Morgunblaðið - 26.08.1993, Page 39

Morgunblaðið - 26.08.1993, Page 39
39 . MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993 Margrét Kristjáns dóttir - Minning Fædd 16. júlí 1915 Dáin 18. ágúst 1993 í dag verður til moldar borin tengdamóðir mín, Margrét Krist- jánsdóttir, sem kvaddi þennan heim 18. ágúst síðastliðinn. Andlát Grétu, eins og hún var alltaf köll- uð, kom varla á óvart eftir erfið veikindi hennar, en þó er manni ætíð brugðið við andlát einhvers nákomins og upp í hugann streyma minningar um þessa glæsilegu konu. Gréta var fædd í Vestmannaeyj- um 16. júlí 1915 og ólst þar upp. Ætíð bar hún hlýjan hug til æsku- stöðvanna. Eftirlifandi systir Grétu er Sólveig, húsfrú í Mýrdal. Árið 1938 giftist Gréta Gunnari Hannessyni ljósmyndara, en hann lést árið 1976. Voru þau hjón ákaf- lega smekkleg og samrýnd og bar heimili þeirra á Miklubraut 7 vott um það. Eins og margir vita var Gunnar heitinn ákaflega áhuga- samur ferðalangur, sérstaklega inn- anlands, og var Gréta yfirleitt með í þeim ævintýraferðum, og gilti einu hvort ferðast var eftir þjóðvegum landsins eða hinar dýpstu óbyggðir kannaðar. Ég var svo lánsamur að eiga þess kost að fara nokkrar ferð- ir með þeim hjónum, og voru þær hver annarri skemmtilegri og hverfa seint úr minningunni. Gréta og Gunnar eignuðust þrjú böm, Gunnar Kristján, sem kvænt- ur er Rúnu Marsveinsdóttur, og eiga þau þijá syni; Hannes, sem kvæntur er Björgvinu Magnúsdótt- ur, og eiga þau einn son; og Krist- rúnu, sem gift er undirrituðum, og eiga þau tvö böm. Síðustu tæpu tvö árin dvaldist Gréta á Hrafnistu í Hafnarfirði og naut hún sérstakrar umhyggju og hjálpar starfsfólksins þar. Blessuð sé minning hennar. Egill Ingólfsson. Miðvikudaginn 18. ágúst sl. and- aðist Margrét Kristjánsdóttir hús- móðir í Reykjavík eftir langvarandi veikindi. Ársgömul kom hún, ásamt móður sinni, Guðrúnu Bjarnadóttur, á heimili móðurforeldra minna, Gunnars Ólafssonar, kaupmanns og útgerðarmanns í Vestmannaeyjum, og Jóhönnu Eyþórsdóttur. Guðrún móðir Grétu starfaði í tæp 30 ár sem ráðskona á heimili Gunnars og Jóhönnu. Börn þeirra voru fímm að tölu og heimilið gestkvæmt. Jó- hanna amma mín var heilsuveil, og rekstur heimilisins því alfarið í höndum Guðrúnar. Gréta ólst upp í hópi móðursystk- ina minna, sem nú eru öll látin. Náin vináttutengsl mynduðust milli Grétu og systkinanna og entust Minning Anna María Ingimars- dóttir, Stöðvar- firði Nú er hún frænka dáin, svona ung og efnileg stúlka. Hún hefði orðið 19 ára 12. október. Hún var alltaf svo dugleg í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Það er sárt þegr svona ungt fólk fer frá okkur. Elsku Anna María frænka, ég þakka þér allar samverustundirnar og bið góðan guð að geyma þig. Svo vottum við ykkur elsku Ingi- mar, Guðmunda, Jón Ingi, ívar, Ingibjörg og Siguijón samúð okkar. Jóhanna, Snorri og börn. ævilangt. I þein-a huga var Gréta ein af systkinahópnum. 23 ára gömul giftist Gréta Gunn- ari Hannessyni verslunarmanni, er síðar varð þekktur sem einn besti landslagsljósmyndari sem við höf- um átt. Gréta var myndarleg .hús- móðir. Um það bar heimili þeirra á Miklubraut fagran vott. Gunnar var snillingurj garðrækt og garðurinn á Miklubraut 7 margsinnis verð- launaður sem fegursti garður í Reykjavík. Gunnari tókst að rækta í garði sínum ýmsar tegundir rósa, sem ekki höfðu verið ræktaðar utan húss áður hér á landi. Gréta og Gunnar eignuðust þrjú börn, Gunnar Kr., Hannes og Kristrúnu, sem öll hafa erft góða kosti foreldra sinna. Gréta tengist mínum fyrstu bernskuminningum sem heima- gangur á æskuheimili mínu. Á seinni árum átti hún það til að segja sögur af strákapörum undirritaðs, sem annars voru löngu gleymd. Elsku faðir minn, Sverrir Ingi- mundarson, lést 6. janúar síðastlið- inn. Hann var giftur Ljósbjörgu Guðlaugsdóttur og eignuðust þau sjö böm. Þau heita Dagný Elín, gift Jóni Björgólfssyni; Ingimundur, dó aðeins 19 ára gamall, það var mikil sorg; Áróra María, gift Sigur- birni Stefánssyni; Jóhanna Sigríður, í sambúð með Snorra Árnasyni; Rannveig Sigrún, gift Ragnari Ey- mundssyni; Lúðvík, í sambúð með Fjólu Karlsdóttur; og Sveinbjörn, í sambúð með Andreu Katz. Pabbi átti 17 barnabörn og sjö barnabarnabörn. Hann átti fimm systkini. Þau heita Lovísa, Rann- veig, Dagný, Sveinn og Jón Lúðvík. Svo átti hann tvær fóstursystur, Sigríði og Borghildi. Afi dó ungur frá börnunum. Pabba var komið fyrir á Berunesi á Berjufjarðar- strönd til Jóhönnu og Sigurðar. Þau reyndust pabba vel. Eins systkini hans og móðir. Pabbi var búinn að vera veikur Gréta var glæsileg kona og hélt reisn sinni þótt árin færðust yfir og heilsu hrakaði. Síðustu árin þjáð- ist hún af Alzheimer-sjúkdómi og dvaldist á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þar fékk hún frábæra umönnun. Gunnar Þormar. í mörg ár og hugsaði mamma vel um hann. Sveinbjörn bróðir var duglegur að koma með hann heim til mín í heimsókn á sumrin. Ef pabbi hefði lifað lengur hefði hann orðið 75 ára 26 ágúst. Guð geymi þig, elsku pabbi. Far þú í friði. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stíð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Hinsta keðja frá Jóhönnu, Snorra og börnunum. + Eiginmaður minn, SVEINN BJÖRNSSON frá Fossi á Síðu, Dvergabakka 12, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 24. ágúst. Laufey Pálsdóttir. i Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VILBORG JÓNA GUÐMUNDSDÓTTIR, írafossi, lést í Vífilsstaðaspítala þann 24. ágúst. Jón Þorvarðarson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Útför móður minnar, tengdamóður og ömmu, KARITASAR KRISTINSDÓTTUR, Árhóli, Dalvík, verður gerð frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 28. ágúst kl. 14.00. Jarðsett verður að Upsum. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. María Jónsdóttir, Sigurjón Sigurbjörnsson og barnabörn. Minning Sverrir Ingimundarson, Bræðraborg, Stöðvarfirði Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORBJÖRG ÞORVALDSDÓTTIR frá Önundarfirði, síðasttil heimilis á Skúlagötu 40a, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 27. ágúst kl. 15.00. Guðmundur Ólafsson, Sigurrós Þorgrímsdóttir, Þorvaldur Ólafsson, Brynja Jóhannsdóttir, Kristfn Á. Ólafsdóttir, Óskar Guðmundsson, Eggert Ólafsson, Sigrún Þorvarðardóttir, Snjólfur Ólafsson, Guðrún S. Eyjólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR HANNESSON, fyrrverandi bifreiðastjóri frá ísafirði, til heimilis í Vallargerði 34, Kópavogi, sem lést sunnudaginn 22. ágúst sl., verður jarðsunginn frá ísafjarðarkapellu mánudaginn 30. ágúst nk. kl. 14.00. Minningarathöfn verður í Kópavogskirkju föstudaginn 27. ágúst nk. kl. 13.30. Anna Málfriður Sigurðardóttir, Hafsteinn Sigurðsson, Kristfn Anna Bjarkadóttir, Eiríkur Hans Sigurðsson, Sigrún Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför móður okkar, tengdamóð- ur, ömmu og langömmu, FILIPPÍU JÓNSDÓTTUR, Suðurgötu 109, Akranesi. Sérstakar þakkir til Þórarins Sveinssonar, yfirlæknis, starfsfólks göngudeildar krabbameinslækninga og deildar 11E á Landspftalanum. Guðjón B. Ólafsson, Guðlaug Brynja Guðjónsdóttir, Ásgerður Ólafsdóttir, Sigurður Rúnar Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum auðýnda samúð við andlát og útför systur okkar, KRISTÍNAR HALLDÓRSDÓTTUR frá Oddastöðum. Guðriður Halldórsdóttir, Kjartan Halldórsson. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, EMELÍU LÁRUSDÓTTUR, Suðurgötu 24, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Skagfirðinga fyrir frábæra umönnun. Sveinn Brynjólfsson, Stefaníá Brynjólfsdóttir, Jóhanna Brynjólfsdóttir, Brynjólfur Dan Halldórsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát elsku- legrar eiginkonu, móður okkar, dóttur og tengdadóttur, KRISTRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Helgafelli, Helgafellssveit, Hjörtur Hinriksson, t Jóhanna Kristín Hjartardóttir, Ástríður Hjartardóttir, Guðmundur Helgi Hjartarson, Hinrik Hjartarson, Ragnheiður Hjartardóttir, Óskar Hjartarson, Ósk Hjartardóttir, Jóhanna Sigmundsdóttir, Ragnheiður Þorgeirsdóttir, Hinrik Jóhannsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.