Morgunblaðið - 26.08.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993
17
Slæm staða þorskstofna
í Norður-Atlantshafi
ÞORSKSTOFNAR í Norður-Atlantshafi hafa flestir minnkað mjög á
síðustu árum og er talið að ofveiði og breytingum á veðurfari sé
helst um að kenna. Veðurfar hefur ætíð haft mikil áhrif á vðxt og
viðgang þorskstofnsins en það var ekki fyrr en á þessari öld sem
veiðar manna fóru að hafa merkjanleg áhrif á stofnstærðina. Þetta
kom fram á ráðstefnu Alþjóðahafrannsóknaráðsins um þorskinn og
áhrif veðurfars á vöxt hans og viðgang sem nú er haldin í Reykjavík.
Á fyrstu tveimur dögum ráðstefn-
unnar var fjallað m.a. um þróun og
stöðu helstu þorskstofna í Norður-
Atlantshafi, og sveiflur í þeim. Reynt
var að meta veðurfarsleg áhrif á
þessar sveiflur svo og áhrif annarra
fisktegunda ásamt sjávarspendýrum
og fuglum á vöxt og viðgang þorsk-
stofna.
Helstu þorskstofnar í Norður-Atl-
antshafi eru í Barentshafi, við ís-
land, við Færeyjar, í Hvítahafi, við
Grænland og við strönd Norður-
Ameríku eða í Maineflóa, á George-
banka og í St. Lawrenceflóa.
íslenski stofninn ofveiddur
Sigfús A. Schopka, fískifræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun, flutti er-
indi á ráðstefnunni um sveiflur í ís-
lenska þorskstofninum á þessari öld
en stofninn er hinn næststærsti í
Norður-Atlantshafí. Líffræðilegar
rannsóknir á stofninum hófust í upp-
hafi aldarinnar og liggja fyrir kerfís-
bundnar mælingar frá öðrum ára-
tugi hennar. Reynt hefur verið að
reikna út breytingar á stofnstærð
og nýliðun og þær bornar saman við
breytingar á veðurfari og veiðar á
sama tíma. Þá hafa tengslin milli
íslensku og grænlensku þorskstofn-
anna verið gaumgæfð og reynt að
meta hugsanleg áhrif minni veiða
úr hinum grænlenska á auknar veið-
ar á íslandsmiðum á sama tíma.
Sigfús telur að veiðistofninn (fjög-
urra ára þorskur og eldri) hafi náð
hámarki árið 1928 og þá náð 3,3
milljónum tonna. en síðan minnkað
í sveiflum og sé nú aðeins 600 þús-
und tonn. Þá hafi hrygningarstofn-
inn einnig minnkað að sama skapi.
Um 1930 hafi hann oft verið um ein
og hálf milljón tonna og fram yfir
1960 hafi hann alltaf verið yfír ein
milljón tonna. Síðan hafí hallað veru-
lega undan fæti með síaukinni sókn
og nú sé hann talinn vera um 2-300
þúsund tonn. Þá hafi tíu ára gamall
þorskur og eldri yfírleitt verið um
þriðjungur stofnsins um 1930 en nú
sé hann hverfandi. Niðurstaða Sig-
fúsar er því sú að fyrir síðari heims-
styijöld hafí veiðar úr þorskstofnin-
um verið í hófí og þá hafi sveiflur
í stofnstærð þorsks í hafínu kringum
ísland og Grænland aðallega ráðist
af veðurfarslegum þáttum. Orsakir
þess að stofninn hafí minnkað síðan
og þá aðallega á síðustu árum megi
hins vegar rekja til samspils tveggja
þátta; breytinga á veðurfari og of
mikillar sóknar í stofninn.
Samdráttur við strendur
N-Ameríku
Á ráðstefnunni var fjallað sérstak-
lega um þorskstofnana undan
ströndum Norður-Ameríku eða á
Georgebanka, í Maineflóa og við
Nova Scotia. Þorskstofninn við La-
brador og Nýfundnaland var áður
fýrr einn hinn stærsti í N-Atlants-
hafí en er nú algerlega hruninn.
Stofnarnir á þessum svæðum hafa
verið nýttir öldum saman og gegnt
veigamiklu hlutverki í veiðum
Kanada- og Bandaríkjamanna. Veið-
arnar færðust mjög í aukana eftir
1960 en drógust síðan saman eftir
1970. Eftir 1976 stækkuðu stofn-
amir aftur og jókst veiði úr þeim
að sama skapi og náði hún áður
óþekktu hámarki árið 1982. Eftir
þetta fóru stofnamir að minnka en
lítið var þó dregið úr sókn í þá fyrr
en á síðustu árum. Benda nýlegar
rannsóknir til að stofnamir séu nú
í lágmarki. Dr. F.M. Serchuk, yfir-
maður rannsóknadeildar Northeast
Fisheries Center í Massachusetts,
telur að ofveiði eigi tvímælalaust
mestan þátt í slæmu ástandi þeirra
nú en álítur jafnframt að veðurfars-
legir og líffræðilegir. þættir hafí
einnig haft áhrif í þá veru.
Sveiflur í fiskveiðum í St.
Lawrenceflóa.
Ghislain A. Chouinard, frá sjávar-
útvegsráðuneyti Kanada, flutti er-
indi um sveiflur í þorskstofnum í
St. Lawrenceflóa sem er á milli
meginlands Norður-Ameríku og Ný-
fundnalands. Stöðugt streymi fersk-
vatns úr St. Lawrencefljóti er ein-
kennandi fyrir flóann og í honum
em tveir þorskstofnar. Frá því á sjö-
unda áratugnum hefur þorskafli úr
þessum tveimur stofnum sveiflast
frá 54-76 þúsund tonn á ári og
hafa þeir minnkað nokkuð á síðustu
ámm. Chouinard telur að þrátt fyrir
auknar veiðar úr stofnunum á síð-
ustu árum séu meginorsakir minnk-
unarinnar minni nýliðun vegna
breytinga á veðurfari. Hann telur
einnig að betri nýliðun á áttunda
áratugnum en hinum níunda megi
sennilega rekja til hærri sjávarhita
þrátt fyrir minni hrygningarstofn.
Lágur sjávarhiti og minni þorskveiði
á síðustu árum styðji þessa kenningu
enn frekar.
Svend Aage Horsted, frá Græn-
Sigrún Magnúsdóttir borgarfull-
trúi Framsóknarflokks óskaði eftir
að kannað yrði hvort löglega hafí
verið staðið að fjárútlátum varðandi
athugun og úttekt fyrir sjálfstæðis-
menn á hugmyndum þeirra um
einkavæðingu. Bent er á að engin
tillaga hafi verið samþykkt í borgar-
ráði eða borgarstjórn um að láta
slíka athugun fara fram. Þá segir,
„Ef skilningur sjálfstæðismanna,
sem kemur fram í bókun borgar-
stjóra í borgarráði 29. júní s.l., er
réttur, er þá Framsóknarflokknum
ekki heimilt að fela verkfræði- eða
lögfræðistofum að gera úttektir til
grundvallar tillöguflutningi fulltrúa
flokksins í borgarstjórn og senda
lensku hafrannsóknastofnuninni,
flutti erindi sem byggist á niðurstöð-
um hans og hafði samið um sveiflur
á stofnstærð þorsks við Grænland
og hugsanlegar orsakir þeirra. Sagði
Horsted að allt benti til að þorskur
hefði verið við Grænland frá örófí
alda og stofnstærð og útbreiðsla
hefði farið eftir umhverfíslegum
þáttum. Hlýindaskeið sem hófst um
1920 hafí til dæmis leitt til þess að
sérstakur stofn komst á laggirnar
við Vestur-Grænland og skilaði hann
sterkum árgöngum á milli 1930 og
1960 með skömmu millibili. Horsted
telur ljóst að umtalsverður hluti þess
þorsks sem hafí veiðst við Vestur-
Grænland komi frá hrygningar-
stöðvum við ísland. Hlýindaskeiðinu
lauk seint á sjöunda áratugnum.
Horsted telur að vestur-grænlenski
þorskstofninn hafi ekki skilað góðum
stofni síðan heldur hafí allir góðir
árgangar verið af íslenskum upp-
runa. Síðasti árgangurinn sem hægt
hafí verið að veiða sæmilega úr hafí
verið frá 1984-85 og hafi horfíð af
miðunum við Vestur-Grænland um
1990. Nú sé líklega jafnlítið af þorski
á þessu svæði og var um síðustu
aldamót.
Færeyski þorskstofninn í
lágmarki
H. Jákupsstovu, frá Fiskrann-
sóknastofu Færeyja, fjallaði um
sveiflur í færeyska þorskstofninum
og sagði að þrátt fyrir mikla sókn
í stofninn mestan hluta aldarinnar
hafí afli verið tiltölulega stöðugur
eða frá 20-40 þúsund tonn. Framan
af hafí þessi stöðugleiki borið styrk-
leika stofnsins vitni og endurspeglað
heppilegar umhverfisaðstæður en
einnig bendi margt til þess að veitt'
Vandræði á veiðislóð
Þorskveiðar við austurströnd
Kanada skoðaðar í sögulegu ijósi
Kenningar
um hrunið
Bent er á ofveiði,
göngur af svæðum,
loftslag, slæm
fæðuskilyrði, seli
,.| og aðrar afætur.
Banda-
ríkin
~-/s\>4S Í4R>
St.Lawrenci / Nýfundna-
flái land
4T Kxr^x
/H \3Pn ^ \
? Í'”\3PS
! x 30
Veiðisvæði Sögulegt meoatta 1> Kvótinn 1992 Kvotinn 1993 Kvotasapá 1994
2 J, 3KL Norðurslóð 278.000 44.00021 - Veiðibann -
3NO Stóribanki3) 75.000 10.200 10.200 6.000
3Ps Kanada/Frakkl. 49.000 21 44.000 20.000 6.000
3Pn-4RS Norðurflóinn 79.000 35.000 31.000 20.000
4TVn Suðurflóinn 56.000 43.000 13.000 8.000
4VsW A-Nova Scotia 52.000 35.000 11.000 2.500
4X V-Nova Scotia 21.000 20.000 26.000 7.000
5Z Georgesbanki3) 17.000 15.000 15.000 2.000
1) Byggt á 30-40 ára veiðitímabili og tekur með afla erlendra skipa
fram til ársins 1977 að efnahagslögsagan varfaerð út í 200 sjómílur.
2) Veiðibannið var sett á i júlí 1992 3) Að auki veiðar utan efnahagslögsögu
hafí verið úr honum af skynsemi. Á
síðustu árum hefur hins vegar sigið
á ógæfuhliðina og hafa stofninn og
afli úr honum náð áður óþekktu lág-
marki. Helstu orsakir þess telur Já-
kupsstovu vera gegndarlausa of-
veiði, slaka nýliðun og verri árganga
en áður.
Þorskstofninn á uppleið i
Barentshafi
Þorskstofninn í Barentshafí er lík-
lega sá stærsti í heimi. Mikið hrun
varð í stofninum á síðasta áratug
en þá varð hahn minni en milljón
tonn en hafði verið 4-5 milljónir
tonna á sjötta áratugnum. Á ráð-
stefnunni hélt Odd Nakken, for-
stöðumaður norsku Hafrannsókna-
stofnunarinnar, erindi um stofninn
og er skoðun hans sú að gegndar-
laus ofveiði hafí átt mesta sök’ á
hruni hans. Nakken telur að veðurf-
ar hafí einnig nokkur áhrif á nýliðun
þorsksins auk veiða annarra dýra-
tegunda á honum. Mjög var dregið
úr sókn í stofninn með samkomulagi
Rússa og Norðmanna frá árinu 1989
og hefur hann rétt nokkuð úr kútn-
um síðan.
Lögmæti fjárútláta Sjálfstæðismanna
Aðalregla að leit-
að sé samþykkis
I SVARI borgarendurskoðunar við fyrirspurn um hvort löglega hafi
verið staði að fjárútlátum vegna hugmynda Sjálfstæðisflokksins um
einkavæðingu, segir að aðalreglan sé sú að leitað sé samþykkis sveitar-
stjórnar áður en til fjárútláta komi.
reikninginn til borgarstjóðs."
Samþykki sveitastjórnar
I svari borgarendurskoðenda er
vísað til Sveitarstjórnarlaga þar sem
segir að:, „Til útgjalda, sem ekki eru
lögbundin, samningsbundin eða leið-
ir af fyrri samþykkt sveitarstjórnar,
má ekki stofna nema til komi sam-
þykki sveitarstjórnar." Bent er á að
aðalreglan sé sú, að leitað sé sam-
þykkis sveitarstjórna áður en til fjár-
útláta kemur. Miðað við orðalag
greinarinnar um lögmæti fjárútláta,
hefur hins vegar verið litið svo á að
slíkt sé heimilt ef tryggt þyki að til
komi samþykki sveitarstjórnar.
l RÚMFATA
Í Skeifunni 13 Auðbrekku3 Norðurtanga 3 (
rReykjavík Kópavogi Akureyri
1(91)68 74 99 (91)4 04 60 (96)2 66 62