Morgunblaðið - 26.08.1993, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993
Iþróttadrykkur
sem bætir vökvatap
VERÐKÖNNUN
VIKUNNAR
Vero
VÍFILFELL hefur nú hafið markaðssetningu á nýjum „íþrótta-
og heilsudrykk án kolsýru hér á landi. Drykkur þessi, sem heitir
Aquarius, hefur verið í langri og ýtarlegri þróun hjá Coca Cola
Company. Hann hefur náð miklum og hröðum vinsældum erlend-
is og má nefna að hann er nú þegar orðin vinsælasti íþróttadrykk-
urinn á Spáni, segir í fréttatilkynningu frá Vífilfelli hf.
„Aquarius er bragðgóður og
frískandi drykkur án kolsýru, sem
ekki aðeins slekkur þorsta heldur
endurnýjar orku í líkamanum eftir
góða líkamshreyfingu. Líkaminn
verður fyrir vökvamissi meðan á
þjálfun stendur eða annarri
áreynslu og með vökvatapinu miss-
ir líkaminn mikilvæg sölt og stein-
efni.
Aquarius bætir upp vökvamiss-
inn og færir líkamanum aftur þau
nauðsynlegu efni, sem hann þarf,
segir ennfremur."
I Þýskalandí hefur sala á Aquar-
ius aukist um 155% á einu ári auk
þess sem hann hefur hlotið miklar
vinsældir í Japan og Kóreu. Drykk-
urinn fæst í íþróttamiðstöðvum,
heilsuræktarstöðvum, íþróttaleik-
vöngum, matvöruverslunum, sölu-
tumum og bensínstöðvum í 330
ml. dósum um land allt og inniheld-
ur vatn, sykur, sítrónusýru, natr-
íumsítrat, kaliumfosfat, kalsium-
fosfat, þráavamarefni, bragðefni,
bindiefni og salt. m
5 -
Heilsudrykkur ón kolsýru. -
Aquarius hefur verið í langri og
ýtarlegri þróun hjá Coca Cola
Company.
Moda opnar
verslun fyrir herra
Sportlegur fatnaður frá Jack
og Jones.
MARGRÉT Jónsdóttir eigandi
Vero Moda hyggst opna
herrafataverslun í Kringlunni
2. september næstkomandi.
Fatnaðurinn er frá Jack &
Jones sem er dótturfyrirtæki
Best Seller eins og Vero Moda.
Að sögn Margrétar verður til
sölu sportlegur herrafatnaður,
peysur, buxur, bolir og jakkar
auk nærfatnaðar og skótaus.
„Við munum leggja áherslu á
góðar vörur á góðu verði, eins
og í Vero Moda-búðunum. Það
hefur staðið til í nokkra mánuði
að opna herrafataverslun en .ég
var að leita að húsnæði." Eitt
af dótturfyrirtækjum Best Seller
framleiðir barnafatnað í sama
anda og Vero Moda og Jack &
Jones, en Margrét kvaðst ekki
hafa hug á að bæta bamafata-
deild við. Alla vega ekki að sinni.
Hvað kostar
áleggið?
Skinka
kr./kg
Ymsar
skinku-
adpppppE
tegundir Hangiálegg Malakoff Rúllupylsa
kr./kg kr./kg kr./kg kr./kg
Spægi-
pylsa
kr./kg
1 Höfn, Selfossi 1.339 SKINKUPYLSA 2.671 953 1.644
Ali 1.992 1.064 SKINKUPYLSA 1.079 1.452 1.840
ísienskt/ franskt eldhús 1.971 TILBOÐ* 2.467 TILBOÐ" 1.080 1.733 2.114
Borgarnes KB 1.735 1.298 BRAUÐSKINKA 2.536 1.197 1.298 1.874
Bautinn, Akureyri 1.305 SKÓLASKINKA 2.761 1.078 1.648 1.764
KARO 2.017 1.295 BRAUÐSKINKA 2.141 1.581
Meistarinn 2.204 1.499 BRAUÐSKINKA 2.569 1.688 1.960
SS 2.248 1.892 BRAUÐSKINKA 2.687 1.148 1.698 1.785
Goði 1.695 1.782 SKÓLASKINKA 2.781 1.262 1.809 1.915
Búrfell 1.690 1.299 1.299
‘Kostar venjulega 2.319 kn/kg "Kostar venjulega 2.742 kr./kg
Kjötálegg í úrvali,
en verðið eins og frumskógur
VERÐ á skinku reyndist vera á bilinu 847-3.129 krónur í skyndiverð-
könnun sem Daglegt líf gerði fyrr í vikunni. Ömmuskinka frá Kjarna-
fæði í tiltölulega stórum pakkningum var ódýrust og Bayonskinka frá
íslensk-franska eldhúsinu dýrust. Skinka frá Búrfelli er einnig með
þeim ódýrari og kostar kilóið af Heimilisskinku þaðan 999 kr. en í
henni er folalda-og kindakjöt. í Ömmuskinku er jafnframt folaldakjöt.
í meðfylgjandi töflu og vitaskuld er
ekki tekið tillit til gæða. Tekið var
mið af áleggi sem selt er í bréfum
en í mörgum tilfellum er unnt að fá
ódýrara álegg með því að kaupa
stærri pakkningar.
Gæðamunur kemur að einhveiju
leyti fram í innihaldslýsingu frá
framleiðendum en Jóhannes Gunn-
arsson formaður Neytendasamtak-
anna telur „óþolandi að gerólíkar
vörur skuli vera seldar undir heitinu
skinka.“ Rannsóknir hafí t.d. sýnt
að vatns-og fituhiutfall sé afar mis-
munandi og brýnt að unnar kjötvör-
ur séu skilgreindar nánar svo fólk
viti hvað það er að kaupa.
Sem stendur virðist eina raun-
hæfa leiðin til að átta sig á muninum
vera sú að bragða á öllum tegundum
og skrá hjá sér athugasemdir. Sam-
rmgo
Á v\. ;1 _a 1 »' • ' V4" ^ r\. \ V
Áður
Eik
Beyki
Mahony
Eik fulning
Verðdæmi:
Nú stgr.
26.951 kr
27.320 kr
22.887 kr
49.856 kr
MMfkf
l9áe\W
'netftHHí
Einnig takmarkað
magn af /U,S§5@
utlitsgölluðum
hurðum á hálfvirði
ÁRMÚLA 8-10, SÍMI 81 28 88
Fullkom...inn ringo
Gæðastimpill fyrir innihurðir
kvæmt upplýsingum Daglegs lífs
hafa Hollustuvernd, Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins og kjöt-
vinnslufyrirtæki innan Félags is-
lenskra iðnrekenda undirbúið reglur
um flokkun á unnum kjötvörum um
nokkurt skeið. Blaðið hefur heimild-
ir fyrir því að drög að reglum hafi
verið tilbúnar fyrir tveimur árum
enda segist Jóhannes Gunnarsson
hjá Neytendasamtökunum orðinn
langeygur eftir þessum reglum. Ekki
mun enn vera ljóst hvemig t.d.
skinka verður flokkuð, en nokkuð
víst að þegar reglumar taka gildi
verði ekki allt selt sem skinka sem
nú er leyfilegt að kalla skinku.
Farið var í Hagkaup í Kringlunni
og úrval af áleggi kannað þar, því
oftast er ekki um að ræða verðmun
milli verslana. Þó gefur Bónus ávallt
afslátt af merktu verði við kassann.
Ekki er greint frá öllum tegundum
Ódýr sklnka var dýrari
Blaðamenn Daglegs lífs sannreyndu
í þessari ferð að sannarlega þurfa
neytendur að hafa augun opin. í
áleggsborðinu lágu skinkupakkar
frá Karó í tveimur mismunandi
stærðum. Sá stærri var um 600 g
að þyngd og hinn minni um helm-
ingi léttari. A stærri pakkan var límd
gul stjarna með áletruninni „ódýrt“.
Kílóverð á „ódým“ skinkunni var
1.449 kr. en á hinni 1.296.
Verslunarstjóri sagði að lægra
verðið væri rétt og mistök hefðu
augljóslega átt sér stað við verð-
merkingu hjá framleiðanda. Daglegt
líf hafði samband við Karó þar sem
verðmunurinn var skýrður með
mannlegum mistökum starfsfólks.
BT/SP/VÞJ
mi
BOKUR
með berjum
SAMKVÆMT öllu eðlilegu stend-
ur beijatíminn nú sem hæst.
Hinsvegar hefur veðurfarið síð-
ur en svo stuðlað að góðri berja-
sprettu á Norður- og Austurlandi
í sumar þar sem undir venjuleg-
um kringumstæðum er að finna
ein gjöfulustu berjamið landsins.
JJJJ Berjasprettan er með öðrum
■ orðum í algjöru lágmarki í ár,
ír en ef svö ólíklega vill til að
55 einhvers staðar leynist blátt
05 berjalyng, er ekki úr vegi að
láta fylgja uppskriftir af fljót-
legum beijabökum. Gefist
menn hinsvegar alveg upp á
berjaleitinni, má alltaf grípa
til þess að nota ferska ávexti
í staðinn fyrir berinn. Jafn-
framt má kaupa innflutt bláber í
verslunum.
Bláberjabaka
I. Smjördeig:
100 g smjörvi
1 msk. sykur
150 g hveiti
2 eggjarauður
II. Næst:
3-4 bollar blóber