Morgunblaðið - 26.08.1993, Page 37

Morgunblaðið - 26.08.1993, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993 37 íslensku sænskunemarnir ásamt kennaranum við ASSI pappaverk- smiðjuna en auk sænskunámsins áttum við kost á að kynnast atvinnu- háttum og menningarlífi í Norðurkollu. ferkílómetra landsvæði svo eitrað að þar er hvorki mönnum né skepn- um vært. Við teljum að mengun á þessu svæði sé svo alvarleg að grípa verði fyrr en síðar til ýmissa ráð- stafana. Og þessi mengun ógnar ekki aðeins okkur þessum næstu nágrönnum heldur meira og minna lífríki norðurhvelsins og því er þetta ekki eingöngu málefni okkar í Norð- urkollu eða Rússa á Kólaskaga, hér verða miklu fleiri þjóðir að koma við sögu.“ Sivart Nordwall viðurkennir að umhverfismál og mengunarvarnir hafi til skamms tíma verið í ólestri víðar en hjá Rússum og segir að ekki séu margir áratugir síðan skólp rann óhindrað í höfnina í Luleá en segir jafnframt að nú sé fólk orðið sér mun meðvitaðra um nauðsyn agaðrar umgengni við náttúruna sem felist ekki síst í því að viðhafa almennilegar mengunarvarnir. Tungumálin Norðurkollulöndin hafa talsvert mikla samvinnu á sviði tungumála- kennslu og vill hver þjóðin kenna hinni sitt mál og inní það hafa ís- lendingar einnig blandast allmörg síðustu árin en allt er það starf fyrir tilstuðlan norrænu félaganna á þessum svæðum. Þannig hafa Svíar komið hingað til lands í tveggja vikna íslenskunám, Norð- menn og Svíar dvalið um skeið í Finnlandi og lært talsverða finnsku og íslendingar hafa sótt sænskun- ámskeið á lýðháskólanum á Fram- nesi í áraraðir. Svo var einnig í ár og- vorum við alls 15 sem sátum yfir sænskri málfræði, framburði og ritæfingum í hálfan mánuð und- ir stjórn Ingrid Westin sem hér var sendikennari í nokkur ár. Dvölin í Framnesi var öll hin ánægjulegasta enda umhverfið skemmtilegt og ekki síðri var fé- lagsskapurinn við rúmlega 30 Finna sem þarna voru í sama tilgangi og rökræður við þá í gufubaðinu sem þeim fannst aldrei nógu heitt! Auk sænskunámsins gerðu stjórnendur norrænu félaganna í Piteá og Nor- rbotten léni sér far um að kynna okkur Norðurkollu eftir mætti, efndu til heimsókna og skoðana- ferða auk þess sem margir í hópn- um leituðu uppi starfsbræður og systur og settu sig sérstaklega inní málefni sinnar stéttar. Þannig flaut ýmislegt með sterkum og veikum sænskum sögnum inní heilagraut- inn og spurning er bara hvernig gengur að halda þessu til haga og okkur og öðum til gagns. Betri samgöngur? Að lokum má spyija hvort og hvernig ísland geti aukið samskipti við þetta svæði en fram til þessa hefur það auk tungumálakennsl- unnar kannski helst verið kringum skógræktarkynnisferðir, fiskveiðis- ráðstefnur eða íþróttamót. Vafalítið er að atvinnuháttum, skólamálum og menningarstarfsemi svipar um margt til íslenskra bæja og því ættu þeir að koma á vinabæjarsam- bandi við bæi á þessu svæði ef þeir hafa það ekki þegar þar sem menn gætu miðlað reynslu sinni í báðar áttir. Þegar slíkar hugmyndir eru skoð- aðar reka menn sig strax á sam- gönguvandann. Hann er fyrir hendi innan norðurhluta Noregs, Svíþjóð- ar og Finnlands því bæði eru flug- samgöngur strjálar og vegakerfið gisið. Enn meiri er vandi íslendinga því flugleiðir liggja yfirleitt milli Islands og höfuðborganna eða stórra borga í suðurhluta landanna og oft þarf að bæta hátt í öðru eins flugfargjaldi við ef menn stefna á Norðurkollu. Geta Flugleiðamenn eða aðrir flugrekendur ekki fundið markað á milljón íbúa svæði Norð- urkollu? Það þarf ekki daglegar ferðir heldur myndu viku- eða hálfs- mánaðarlegar ferðir hluta úr ári bæta mikið úr. jt Ekki var lakara að njóta veðurblíðunnar um leið og menn lásu lex- íurnar. Ferðamálaskóli íslands Höfðabakka 9, Reykjavík. Sími 671466. Starfsnám fyrir þá, sem starfa vilja við ferðaþjónustu. Nám, sem er viðurkennt af Félagi ísl. ferðaskrifstofa. Alþjóðleg próf og réttindi (IATA). Innritun stendur yfir. Ath.: Fjöldi nemenda við skólann takmarkaður. Sýningnm Light Nights að ljúka SÝNINGUM Ferðaleikhússins á„„Light Nights" í Tjarnarbíói lýkur á sunnudagskvöld. Þetta er 24. sumarið sem leikhúsið sýnir verkið. Sýningin samanstendur af 24 atriðum, sem ætlað er að kynna áhorfendum þjóðsögur, trú á tröll og álfa, landnám íslands og annan sögulegan fróðleik. Hlutverk sögu- manns er leikið af Kristínu G. Magnús. Bjartar nætur SIGURÐUR Örn Eiríksson, Þóra Katrín Gunnarsdóttir, Linda Ásgeirsdóttir, Magnús Ragnarsson og Kristín G. Magnús sögumað- ur í hlutverkum sínum. Sýnt er hvert kvöld frá fímmtu- utan nokkrir þjóðlagatextar, en í degi til sunnudags og hefjast sýn- miðaafgreiðslu er hægt að fá ritað- ingar kl. 21. Allur texti er á ensku, an útdrátt á þýsku og frönsku. VIÐEYJARSTOFA q)(9 (hinni sögufrægu Viðeyjarstofu, „Slotinu", er rekinn vandaður veitingastaður. Þar svigna borðin undan krásunum, rétt eins og þau gerðu fyrir 200 árum. Matseðillinn og matreiðslan er þó með öðrum hætti en þá var. Má freista þín með fjögurra rétta sælkeramáltíð fyrir 2.980,- krónur? Opið fimmtudaga - sunnudaga frákl. 19:00 til 24:00. Við bjóðum einnig upp á rjúkandi heitt kaffi og meðlæti í Viðeyjarstofu: fimmtudaga - sunnudaga og í Viðeyjamausti: mánudaga - miðvikudaga. Opið frá klukkan 14:00 til 16:30. <2)(£> Upplýsingar og borðapantanir f símum 62 19 34 og 68 10 45 '-«.<■4 .’.J I SULNASAL LAUCARDACSKVOLD! Síðest var geggjuö stemmning - tivað gerist nú? Hljómsveitin Carl Maller - hljómborð Einar Bragi - sax Árni Scheving - bassi Einar Scheving - trommur ANDRE BACHMANN BJARNI ARA MÓEIÐUR JÚNÍUSDÓTTIR ELLÝ VILHJÁLMS V^TU Þ,G £/<Kl M Conny Eióistorgl 11. 2. hæó ■ lofargóðu!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.