Morgunblaðið - 26.08.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAQUR 26. ÁGÚST 1993
1.633 millj.
í atvinnu-
leysisbætur
ALLS höfðu verið greiddar út
um 1.633 milljónir króna í at-
vinnuleysisbætur úr Atvinnuleys-
istryggingasjóði frá áramótum
til Ioka júlímánaðar. Sjóðnum
voru ætlaðar 1.464 milljónir
króna vegna atvinnuleysisbóta á
árinu öllu á fjárlögum þessa árs.
Hinn 1. júlí tóku gildi breyttar
reglur um bótarétt hjá Atvinnuleys-
istryggingasjóði sem fólu í sér að
launamenn utan stéttarfélaga gætu
átt rétt til atvinnuleysisbóta. Sam-
kvæmt upplýsingum sem fengust
hjá sjóðnum í gær hafa 80 manns
sótt um atvinnuleysisbætur á
grundvelli þessa ákvæðis. 1. októ-
ber munu sjálfstætt starfandi ein-
yrkjar einnig öðlast rétt til atvinnu-
leysisbóta.
-----»»»-----
Starfsemi varnarliðs
Fundur var á
mánudag og
annar verður
fljótlega
Tíu metra hemlaför bíls sem lenti í árekstri við dreng á reiðhjóli
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
Á slysstað
ÞAÐ fór betur en á horfðist þegar Bjarni Einarsson, 12 ára, varð fyrir bíl á reiðhjóli sínu á mótum Stýrimannastígs og Ránargötu í
gær. Bjarni var með hjálm á höfði og lenti í sandhrúgu sem var á götunni og marðist aðeins lítillega.
Hjálmuríim og sandhrugan björguðu
„ÉG KOM hjólandi eftir götunni þegar ég heyrði skyndilega
mikið hemlahljóð. Síðan vissi ég ekki af mér fyrr en ég lenti í
sandhrúgu og var allur dofinn. Verkamenn sem voru að vinna
þarna komu fyrstir til mín og þeir hringdu á sjúkrabíl," sagði
Bjarni Einarsson, 12 ára nemandi í Melaskólanum, sem varð
fyrir bíl á mótum Stýrimannastigs og Ránargötu í gær. Talið
er að reiðhjólahjálmur sem Bjarni var með og sandhrúgan hafi
komið í veg fyrir alvarlegt slys. Stór sprunga kom í hjálminn.
„Ég hélt að ég væri allur brotinn
en ég er bara dálítið marinn. Ég
sá bílinn en ég náði ekki að stoppa
áður en bíllinn kom. Hann byijaði
að hemla í um tíu metra fjarlægð
frá mér og lenti á pedalanum á
hjólinu. Ég kastaðist af hjólinu og
lenti í sandhrúgunni," sagði Bjami.
Vilja hraðahindranir
íbúar í hverfmu segja
umferðaröryggi lítið á þessum
slóðum og telja að þar vanti
hraðahindranir. Sævar Guð-
bjömsson, íbúi við Stýrimannastíg,
heyrði skellinn þegar Bjami varð
fyrir bílnum þar sem hann var
staddur á heimili sínu. Hann segir
að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem
óhöpp verði á þessum gatnamótum.
„Frá því ég flutti hingað fyrir þrett-
án árum hafa orðið þijú
hjólreiðaslys á þessum gatna-
mótum. Það er einhver guðsmildi
yfir horninu'að því leyti að það
hafa ekki orðið alvarleg slys hér,“
sagði Sævar.
VIÐRÆÐUNEFND íslenskra
sljórnvalda hitti fulltrúa Banda-
ríkjastjórnar á fundi í Washington
síðastliðinn mánudag til áfram-
haldandi viðræðna um breytta
starfsemi Keflavíkurstöðvarinnar.
Á fundinum var haldið áfram
samningaviðræðum um hugsanlegar
breytingar og aðlögun vamarliðsins
að breyttum aðstæðum, bæði varð-
andi sjóherinn og flugherinn og varð
samkomulag um að halda viðræðum
áfram fljótlega. Að ósk Bandaríkja-
manna eru hugmyndir sem þeir lögðu
fram á fundinum í Reykjavík fyrr í
þessum mánuði ennþá trúnaðarmál.
Þorsteinn Ingólfsson, ráðuneyt-
isstjóri í utanríkisráðuneytinu, sagð-
ist eiga von á að boðað yrði til ann-
ars fundar mjög bráðlega. „Það var
lögð áhersla á að reyna að komast
að leiðarlokum í þessum viðræðum
áður en greint væri frá efnisatrið-
um,“ sagði Þorsteinn.
-----» » ♦-...
Reytingiir
á loðnunni
REYTINGSAFLI hefur verið á
loðnumiðunum eftir góðan afla
fyrr í vikunni. Um 240 þúsund
tonn hafa borist á land á vertíð-
inni, en þar af hafa verksmiðjur
SR nyöls tekið á móti um 136
þúsund tonnum.
Mest hefur borist af loðnu til SR
mjöls á Siglufirði, um 55 þúsund
tonn. Siguður VE landaði rúmlega
1.300 tonnum á Siglufirði í gær. Að
sögn Kristbjöms Ámasonar skip-
stjóra er loðnan dreifðari á miðunum
en áður og erfiðara að ná henni.
Fundir bæjarstjórnar Bolungarvíkur um atvinnulíf á staðnum
Revnt að tryffsda atvinnu
Bolungarvík. t/ %J
MIKIL fundarhöld voru hjá bæjarstjórn Bolungarvíkur í gær þar sem
til umræðu voru horfur í atvinnumálum með tiUiti til atburða síðustu
daga. Sem kunnugt er buðu tvö fyrirtæki á staðnum í frytsihúsið, al-
menningshlutafélagið Ósvör hf., sem stofnað var við gjaldþrot E.G.
og samstaða var um í þvi skyni að kaupa veiðiskip, veiðiheimildir og
fiskvinnslufyrirtæki þrotabúsins, og Þuríður hf., sem er í eigu fjög-
urra hluthafa og hafa haft rækjuverksmiðju þrotabúsins á leigu frá því
í vor.
Ósvör hf. verður nú að endurskoða
vemlega sínar rekstraráætlanir þar
sem þær gerðu ráð fyrir að félagið
ræki bæði veiðar og • vinnslu, en
vinnsluþátturinn er nú kominn í
hendur annarra. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins mun vera fýrir-
hugaður hluthafafundur í Ósvör hf.
7. september næstkomandi.
Bæjarstjórn hélt fundi í gær með
stjómarmönnum í útgerðarfýrirtæk-
inu Græði hf. og Ósvör hf., en þau
fyrirtæki eru í meirihlutaeign bæjar-
trúi gat um hefur bæjarstjóm áhrif
á gang mála í hlutafélögunum Græði
og Ósvör en hefur engin áhrif á fram-
vindu mála hjá Þuríði hf., sem nú
hefur keypt stærsta fiskvinnslufyrir-
tæki staðarins.
Bæjarstjóm og fulltrúar verka-
lýðsfélagsins vonast til að mál þróist
þannig að atvinnulíf staðarins fari
að taka á sig eðlilega mynd og unnt
verði að veita sem flestum bæjarbú-
um trygga atvinnu. „
- Gunnar
sjóðs og verkalýðsfélags staðarins.
Éinnig voru haldnir fundir með full-
trúum Þuríðar hf. og stjómarmönn-
um Verkalýðs- og sjómannafélags
Bolungarvíkur.
Upplýsingum safnað
Bæjarfulltrúar sögðu að þessum
fundarhöldum loknum að þeim hefði
tekist að safna saman verulegum
upplýsingum sem þeir muni nota á
næstu dögum til að átta sig á stöðu
atvinnumála. Eins og einn bæjarfull-
Sjálfstæðisflokkurinn
Ráðin franikvæmda-
sljóri þingflokksins
ÁSDÍS Halla Bragadóttir blaða-
maður var í gær ráðin fram-
kvæmdasljóri þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins. Ásdís Halla tekur
við starfinu af Gústaf Níelssyni
sagnfræðingi, sem gegnt hefur því
undanfarin tvö ár, en hverfur nú
að öðrum störfum.
„Mér lízt mjög vel á að taka þetta
starf að mér,“ sagði Ásdís Halla í
samtali við Morgunblaðið. „Fram-
undan eru mörg og ákaflega spenn-
andi verkefni. Meðal annars er lands-
fundur Sjálfstæðisflokksins á næsta
leiti.“
Ásdís Halla er 25 ára gömul, og
er hún fyrsta konan, sem gegnir
starfi framkvæmdastjóra þingflokks
Sjálfstæðisflokksins. Hún er stúdent
frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi og lauk BA-grófí í stjóm-
málafræði frá Háskóla íslands 1991.
Síðan hefur hún starfað sem blaða-
maður á Morgunblaðinu. Ásdís Halla
hefur meðal annars setið í stjórn
Stúdentaráðs Háskóla íslands og í
stjóm Þórs, félags ungra sjálfstæðis-
manna á Akranesi.^
Sambýlismaður Ásdísar Höllu er
Aðalsteinn Egill Jónasson lögmaður
Morgunblaðií/Þorkell
Nýr framkvæmdasljóri
ÁSDÍS Halla Bragadóttir hefur
verið ráðin framkvæmdasljóri
þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
og eiga þau einn son, Jónas Aðal-
stein.
í dag
Þorskstofnar
Slæm staða í N-Atlantshafi 17
Michael Jackson
Sakaður um kynferðislega mis-
notkun 25
Kúa- og sauöfjárbændur
Mælt er með markaðsgjaldi 31
Skot i myrkrí_________________
Borgnesingar halda golfmót um
miðja nótt 50
Leiðari_______________________
Rússar hóta Litháum 24
Viðskipti/atvinnulíf Á dagskrá
► Gná hf. kaupir fiskimjölsverk- ^ Tónleikar Sting á Stöð 2 -
smiðju í Bolungarvík - Aukin Leikkonan úr Guð gaf mér eyra
umsvif Guðmundar Jónassonar finnur stóru ástina - Fróðleiks-
hf. - Blikur á lofti hjá Body Shop molar um risaeðlur - Sigur eða
- Ævintýraheimur Indiana Jones ósigur - Eiríkur snýr aftur