Morgunblaðið - 26.08.1993, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993
Saudi-Arabar sagðir
eyða um efni fram
Mótmæla
fréttumum
fjármála-
óreiðu
London. Reuter.
YFIRVÖLD í Saudi-Arabíu hafa
mótmælt greinum í bandaríska
dagblaðinu New York Times um
saudi-arabísk efnahagsmál. Þar
er sagt, að verulega hafi gengið
á gjaldeyrisvarasjóði ríkisins
vegna áralangrar óhófseyðslu í
hergögn, styrki við nágrannaríkin
og niðurgreiðslur innanlands.
í greinunum í New York Times
sagði, að þrátt fyrir gífurlegar tekjur
af 'mestu olíulindum í heimi, hefðu
ríkisútgjöld í Saudi-Arabíu verið
meiri en þeim næmi enda stöðugur
halli á fjárlögnm ríkisins í heilan
áratug. Var vitnað í leynilega skýrslu
Alþjóðagjáldeyrissjóðsins frá 1992
þar sem látnar væru í ljós miklar
áhyggjur af þróuninni. Ollu þessar
fréttir nokkurri ókyrrð á gjaldeyris-
mörkuðum í arabaríkjum.
í yfirlýsingu, sem Ghazi Algosa-
ibi, sendiherra Saudi-Arabíu í Lond-
on, birti í gær, segir, að greinamar
gefí ekki rétta mynd af saudi-arab-
ískum efnahagsmálum. Nefnir hann
10 atriði, sem mikilvæg séu fyrir
rétt mat á efnahagslífínu en sleppt
sé í New York T/mes-greinunum. Þar
á meðal eru tölur yfír þjóðarfram-
leiðslu; hagvöxt í olíuiðnaði og öðr-
um; lækkun framfærsluvísitölunnar
og aukin inn- og útlán í bönkum.
----------------
Barsebáck
í g’ang- eft-
ir viðgerð
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdótt-
ur, fréttaritara Morgunbiaðsins.
KJARNORKUVERIÐ í Barsebitck
í Suður-Svíþjóð hefur fengpð
rekstrarleyfi aftur, eftir að gert
hefur verið við kælikerfi versins.
I september var slökkt á kjama-
kljúfunum, því í ljós hafði komið að
kælikerfíð var óþétt. Eftir bráða-
birgðaviðgerðir var aftur kveikt á
kljúfunum eftir jól. Á sumrin eru
kjúfamir ekki í gangi og sumarið var
notað til varanlegra viðgerða á kæli-
kerfí annars af tveimur kjamakljúf-
um versins.
Sækja mál gegn Serbum og Svartfellingum
MÁLFLUTNINGUR hófst í gær fyrir Alþjóðadómstóln- morð, kerfísbundnar nauðganir og pyntingar í Bosníu.
um í Haag í Hollandi í máli Bosníumanna á hendur í ræðustóli er Muhamed Sacirbey, einn af fulltrúum
Serbum og Svartfellingum sem þeir saka um þjóðar- Bosníu.
18 herforingjar teknir
af lífi í Norður-Kóreu
Seoul. Reuter.
ATJAN foringjar í her Norður-Kóreu hafa verið líflátnir
vegna meintra áforma um að steypa Kim Il-sung forseta af
stóli, að því er fréttastofan Yonhap í Suður-Kóreu skýrði frá
I gær. Talsmaður norður-kóreska sendiráðsins í Peldng vís-
aði fregninni á bug.
Að sögn Yonhap hugðust for-
ingjar í her Norður-Kóreu steypa
Kim Il-sung og syni hans Kim
Jong-il, í september í fyrra. Áform-
in miðuðust við að taka forsetahöll-
ina og aðrar stjórnarráðsbygging-
ar með hersveitum sem lutu for-
ystu foringjanna og handtaka
feðgana. Á síðustu stundu hefði
einn úr hópi samsærismanna svikið
félaga sína og komið upp um
áformin.
Fréttastofan sagði að heimildar-
menn hennar væru vel að sér um
norður-kóresk málefni. Fyrrum
foringi í landher Norður-Kóreu
sem flýði nýverið til Suður-Kóreu
sagði fréttamönnum í gær að hann
hefði heyrt'úm misheppnað valda-
rán í Pyongyang, höfuðborg Norð-
ur-Kóreu, seint á síðasta ári. Hefðu
a.m.k. 10 herforingjar verið teknir
af lífí vegna þess.
Geta skotið á herstöðvar
Stjómvöld í Norður-Kóreu hafa
lokið smíði tveggja af fjórum eld-
flaugapöllum sem nota á til árása
á bandarískar herstöðvar í Japan
og Guam. Kom þetta fram á frétta-
mannafundi sem flóttamaður frá
Norður-Kóreu hélt í Seoul, höfuð-
borg Suður-Kóreu, í fyrradag.
Flóttamaðurinnn, Im Yong-son, .
sem er þrítugur, segist hafa unnið
í.fímm ár í byggingadeild varnar-
málaráðuneytis Norður-Kóreu.
Segist hann verið farinn að óttast
um líf sitt eftir að hafa dreift
bæklingum þar sem Kim Il-sung
forseti og sonur hans Jong-il era
fordæmdir. Þess vegna hafi hann
flúið land. Im sagði að seint á síð-
asta áratug hefðu N-Kóreumenn
byijað að smíða ijóra neðanjarðar-
eldflaugapalla. Þaðan ætti að vera
hægt að skjóta langdrægum eld-
flaugum á herstöðvar Bandaríkj-
anna í Japan og Guam.
Hundruð látist
Hann sagði ennfremur frá því
að hundrað verkfræðinga hefðu
látist er kjamorkuofnar í rann-
sóknastöðinni í Yongbyong vora
teknir í sundur og fluttir á leyni-
stað annars staðar í landinu.
Stjómvöld í N-Kóreu hafa neitað
að leyfa alþjóðlegum eftirlitsmönn-
um að skoða rannsóknastöðina en
granur hefur leikið á að þar sé
unnið að smíði kjamorkuvopna.
Barist um fornfræga samgöngnmiðstöð í Herzegóvínu
Bosníu-Króatar vilja gera
Mostar að höfuðstað sínum
London. The Daily Telegraph.
ÁTÖKIN milli Bosníu-Króata og múslima í borginni Mostar
hafa orðið til að slíta sundur friðinn milli þessara tveggja þjóðar-
brota sem reyndar börðust hlið við hlið gegn Serbum. Króatar
stefna nú að því að géra borgina að höfuðborg sjálfstæðs ríkis
síns á þeim svæðum sem þeir krefjast þegar Bosníu-Herzegóv-
ínu verður skipt I þrennt.
Áður en átökin hófust með
hemaði Serba í landinu 1991 var
íbúaijöldi Mostar um 120.000, þar
af vora 35% múslimar, álíka
margir Króatar og hinir flestir
Serbar. Sókn Króata að undan-
fömu veldur því að nú reyna um
50.000 múslimar að hjara á 15
ferkílómetra svæði á vesturbakka
Neretva-fljóts sem skiptir Mostar
í tvennt. Þetta eru hermenn
stjómarinnar í Sarajevo og íbúar
múslimaþorpa á bardagasvæðun-
um sem flúið hafa heimili sín.
Fólkið er sumt orðið máttvana af
hungri og þreytu, einnig er skort-
ur á lyijum og vatni. Menn reyna
að laumast niður að Neretva til
að fylla vatnsfötur með graggugu
árvatninu en leyniskyttur era
hvarvetna á kreiki. Múslimaher-
mennimir gefast þó ekki upp.
Meginástæðan fyrir þrákelkni
þeirra er sú að þeim hefur tekist
að opna aðdráttarleið yfír íjöllin
til borgarinnar Jablanica þar sem
stjómarher múslima er öflugur.
Orkuverið í Jablanica
Tangarhald múslima á Ja-
blanica getur reynst örlagaríkt.
Haldi Króatar áfram að reyna að
leggja alla Mostar undir sig gera
múslimar ef til vill alvöra úr þeirri
hótun sinni að sprengja í loft upp
stífluna við Jablanica. Orkuverið
þar getur annað rafmagnsþörf
mikils hluta strandhéraða Króat-
íu, frá Dubrovnik til Split í norðri.
Slíkt áfall gæti riðið stjórn Fran-
jos Tudjmans forseta í Zagreb að
fullu.
Mostar er fomfræg borg í
Herzegóvínu, um hana liggur
mikilvæg samgönguleið frá
strandhéraðunum til Sarajevo og
miðhéraða landsins. Borgin var
m.a. viðskiptamiðstöð er Tyrkir
réðu ríkjum á Balkanskaga, síðar
mikilvæg stjómstöð keisaradæmis
Habsborgara. Þar er víðfræg brú
sem Tyrkir reistu á 16. öld yfír
Neretva og hefur staðist vel
tímans tönn en nú mun hún vera
ónothæf. Er Serbar hörfuðu frá
austurbakkanum 1992 undan
gagnsókn Króata og múslima var
dómkirkja Rétttrúnaðarkirkjunn-
ar brennd og tvær þekktar mosk-
ur hafa einnig orðið fyrir miklu
tjóni.
Mercedes
fækkar
stjórnend-
um mest
ÞÝSKU bílaverksmiðjumar
Mercedes-Benz AG hafa ákveð-
ið að fækka starfsmönnum um
14.000 frá og með áramótum
og endurskipuleggja starfsem-
ina til þess að auka samkeppn-
isfæmi. Starfsmönnum í fólks-
bílaframleiðslu verður fækkað
um 6,5%, í vörabílaverksmiðj-
um um 11% en til viðbótar verð-
ur mönnum í stjómunarstöðum
hjá Mercedes fækkað um 30%.
Attali til fyrri
starfa í París
JACQUES Attali er horfínn til
fyrri starfa hjá franska stjórn-
sýsludómstólnum en hann
neyddist til að hætta starfí
bankastjóra við Evrópubank-
ann í London vegna umdeildrar
stjómunar og sóunar fíármuna
við frágang í höfuðstöðvum
bankans.
Afsögn ráð-
herra hafnað
í Rússlandi
RÚSSNESKA stjómin hafnaði
í gær afsagnarbeiðni Sergej
Glazjevs utanríkisviðskiptaráð-
herra en áminnti hann fyrir
stjórnarhætti og gagnrýni á
samráðherra. Glazjev sagði af
sér sl. laugardag vegna óstjóm-
ar í ráðuneyti hans. Hann er
32 ára og yngsti ráðherra í
Rússlandi í heila öld.
Risaeðlur í
teiknimynd
STEVEN Spielberg, bandarísk-
ur leikstjóri verðlaunamyndar-
innar Júragarðurinn (Jurassic
Park), ætlar að yfírfæra sög-
una í teiknimynd. Verða efnis-
tökin þó mun mildari svo teikni-
myndin “verði hæf til sýninga
fyrir böm.
Osoneyðum
fækkar senn
NORÐUR-amerískir veðurfars-
fræðingar segja að magn óson-
eyðandi efna í gufuhvolfinu
muni ná hámarki fyrir aldamót
og fara síðan dvínandi. Era það
niðurstöður rannsókna sem þeir
birtu í vísindaritinu Science í
gær.
Sameinast um
geisladiska
FJÖGUR rafeindafyrirtæki,
Victor, Sony og Matsushita í
Japan og Philips í Hollandi,
sömdu í gær um staðlaðan
geisladisk fyrir myndefni, kvik-
myndir og kerjnsluefni. Gengur
hann undir nafninu karaoke-
diskurinn, verður 12 sentimetr-
ar í þvermál og getur geymt
74 mínútur af myndefni.
Stórgróði
Murdochs
HAGNAÐUR á rekstri fyrir-
tækja í eigu Qölmiðlakóngsins
Ruperts Murdochs á nýliðnu
reikningsári nam 579 milljón-
um Bandaríkjadala en gengi
hlutabréfa í fyrirtækinu lækk-
aði þó í verði þar sem búist
hafði verið við milljarðs dollara
hagnaði. Hagnaður fyrirtækj-
anna í fyrra nam 336 milljónum
dollara.