði við að gera skipulag. Stefán
Thors segir að í Skútustaðahreppi
hafí fyrst og fremst verið um að
ræða samantekt á rannsóknum enda
hafí svæðið verið mjög vel kannað
fyrir. Hann telur hins vegar ekki að
það þýði að kostnaður við það mat
hafí verið minni en hann verður ann-
arstaðar á landinu því flest svæði
landsins séu þegar mjög vel könnuð.
Lýst yfir áhyggjum af stöðu
fyrirtækja í skipaiðnaði
STJÓRN MÁLMS, samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði, lýsir
í fréttatilkynningu yfir þungum áhyggjum vegna alvarlegrar stöðu
margra fyrirtækja í skipaiðnaði. Tekið er fram að því miður sé
ekki um einstök afmörkuð tilvik að ræða heldur lýsandi dæmi um
hvernig komið sé fyrir íslenskum skipaiðnaði enda þótt nýleg úttekt
hafi staðfest að greinin væri ágætlega samkeppnisfær við erlend
fyrirtæki ef litið sé framhjá víðtækum styrkjakerfum sem þar þrífist.
„Samtök fyrirtækja í skipaiðnaði
hafa undanfarin ár varað mjög ein-
dregið við gríðarlegum útflutningi
verkefna í greininni. Jafnframt hef-
ur verið fullyrt að svo stórfelld und-
anskot verkefna til erlendra aðila
leiði til þess að staða íslenskra
skipaiðnaðarfyrirtækja veikist og
að lokum sé hætta á að greinin
lognist út af,“ segir í tilkynning-
unni og bætt er við að því miður
hafi þessi aðvörunarorð ekki verið
tekin alvarlega og afleiðingin blasi
nú við. „Staða samkeppnishæfra
skipaiðnaðarfyrirtækja er orðin það
veik að til auðnar horfir og miklum
verðmætum i mannvirkjum, tækj-
um og verkþekkingu kastað á glæ
með sama áframhaldi."
Viðbrögð
Stjórnin tekur fram að hún hafi
bent á að meðal annarra þjóða sé
oftast brugðist við slíkum vanda
með altækum aðgerðum en ekki
horft aðgerðarlaust á þar til engu
verði við bjargað. Þá kemur fram
að félagið hafí síðustu mánuði lagt
fram tillögur um aðgerðir til úrbóta
og eigi þær sér flestar fordæmi
meðal samkeppnisþjóða okkar eða
styðjist við alþjóðlega viðskipta-
samninga. „Ennfremur hefur verið
bent á að þau verðmæti sem standa
undir greiðslum vegna kostnaðar
við skipasmíðar og -viðgerðir er-
lendis eru teknar úr sameiginlegri
auðlind allra íslendinga. íslenskur
skipaiðnaður hefur lagt sitt af
mörkum til þess að unnt sé að nýta
fiskistofnana og gerir þá kröfu að
hagsmunir hans verði metnir þegar
afrakstrinum er skipt,“ segir í nið-
urlagi.
★ ★ '
ÐISISQ
DISLO
D'is
KLUBBURINN
kótekoro^
Alli Bergás - Gísli Sveinn Hollywood/Sigtún rifja upp gamlar rispur.
MIÐASALA OG BORÐAPANTANIR í S: 687111