Morgunblaðið - 26.08.1993, Page 25

Morgunblaðið - 26.08.1993, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993 25 Michael Jackson kveðst fómarlamb fjárkúgara Los Angeles. Reuter. ROKKSTJARNAN Michael Jackson sagðist í gær saklaus af ásökunum um kynferðislega misnotkun 13 ára gamals pilts. Hann sagðist vera fórnarlamb fólks sem reynt hefði að kúga út úr sér 20 milljónir dollara og sagðist ánægður með að málið varð opinbert því þar með væri fjárkúgunin úr sögunni. Talsmenn Jacksons héldu ákaft fram sakleysi stórstjörnunnar í gær og sagðist hann sjálfur þess fullviss að hann yrði hreinsaður af áburðinum. Lögreglan í Los Angeles hefur ekkert viljað segja um málið annað en að staðfesta að hafin væri rannsókn á meintu hegningarlagabroti Jacksons. Utvarpsstöðvar í Los Angeles sögðu í gær að auðugur tannlækn- ir í Beverly Hills, sem stæði í ill- skeyttri deiiu við fyrrum konu sína um forræði yfir 13 ára syni þeirra, Jordan Chandler, hefði kært Jack- son fyrir kynferðislega misnotkun á syni sínum. Jackson og Chandler hafa verið perluvinir og sá fyrr- nefndi ausið piltinn dýrum gjöfum og tekið hann og móður hans með sér á ferðalögum. Faðir Chandlers heldur því fram að Jackson hafi ítrekað misnotað piltinn kynferðislega á nokkura Forsetakosnmgaslagur í Finnlandi Engar sannan- ír um spillingu llclsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. EKKERT hefur komið fram um, að Martti Ahtisaari, forseta- frambjóðandi finnskra jafnaðarmanna, sé viðriðinn meint fjár- málahneyksli í Wider-stofnuninni, sem starfrækt er í Helsinki á vegum Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Það var Paavo Vayryn- en, forsetaefni Miðflokksins, sem kom fram með þessar ásak-1 anir en við úttekt á stofnuninni kom ekkert misjafnt í ljós. Málavextir voru þeir, að fyrir nokkrum árum lék grunur á um spillingu innan Wider-stofnunar- innar eða að hún hefði þegið fé utan við fjárlög ríkisins. Málið var rannsakað meðal annars af hálfu finnska utanríkisráðuneytisins. Váyrynen, sem er fyrrverandi ut- anríkisráðherra, segir nú, að Ahtisaari hafi reynt að gera lítið úr þessum grunsemdum og segist ekki geta útilokað, að hann hafi átt fjárhagslegra hagsmuna að gæta í málinu. Finnskir fréttaskýrendur og einnig Elisabeth Rehn, forsetaefni Sænska þjóðarflokksins, hafa harmað, að frambjóðendur til for- mánaða tímabili. Krefst hann þess að söngvaranum verði bannað að hafa samband við Chandler en svo mikil hefur vinátta þeirra verið að þeir hafa talast við í síma allt að fjórum sinnum á dag. Móðir Chandlers sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hún hafnaði því að eiga aðild að til- raunum til að kúga fé af Jackson. Sömuleiðis sagðist hún ekki vita til þess að sonur sinn hefði verið kynferðislega misnotaður og sagð- ist hún slegin yfir ásökunum þess efnis. Vegna rannsóknar á málinu gerði lögreglan í Los Angeles hús- leit á búgarði Jacksons, Never- land, norðvestur af borginni, og íbúð hans í hverfinu Century City í grennd við miðborgina. Lagði hún hald á ýms gögn. Ásakanirnar á hendur Michael Jacksons hafa vakið athygli sakir þess að hann er kunnur fyrir líkn- arstörf í þágu barna, einkum al- varlega sjúkra barna. Reuter Vinir? MICHAEL Jackson (t.v.) og Jordan Chandler sem stórstjarnan er sökuð um að hafa misnotað kynferðislega. VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VÉLADEILD FÁLKAN SACHS HÖQGDEYFAR Ahtisaari setaembættis skuli taka upp á „skítkasti“ af þessu tagi. Ahtisaari hefur hingað til verið langvinsæl- astur allra frambjóðenda en kosn- ingarnar verða upp úr næstu ára- mótum. SUÐURLANDSBRAUT 8 • 108 REYKJAVIK SíM1: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84 VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FALKANS • VÉLADEILD FÁLKANS Angóla á líka sína Sarajevo Jóhannesarborg. Reuter. STARFSMAÐUR Sameinuðu þjóðanna segir að ástandið í Angóla og þá einkum í borginni Cuito sé skelfilegt. Varlega áætlað deyi þúsund manns daglega í borginni. Segir hún að hér sé um að ræða hina gleymdu Sarajevo og vísar þannig til ástandsins í höfuðborg Bosníu sem mikið hefur verið fjall- að um í fjölmiðlum. Mercedes Sayagues, sem er háttsettur starfsmaður Matvæla- hjálpar Sameinuðu þjóðanna, segir að lítill áhugi sé á ástandinu í Angóla þótt þar eigi sér stað mesti harmleikur heimsins. Fulltrúi SÞ í Angóla tók jafndjúpt í árinni fyrr í vikunni og sagði hörmungarnar í landinu meiri en í Sómalíu, Bosn- íu og Kambódíu. Landið hefur verið stríðshijáð í u.þ.b. seytján ár. Stutt hlé varð á átökum eftir friðarsamninga árið 1991 en eftir kosningar þar sem UNITA-hreyfingin laut í lægra haldi fór allt í bál og brand. UN- ITA-skæruliðar ráða nú 70% lands- ins en eitt helsta vígi stjórnarhers- ins er í hinni umsetnu fjallaborg Cuito. Sayagues lýsti hörmungun- um á fréttamannafundi í Jóhannes- arborg í gær. Hún sagði að foreldr- ar sendu börn sín í burtu frá átaka- svæðum og væru mörg þeirra glor- soltin á vergangi. „Flokkar sol- tinna barna hrekjast fram og til baka og vita þau ekki hveijir for- eldrar þeirrar eru né hvað þau heita.“ Segir hún að ástandið eigi eftir að versna þegar regntímabilið hefst. Þá komi malarían og melt- ingarsjúkdómar. Hætta sé á að þá hrynji börnin niður eins og flugur. Sayagues sagði að meira tjón hefði verið unnið á mannvirkjum í Angóla undanfarna níu mánuði en í sextán ára borgarastríði sem á undan fór. Talið er að tíu milljón jarðsprengjur séu i landinu. Matvælahjálp SÞ hefur boðað neyðaraðstoð við Angóla en talið er of hættulegt að koma íbúum Cuito, sem er 600 km suðaustur af höfuðborginni Luanda, til hjálp- ar. S E R H Æ F T Skrifstofutækninám HNITMIÐAÐRA ÓDÝRARA VANDAÐRA STYTTRI NÁMSTÍMI Verð á námskeið er 4.956,-krónur á mánuði!* KENNSLUGREINAR: - Windows gluggakerfl - Word ritvinnsla íyrir Windows - Excel töflureiknir - Áætlanagerð - Tölvufjarskipti - Umbrotstækni - Teikning og auglýsingar - Bókfærsla - o.fl. Sérhæfð skrifstofutækni er markvisst nám fyrir alla, þar sem sérstök áhersla er lögð á notkun tölva í atvinnulífmu. Nýjar veglegar bækur fylgja með náminu. Engrar undirbúningsmenntunar er kraflst. Innritun fyrir haustönn er hafín. Hringdu og fáðu sendan bækling eða kíktu til okkar í kaffi. Tölvuskóli Reykiaoíkur BORGflRTÚNI 28. 105 REYKJAUÍK. sími 616699. lax 616696 •Skuldabréf i 20 mán. (19 afborganlr), vextir eru ekki innifaldir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.