Morgunblaðið - 26.08.1993, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993
S AMKEPPNISHU GS J ÓN
í L YFJ ADREIFIN GU
eftir Þór Sigþórsson
Hinn 18. ágúst sl. ritar fram-
kvæmdastjóri Pharmaco hf. grein í
Mbl. undir fyrirsögninni „Öfugsnúin
einkavæðing“ þar sem hann ræðst
að stjórnvöldum og stjómendum
Lyfjaverslunar ríkisins (L.r.) fyrir
fádæma sóun í fyrirtæki sem þó
starfar í atvinnugrein sem að mati
greinarhöfundar í felst vaxtarbrodd-
ur og er í greinilegri sókn. Ekki
verður komist hjá því að leiðrétta
helstu rangfærslumar sem fram
koma í grein hans og gera grein
fyrir þeirri endurnýjun sem hafin
er á framleiðsludeildum fyrirtækis-
ins.
Lyfjamarkaðurinn á íslandi
Samkvæmt ritinu Islenski lyfja-
markaðurinn (IDM) nam heildarsala
skráðra lyfja rétt rúmum 2,5 millj-
örðum króna á árinu 1992 á heild-
söluverði án VSK. Að viðbættum
óskráðum lyfjum má áætla að sala
lyfja í heildsölu hafi numið u.þ.b,
2,7 milljörðum króna.
Samkvæmt ofangreindu upplýs-
ingariti um íslenska lyfjamarkaðinn
stunda 8 fyrirtæki heildsöludreif-
ingu lyfja á íslandi. Þeirra lang-
stærst er fyrirtækið Pharmaco hf.,
með 55% markaðshlutdeild. Það er
óumdeilanlegt að fyrirtæki með yfir
helmings hlutdeild er markaðsráð-
andi og hefur nánast einokunar-
stöðu. Ríkissjóður er langstærsti
greiðandi lyfjakostnaðar eða greiðir
tæp 70%, með endurgreiðslum í
gegnum tryggingakerfíð og greiðslu
lyíjakostnaðar á sjúkrahúsum. Rík-
isafskipti að lyíjamálum eru því afar
mikil á íslandi og eðlilegt að hið
opinbera reyni að hafa áhrif á lyfja-
kostnað og einnig skipan lyfjamark-
aðarins í heild.
Samkeppnisstaða
lyfjaumboðsmanna
Hvernig má skýra hinn skjóta
uppgang fyrirtækisins Pharmaco
hf.? Allt frá því um miðjan áttunda
áratuginn og fram til loka ársins
1990 náði Pharmaco hf. til sín fjölda
umboða annarra rótgróinna lyfja-
fyrirtækja í krafti sérstöðu sinnar.
Þar sem fyrirtækið var nánast alfar-
ið í eigu tiltekinna lyfsala og erf-
ingja þeirra voru hagsmunatengsl
þess við smásöludreifmguna ákaf-
lega skýr,_ sérstaklega með tiiliti til
sölu lausa’sölulyfja sem nemur um
20% af lyfjasölu apóteka. Önnur
lyfjaumboðsfyrirtæki hafa staðið
hölium fæti í samkeppninni um við-
skiptasamböndin eins og dæmin
hafa sannað. Alþingi setti skorður
við eignaraðild lyfsala að lyfjaheild-
sölufyrirtækjum þegar samþykkt
voru lög um Lyfjadreifingu nr.
76/1982 og má hún ekki vera um-
fram 5% af hlutafé.
Lyfjaverslun ríkisins
L.r. starfar samkvæmt sérstökum
kafla í lögum um lyfjadreifmgu hvað
varðar innflutning bóluefna og ann-
arra ónæmisefna. í honum er enn
fremur kveðið á um, að L.r. sé sjálf-
stætt fyrirtæki með eigin stjórn.
Áður fyrr hafði L.r. sameiginlegan
fjárhag með ÁTVR en skilið var að
fullu á milli fyrirtækjanna þann 1.
júlí 1986, er undirritaður tók við
forstöðu fyrirtækisins og hefur L.r.
haft sjálfstæðan fjárhag allar götur
síðan.
Það skal skýrt tekið fram að L.r.
hefur frá þessum tíma ekki fengið
framlög á fjárlögum. Heildarvöru-
sala fyrirtækisins nam á síðasta ári
811 milljónum kr. án VSK og benda
áætlanir til þess að hún muni nema
tæpum 900 milljónum í ár. Ársverk
við fýrirtækið eru 68 en heildar-
fjöldi starfsmanna 76. Rekstur þess
greinist í lyfjaframleiðslu. Innflutn-
ing og dreifingu lyfja, hjúkrunar-
vöru og efnavöru. I kjölfar ákvörð-
unar ríkisstjórnarinnar um einka-
væðingu L.r. var sjálfstætt ráð-
gjafafyrirtæki, Kaupþing hf., fengið
til þess að gera úttekt á starfsemi
L.r. og lyfjamarkaðnum í heild.
Einnig skyldi gerð tillaga til fjár-
málaráðherra um með hvaða hætti
staðið skyldi að einkavæðingu fyrir-
tækisins. Kaupþing skilaði ítarlegri
skýrslu um málið í október á sl. ári
og er niðurstaðan í stuttu máli sú
að lokið verði uppbyggingu fram-
leiðsluþáttanna jafnhliða einkavæð-
ingu fyrirtækisins, enda mun fjár-
festingin skila sér að fullu á eðlileg-
um afskriftartíma að viðbættum
fjármagnskostnaði. Einnig var lögð
áhersla á að einkavæðing L.r. leiddi
ekki til samþjöppunar á markaðnum
og þar með minni samkeppni. í
skýrslu Kaupþings er eðlilega tekið
mið af samkeppnisstöðu fyrirtækja,
hagsmunum ríkisins sem eiganda
fyrirtækisins og langstærsta greið-
anda lyfja og einnig atvinnuhags-
muna þeirra 76 starfsmanna sem
eiga afkomu sína undir rekstri fyrir-
tækisins.
„Atvinnugrein í sókn“
Auk þróunar og markaðssetning-
ar eftirlíkingalyfja fyrir íslenskan
markað vinnur fyrirtækið að nokkr-
um samstarfsverkefnum á sviði
lyíjaframieiðslu og hefur þegar ver-
ið sótt um alþjóðlegt einkaleyfi fyr-
ir tveimur þeirra. Þá hefur L.r. unn-
ið að stofnun nýrrar dreypilyfjaverk-
smiðju í Litháen _ í samstarfí við
sænskan aðila og íslenska heilsufé-
lagið hf. og þróun á heilsuvörum
úr hráefnum tengdum Bláa lóninu
í samstarfi við Heilsufélagið við
Bláa lónið hf. Undangengin rúm 2
ár hefur verið unnið að endurskipu-
lagningu framleiðsludeilda fyrir-
tækisins í samráði við breskt ráð-
gjafarfyrirtæki.
Hagkvæmasti kosturinn er að
endurbyggja verksmiðjuna í núver-
andi húsnæði. Er kostnaður við
framkvæmdina sjálfa áætlaður ca
140 milljónir og fjárfestingar í tækj-
um nema 45 milljónum. Gert er ráð
fyrir að fjármagna endurbygging-
una af eigin fé og með lántöku og
mun fyrirtækið standa sjálft skil á
greiðslum. Alþingi heimilaði L.r. á
fjárlögum fyrir árið 1993 að veija
ákveðinni upphæð til framkvæmd-
anna.
En víkjum nú að grein fram-
kvæmdastjórans.
„Hlutverki Lyfjaverslunar
ríkisins lokið“
I grein sinni fyrirskipar fram-
kvæmdastjórinn stjórnvöldum að
leggja L.r. þegar í stað niður þar
sem „hlutverki Lyfjaverslunar ríkis-
ins sé lokið og eðlilegt hefði verið
að fara sömu leið og Halldór Blön-
dal fór með Skipaútgerð ríkisins —
leggja Lyfjaverslun ríkisins niður“.
Þessari merku niðurstöðu hefur
hann væntanlega komist að eftir
nákvæman samanburð á rekstri og
afkomu þessara fyrirtækja! Að vísu
eru fordæmi fyrir því að lyfjafram-
leiðslufyrirtæki hafi verið Iögð niður
á íslandi. Slík gerðist þegar fyrir-
tækjasamsteypan Pharmaco-Delta
hf. keypti lyfjaframleiðslufyrirtækið
Toro hf. Við það misstu nánast allir
starfsmenn Toro hf atvinnu sína.
Verði „Toro-leiðin“ farin er ljóst að
ekki mun skapast neitt vandamál
varðandi starfsmenn L.r. Þeir munu
bara bætast í ört vaxandi hóp at-
vinnulausra á íslandi. Hins vegar
gæti það vafíst eilítið fyrir stjóm-
völdum hvað gera á við þann tæpa
milljarð sem fyrirtækið veltir. Fram-
kvæmdastjórinn hefur e.t.v. ráð
handa þeim í því efni.
„Kostnaðarsöm einkavæðing"
Að vísu getur framkvæmdastjór-
inn fallist á þá ákvörðun ríkisstjóm-
arinnar að fara næstbestu leiðina —
einkavæðingarleiðina, þar sem
„frumvarpið hreyfði t.d. ekki við
nokkram manni ef ekki kæmi annað
til“. Þó era að hans mati fram-
kvæmdir og fjárfestingar L.r. „í
himinhrópandi mótsögn við allt ann-
að sem er að gerast í þessu þjóðfé-
lagi og yfirlýsta stefnu stjórnvalda".
Hafi framkvæmdastjórinn fylgst
með stefnu Ijármálaráðherra varð-
andi einkavæðingu L.r. ætti honum
að vera Ijóst að hún hefur frá upp-
hafi verið sú að skila fyrirtækinu
sterku á almennan markað og við-
halda með þeim hætti samkeppni.
White hefur gefið út mikinn
fjölda bóka og skrifað tímarits-
greinar um útlitshönnun prent-
gagna. Hann hefur einnig veitt
ýmsum fjölþjóðafyrirtækjum ráð-
gjöf í útgáfumálum. Þar má nefna
IBM, Estma Kodak, Hewlett-
Packard, Ranx-Xeros, National
Geographic, New York Times o.fl.
White hefur haldið yfír 900 nám-
skeið og námstefnur víða um heim
og verður á fyrirlestraferð um
Norðurlöndin.
Námstefnan höfðar til allra
þeirra er fást við útgáfur og hönn-
Þessi stefna hefur meðal annars
birst í því að heimila vandlega undir-
búna fjárfestingar- og rekstraráætl-
un fyrirtækisins þó að fyrir Alþingi
liggi framvarp um einkavæðingu
þess. Rétt er að þessi einkavæðing-
arstefna er „öfugsnúin" hagsmun-
um Pharmaco hf. en stjómvöld
hljóta að biðjast velvirðingar á því
að hafa hreyft við framkvæmda-
stjóranum!
„Hundraða milljóna sóun“
Framkvæmdastjórinn krefst upp-
lýsinga um hvaðan fjármagnið komi
og staðhæfir jafnframt að „með því
að taka fjármagn frá ríkinu til þess
að fjármagna sterkari stöðu Lyfja-
verslunar ríkisins gagnvart sam-
keppnisaðilum er auðvitað verið að
skapa ójafnræði í aðstöðu". Stöðu
Pharmaco hf. gagnvart öðram lyfja-
fyrirtækjum hefur verið lýst hér að
framan og einnig fjármögnun fram-
kvæmda L.r. Allt frá því að undir-
búningur framkvæmdanna var haf-
inn hefur fjárfestingum í fram-
leiðsludeildum verið stillt mjög í hóf
með hagkvæmni heildarfram-
kvæmd'a að markmiði. Á sama hátt
mætti spyija hvaðan það fjármagn
kom sem Pharmaco-Delta hf. notaði
til kaupa Toro hf., Frigg hf., Gos-
drykkjadeild Sanitas hf. (seinna
Gosan hf.), íslensk matvæli hf.,
rekstur Lindalax hf., rekstur Ís-
landslax hf., Viking Brugg hf. o.fl.
Undirritaður verður að játa að um-
svif L.r. era harla lítilfjörleg í þess-
um samanburði en voru sumar þess-
ara fjárfestinga e.t.v. „átakanleg
dæmi“ um fjárfestingarmistök?
„Kænskufullur
undirbúningur"
Framkvæmdastjórinn átelur enn
„sóun á fjármunum í staðinn fyrir
að nota sama fjármagn til að skapa
atvinnu fyrir fjölda fólks“ o.s.frv.
Erfitt er að skilja hvaðan höfundi
kemur það vald að ræða opinberlega
í riti af þvílíkri fyrirlitningu um at-
vinnuhagsmuni 76 starfsmanna L.r.
sem hafa staðið dyggilega að þrótt-
mikilli uppbyggingu fyrirtækisins
undanfarin ár. Þótt greinarhöfundi
sé mikið niðri fyrir og í mun að
koma í veg fyrir framkvæmdir L.r.
er ljóst að viss siðferðismörk ber
að virða í slíkri baráttu.
Af orðum höfundar má einnig
ráða að framkvæmdir L.r. séu hrein-
lega fjármagnaðar með þeim fjár-
munum sem ríkisstjórnin veitti til
atvinnusköpunar. Erfitt að sjá að
tilgangurinn sé annar en að skapa
tortryggni milli þeirra stjómvalda
er hann reynir að hafa áhrif á og
sveitarstjórna. Hið rétta er að fram-
kvæmd L.r við endurbygginguna
kemur til viðbótar átaki ríkisstjórn-
arinnar til nýsköpunar í atvinnumál-
un prentgagna. Hvort sem eru
starfsmenn auglýsingastofa, blaða
eða fyrirtækja sem stunda útgáfu
á kynningarefni. White mun fjalla
um hvemig megi beita hönnun í
prentuðu máli til að grípa athygli
lesenda og leiða þá í gegnum efn-
ið. Meðal annars er lögð áhersla
á notkun auðs svæðis í prentgrip-
um og samspil leturs við myndefn-
ið.
Námstefnan verður haldin á
Holiday Inn og fer fram á ensku,
en dreift verður námsgögnum á
íslensku sem unnin hafa verið udp
Þór Sigþórsson
„En greinin ristir í raun
mun dýpra heldur en
gagnrýni höfundar á
fjárfestingu L.r. Með
henni er vegið að
grundvallarþáttum
einkavæðingarstefn-
unnar.“
um á tímum þegar því miður ríkir
erfitt atvinnuástand.
Lokaorð
Ljóst er að grein framkvæmda-
stjóra Pharmaco hf. er ekki beint
til þeirra sem þekkja til íslenskra
lyfjamála, til þess era rangfærslur
í henni of augljósar. Markmiðið með
greininni er sýnilega að slá ryki í
augu almennings, beita stjómmála-
menn þrýstingi og með þeim hætti
koma í veg fyrir að opinbert fyrir-
tæki nái að framkvæma nauðsyn-
legar fjárfestingar- og rekstraráætl-
anir. En greinin ristir í raun mun
dýpra heldur en gagnrýni höfundar
á fjárfestingu L.r. Með henni er
vegið að grandvallarþáttum einka-
væðingarstefnunnar. Gegn þeirri
ákvörðun fjármálaráðuneytis að
skila opinbera fyrirtæki þannig út
á markaðinn að það höfði til al-
mennra fjárfesta. Það stríðir gegn
hagsmunum greinarhöfundar. Víða
erlendis, t.d. í, Bretlandi tíðkast að
leggja ríkisfyrirtækjum til fjármagn
við einkavæðingu til þess að búa
þau undir samkeppni á fijálsum
markaði. Slíkt hefur einnig verið
gert á íslandi og má þar nefna Síld-
arverksmiðjur ríkisins. Því komu
engin viðbrögð frá framkvæmda-
stjóranum gegn þeirri ráðstöfun?
Komist samkeppnisaðilar upp með
að segja stjórnvöldum fyrir verkum
í eiginhagsmunaskyni með hvaða
hætti skuli staðið að einkavæðingu
opinberra fyrirtækja mun aldrei
skapast sátt um einkavæðingu á
íslandi. Stjómvöld hafa ekki látið
skipa sér fyrir verkum í þessu máli
— þannig er farið „um samkeppnis-
hugsjón flokks einkaframtaksins,
Sjálfstæðisflokksins".
Höfundur er lyfjafræðingur og
forstjóri Lyfja vcrslurmr ríkisins.
Jan V. White
/
úr kennsluefni Whites. Þátttöku-
fjöldi er takmarkaður við 50
manns og ber þátttakendum að
tilkynna sig hjá Iðntæknistofnun.
Þátttökugjald er 12.000 kr.
Námstefna í hönn-
LIFIÐ ER LIST! un prentgripa
Lífga&u uppá Hlveruna, gefóu sjálfum þér og
vinum jDÍnum, myndverk, listgripi, nytjahluti,
tísku- og klassíska skartgripi.
Kort, minjagripir og bækur frá
ÞjóSminjasafni Islands.
Við seljum hinar heimsþekktu vörur frá
Rede Guzzini.
Erum í alfaraleiS í listrænu umhverfi.
USTGALLERÍ Listfiúsinu í Laugardal • Engjateigi 19 • Sími og fax: 3 28 86
IÐNTÆKNISTOFNUN og Prenttæknistofnun halda námstefnu í út-
litshönnun prentgripa föstudaginn 3. september nk. Stjórnandi og
fyrirlesari námstefnunnar verður Bandaríkjamaðurinn Jan V. White,
sem er einn virtasti og eftirsóttasti fyrirlesari í heiminum á þessu
sviði.