Morgunblaðið - 26.08.1993, Síða 1
72 SIÐURB/C
STOFNAÐ 1913
191. tbl. 81.árg.
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Borís Jeltsín forseti Rússlands sækir heim Pólverja og Tékka
Brottflutningi
rússneska her-
liðsins hraðað
Varsjá, Prag. Reuter.
TÉKKNESKA þingið mælti með því í gær að Vaclav Havel forseti
undirritaði samning um friðsamleg samskipti og samvinnu við Rússa
í dag en Borís N. Jeltsín Rússlandsforseti kemur til Prag í opin-
bera heimsókn í dag. Hann kemur frá Póllandi þar sem hann átti
viðræður við Lech Walesa forseta á þriðjudagskvöld og undirritaði
vináttusamning. Brottflutningi rússneska herliðsins í Póllandi verð-
ur flýtt, þeir síðustu munu hverfa heim 1. október en áttu að fara
í desemberlok.
Walesa sagði að með þessari
fyrstu opinberu heimsókn Jeltsíns
væri verið bergja á síðustu dropun-
um í þeim „beiska kaleik" sem
sameiginleg hörmungasaga þjóð-
anna hefði verið. Jeltsín hét fyrir
sitt leyti að tími ofríkis af hálfu
Rússa í þessum samskiptum væri
á enda. Pólveijar og Rússar sömdu
m.a. um að iögð yrði gríðarmikil
gasleiðsla frá Norður-Rússlandi
um Pólland til Þýskalands.
Krzysztof Skubiszewski utanríkis-
ráðherra Póllands hvatti Atlants-
hafsbandalagið í gær til að hraða
inntöku nýrra aðildarríkja en Jelts-
ín sagði í heimsókn sinni að Rússar
myndu ekki leggjast gegn aðild
Póllands að bandalaginu.
Rússneski forsetinn lagði auk
þess blómsveig að minnismerki um
4.000 pólska liðsforingja sem sov-
éski einræðisherrann Jósef Stalín
lét öryggislögreglu sína myrða í
Katyn-skógi í stríðinu. Fram á síð-
ustu ár kenndu Rússar ávallt Þjóð-
veijum um morðin. Alls gáfust um
15.000 pólskir liðsforingjar upp
fyrir heijum Rússa er tóku austur-
héruð landsins 1939; ekkert er vit-
að um örlög 11.000 þeirra.
Eystrasaltsríkin
Athygli vekur að samtímis því
sem Rússar reyna mjög að bæta
samskiptin við Pólveija er allt í
hnút varðandi brottflutning rúss-
neska herliðsins frá Eystrasalts-
ríkjunum, þ. á m. Litháen. Pólveij-
ar eiga landamæri að Litháen þar
sem býr allstór minnihiutahópur
Pólveija. Lettneska utanríkisráðu-
neytið gaf í gær út yfirlýsingu um
að tregða Rússa til að kalla herlið
sitt heim væri brot á sjálfstæði
Eystrasaltsríkjanna og skapaði
spennu í þeim.
Reuter
Katyn-fórnarlömb heiðruð
BORÍS N. Jeltsín Rússlandsforseti kyssir borða á blómsveig við
minnismerki í Varsjá um pólska liðsforingja sem öryggislögregla
Stalins lét myrða.
Olíufund-
ur á Græn-
landi lof-
ar góðu
Kaupmannahðfn. FrA Sigrúnu Davíðsdótt-
ur, fréttaritara Morgunblaðsins.
OLÍA hefur fundist við boranir á
Nuussuaq-skaga á vestanverðu
Grænlandi. Áður hafa fundist vís-
bendingar um olíu en fundurinn
nú er sá lang öruggasti fram að
þessu.
Jarðfræðistofnunin á Grænlandi
hefur undanfarið borað í tilrauna-
skyni á Nuussuaq-skaga á vestan-
verðu Græniandi. Flemming G.
Christiansen ríkisjarðfræðingur
sagði í viðtali við danska sjónvarpið
að boranimar sýndu merki um olíu
bæði við yfirborðið og allt niður á
448 metra dýpi. Hingað til hafa ver-
ið vangaveltur á kreiki um olíulindir
við Grænland, en ekkert olíufélag
hefur viljað ráðast í olíuleit. Christ-
ansen telur að eftir boranimar nú
sé líklegt að stóru félögin muni fá
áhuga á frekar tilraunaborunum og
olíuleit við Grænland.
Samningur Dana og Grænlend-
inga um hráefnisnýtingu á Græn-
landi rennur út 1995. Grænlendingar
hafa gagnrýnt ákaft þá nefnd, sem
hefur farið með þau mál og hefur
aðsetur í Kaupmannahöfn. Poul Nyr-
up Rasmussen, forsætisráðherra ■
Dana, sem er þessa dagana í Græn-
landsheimsókn, sagði að sér kæmi
gagnrýnin á óvart og þætti hún mið-
ur, en lofaði að beita sér fyrir viðræð-
um um nýtingu hráefna strax næsta
ár í stað 1995.
Kína og
Pakistan
beitt refsi-
aðgerðum
Dubai. Reuter.
BANDARÍKJASTJÓRN til-
kynnti í gær, að ákveðið hefði
verið að beita stjórnvöld í
Kína og Pakistan efnahags-
legnm refsiaðgerðum vegna
brota þeirra á alþjóðlegum
samningum um bann við út-
breiðslu kjamorku- og efna-
vopna. Kínverskt skip, sem
Bandaríkjamenn segja _ vera
að flytja efnavopn til Irans,
stefndi til hafnar í Saudi-
Arabíu í gær en þar ætluðu
saudi-arabískir og kínverskir
embættismenn að skoða farm-
inn.
Bandarískir embættismenn
segja, að í farmi kínverska skips-
ins, sem fylgst hefur verið með
frá 3. ágúst, séu efni, sem írak-
ar og Iranir settu í fallbyssukúl-
ur í stríðinu milli þeirra
1980-88. Auk efnavopnafarms-
ins til írana saka Bandaríkja-
menn Kínveija um að hafa selt
Pakistönum M-ll-eldflauga-
tækni þvert ofan í gefin loforð.
Refsiaðgerðirnar fela í sér, að
næstu tvö ár verður bannað að
selja til Kína og Pakistans ýmis
tæki og búnað, sem nota má í
hemaðarlegum tilgangi.
Norskir ráðamenn eftir árangurslausan fund um veiðar íslenskra skipa í Barentshafi
Gagnrýna viðbrögð íslend-
inga og hvetja til stillingar
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins.
HVOSS ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra
eftir að fundur Norðmanna og íslendinga í Stokkhólmi um veiðar
í Barentshafi fór út um þúfur í fyrradag hafa vakið mikil viðbrögð
í Noregi. Utanríkisráðherra Noregs segist vona að starfsbróðir sinn
„róist“ í bráð. Sjávarútvegsráðherrann segist ekki vilja svara íslend-
ingum í sömu mynt því þá megi búast við að Islendingar hækki enn
tóninn. Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, vísar því
á bug að kosningabaráttan í Noregi hafl haft áhrif á afstöðu Norð-
manna. „Spurningar um alþjóðlegan hafrétt og fiskkvóta eru flókn-
ar. Þeim mun mikilvægara er að við gætum tungu okkar,“ sagði
hún við NTB-fréttastofuna. Kveðst hún þeirrar skoðunar að það
þurfi frekari viðræður íslenskra og norskra stjórnvalda til að lausn
á deilunni finnist.
Johan Jorgen Holst, utanríkisráð-
herra Noregs, segir Norðmenn ætíð
reiðubúna til að ræða við íslendinga
um grundvallaratriði er varði ábyrga
stjórnun auðlinda. En „tvö atriði
ætlum við ekki að semja um: Smug-
una og kvóta handa Islendingum í
Barentshafinu," segir hann. Haft er
eftir Holst og sjávarútvegsráðherr-
anum, Jan Henry T. Olsen, að von-
andi komist íslendingar að því að
veiðar í norðri borgi sig ekki.
Haft er eftir Jóni Baldvin í norsk-
um fjölmiðlum að Islendingar muni
nú kanna réttarstöðu sína hvað varð-
ar veiðar á verndarsvæði Norð-
manna við Svalbarða. Káre Ludvigs-
en, formaður sjómannasamtaka í
Tromso, segir að norsk stjórnvöld
verði að hindra með valdi að íslensk-
ir togarar taki Barentshafið til hand-
argagns. Lars Kjoren, skipherra hjá
norsku strandgæslunni, segir í sam-
tali við Aftenposten að þar á bæ
muni menn ekki horfa aðgerðarlaus-
ir á ólöglegar veiðar á verndarsvæð-
inu. „Við höfum skýr fyrirmæli um
að hafa afskipti af slíku,“ segir hann.
Erik Ianke, blaðafulltrúi hjá yfir-
stjórn norska hersins, en strand-
gæslan heyrir þar undir, segir að
viðbrögð við ólöglegum veiðum á
verndarsvæðinu við Svalbarða verði
þau sömu og ef um veiðar innan
norsku efnahagslögsögunnar væri
að ræða. Þó yrði lagt strangara mat
á valdbeitingu og hvert tilfelli skoð-
að.
Islendingar ganga of langt
Norska dagblaðið Aftenposten
fjallar í dag um fiskveiðideiluna í
leiðara og segir ummæli þau sem
höfð hafi verið eftir íslenskum ráða-
mönnum í senn „meiðandi" og „á
skjön við háttvísi í samskiptum
þjóða“. Blaðið telur ummæli utanrík-
isráðherra til marks um að íslend-
ingar sækist eftir deilum við Norð-
menn. Nú þegar íslendingar hóti því
að hafa verndarsvæðið við Svalbarða
að engu sé of langt gengið. „íslend-
ingar eru þekktir fyrir óbilgirni í
fiskstríðum sínum. Þeir setja aðeins
fram kröfur án þess að bjóða nokkuð
í staðinn,“ segir í leiðara blaðsins,
en þess er jafnframt getið að um-
mæli norska sjávarútvegsráðherrans
um „sjóræningjaveiðar“ íslendinga
hafi einnig átt þátt í að magna deil-
una.
Sjá fréttir á miðopnu.
Hjálpar-
gögntil
Mostar
Mostar. Reuter.
BÍLALEST Sameinuðu þjóð-
anna kom með þjálpargögn
til borgarinnar Mostar í
Bosniu í gærkvöldi.
Lengi hafði staðið í stappi
við Króata sem sitja um borgina
að leyfa lestinni að fara í gegn
til aðþrengdra múslima í borg-
inni. Um 250 tonn af matvælum
voru í flutningalestinni og var
þegar í gærkvöldi byrjað að
dreifa þeim. Fyrr í gær vörpuðu
bandarískar flutningavélar
13.000 matarbögglum yfir
borgina.
Sjá „Bosníu-Króatar..."
á bls. 24.