Morgunblaðið - 26.08.1993, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 26.08.1993, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993 ATVIN N U A UGL YSINGAR Þýðendur ath.! Óskum eftir þýðendum til að þýða úr ensku. Um er að ræða viðskiptaensku og almenna ensku. Skriflegar umsóknir, með upplýsingumum menntun og fyrri þýðingar, sendist auglýs- ingadeild Mbl., merktar: „Þ - 14896“. Hjúkrunarfræðingur Óskum að ráða hjúkrunarfræðing sem fyrst að hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kumbara- vogi. Góð vinnuaðstaða. 40 mín. akstur frá höfuðborgarsvæðinu. íbúð fyrir hendi á staðnum á vægum kjörum. Frekari upplýsingar í síma 98-31213 milli kl. 8.00 og 16.00, utan þess tíma 98-31310. Ræstingar Traust fyrirtæki óskar eftir duglegu fólki til vinnu við fastar ræstingar og afleysingar eftir kl. 16.00 á daginn. Tilvalið fyrir heimavinnandi fólk. Skriflegar umsóknir skilist á auglýsingadeild Mbl., merktar: „Aukavinna strax - 14895". Kona eða karl óskast til að sjá um 3 börn og heimili fjóra morgna í viku. Upplýsingar í síma 24257. Heilsugæslustöð Húsavíkur Læknaritari óskast í hálfa stöðu hið fyrsta. Umsóknarfrestur er til 3. september. Upplýsingar veitir læknafulltrúi í síma 96-41333. Ferðaþjónusta Laugalandi, Holtum Óskað er eftir rekstraraðila fyrir Menningar- miðstöðina á Laugalandi frá 1. júní til 25. ágúst 1994. Laugaland í Holtum býður uppá rúmgóða svefnpokaaðstöðu, góða eldhús- aðstöðu, nýja sundlaug og ágæt tjaldstæði. Óskað er eftir skriflegum umsóknum ein- göngu fyrir mánudaginn 6. sept. 1993. Auglýsingaraðili áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Upplýsingar í símum 98-76564 og 98-76540. Stjórn Menningarmiðstöðvarinnar Laugalandi. Leikskóli Lítinn einkarekinn leikskóla vantar tvo starfsmenn f.h. Upplýsingar í síma 624022 milli kl. 9.00 og 12.00. Kvöld- og helgar- vinna íBókabúð Máls og menningar Við höfum ákveðið að halda áfram kvöld- og helgaropnun í versluninni á Laugavegi 18. Við viljum ráða lipurt afgreiðslufólk til að vinna frá kl. 18-22 öll kvöld og kl. 10-22 laugardaga og sunnudaga. Þetta er tilvalið fyrir tvo samhenta einstakl- inga eða par sem vill vinna sama vinnutíma. Hér er um fullt starf að ræða sem ekki hentar sem aukavinna. Skriflegar umsóknir, með upplýsingum um starfsreynslu, sendist skrifstofu Máls og menningar, Laugavegi 18, 3. hæð, fyrir 1. september. Mál og menning RAÐA UGL YSINGAR Ferðamálasjóður lýsir hér með eftir tilboðum í húseignir, er standa við Bankastræti og Þingholtsstræti í Reykjavík. Eignarhluti Ferðamálasjóðs er helmingur, óskipt, í eigninni allri. Tilboð óskast send Ferðamálasjóði í síðasta lagi 10. september nk. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðamála- sjóði, Hverfisgötu 6, eða í síma 91-624070. Ferðamálasjóður. Greiðsluáskorun Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum skorar hér með á gjaldendur, sem ekki hafa staðið skil á gjöldum, sem álögð voru 1991, 1992 og 1993 og féllu í gjalddaga fyrir 15. ágúst 1993 og eru til innheimtu hjá ofangreindum inn- heimtumanni, að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar. Gjöld þessi eru: Tekjuskattur, útsvar, eignar- skattur, sérstakur eignarskattur, slysatrygg- ingargjald vegna heimilisstarfa, tryggingar- gjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, líf- eyristryggingargjald skv. 20. gr. 1. nr. 67/1971, slysatryggingargjald atvinnurek- enda skv. 36. gr. sl., atvinnuleysistryggingar- gjald, kirkjugarðagjald, gjald í Framkvæmda- sjóð aldraðra, sérstakur skattur af atvinnu- og verslunarhúsnæði, launaskattur, bifreiða- skattur, slysatryggingargjald ökumanna, þungaskattur skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagning söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskattur og miðagjald, virðisauka- skattur af skemmtunum, tryggingargjald af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, vinnueftirlitsgjald, vörugjald af innl. fram- leiðslu, aðflutningsgjöld og útflutningsgjöld, auk verðbóta af tekjuskatti og útsvari. Jafn- framt er skorað á gjaldendur að gera skil á virðisaukaskatti fyrir 24. tímabil 1993, með eindaga 5. ágúst 1993 og staðgreiðslu fyrir 7. tímabil 1993, með eindaga 16. ágúst 1993, ásamt gjaldföllnum og ógreiddum virðisauka- skattshækkunum, svo og staðgreiðslu. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna að liðnum 15 dögum frá dagsetningu áskorunar þessarar allt skv. lögum um aðför nr. 90/1989. Vestmannaeyjum, 25. ágúst 1993. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum. Greiðsluáskorun Sýslumaðurinn Selfossi skorar hér með á gjaldendur, sem ekki hafa staðið skil á gjöld- um, sem voru álögð 1990, 1991, 1992 og 1993 og féllu í gjalddaga til og með 15. ág- úst 1993 og eru til innheimtu hjá ofangreind- um innheimtumanni, að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga frá birtingu áskorunar þessarar. Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, sérstakur tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, eignar- skattur, sérstakur eignarskattur, slysatrygg- ingagjald vegna heimilisstarfa, trygginga- gjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, líf- eyristryggingagjald skv. 20. gr. 1. nr. 67/1971, slysatryggingagjald atvinnurek- enda skv. 36. gr. 1. 67/1971, atvinnuleysis- tryggingagjald, kirkjugarðsgjald, gjald í fram- kvæmdasjóð aldraðra, skattur af verslunar og skrifstofuhúsnæði, launaskattur, bifreiða- skattur, slysatrygging ökumanna, þunga- skattur skv. ökumælum, viðbótar- og auka- álagning söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskattur og miðagjald, virðisauka- skattur af skemmtunum, skipaskoðunar- gjald, lestargjald og vitagjald, vinnueftirlits- gjáld, vörugjald af innl. framleiðslu, aðflutn- ingsgjöld og útflutningsgjöld og útflutnings- ráðsgjald, verðbætur á ógreiddan tekjuskatt og verðbætur á ógreitt útsvar. Einnig virðis- aukaskattur, ásamt gjaldföllnum virðisauka- skattshækkunum, staðgreiðsla opinberra gjalda og staðgreiðsla tryggingagjalds, ásamt vanskilafé, álagi og sektum. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna að liðnum 15 dögum frá birtingu áskorunar þessarar, samkvæmt heimild í 9. tl. 1. mgr. 1. gr., sbr. og 8. gr. laga nr. 90/1989 um aðför. Athygli er vakin á því, að auk óþæginda hefur fjárnámsgerð í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkis- sjóð er allt að kr. 10.000 fyrir hverja gerð, þinglýsingargjald er kr. 1.000 og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostn- aðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþæg- indi og kostnað. Jafnframt tilkynnist að gjaldendur virðisauka- skatts, staðgreiðslu og tryggingagjalds, mega búast við því að atvinnurekstur þeirra verði stöðvaður af lögreglu án frekari fyrir- vara. 24. ágúst 1993. Sýslumaðurinn á Selfossi. Hafnarfjörður £3= Setberg, miðhverfi Breyting á deiliskipulagi í samræmi við gr. 4.4 í skipulagsreglugerð nr. 318/1985 er hér auglýst til kynningar breyting á deiliskipulagi fyrir miðhverfi Set- bergshverfis í Hafnarfirði. Breytingin var samþykkt af bæjarráði Hafnarfjarðar í um- boði bæjarstjórnar 19. ágúst sl. Tillagan liggur frammi í afgreiðslu bæjarverk- fræðings, Strandgötu 6, Hafnarfirði, frá 26. ágúst til 23. september 1993. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til bæjarstjórans í Hafnarfirði fyrir 30. september 1993. Þeir, sem ekki gera athugasemd við tillög- una, teljast samþykkir henni. Hafnarfirði, 25. ágúst 1993. Skipulagsstjóri Hafnarfjarðar, bæjarstjórinn í Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.