Morgunblaðið - 26.08.1993, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993
f
önnur mannvirki ryðga og grotna
niður og atvinna fer síminnkandi.
Viðhorf manna eru ólík því sem
menn eiga að venjast frá Norður-
löndunum, t.d. hvað varðar umönn-
un sjúkra. Á Kólaskaga tíðkast að
loka menn inni á stórum stofnunum
og geyma þar t.d. geðsjúka og fatl-
aða í stað þess að búa þeim sérhönn-
uð heimili þar sem þeim er veitt
ákveðið fijálsræði og umönnun.
Einnig má nefna að þrátt fyrir
meira frelsi í Rússlandi geta menn
ekki ferðast til útlanda nema að
geta sýnt fram á formlegt boð það-
an og aukið frelsi færir Rússum
ekki endilega aukin viðskipti því
rúblan er ekki beint auðveldur
gjaldmiðill jafnvel þótt i Norður-
kollu sé.
En hvað geta vinabæimir gert?
Bea Dahlström og hennar lið hafa
komið ýmsu í verk. Sent sjúkrarúm
sem hætt er að nota á spítölum í
Norrbotten til spítalans í Kandalak-
sja en við það eitt tekur spítalinn
mörg skerf í átt til nútímans. Nýju
(þrjátíu ára ,,gömlu“) rúmin frá
Svíþjóð leysa af hólmi rúm frá því
um aldamót, eru stillanleg á alla
enda og kanta og auðvelda því
hjúkrunarfólki störfin að mun. Þá
hefur vinabærinn einnig staðið fyrir
því að eina bakaríinu í Kandalaksja
(sem á að þjóna 80 þúsund manns)
voru send tæki úr nýlegu bakaríi í
Piteá sem varð gjaldþrota. Eins
dauði er annars brauð. Þá hefur
bærinn staðið fyrir nemendaskipt-
um og fullyrðir Bea Dahlström að
báðir aðilar hafi mikið gagn að
slíku.
Mengunin ógnar
En það er annað atriði sem íbúar
í Norðurkollu hafa miklar áhyggjur
af og það er mengun og henni hafa
þeir kynnst æ betur með meiri þekk-
ingu á Kólaskaga. Lýðháskólamir
í Kiruna í Svíþjóð og Svanvik í
Noregi hafa ásamt samtökum í
Apatity á Kólaskaga hafið samstarf
um víðtæka kynningu á umhverfis-
málum. Standa þessir aðilar að út-
gáfu tímaritsins Econord á norsku
og rússnesku, starfrækja eins konar
sumarbúðir í bæjunum þremur þar
sem unglingar skiptast á að koma,
halda tungumálanámskeið og fram-
leiða myndbönd. Sivert Nordvall
rektor lýðháskólans í Kiruna segir
mjög aukinn áhuga vera á umhverf-
ismálum alls staðar í Norðurkollu
og þar með talið hjá íbúum á Kóla-
skaga.
„En við megum ekki láta hér
staðar numið. Um þijú þúsund fer-
kílómetrar skóglendis eru deyjandi
á Kólaskaga og árlega bætast við
nokkrir ferkílómetrar. Rússar eru í
vandræðum með kjarnorkuúrgang
og kælivatn hefur runnið óhindrað
40 stiga heitt út í náttúruna og
kringum Monchegorsk eru um 300
Lýðháskólinn í Framnesi er við Öjebyn og þar er þessi kirkja sem
umkringd er fjölmörgum smáhýsum. Bændur sem áttu langt að í
kirkjusókn var stefnt reglulega til messu og bjuggu þeir þá ásamt
fjölskyldum sínum í þessum litlu húsum. Hver fjölskylda hafði eitt
herbergi. Húsunum er enn haldið við og þau notuð sem eins konar
sumarhús.
Stofnuð hafa verið samtök í Norðurkollu sem vakið hafa sérstaka
athygli á ástandi umhverfismála á Kólaskaga, sérstaklega eftir að
samskipti Rússa og íbúa Norðurkollu jukust. Sivert Nordvall (t.v.)
og Bruno Larsson kynntu starfsemi Econord samtakanna.
Margt sameiginlegt með ólík-
um löndum í Norðurkollu
Hvað getur Piteá í Svíþjóð átt sameiginlegt með bæjum eins ogKir-
kenes í Noregi, Rovaniemi í Finnlandi og Raufarhöfn á íslandi?
Engir íbúar þessar bæja tala sama tungumálið, enda þjóðirnar
fjórar og stjórnarfar og hagkerfin mismunandi. Þessir bæir eiga
þó það sameiginlegt að vera í útjaðri landa sinna, langan veg frá
höfuðborgunum, búa yfir aðgangi að hráefnum eða auðlindum
en berjast samt við fólksflótta þar sem atvinnutækifærunum fækk-
ar og á seinustu misserum beinast augu æ meira að umhverfismál-
um þar sem þeim finnst mengun sem oftast kemur frá öðrum og
suðlægari svæðum vera farin að ógna sér. Sameiginleg vandamál
eru einnig erfíðar samgöngur og áhugaleysi fyrirtækja og yfír-
valda í að koma upp eða viðhalda rekstri og búsetu. Þessi svæði
eru einfaldlega ekki í tísku.
íbúar Norðurkollu eins og þetta
svæði er gjaman nefnt, eiga einnig
ýmislegt annað sameiginlegt nefni-
lega baráttugleði og bjartsýni og
þeir hafa trú á því að með því að
þjóðirnar kynnist betur málefnum
hver annarrar geti þeir stillt saman
ýmsa strengi og lifað góðu og enn
betra lífi um langa framtíð. Og
þeir eiga kannski einnig það sam-
eiginlegt að þeim er tiltölulega
sama hvort yfirvöld þeirra í suðrinu
hafa áhuga á þeim eða ekki. Þeir
vita sem er að þeir munu áfram
geta bjargað sér án þeirra og þess
vegna eiga íbúar Norðurkollu nú
margháttuð samskipti á sviði menn-
ingarmála, skóla- og samgöngu-
mála og í vaxandi mæli á sviði við-
skipta. Hefur jafnvel yfirvöldum
landanna í höfuðborgunum flarri
Norðurkollu stundum fundist nóg
um þessi samskipti.
Norðurkolla nær yfir nyrsta hluta
Finnlands eða Lapplands, Svíþjóð-
ar, sem kallað er Norrbotten og
Noregs en þar eru fylkin Nordland,
Troms og Finnmark eða með öðrum
orðum svæði þessara landa sem eru
norðan heimskautsbaugs. ísland til-
heyrir þessu svæði þar sem það
hangir á heimskautsbaugnum og
nú í seinni tíð hafa menn líka horft
á Kólaskagann og vilja nú telja
hann til Nordkalotten eða Norður-
kollu. íbúar á þessu svæði losa rúm-
lega milljón og ef við teljum Kóla-
skagann með verða þeir talsvert
yfír tvær milljónir.
Vinabæir I þróunarhjálp
Nokkrir bæir í Noregi, Svíþjóð
og Finnlandi hafa á siðustu árum
tekið upp samband við vinabæi sina
á Kólaskaga og hófust þessi nýju
tengsl eftir að Rússland opnaðist
og samskipti landanna urðu auð-
veldari. Sem dæmi um vinabæja-
samskipti má nefna Piteá í Nor-
rbotten léni en vinabær hans er
Kandalaksja á Kólaskaga. Bea Da-
hlström, sem stjórnað hefur starf-
inu, segir að það hafi byijað eftir
að einstaklingar frá Rússlandi sem
boðnir voru til Piteá upplýstu um
ástandið í heimabæ sínum.
Það var og er í stuttu máli á þá
lund að Kandalaksja sem var mikill
fískveiði- og fískvinnslubær er nú
í niðumíðslu þar sem fískveiðin
hefur hrunið og vinnslan rheð og
ekkert er að flytja þaðan lengur.
Togarar, bryggjur, jámbrautir og
LIVSFARLIG
IVHLJO
Meiriháttar
SlÓRÍTSALt
Bjóðum ný HANKOOK sumardekk
fyrír fólksbíla með 40% afslætti.
Frábærir hjólbarðar - einstakt tækifæri
Verðsýnishorn:
145R12 Kr.
145R13 Kr.
155R13 Kr.
165R13 Kr.
175/70R13 Kr.
185/70R13 Kr.
-3200- Kr. 1960
■3480- Kr. 1990
-3-770 - Kr. 2260
•8950- Kr. 2370
-4290- Kr. 2570
•4600 Kr. 2790
175R14 Kr.-4960—Kr. 2970
185/70R14 Kr.~5460— Kr. 2990
205/70R14 Kr.~6350— Kr. 3790
165R15 Kr.4690- Kr. 2690
185/65R15 Kr.-6290-Kr. 3770
185/60R14 Kr. "5860- Kr. 3490
Barðinn hf.
Skútuvogi 2 - sími 683080
Fyrirlestur
um vísinda-
samstarf
AÐALRITARI Vísindastofnunar
Evrópu, prófessor Peter Fricker,
er staddur hér á landi og mun
hann halda fyrirlestur um vísinda-
samstarf í Evrópu í dag, fimmtu-
dag.
Fyrirlesturinn verðu í stofu 101 í
Odda kl. 17.
------------
Bæjarráð Kópavogs
Rýmkuð
heimild fyr-
ir vinnuvélar
BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur
samþykkt að verða við ósk Félags
vinnuvélaeigenda um að rýmka
heimild fyrir umferð á Kringlu-
mýrarbraut.
. Ákveðið hefur verið að ein akrein
verði opnuð fyrir vinnuvélum eftir
kl. 19 á kvöldin og frarh til kl. 7 að
morgni.