Morgunblaðið - 26.08.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993
15
arfélög og vinnudeilur er mönnum
mæltur réttur til að stofna stéttarfé-
lög, en það er engin skylda. Ef menn
hins vegar nota sér þennan rétt eru
menn samkvæmt kjarasamningum
og um leið a.m.k. óbeint samkvæmt
landslögum þvingaðir til að vera í
félaginu, enda hefur þeim verið falin
í lögum ýmisleg hagsmunagæzla fyr-
ir launþega og allvíðtækt stjómsýslu-
hlutverk. Ef það hlutverk telst nægi-
lega skilgreint kann svo að fara að
menn séu þvingaðir til virks stuðnings
við málstað stéttarfélaga sem þeir em
andvígir af því að stéttarfélögin hættu
að félög á einhvetju skeiði.
Um algerlega fijáls félög, eins og
til dæmis Hið íslenzka bókmenntafé-
lag sem mér stendur næst er ekki
þörf að ræða í þessu samhengi. Menn
em almennt ekki knúðir til félagsað-
ildar nema einhveijir þeir hagsmunir
séu í húfi sem teljast mikilvægir.
Sama á við um rétt manna til að
standa utan félaga.
Tilfærslur og orðaleikir af þessu
tagi um samanburð á því hvers kon-
ar félög falla undir 11. gr. sáttmál-
ans og hver ekki breyta engu um
endanlega niðurstöðu um rétt manna
til að standa utan félaga. Ef fylgja
á samsvörunarkenningu Jóns Stein-
ars verða menn að skilgreina hvað
sé félag í stað þess að skilgreina
hversu gæzla almannahagsmuna og
stjórnsýsla þurfí að vera ríkur þáttur
í starfí þess til þess að skylda megi
menn til aðildar þannig að standist
11. gr. mannréttindasáttmálans.
Samsvömnarkenningin verndar eng-
in mannréttindi. Leiðin er áfram opin
til að þvinga menn í einhveija lög-
skipaða hópa og leggja á þá þung-
bæra skyldu til að styðja með virkum
hætti málstað sem þeir em andvígir
af því að hópamir heita ekki lengur
félög og 11. gr. vemdar þá ekki.
Niðurstaðan verður hin sama óháð
nafngiftum og ávinningur enginn að
umturna hefðbundinni málvenju.
Annars er ég ekki einn um að
hafna samsvömnarkenningu Jóns
Steinars. Það hafa fleiri gert og
nægir hér að benda á ummæli í dómi
Mannréttindadómstólsins í máli Sig-
urðar A. Siguijónssonar á þá leið að
ekki sé nauðsynlegt í því máli að
skera úr hvort réttur til að standa
utan félags sé jafngildur rétti til að
stofna og ganga í félag. Ef rökbund-
ið með uppgerðum sakargiftum á
aðra.
í máli þessu felst alvaran í áformi
að flytja inn í landið varning sem lög
og reglur banna, sem fjöldi fólks
varð vitni að, en ekki frásögn af
þeim atburði nema að því leyti sem
hún var röng.
Frásögn Agnesar Bragadóttur af
því að ráðuneytismenn hafí átt fmm-
kvæði að því að koma frétt af atburð-
inum til fjölmiðla væri frávik frá
starfsreglum ráðuneytisins ef rétt
væri.
Fjölmiðlar hafa þröngar og
strangar reglur varðandi upplýsingar
um heimildir fyrir fréttum. Þrátt fyr-
ir það hefur tekist að afla vitneskju
sem sýnir fram á að réttu máli er
hallað í frásögn Agnesar Bragadótt-
ur.
Því er hafnað að starfsmenn ráðu-
neytisins hafí að fyrra bragði haft
samband við fjóra tilgreinda fjöl-
miðla, hvað þá fleiri, eins og að er
látið liggja og boðið fréttir af kjötinn-
flutningstilraun.
í frétt fréttastofu Ríkisútvarpsins
29. júlí sl. er einnig hallað réttu
máli um þetta atriði.
Persónulega em mér það tíðindi
að ég teljist hatursmaður utanríkis-
ráðherra og svarinn persónulegur og
pólitískur fjandmaður hans. Ég þekki
engar slíkar hugrenningar í hans
garð og hef oft haft ánægju af fram-
göngu hans og orðfimi.
Óvildarskrifum í málgagni hans í
minn garð og starfsfélaga minna
vísa ég til föðurhúsa sem ómakleg-
um.
Umfjölllun um mál þetta hefði
auðvitað aldrei orðið sú sem hún
varð hefðu aðrir átt í hlut en utanrík-
isréðherrahjónin og margt mátt vera
ósagt. Vonandi er að henni fylgi það
gott að fleirum en áður sé ljóst á
hvaða forsendum er spomað við inn-
flutningi matvæla og annars vam-
ings sem getur borið nýja sjúkdóma
inn í land okkar þannig að fleiri liðs-
menn bætist í varnarbaráttuna.
in tengsl eru milli félagafrelsis og
réttar til að standa utan félags er
ekki ljóst hvers vegna dómstóllinn
setur þessa athugasemd í dóminn.
Akademískar umræður
og ofsatrú
Auðvitað má færa rök fyrir ólíkum
skýringum á 73. gr. stjórnarskrár-
innar og 11. gr. mannréttindasátt-
málans og það hefur vissuleg verið
gert. Einnig mætti rökstyðja rétt
manna til að standa utan félaga með
skírskotun til almennra grundvallar-
reglna mannréttinda eins og áður var
ymprað á. En þegar mál eru fyrir
dómstólum liggur allajafna fyrir rök-
semdafærsla aðila og allir hafa nokk-
uð til síns máls. Mál liggja sjaldnast
þannig fyrir að einn aðili hafi að öllu
leyti rétt fyrir sér en aðrir rangt.
Hlutverk dómstólsins er að vega og
meta röksemdir bæði þær sem lúta
að lögum og staðreyndum. Síðan
fellir hann dóm á grundvelli þeirra
sem hann telur þyngstar á metunum.
Þama geta verið mörg álitamál. Þar
sem mikill vafí er komast dómstólar
einatt að ólíkri niðurstöðu og stund-
um er ágreiningur innan dómstóls
þannig að dómarar skila sératkvæð-
um. í þessu felast engir áfellisdómar.
Jón Steinar skírskotar óspart til
„akademískra krafna" um leið og
hann lýsir skoðunum sínum og rök-
semdum sem algildum sannindum
En nú fer að verða mál til komið að
hann gerir sér ljóst að „akademísk"
umræða getur aldrei farið fram á
grundvelli þeirrar ofsatrúar sem
hann er haldinn á eigin skoðanir.
Hún leiðir hann út í kappræðu í stað
rökræðu þar sem hann einfaldar
hlutina að hætti lýðskrumara stjórn-
málanna og kýs frekar að ræða per-
sónur viðmælenda sinna en rök
þeirra.
Höfundur er prófessor við
lagndeiid Háskóla íslands.
Listdansskóli íslands
Nýtt skólaár að hefjast
KENNSLA í Listdansskóla Is-
lands hefst þriðjudaginn 7. sept-
ember. Skólinn verður starf-
ræktur með svipuðu sniði og
undanfarin ár og verða inntökp-
próf dagana 1. og 2. september
nk. Lágmarksaldur nemenda er
9 ár og er skráning I inn-
tökupróf mánudaginn 30. og 31.
ágúst milli kl. 15 og 19.
Listdansskólinn bryddar upp á
þeim nýmælum í vetur að hefja
kennslu í Keflavík, kennt verður að
Hafnargötu 23, í Líkamsrækt Önnu
Leu og Bróa. Þá verður í vetur boð-
ið upp á sérstaka tíma fyrir stráka
og einnig fyrir gamla ballettnemend-
ur sem vilja halda sér í formi með
því að taka ballettíma tvisvar í viku.
Kennarar í vetur verða Ingibjörg
Björnsdóttir, Alan Howard, Auður
Bjarnadóttir, Nanna Ólafsdóttir,
David Greenall og Guðmundur
Helgason.
FLÍSAR
:Í3
!»! W iif'1
Stórhöfða 17, við GulUnbrú,
sími 67 48 44
Fyrfr þá
sem vfflj a
meira
o
grænmeti
Ef þu ert a græninetislinunni höfum viö
hjá Pizza Hut pizzuna fyrir þig, því
grænmetispizzan okkar er lilaðin hollu og
fersku grænmeti.
Þegar inikið af gæða sveppum blandast
hinni frægu Pizza Hut tómatblöndu, ásamt
grænni og matarmikilli papriku,
bragðmiklum tómötum og ilmandi lauk, er
útkoman frábær. Og þegar tvö lög af ekta
osti eru komin yfir er Pizza Hut
grænmetispizzan fullkomnuð.
Pizza Hut — einfaldlega meira af öllu
’-Hut
Hótel Esja • 680809 • Mjódd • 682208
Frí heimsendingarþjónusta
Um leið og við hjá Pizza Hut á Islandi fögnum 5 ára afmæli, fagnar Pizza Hut veitingahúsakeðjan
35 ára afmæli. Við erum stolt af því að tilheyra stærstu pizzukeðju í lieimi með yfir 9.000 veitingastaði
Höfundur er r&ðuneytisstjóri i
landbúnaðarráðuneyti.