Morgunblaðið - 26.08.1993, Síða 38

Morgunblaðið - 26.08.1993, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993 Jóhann Magnús Magn ússon - Minning Fæddur 21. mars 1926 Dáinn 18. ágiist 1993 Jóhann Magnússon var fæddur á Siglufirði hinn 21. mars 1926. For- eldrar hans voru Salbjörg Jónsdótt- ir og Magnús Magnússon. Jóhann ólst upp á Siglufirði, en fluttist til Reykjavíkur á fímmta áratugnum. Þar kynntist hann systur okkar, Halldóru Einarsdóttur, og gengu þau í hjónaband i nóvember árið 1947. Á Siglufirði stundaði Jóhann ýmis störf bæði til sjós og lands en eftir að hann kom til Reykjavik- ur hóf hann störf í kjötiðn. Þar við sat fram á sjöunda áratuginn er Jóhann sneri sér að sjónum á ný og starfaði þar sem matsveinn allt til hinstu stundar. Jóhann var mikill áhugamaður um íþróttir. Á Siglufírði áttu skíða- íþróttir hug hans allan og varð hann ungur keppnismaður í þeirri grein. Eftir að Jóhann fluttist til Reykjavíkur hélt hann áfram skíða- iðkun sinni og keppni. Þau hjónin, Jóhann og Halldóra, eignuðust sex börn og auk þess áttu þau uppeldisdóttur þannig að heimili þeirra við Efstasund í Reykjavík var oft mannmargt. Jó- hann lést á heimili sínu 18. ágúst síðastliðinn. Við mágar Jóhanns heitins áttum með honum Qölmargar ánægju- stundir og vorum allir sem bræður jafnt við leik og störf. Eftir lifir minning um einhvern mesta dugn- aðarfork sem uppi hefur verið og minningin er ljúf. Ánton og Hörður. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem) Nú hefur hann Jói afi kvatt okk- ur. Þótt fráfall hans komi ekki á óvart er söknuðurinn sár. Á kveðjustund kemur margt upp í hugann. Afi var upphafsmaður margra gleðistunda sem við áttum saman á heimili hans og ömmu í Efstasundi, sem er að sönnu hús gleðinnar. Afi var til sjós í mörg ár sem matsveinn á Helgu II RE og var því oft langdvölum að heiman. Þeg- ar hann kom í land þá var hann ekki í rónni fyrr en öll fjölskyldan var samankomin á heimili hans. Okkur eru ofarlega í huga öll matarboðin, grillveislurnar á sumr- in í fallega garðinum þeirra og rabbstundirnar fjölmörgu þar sem skipst var á skoðunum og atburðir líðandi stundar ræddar. Jólin eru okkur sérlega minnis- stæð. Á aðfangadagskvöld var farið til afa og ömmu. Þar var gengið í kringum jólatréð, sungið og trallað. Þótt fríin væru stutt á milli túra, gaf afi sér alltaf tíma til að gera margt með okkur. Meðal annars vakti hann áhuga okkar á skíða- íþróttinni og útiveru. í skíðabrekk- unni var hann fremri en við í anda og atorku. Enda hafði hann unnið til margra verðlauna á skíðum sem ungur maður. • En það sem gerði afa svo sér- stakan í huga okkar, var að hann gaf sér ávallt tíma fyrir hvert og eitt okkar. Var hann óþreytandi við að snúast í kringum okkur. Ef okk- ur lá eitthvað á hjarta, gátum við leitað til hans, því að hann kom ávallt fram við okkur sem jafningja. En af okkur öllum stóð Jóhann Torfi honum næstur og bar hann mikla umhyggju fyrir honum til hinstu stundar og er missir hans mikill. Þrátt fyrir að við vitum öll að þetta er gangur lífsins og söknuður mikill, mun minning afa ávallt lifa. Elsku amma okkar, megi guð styrkja þig í sorginni. Við verðum ávallt til staðar fyrir þig. Þó ég sé látinn harmið mig ekki með tárum hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta ég er svo nærri að hvert ykkar tár snertir mig og kvelur þó látinn mig haldið en þegar þér hlæið og syngið með glöðum hug sál mín lyftist upp í mót til ljóssins verið giöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég þó látinn sé tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Höf. óþekktur) Barnabörn. Hann Jóhann mágur minn er dáinn eftir erfiða sjúkdómsbaráttu. Ég kynntist Jóhanni Magnússyni, eða Jóa eins og hann var alltaf kallaður, fyrir meir en 47 árum, þegar hann giftist Halldóru systur minni. Jói og Dóra bjuggu alla sína hjúskapartfð heima í Efstasundi, í húsinu sem mamma og pabbi höfðu góðir félagar allt frá barnæsku enda á svipuðum aldri. Ég ætla ekki að reyna að rekja ævi Jóa eða hjúskaparsögu hans, enda eru aðrir mér hæfari til þess. Þó hygg ég að hjónaband hans og Dóru systur hafi alla tíð verið gott og þau háfi staðið vel saman. Þeim varð sex barna auðið, en árið 1981 urðu þau fyrir þeirri þungbæru sorg að Hafsteinn, yngstur sonur þeirra, tók út af skipi og drukknaði. Þau Jói og Dóra ólu upp dóttur- dóttur sína sem var Jóa alla tíð mikill sólargeisli. Þessar fáu línur eru aðeins hugsaðar til að þakka Jóa fyrir vináttu hans og velvild í minn garð. Hann var mér alltaf góður og þar fannst mér ég alltaf eiga vin. Jói minn, ég þakka þér okkar góðu kynni. Megi minningin um þig lifa hjá þeim sem nú eiga um sárt að binda. Guð varðveiti sál þína. Dóru systur og bömum þeirra, tengadabömum og bamabörnum votta ég mína innilegustu samúð. Kristín Einarsdóttir. Hinn 18. ágúst andaðist móður- bróðir minn, Jóhann Magnússon, á heimili sínu Efstasundi 6 eftir erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm. Aldrei gaf hann þó upp vonina um bata og vom orð hans eins og „þetta er að koma, ég fer á sjóinn eftir 2-3 vikur“ nokkuð sem heyrðist oft. Þegar ég heimsótti hann fársjúkan á Landakotsspítala í júní sl. sagðist hann ætla að koma til Siglufjarðar á Síldarævintýrið um verslunar- mannahelgina. Ekki var ég eins viss um að hitta hann þar, en þetta var hans heitasta ósk og erfitt fyr- ir ástvini að ákveða hvað honum væri fyrir bestu. Norður kom hann, en heilsan leyfði ekki langa dvöl, aðeins eina nótt, þá var hann tilbú- inn að halda aftur heim, takmarkinu var náð. Jóhann var sonur hjónanna Sal- bjargar Jónsdóttur og Magnúsar Magnússonar. Þau eignuðust þijú börn, Kristínu, Jóhann og Vigdísi. Einnig ólu þau upp undirritaða sem er dóttir Vigdísar. Gömlu hjónin bjuggu áfram á ísafirði þó að böm- in flyttust suður. Samgöngur vom erfiðar við Siglufjörð og þótti nóg að fara eina ferð til Reykjavíkur á ári, það var að haustinu eftir síldar- vinnuna um sumarið. Lengi vel var gist hjá Jóa og Dóm. Mín fyrsta bemskuminning er frá heimili þeirra. Heimili Jóa og Dóm var al- veg sérstakt í mínum augum, þar var alltaf líf og fjör enda bömin sex og þeim fylgdi hópur leikfélaga, alltaf var nóg pláss og Dóra óþreyt- andi við að hafa stjóm á liðinu. Þegar ég var bam kom Jói til Siglufjarðar þar sem hann keppti í skíðastökki á íslandsmóti. Ég fór að horfa á hann stökkva og fannst mér mikið til hans koma. Jói var kjötiðnaðarmaður og vann um árabil hjá kjötiðnaðarstöðinni Búrfelli. Á þeim ámm fylgdi jóla- hangikjötið með í jólapakkanum til ömmu og afa. Ég minnist þess þeg- ar pakkinn var opnaður og hangi- kjötslyktin ilmaði um eldhúsið. Svo var skorin smá flís af kjötinu til að smakka áður en það var hengt upp í þvottahúsinu þar sem það beið fram að jólum. Þetta var boð- beri jólanna í mínum augum, alveg eins og epla- og appelsínulyktin í búðunum. Fyrir u.þ.b. 25 ámm fór Jói að vinna hjá útgerðarfyrirtækinu Ingi- mundi, hann var kokkur á Helgu II. Helga II kom nokkuð oft til Siglufjarðar með loðnufarm til lönd- unar. Alltaf hafði Jói samband, oft- ast kom hann í heimsókn og var þá ekki tómhentur. Börnin mín fylgdust grannt með því hvort Helga II kæmi til Siglufjarðar, því að þá var von á Jóa og hann var vís til að koma með gott í poka. Ef hann hitti þau í bænum stakk hann að þeim aur. Hann hlustaði lítið á okkur hjónin þegar við báðum hann að láta þetta vera. Þegar nýja skipið Helga II kom til Siglufjarð- ar, bauð hann okkur um borð til að skoða þetta glæsilega skip, þama var hann kóngur í ríki sínu. Jói lét sér mjög annt um bömin mín og fylgdist vel með því hvað þau vom að gera. Hann tók það mjög nærri sér þegar við misstum lítinn dreng af slysförum árið 1980, nokkmm mánuðum síðar var hann staddur hjá okkur þegar Dóra hringdi til að láta hann vita að Hafstein, yngsta son þeirra, hefði tekið út af togara og dmkknað. Þetta var erfið stund, það er ekki alltaf auðvelt að skilja tilganginn með því, þegar ungt og efnilegt fólk er tekið frá okkur. Núna á þessari kveðjustund minnumst við Jóa frænda og þökk- um samfylgdina. Ég og fjölskylda mín vottum eiginkonu hans Hall- dóm Einarsdóttur og fjölskyldu hennar innilega samúð. Magna Sigbjörnsdóttir. Miðvikudaginn 18. þ.m. hringdi síminn, það var verið að tilkynna mér að hann Jói bróðir minn væri dáinn eftir afar erfiða baráttu við óvæginn sjúkdóm. Hann var fæddur á Siglufirði 21. mars 1926, sonur hjónanna Magnúsar Magnússonar, vélstjóra í síldarverksmiðjunni Rauðku, og konu hans Salbjargar Jónsdóttur. Á uppvaxtarámm okkar heima á Siglufirði var Jói þrekmikill ung- ERFIDRYKKJUR Verð frá kr. 850- P E R L A N sími 620200 oyggt. ryrsuu njussaparar sin leigðu þau neðri hæð hússins, en keyptu hana svo. Ég bjó lengi heima hjá pabba og mömmu og þar ólst Einar sonur minn upp en hann og Skúli, elsti sonur þeirra hjóna, vom t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORBJÖRG ÞORVALDSDÓTTIR frá Önundarfirði, sfðast til heimilis á Skúlagötu 40a, verður jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 27. ágúst kl. 15.00. Guðmundur Ólafsson, Þorvaldur Ólafsson, Kristín Á. Ólafsdóttir, Eggert Ólafsson, Snjólfur Ólafsson, Sigurrós Þorgrfmsdóttir, Brynja Jóhannsdóttir, Óskar Guðmundsson, Sigrún Þorvarðardóttir, Guðrún S. Eyjólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir mín, tengdamóðir og amma okkar, RANNVEIG STEFÁNSÐÓTTIR, Dalbæ, Dalvfk, verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 27. ágúst kl. 14.00. Gunnar Stefánsson, Gerður Steinþórsdóttir, Atli Gunnarsson, Svava Gunnarsdóttir, Auðun Gunnarsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ANTON GUÐLAUGSSON, Vík, Mýrdal, sem lést 22. ágúst sl., verður jarðsunginn frá Víkurkirkju laugar- daginn 28. ágúst kl. 15.00. Charlotte Guðlaugsson, Dorothea Antonsdóttir, Þorsteinn Árnason, Edda Guðlaug Antonsdóttir, Halldór Óskarsson, Agnes Antonsdóttir, Bergur Pálsson, Guðlaugur Valdimar Antonsson, Hróðný Edda Þorvaldsdóttir og barnabörn. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — sími 681960 h. lingur, og oft varð hann að koma systur sinni til aðstoðar ef henni þótti á sig hallað í leikjum. Jói var kunnur skíðamaður eins og mörg önnur ungmenni þar á þeim ámm þegar Siglfirðingar voru fremstu skíðastökkvarar landsins. Þar reyndi á kraft hans og áræði, sem einkenndi hann svo mjög. Jóhann fór tiltölulega ungur að heiman, fyrst til Akureyrar, síðan til Reykjavíkur þar sem hann vann um tíma hjá heildverslun Garðars Gíslasonar, síðan starfaði hann um árabil í kjötiðnaðarstöðinni Búrfelli, fyrst sem almennur starfsmaður en síðan sem lærður kjötiðnaðarmað- ur. Kringum 1968 réðst hann til útgerðar Ingimundar þar sem hann starfaði sem matsveinn á skipum þeirra útgerðar, nú síðast á Helgu II þar til í mars sl. er þrekið þraut. Árið 1947 steig Jói eitt mesta gæfuspor lífs síns er hann kvæntist eftirlifandi konu sinni, Halldóm Einarsdóttur, sem verið hefur hon- um sú stoð og stytta, sem sjómanni er nauðsynlegt að hafa að bak- hjarli. Þau stofnuðu heimili sitt í Efstasundi 6 og hafa búið þar alla tíð. Jói og Dóra eignuðust sex börn, þau eru: Skúli, fæddur 6. júní 1947, búsettur í Reykjavík; Inga Birna, fædd 11. júlí 1950, búsett í Banda- ríkjunum; Kristinn Steinar, fæddur 1. júlí 1951, búsettur í Bandaríkjun- um; Hjördís, fædd 4. júní 1953, búsett í Reykjavík; Ásdís, fædd 9. október 1956, búsett í Þýskalandi; Hafsteinn, fæddur 19. mars 1958, en hann lést af slysförum 17. nóv- ember 1981. Auk þess ólu þau upp dótturdóttur sína, Svanhildi. í dag kveðja ættingjar og vinir Jóhann Magnús Magnússon hinstu kveðju. Það er mjög erfitt á slíkri kveðjustund að tína til allt það sem maður vildi segja því að minning- amar hrannast upp í huganum og það er af svo mörgu að taka. Ég minnist sjómannsins, sem aldrei missti dag úr vinnu, né túr á sjó meðan nokkurt þrek var eftir. Eg minnist íþróttamannsins, sem fór til fyalla á skíði með barnabömum sínum við hvert tækifæri meðan nokkurt þrek var eftir. Ég minnist gleðimannsins, sem var hrókur alls fagnaðar meðal vina og kunningja, meðan nokkurt þrek var eftir. Það var alltaf gott að koma í Efstasundið, þótt oft væri þar þröngt í litlu íbúðinni. Alltaf var þar nóg pláss og gestrisnin ávallt söm hjá Dóru og Jóa. Þess minnast börn okkar og bamabörn, og þakka fyrir allar ánægjustundirnar með Jóa, Dóru og börnunum. Já, hann Jói er dáinn, vinir og ættingjar spyija ekki lengur um aflabrögð Helgunnar, eða hvenær Jói kom í land. Fyrir hann er sjó- ferðum þessa heims lokið, og nú er siglt í eilífðinni, og þangað fylgja honum minningar bama og barna- barna okkar Halls. Þótt Helgan sé að landa er ekki lengur von á Jóa í heimsókn með gott í poka eða leikfang handa smáfólkinu, sem Jóa einum var svo lagið að gleðja. Fyr- ir það þökkum við öll. Elsku Dóra, missir þinn og barna ykkar er mikill, en minningin lifir. Við Hallur og fjölskylda okkar send- um þér og fjölskyldu þinni okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðj- um þess að algóður Guð styrki ykk- ur og varðveiti í sorg ykkar. Vigdís Magnúsdóttir. Erfidrykkjur Glæsilq» kalli- hlaðlxirð íallegir salir og mjög góð þjómistíL Upplýsingar ísíma22322 FLUGLEIDIR HÍTCL LIFTLEIIIt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.