Morgunblaðið - 26.08.1993, Side 26

Morgunblaðið - 26.08.1993, Side 26
26 MOKGUNBr.AtJttr-FlOTMTtJ'DAGUH 26. ÁGÚST'1993 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993 27 JMtrflpjmM&Mi Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1368 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Rússar hóta Lit- háum Dregið hefur til tíðinda í sam- skiptum Litháa og Rússa síðustu dagana. Rússar stöðvuðu óvænt brottflutning herliðs síns frá Litháen og neita að ræða kröf- ur um skaðabætur fyrir meira en hálfrar aldar hemám. Sáttatónn er þó í forseta Litháens, Algirdas Brazauskas, sem kveðst bjartsýnn á lausn déilunnar. „Við viljum ekki kalt stríð við Rússa,“ sagði forsetinn í fyrradag. Sovétríkin hemámu Litháen, Eistland og Lettland árið 1940 í samræmi við leynisáttmála Hitlers og Stalíns og vom löndin síðan innlimuð í heimsveldi kommún- ista. Ibúarnir þurftu að þola ótrú- legar hremmingar og kúgun. Mik- ill íjöldi þeirra var fluttur nauð- ungarflutningum til Sovétríkj- anna, þar sem þeir fórast í gúlag- inu, en jafnframt var hafínn skipulagður flutningur Rússa til Eystrasaltsríkjanna til að tryggja yfirráð þeirra þar. Lettland varð verst úti í þessari tilraun sovét- kommúnismans til að afmá þjóð- ernisvitund íbúanna og tiyggja þar rússnesk yfirráð um alla fram- tíð. Nær helmingur íbúa Lettlands' er af rússneskum upprana. Við skyndilegt hran Sovétríkj- anna árið 1991 breyttist staðan og þá sannaðist rækilega, að hálfrar aldar kúgun kommúnista hafði ekki megnað að uppræta þjóðernisást Eystrasaltsþjóðanna eða kæfa frelsisþrá þeirra. Barátt- an fyrir sjálfstæði ríkjanna fór í fullan gang og lauk með sigri. Ástandið var hins vegar ömurlegt í þessum löndum, efnahagurinn í rúst, sovéski herinn olli gífurleg- um umhverfisspjöllum og síðast en ekki síst var fjölmennur, rúss- neskur her þar áfram. Eystra- saltsþjóðimar hafa unnið að því hörðum höndum að losna við her- inn, en það hefur gengið brösu- lega, þrátt fyrir mikinn alþjóðleg- an þrýsting á Rússa. Litháum hefur orðið mest ágengt, en við hran Sovétríkjanna var þar 30 þúsund manna her. Nú munu um 2.500 rússneskir hermenn eftir í landinu og átti brottflutningi þeirra að vera lokið 31. ágúst næstkomandi. Það kom því eins og þrama úr heiðskíra lofti sl. sunnudag, þegar Moskvu- stjómin tilkynnti, að ekki yrði staðið við fyrirheit um brottflutn- inginn heldur biði hann þess tíma er Rússum sjálfum hentaði. Jafn- framt vísaði rússneska utanríkis- ráðuneytið á bug öllum kröfum Litháa um skaðabætur vegna hálfrar aldar hemáms. Því var og lýst yfir, að yrðu rússneskir her- menn eða fjölskyldur þeirra fyrir aðkasti eða ögrun myndi rúss- neska stjómin bregðast skjótt við og af festu. Tónninn í tilkynningu Moskvu- stjómarinnar kom einnig á óvart, því hann minnir mjög á hrokann og hörkuna, sem Sovétstjómin beitti fyrrum í samskiptum við aðrar þjóðir, a.m.k. þær, sem hún taldi sig hafa í fullu tré við. Menn velta því fyrir sér, hvort um stefnubreytingu sé að ræða í sam- skiptum við næstu nágranna, hugsanlega vegna átakanna við harðlínumenn á rússneska þing- inu. Bent er á, að rússneskir her- foringjar styðji við bakið á göml- um kommúnistum í nágrannaríkj- um, allt frá Tadzhíkístan og Ge- orgíu til Azerbajdzhan, í baráttu þeirra við lýðræðisöflin og í Moldavíu styðji þeir aðskilnaðar- sinna, sem ógni fullveldi landsins. í Úkraínu gera þeir kröfu til Krím- skaga og fleiri landsvæða. Þeirri skýringu hefur verið hreyft, að Rússar vilji koma sér upp eins konar öryggissvæði í þessum lönd- um svipað og Sovétríkin höfðu í fyrrum leppríkjum sínum. Rússneska ríkisstjórnin ætlar ef til vill að nota áframhaldandi hersetu í Litháen til að þrýsta á þarlend stjórnvöld um eftirgjöf á einhveijum sviðum, t.d. að fallið verði frá kröfunni um skaðabætur fyrir hernámið. Rússar hafa alfar- ið neitað að greiða bætur vegna framferðis kommúnistastjómar- innar og segja, að engir hafi þurft að líða jafnmikið af hennar völd- um og Rússar sjálfir. „Það er engu líkara, en að Rússland hafi endurfæðst sem saklaust bam við hran Sovétríkjanna," segir Júríj Lúík, eistneskur ráðherra, í ný- legri blaðagrein. í samræmi við þessa afstöðu féllust Rússar á, að greiða Lit- háum bætur vegna dvalar hersins þar eftir 1991, en frá því var einn- ig fallið sl. sunnudag. Þessi þróun hefur valdið ugg í nágrannalönd- unum og á Vesturlöndum, auk þess sem Litháar hafa brugðist ókvæða við. Brazauskas forseti aflýsti fundi, sem boðaður hafði verið með Jeltsín Rússlandsfor- seta, og hann ávarpaði þjóð sína í sjónvarpi og útvarpi til að draga úr ótta fólksins. Síðustu fréttir herma, að sátta- tónn sé í yfírvöldum landanna beggja, en Rússar hafa þó enn ekki hvikað í afstöðu sinni. Hótan- ir þeirra og hroki í garð Litháa er með öllu óþolandi. Rússum þarf að gera ljóst, að þeir verða að hverfa með her sinn allan frá Eystrasaltsríkjunum. Þeir geti ekki ætlast til síaukinnar aðstoðar frá vestrænum ríkjum á meðan þeir beiti nágranna sína hernaðar- legri kúgun. Islendingar vora í fararbroddi þeirra, sem studdu sjálfstæðisbar- áttu Eystrasaltsþjóðanna, en þeirri baráttu lýkur ekki fyrr en síðasti rússneski hermaðurinn hefur snúið til síns heima. Nú ríð- ur á, að Rússar finni fyrir því á alþjóðavettvangi, að framkoma þeirra gagnvart Litháen verður ekki liðin. Geir Ulfstein sérfræðingur við Óslóarháskóla á sviði hafréttar Norðmenn hafa rétt til að stöðva veiðar við Svalbarða Jón Baldvin Hannibalsson segir íslensku sendinefndina hafa mætt , japönskum stríðsmönnum“ við samningaborðið í Stokkhólmi Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞAU ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar, utanríkisráðherra Is- lands, að Islendingar geti tæpast sætt sig við verndaraðgerðir Norðmanna í nágrenni Svalbarða hafa vakið mikla athygli í Nor- egi. Geir Ulfstein, fræðimaður er starfar við allsherjarréttarstofnun Óslóarháskóla, segir engan vafa leika á um rétt Norðmanna til að stöðva hugsanlegar veiðar íslenskra fiskiskipa á verndarsvæði því sem Norðmenn hafa skilgreint við Svalbarða. Ingvard Havnen, tals- maður norska utanríkisráðuneytisins, sagði í gær að fyrir lægi að norska strandgæslan hefði um það skýr fyrirmæli að tryggja að norsk lög og reglugerðir væru í heiðri hafðar á þessum slóðum. Dagblöð í Noregi fjölluðu í gær ítarlega um fund íslendinga og Norðmanna í í Stokkhólmi í Svíþjóð á þriðjudag sem engum árangri skilaði. Dagblaðið Verdens Gang hafði eftir utanríkisráðherra ís- lands að við samningaborðið hefði íslenska sendinefndin mætt ,jap- önskum stríðsmönnum“. í þessu viðtali sem og í samtali við Aften- posten kom skýrt fram það mat Jóns Baldvins Hannibalssonar að kosningar í Noregi í september og yfírstandandi viðræður Norðmanna við Evrópubandalagið hefðu bundið hendur norsku ráðherranna. Aften- posten greindi frá þeim ummælum íslenska utanríkisráðherrans að ís- lensku fulltrúarnir hefðu fengið að kynnast „norskum hroka“ á fundin- um í Svíþjóð og að hér eftir yrði litið svo á af hálfu íslendinga að „Smugan“ væri opið hafsvæði. Því myndu íslensk stjórnvöld á engan hátt hafa af því afskipti ef útgerð- arfyrirtæki á Islandi sendu skip sín til veiða í Barentshafi. Réttarstaðan verði könnuð Þegar ljóst var orðið að slitnað hafði upp úr viðræðunum á þriðju- Vinnslustöðin gerir m.a. út togar- ann Breka sem fyrstur hélt af stað í Smuguna en er nú á heimleið dagskvöld lét Jón Baldvin Hannib- alsson að því liggja að nú yrði réttarstaða íslands hvað varðar veiðar á verndarsvæðinu við Sval- barða tekin til sérstakrar skoðunar. „Við hyggjumst nú kanna nákvæm- lega hver réttur íslenskra sjómanna er á þessu svæði. Finnar hafa einir þjóða viðurkennt aðgerðir Norð- manna í nágrenni Svalbarða. Við eigum erfitt með að sætta okkur við þessa stöðu mála,“ sagði Jón Baldvin. Geir Ulfstein, sem um árabil hefur starfað á sviði hafréttarmála ásamt 20 öðrum togurum. Sighvat- ur Bjamason segir að afli Breka sé um 50 tonn þannig að túrinn komi og vinnur nú að doktorsritgerð um Svalbarðasáttmálann, sagði í gær að ekki væri unnt að draga í efa rétt Norðmanna til að stjórna físk- veiðum á þessum slóðum. „Frá sjón- armiði þjóðaréttar er mikill munur annars vegar á „Smugunni“ og á verndarsvæðinu í nágrenni Sval- barða hins vegar. „Smugan“ er í raun alþjóðlegt hafsvæði en það er yfir allan vafa hafið að verndar- svæðið við Svalbarða heyrir norskri lögsögu til,“ sagði Ulfstein. Árið 1977 lýstu Norðmenn yfír því að 200 mílna fískverndarsvæði hefði verið markað umhverfis Svalbarða en fram til þessa hafa aðeins Finnar lýst yfir því að þeir virði þann gjörn- ing. Þessi staðreynd breytir engu um rétt Norðmanna að mati Geirs út á sléttu. „Hvað framtíðina varðar get ég ekki tjáð mig um hana fyrr en ég hef rætt við skipstjórann. Það er þó ljóst að við höldum opnum möguleikum á að senda skip aftur á þessar slóðir," segir Sighvatur. „Staðreyndin er að ef 5-6 togarar hefðu farið á veiðamar nú hefði dæmið orðið allt öðruvísi. Hinsvegar fóra nær 30 togarar og þeir voru allir að toga á svæði sem var ein míla á’ breidd og 8 mílur á lengd. Það gengur ekki upp.“ Ulfstein. „Deilt er um hvort svæðið við Svalbarða hafi sömu stöðu og efnahagslögsaga Noregs, eins og norsk stjórnvöld halda fram, eða hvort Svalbarðasáttmálinn eigi einnig að taka til verndarsvæðisins. Samkvæmt Svalbarðasáttmálanum hafa Norðmenn rétt til að stjórna hvers kyns atvinnustarfsemi á þessu svæði og skiptir þá engu hvaða þjóð á í hlut, eina krafan er sú að allir hljóti sömu meðferð. Hins vegar kunna Norðmenn að þurfa að veita kvóta með tilliti til hefðbundinna veiða ef gæta á fullr- ar sanngirni," sagði Ulfstein. Stórfelldar veiðar verða ekki liðnar Hann kvaðst vera þeirrar hyggju að norsk stjórnvöld hefðu fram til þessa ekki viljað setja verndarsvæð- ið við Svalbarða á oddinr. í veiðideil- unni þar sem hætta væri á að slíkri deilu yrði vísað til Alþjóðadómstóls- ins í Haag. Hann sagðist því ekki búast við að valdi yrði beitt til að hrekja íslendinga frá verndarsvæð- inu við Svabarða hæfu íslenskir togarar veiðar þar. Þetta mat ætti þó aðeins um veiðar einstakra skipa. „Verði hafnar þar veiðar sem ógna stofnunum munum við neyð- ast til að beita hörku,“ sagði Geir Ulfstein. Eiríkur Ólafsson segir að hann þurfí að kynna sér málið betur en að í fljótu bragði sjái hann ekkert því til fyrirstöðu að senda skip aftur á þessi mið. „Menn fóra til veiða við Bjarnarey hér á árum áður og ég sé ekkert því til fyrirstöðu að gera slíkt hið sama,“ segir Eiríkur. „Við þurfum hinsvegar betri vitn- eskju um þessi mið en við höfum nú. Það er því gott að frystitogar- arnir halda veiðunum áfram og afla sér þannig veiðireynslu.11 Útiloka ekkert í framtíðinni „Vandinn var að of margir fóru til veiða í einu,“ segir Sighvatur Bjarnason ÚTGERÐARMENN hafa ekki gefist upp á veiðum í Smugunni í Barentshafi og segja að vel komi til greina að senda togarana þang- að aftur ef aflabrögð glæðast. Sighvatur Bjarnason framkvæmda- sljóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum segir að hann útiloki ekkert í framtíðinni hvað veiðar á þessu svæði varðar. „Vandinn nú var að of margir fóru til veiða í einu og voru að toga á of litlu svæði,“ segir Sighvatur. Eiríkur Ólafsson útgerðarstjóri Ljósafells- ins á Fáskrúðsfirði segir að hann sjái ekki ástæðu til annars en að senda togarann aftur í Smuguna af aðstæður breytast þar. Félagasamtök aldraðra velja sjálf verk- taka til að byggja íbúðir á sínum vegum • • eftirMarkús Orn Antonsson Síðustu daga hefur nokkur um- fjöllun staðið í ijölmiðlum um úthlut- anir Reykjavíkurborgar á lóðum fyr- ir íbúðir handa öldruðum. Margt hefur verið rangtúlkað í þeirri um- ræðu og annað sagt ósatt. í forsíðufregn Tímans hinn 18. ágúst sl., sem höfð er eftir Sigrúnu Magnúsdóttur, borgarfulltrúa Fram- sóknarflokksins, er farið nokkuð fijálslega með staðreyndir eins og ekki er óalgengt, þegar umræddur borgarfulltrúi á í hlut. Látið er að því liggja, að uppgötvazt hafí eitt- hvert áður óþekkt bréf Davíðs Odds- sonar, borgarstjóra, frá árinu 1989, þar sem hann hafi sett samtökunum Réttarholti skilyrði um að eiga við- skipti við byggingarfélagið Ár- mannsfell vegna byggingar fjölbýlis- húss fyrir aldraða við Réttarholts- veg. Aðrir fulltrúar minnihlutans sem nú sitja borgarráðsfundi, þar á með- al Siguijón Pétursson, vilja líka eigna sér heiðurinn af þessari „uppljóstr- un“ eins og bókun þeirra í borgar- ráði 17. þ.m. ber með sér. Umrætt bréf Davíðs Oddssonar dags. 25. október 1989 er sent sam- hljóða til Sjálfseignarstofnunarinnar Réttarholts og Ármannsfells til stað- festingar á ákvörðun borgarráðs frá deginum áður um að úthluta sameig- inlega til þessara tveggja aðila bygg- ingarrétti fyrir íbúðir handa öldruð- um á svæði við Hæðargarð og Rétt- arholtsveg. Báðir aðilar höfðu sótt um þessa tilteknu lóð. Ármannsfell ásamt Samtökum aldraðra í október 1988 en félagið Réttarholt nokkru síðar, þ.e. snemma árs 1989. Samstarf tókst milli Ármannsfells og Réttar- holts og á fundi borgarráðs hinn 24. október 1989 var eftirfarandi bókað: „Lagt fram að nýju bréf skrif- stofustjóra borgarverkfræðings frá 16. þ.m., þar sem lagt er til að Sj álfseignarstofnuninni Réttarholti og Ármannsfelli hf. verði gefínn kostur á byggingarrétti fyrir íbúðir handa öldruðum á svæði við Hæðar- garð og Réttarholtsveg. Samþykkt." Þennan fund borgarráðs sat m.a. Siguijón Pétursson og tók þátt í hinni samhljóða ákvörðun um úthlut- un til Ármannsfells og Réttarholts. Sigrún Magnúsdóttir var líka á þess- um fundi og gerði ekki neina athuga- semd við afgreiðslu málsins. í umræddu bréfí borgarstjóra, sem sent var út daginn eftir, er nánar fjallað um tæknilegar hliðar málsins: Að hönnun verði unnin á vegum Ármannsfells í samráði við Borgar- skipulag Reykjavíkur, að Réttarholt kjósi sérstaka byggingarnefnd til samráðs um hönnunina en Ármanns- fell skuli byggjá íbúðirnar og það skilyrði sett að hús verði fokhelt og lóð frágengin innan 30 mánaða frá úthlutun. Efnislega skiptir þetta orðlag í bréfí borgarstjóra ekki neinu máli varðandi úthlutunina sem slíka. Það lá skýrt fyrir, að í samræmi við regl- ur Reykjavíkurborgar hafði borgar- ráð úthlutað byggingarrétti til Ár- Markús Örn Antonsson mannsfells og Réttarholts í samein- ingu og borgarstjóri tilkynnir þá nið- urstöðu með bréfi sínu. Nú telja þau Sigrún Magnúsdóttir og Siguijón Pétursson sitthvað „sér- kennilegt" í þessu bréfi borgarstjóra frá 1989, sem ekki sé tekið fram í bréfum við „venjulegar úthlutanir". Af þessu tilefni skal lögð áherzla á, að bréf borgarstjóra var orðrétt end- urrit af bréfi skrifstofustjóra borgar- verkfræðings sem lagt var fyrir borgarráð til staðfestingar 24. októ- ber 1989 að viðstöddum Siguijóni Péturssyni og Sigrúnu Magnúsdóttur „ Að minnsta kosti átta öflugir byggingaraðilar í samvinnu við félög eldri borgara, Yerzlun- armannafélag Reykja- víkur, Hrafnistu auk - Reykjavíkurborgar sjálfrar, hafa látið að sér kveða í slíkum fram- kvæmdum síðustu ár.“ og án þess að þau fyndu nokkuð að orðalagi þess. Fulltrúar minnihlutans dylgja um að sjálfstæðismenn í borgarstjórn hygli Ármannsfelli hf. með úthlutun- um lóða fyrir íbúðir aldraðra og hafi veitt fyrirtækinu einokunaraðstöðu á því sviði. Undir þennan uppspuna var tekið í skýrslu, sem félagsmála- ráðherra kynnti nýverið. Að minnsta kosti átta öflugir byggingaraðilar í samvinnu við félög eldri borgara, Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, Hrafnistu auk Reykjavíkurborgar sjálfrar, hafa látið að sér kveða í slíkum framkvæmdum síðustu ár. Staðreyndir málsins eru þær, að fijáls félagasamtök aldraðra, sem að þessum málum hafa ötullegast unnið, velja byggingarverktaka sjálf og sækja um lóðir ásamt þeim. í bréfi Samtaka aldraðra mótt. 5. okt. 1988 segir m.a.: „Við sækjum um lóðina í samvinnu við Ármannsfell hf. eins og verið hefur með undanfarin þijú verkefni, þ.e. Bólstaðarhlíð, Dalbraut og Afla- granda ... Við viljum taka fram að við hefðum ekki klofið þessar bygg- ingar án samstarfs við Ármannsfell hf. og eram ákveðnir í að halda því samstarfi áfram.“ í bréfi Félags eldri borgara dags. 27. des. 1989 segir m.a.: „Félag eldri borgara óskar eftir því að til endurúthlutunar komi og að Byggingafélagið Gylfi og Gunnar sf. verði lóðarhafi með félaginu og samstarfsaðili um bygginguna." Og ekki er annað að sjá en að vel hafí tekizt til í samstarfí Ármanns- fells og Réttarholts. Félagið sendi inn umsókn í desember 1991 um að fá úthlutað viðbótarlóð við Hæðargarð. í bréfínu segir m.a.: „Verði sú raunin á óskum við ein- dregið eftir að fá lóðinni úthlutað með byggingaraðila okkar, Ár- mannsfelli hf.“ Það lýsir alvarlegri málefnafá- tækt, hvernig borgarfulltrúi Fram- sóknarflokksins reynir að koma sér á framfæri við fjölmiðla með óvönd- uðum málflutningi eins og þeim, sem fluttur er á forsíðu Tímans sl. mið- vikudag. Borgarfulltrúinn hlýtur að vita betur og ætti að meðhöndla sannleikann af meiri gætni, hafandi í huga að með upprifjun úr gerðabók- um ráða og nefnda borgarinnar aftur í tímann má auðveldlega fletta ofan af þeirri blekkingariðju, sem svo stíft er stunduð um sinn. Höfundur er borgarstjóri. Borgarverkfræðingur um Korpúlfsstaði Um 5 til 10% útveggja eru taldir nýtanlegir UM 5 til 10% útveggja Korpúlfsstaða eru taldir nýtanlegir samkvæmt greinargerð Stefáns Hermannssonar borgarverkfræðings, sem lögð hefur verið fram í borgarráði. Ljóst er að allt efni til innréttinga verður að vera nýtt. Lagt er til að fyrsta útboði sem fram átti að fara í haust verði frestað þar til í febrúar þegar veðurskilyrði verða hag- stæðari. Hulda Valtýsdóttir, formaður Korpúlfsstaðanefndar, segir, að ávallt hafi verið haft að leiðarljósi að flýta sér hægt við það vanda- sama verkefni sem uppbygging Korpúlfsstaða er. Fram kemur að við endurbyggingu á gömlu húsi er óhjákvæmilegt að nota nýtt byggingarefni að meira eða minna leyti og að þegar nota á gam- alt hús í nýjum tilgangi er auðsætt að nýtt efni vegur þyngra en ella. Úttekt hefur verið ge'rð á veggjunum og ástandi hússins og voru tveir möguleikar kynntir fyrir Korpúlfs- staðanefnd. Það var að nota hluta útveggja, sennilega um 20%, með styrkingum og fleiri endurbótum eða endursteypa alla útveggi og undir- stöður. Gæðamunur Kostnaður var áætlaður mjög svip- aður en endursteypan aðeins dýrari þegar einungis var litið á steypuvinn- una sjálfa en að öllu meðtöldu var viðgerðin talin vera 20 til 30 milljón- um dýrari. Þá segir: „Ónákvæmni þeirrar áætlunar vegna viðgerðar er meiri. Auk þess verða útveggir með þeirri aðferð óeðlilega þykkir eða allt að 90 cm í stað 30 til 40 cm og gólf- pláss um 100 fermetrum minna. Þá verður um verulegan gæðamismun að ræða varðandi endingu." Greinargerðinni var vísað til um- fjöllunar í Korpúlfsstaðanefnd og sagði Hulda Valtýsdóttir, formaður nefndarinnar, að vilji nefndarinnar sé að flýta sér hægt við framkvæmdir. „Verkefnið er í raun tvíþætt," sagði hún. í fyrsta lagi væri um að ræða varðveislu þeirra verðmæta sem í sjálfri byggingunni felast og í öðru lagi hvernig koma ætti fyrir breyttri starfsemi í húsinu. Illa farnir „Við athugun kom fljótlega í ljós að veggir hússins voru illa farnir og sennilegt að nýtanlegir væru aðeins 20% af útveggjum eins og þeir eru nú,“ sagði Hulda. „Hins vegar var ekki talið útilokað að styrkja þá og endurbæta svo ekki þyrfti að bijóta niður. Þetta var byggingadeild borg- arverkfræðings beðin um að kanna nánar áður en endanleg ákvörðun yrði tekin um varðveisluaðferðir. Jafnframt var að sjálfsögðu unnið að fyrstu kostnaðaráætlunum eftir því sem kostur var.“ Breyttar forsendur Úttekt byggingadeildar verður kynnt í nefndinni og þar tekin afstaða til breyttra forsendna um varðveislu- aðferðir. „Hér er í raun um að ræða þann valkost um varðveislu húsa sem ekki er þekktur nema í litlum mæli hérlendis en er algengur með öðrum þjóðum og viðurkenndur, nefnilega að endurbyggja merkar byggingar í sinni fyrri mynd þannig að útlínur og svipmót haldist í umhverfinu. Þessi lausn á uppbyggingu Korpúlfsstaða er ekki ný af nálinni og hefur alltaf komið til tals í nefndinni. Hins vegar var alltaf ljóst að miklar breytingar hlytu að verða innanhúss þegar breyta á kúabúi í listamiðstöð," sagði Hulda. Hönnunarvinna í tengslum við úttekt bygginga- deildar kom í ljós að hönnunarvinna er styttra á veg komin en áætlað var og sagði Hulda að vegna þessa og einnig vegna tiilagna um nokkuð breyttar varðveisluaðferðir þótti eðli- leg^. að framkvæmdum yrði frestað fram í mars, sem er heppilegri árs- tími. Frestun um nokkra mánuði ætti ekki að skipta neinum sköpum. Kjurugej með fuglana. Kjurugej lýkur við að raða steinum í stallinn. Hjálpaðu mér að fljúga Umhverfislistaverk eftir Kjuregej Alexöndru Arg- unovu afhjúpað við unglingageðdeildina við Dalbraut HJÁLPAÐU mér að fljúga heitir umhverfislistaverk sem Kjuregej Alexandra Argunova listþjálfi hefur skapað í samvinnu við börn á unglingageðdeildinni við Dalbraut. Verkið verður afhjúpað í dag, fimmtudaginn 26. ágúst, kl. 14. Verkið er tveggja metra hár steyptur stallur sem unglingarnir og Kjuregej hafa skreytt með ís- lenskum steinum sem þau hafa safnað. Þar ofan á verður komið fyrir tveimur fuglum, móður og unga, úr galvaníseruðu smíðajámi sem Magnús Stefánsson, jámsmið- ur, mótaði. Fuglana hafa ungling- arnir málað í björtum litum með sérstakri útimálningu undir leið- sögn Söru Vilbergsdóttur, mynd- listarkonu, sem starfar á deildinni. Hugmyndina að því að gera ein- hvers konar umhverfislistaverk með unglingunum á deildinni átti Bergljót Ragnars, myndlistarkona, sem starfaði þar fyrir nokkrum árum. Sú hugmynd lifði meðal starfsfólksins þó að til fram- kvæmda kæmi ekki fyrr en síðar. Fyrir rúmu ári bað Páll Ásgeirs- son, yfírlæknir, Kuregej um að hanna slíkt listaverk og að stjórna framkvæmdum við það. „Eg var fljót að segja já án þess að hafa hugmynd um hvað þetta "krafðist mikillar vinnu,“ sagði Kjuregej. Hún baðar brosandi út höndunum og bætir við: „Ég kom með þessa ofsalega stóru og sniðugu hug- mynd um að tengja þetta allt við náttúruna.“ Unglingarnir og starfsfólk deild- arinnar unnu síðan verkið í samein- ingu eftir teikningum Kjuregej. Núna er það tilbúið þó að vinnunni við það ljúki aldrei. Það þarf að mála fuglinn upp á nýtt að nokkr- um árum liðnum og raða nýjum steinum í stallinn í stað þeirra sem hrynja úr. Þannig mun listaverkið þróast og breytast með tímanum. Með verkefninu hefur verið leit- ast við að vekja áhuga unglinganna á náttúrunni. Tilgangurinn er að örva hugmyndaflugið og virkja orku þeirra til að skapa eitthvað fallegt. „Við reyndum þannig að hjálpa þeim að finna í sjálfum sér það góða og jákvæða sem í öllu fólki býr,“ segir Kjuregej. „Við erum búin að ferðast mikið frá í fyrra. Við höfum farið í dags- ferðir út á Selatanga, að Stranda- kirkju, upp á Esju og víðar. Stund- um var veðrið svo gott og allt svo fallegt í kringum okkur. Krakkarn- ir gátu slappað af og safnað stein- um,“ heldur hún áfram. Verkið sýnir hjálpina á táknræn- an hátt. Við erum náttúrunnar börn alveg eins og fuglamir. Ég vildi ekki hafa grátandi bam bú- andi í styttu uppi á stalli. Ég vildi frekar nota fuglinn sem biður um hjálp til að öðlast frelsi," segir Kju- regej. Unginn er með annan vænginn fastan í ís og hann biður móður sína um að hjálpa sér að losna. Kjuregej er fædd og uppalin í Jakú- tíu í Síberíu, einhveiju kaldasta landi sem mannkynið hefur tekið sér bólfestu á. I hennar huga er ís tákn fyrri mikla eifiðleika og einangrun. Þannig táknar verkið þau vandamál sem margir ungling- amir á deildinni eru að glíma við. Engir styrkir fengust til verksins en Ríkisspítalar lögðu til rútur í ferðimar og efni. Kjuregej vill koma á framfæri þakklæti til sam- starfsfólks síns, sérstaklega Ha- gerup Isaksen, umsjónarmanns, og hans manna fyrir að steypa stallinn og Gyrit Hagmann, deildarlækni, sem útvegaði fallega steina úr eig- in safni í verkið. Texti: Þorgerður Ragnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.