Morgunblaðið - 26.08.1993, Side 22

Morgunblaðið - 26.08.1993, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993 h Heyrnartæki sem hægt er að festa á eyrnalokka fæst nú í Danmörku ÞEIR Islendingar sem nota heyrnartæki skipta þúsundum og hafa tækin tekið örum breytingum á undanförnum árum. Nýlega greindi Berlingske Tidende frá nýjum heyrnartækjum, sem sérstaklega eru hönnuð með konur í huga. Ekki hefur verið rætt um inn- flutning þessara tækja tii íslands að sögn Jóns Erlings Jónssonar hjá Heyrnar- og talmeinastöð íslands, en að sögn hans eru aðallega tvær gerðir heyrnartækja notaðar hér á landi. Annars vegar heyrnartæki sem hangir bak við eyrað og hins vegar minna tæki sem komið er fyrir í hlustinni fyrir vægari heym- ardeyfu. Greint er frá því í danska blaðinu að hin nýju heymartæki séu lítil, um 1,5 sentímetri að stærð og kom- ist auðveldlega fyrir í hlustinni. Tækið' er fest við eyrnalokk sem getur verið misjafn í laginu og úr ólíku efni. Sérstök festing gerir mögulegt að skipta um eymalokka til tilbreytingar. Framleiddir hafa verið eyma- lokkar úr gulli sem kosta rúmlega 100 þúsund íslenskar krónur, en einnig ódýrari gerðir úr silfri og plasti auk gull- og silfurhúðaðra lokka. Þeir ódýmstu kosta rúmlega 2.000 ísl. krónur skv. Berlingske Tidende og eru þeir seldir hjá eyma- Festá eyrnalokkinn Heyrnartækið er fest á eyrnalokk með sér- stakri klemmu. Hægt er að eiga nokkra eyrnalokka til skiptanna og festa á heyrnartækið. Erfitt er að sjá heyrnartækið þegar búið er að festa eymalokk á það. deild ríkisspítalans. Að sögn Steens Olsen hjá deildinni henta nýju tæk- in þeim best sem ekki em alvarlega heyrnarskertir, eða upp að 50-70 desíbelum. Til viðbótar útgjalda vegna eyrnalokka, þurfa heymar- skertir sem kjósa þessi tæki að reiða fram tæplega 60 þúsund ísl. krónur fyrir eitt par af heyrnartækjum. Kökuskreyting, sósugerð og vínsmökkun MATREIÐSLUKLÚBBUR Almenna bókafélagsins hf. hefur verið starfræktur frá því i mars sl. og telur nú um 4.500 félaga. Einu sinni í mánuði kemur út matreiðslubók á vegum klúbbsins og í tengslum við útgáfuna er haldið námskeið. í september verður t.d. námskeið í sósugerð og í sama mánuði verður ferðast um landið með köku- skreytingarnámskeið undir leiðsögn Lindu Vestmann. Andri Þór Guðmundsson hjá AB segir kökuskreytingamámskeiðið hafi verið haldið áður á vegum AB og alltaf hafí verið upppantað á það. f október verða svo vínsmökkun- amámskeið á vegum Barkar Aðal- steinssonar og Einars Thoroddsen bæði fyrir byijendur og þjálfaðari. Boðið verður upp á pastanámskeið en AB mun gefa út bók um pasta- rétti í október. Fyrir jólin verður gefin út bók um smákökur og haldið námskeið í sambandi við hana. Með öllum bókunum er fylgirit, sem tekið er saman af Sigurði Hall matreiðslu- meistara. Rúmlega tíu veitingahús bjóða félögum í matreiðsluklúbbi AB 15% afslátt af heildarupphæðinni, sem keypt er fyrir. Mánaðarlega bætist eitt nýtt veitingahús í hópinn. Klúbb- félagar ero einnig virkir í að fylla út gæðakönnunarkort, sem þeir fylla út eftir hvert skipti, sem þeir hafa farið út að borða á veitingastað. Mánaðargjald í matreiðsluklúbbi AB er 1290 kr. ef greitt er með greiðslukorti en 1440 kr. annars. Inni í þessu gjaldi er mánaðarlega bókin, fylgiritið, heimsendingar- kostnaður og fleira. ■ Hverju vilja foreldrar eyða í töskur og pennaveski? UM síðustu helgi keyptu foreldrar þriggja barna skólatöskur, pennaveski og smádót eins og blýanta og strokleður fyrir krakkana og borguðu innan við þrjú þúsund krónur fyrir allt saman. Það er líklega óvenjulegt verð og þurfi foreldrar að kaupa skóla- töskur fyrir þrjú börn er miklu líklegra að upphæð- in nemi tuttugu þúsundum. í rúmlega 6.000. Hinar eiginlegu Sco- ut-töskur kosta ná- lægt 7.000 krónum. Pennaveskl á 95 krónureAa 1.200? gjJ Síðastliðinn föstudag var haldin mikil útsala á ggi göngum Kringlunnar og •q meðal annars bauð Penninn þar ódýrar skólatöskur og S pennaveski. Hjón sem voru | að kaupa fyrir tvö til þrjú böm keyptu Benetton-skóla- tösku, einn skólabakpoka með myndum á af Mario Bros úr Nintendó og aðra tösku sem merkt var einhveijum fígúrum. Þau kipptu með sér tveímur svörtum nælontöskum líka sem nýtast vel sem leikfimit- öskur. Þá keyptu þau tíu stílabækur og fjórar pakkningar með Dracula-pennaveski, yddara, blýanti, reglustiku og minnisbók í. Alls borguðu hjónin 1.500 krón- ur fyrir þijár skólatöskur, 500 fyrir báðar leikfímitöskumar, 150 krónur fyrir tíu stílabækur og 200 fyrir Dracula-pakkningarnar. Þetta gerðu 2.350 krónur. Það verður þó að segjast eins og er að ekki var mikið lagt í umrædda Nintendó-tösku, sem var þunnur nælonpoki. Meðalverðlð er frá 4.000 og upp f 6.000 Skólatöskur eru á misjöfnu Misjaf nt verð ó skólatöskum Gæði skólataska eru eins misjöfn og úrvalið er mikið og verðið sömuleiðis allt frá þúsund krón- um og upp úr. Dýrustu töskurn- ar kosta hátt á annan tug þús- unda og eru þær frekar ætlaðar framhaldsskólanemum heldur en grunnskólakrökkum. verði núna og hægt að fá þær á nálægt þúsund krónur og upp úr. Þær töskur sem kosta á annan tug þúsunda era frekar fyrir menntaskólakrakka en grann- skólanema. Það má segja að með- alverðið á töskum fyrir bömin sé frá þijú og upp í sex þúsund krón- ur. Oftast ræður úrslitum um verðið gæðamunur og sumar töskurnar eru með styrkingu í baki, auka vösum eða hólfum, fóðraðar eða bólstraðar. Vinsælustu skólatöskumar fyrir þá sem eru að byrja í skóla hafa verið harðar Scout-töskur. Nú era komnar eftirlíkingar af þeim töskum og þær era aðeins ódýrari þ.e.a.s. frá 4.000 og upp Pennaveski er hægt að fá frá 95 krónum í Hagkaup en yfirleitt eru hirslur fyrir smádótið á bilinu frá tvö hundruð og upp í hátt á annað þúsund. Oft er gæðamun að ræða en einnig er varan oft verðlögð eftir vinsældum sbr. það skóladót sem merkt er körfu- boltaliðum og risaeðlum. Skóladót á raðgrelðslum Skólafatnaður er til í miklu úrvali og á misjöfnu verði. Verðið stendur yfirleitt í stað frá í fyrra en hefur þó líka lækkað sums- staðar. Forráðamenn barna geta þessvegna gert reyfarakaup gefi þeir sér tíma til að spá í kaupin. En það er auðvelt að sjá á eftir mörgum þúsundköllum í skóladót og jafnvel tugum þúsunda sé fatnaður talinn með. Það era margir sem keppa um þessi við- skipti og nú býður Hagkaup við- skiptavinum sínum vaxtalaus kjör á Euro eða Visa ef keypt er sér- vara fyrir meira en 25.000 krón- ur. Tilboð þetta gildir til 25. sept- ember. Upphæðin er sett á rað- greiðslur, ekkert er borgað fyrsta mánuðinn og síðan dreifast greiðslurnar á fjóra mánuði. ■ grg HELGARTIIBODIN Hagkaup Rjómalöguð lifrakæfa..........289 íslenskt blómkál.........109 kr. kg íslenskt hvítkál..........49 kr. kg íslenskt kínakál..........65 kr. kg Myllu heilhveitibrauð, niðursneidd ..............................79 kr. Kellogg’s Com Pops, 375 g..179 kr. MS Floridana appelsínu- og epla- safí, 3x200 ml..............99 kr. MS Kókómjólk, 250 ml........35 kr. Næstu helgar verða kynningar í verslunum Hagkaupa á morgun- mat, áleggi, brauði og ýmsum vör- um, sem tengjast mataræði og nesti skólabama. Bónus Kökubotnar....................49 kr. Emmess Egils ísnálar.........267 kr. Frón Cafe Noir................69 kr. Ali lifrakæfa, gróf og fín...497 kr. B&K ferskjur..................79 kr. Gull kaffí, 500 g............159 kr. Pizzaland pizza, 9 tommu.....165 kr. Bónus minnir ennfremur á 5% af- slátt af öllum vigtuðum ostum. F&A Jaffa appelsínuþykkni, 3 lítrar ........................280 kr. Machintosh, 2kgdós........1.750 kr. Goldberry blandaðir ávextir, 820 g ...........................137 kr. Idum tómatsósa, 540 g........87 kr. Elitesse kex, 40 stk........555 kr. Hapdklæði, 50 x 90 cm......181 kr. Veittur er 4% staðgreiðsluafsláttur af ofantöldum verðum í F & A. Fjarðarkaup Sunquick með brúsa.........329 kr. Kókómjólk, 18femur..........644 kr. Óhreinsuð svið..........196 kr. kg Hreinsuðsvið............296 kr. kg Lambalifur..............199 kr. kg Lambahjörtu.............199 kr. kg Hvítvíns- og rósavínslegin lamba- læri, hálfúrbeinuð......845 kr. kg Grillsagaðir lambaframpartar ........................398 kr. kg Heilhveiti- og bóndabrauð, niðursneidd.............98 kr. stk. Ferskarperar.............79 kr. kg Grænvínber..............149 kr. kg Kjöt og flskur Rauðvínslegið lambalæri .699 kr. kg Kindabjúgu..............390 kr. kg Svikin héri.............298 kr. kg Hafragijón, 1 kg.............59 kr. WC-pappír, 8 rúllur.........149 kr. Marmelade, 4 teg.............88 kr. Kaffí, 500 g..............179 kr. Kjöt og fískur minnir á grænmet- istilboð alla fímmtudaga. Nóatún Lambalifur..............199 kr. kg Lambaþjörtu.............199 kr. kg Lambanýra...............99 kr. kg Hrossabjúgu............372 kr. kg Bacon sparipakki.......786 kr. kg Saltkjöt III fl........324 kr. kg Saltaðarlambasíður.....199 kr. kg Kínakál.................99 kr. kg Londonlamb.............799 kr. kg Lambahryggir...........588 kr. kg Lambalæri.,............599 kr. kg Marylandkex, 150 g..........79 kr. Kantolan tekex, 200 g.......39 kr. Jarðarbeijagrautur, 1 lítri.129 kr. Prik þvottaefni, 70 dl.....299 kr. Maling aspas, 430 g.........59 kr. FiberKostmúsli, 375 g......185 kr. Fiber Kost hunangsmúsli, 500 g .........................216 kr. Garðakaup í Garðakaupum hefur verð á yfír 100 vörategundum verið lækkað og verða þær á tilboðspöllum í viku. Meðal þess era eftirfarandi vörategundir: Pasta-og pizzasósur......frá 69 kr. Pasta og spaghetti........frá 69 kr. Niðursoðnir ávextir.....frá 62 kr. Niðursoðið grænmeti.....frá 32 kr. Bleiur.................frá 375 kr. Matarolíur..............frá 96 kr. Eldhúsrúllur............frá 69 kr. Súpurídósum.............frá 41 kr. Höfn-Þríhyrnlngur, Selfossl og Hellu Versluninni Höfn á Selfossi hefur verið breytt, auk þess sem opnunar- tími er nú frá 10-22. Þá hefur verð á yfír 1.800 vöranúmerum verið lækkað. Meðal vikutilboða í verslun- inni eru: Frón mjólkurkex..............121 kr. McVitie’s Digestive kex......112 kr. Hob nobs plain kex...........123 kr. Nesquick, 400 g..............214 kr. Findus marmeðlaði, 400 g.....116 kr. Doleananas....................37 kr. Ariel ultra, 2,8 kg..........815 kr. Auk vikutilboðanna era helgartilboð á grillkjöti írá Kjötvinnslu Hafnar. Matvörumarkaðurinn Akureyri Kindabjúgu..............398 kr. kg Ömmusperlar..............398 kr. kg Hrossasperlar............225 kr. kg Pizzur......................298 kr. Einars heilhveiti-samlokubrauð .......................... 99 kr. Einars massarínukaka........199 kg. Nautahakk...............699 kr. kg Nautagúllas.............898 kr. kg Nautafillet...........1.398 kr. kg Nautasnitsel..........1.298 kr. kg Tilboð á Valhöll allan september HÓTEL Valhöll á Þingvöllum býður gestum og gangandi upp á sérstaka tilboðspakka, sem gilda út septembermánuð eða þangað tU hótelið lokar fyrir veturinn. Hótelið hefur yfír að ráða 29 herbergjum, þar af 27 tveggja manna og tveimur eins manns. Boðið er nú upp á þriggja rétta kvöldverð, morgunvérð og gistingu í eina nótt á 4.950 kr. á manninn í tvíbýli. Tvær nætur, kvöldverður og morgunmatur er á 7.900 kr., og ef dvalið er í þijár nætur í Þing- vallasveitinni kostar pakkinn 8.850 á manninn 5 tvíbýli. Þá er í boði hópafsláttur af.þessu verði. Þannig myndi 10 manna hóp- ur fá 15% afslátt af fyrrgreindu verði. Tuttugu manna hópur fengi 25% afslátt og 30 einstaklingar í hóp fengju 30% afslátt. ■ i . > I I h

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.