Morgunblaðið - 26.08.1993, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993
fclk f
fréttum
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Sigurveig ásamt sonum sínum og tengdadóttur. Frá vinstri: Þorsteinn, Sigurveig, Jón Þór, Birna
og Bjöm.
MANNFAGNAÐUR
Utihátíð á fimmtugsafmæli
Frá vinstri: Úlfur Sigurmundsson, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Ólafur Sigurðsson, Magnús Tryggva-
son og Guðrún Beck.
Sigurveig Jónsdóttir á Stöð 2
hélt upp á fimmtugsafmæli
sitt með nokkuð óvenjulegum
hætti fyrir skömmu. Hún efndi
til eins konar útihátíðar við sum-
arbústað fjölskyldu sinnar í Mos-
fellssveit. Þar var komið fyrir
stóru tjaldi, þar sem fram var
borinn matur og aðrar veitingar.
Vinnufélagar Sigurveigar stóðu
fyrir skemmtiatriðum og marg-
víslegum uppákomum, auk þess
sem vinir hennar og samstarfs-
menn fyrr og nú héldu ræður tii
heiðurs afmælisbaminu.
Sigmundur Ernir var veizlustjóri og er hér ásamt Agli Eðvarðs-
syni og Bjarna Kristjánssyni
TISKA
að er margt undarlegt sem
erlendum tískuhönnuðum
dettur til hugar að klæða sýningar-
stúlkumar í pg spuming hvort
sumt af því hafí annan tilgang en
að vekja athygli og umtal. Undir
það flokkast þær „flíkur“ sem
módelið Anna Moody sýnir á þess-
um myndum, en þetta er hönnun
eftir Samuele Mazza, sem er ítalsk-
ur hönnuður eins og nafnið reynd-
ar bendir til. „Fatnaðurinn" var
hluti af nýrri útstillingu í meiri
háttar tískubúð í Suður Kensington
í Lundúnum. Til nánari útlistingar,
þá eru önnur bijóstahöldin fram-
lugtir af Fíat og hin eru að uppi-
stöðu tveir drullusokkar sem hing-
að til hafa fremur verið notaðir til
að losa stíflur úr klósettum heldur
en til að hylja konubrjóst. Ekki er
þó talið líklegt að mikill fjöldi
kvenna kunni að meta þetta tvð-
falda notagildi drullusokksins,
enda er oftast aðeins einn til á
hveiju heimili.
FRÆGÐ
Sótt í stjörnumar
Menn taka sér ólíklegustu hluti
fyrir hendur í henni Amer-
íku. Missisippibúinn Frank Culpep-
per Martin hefur til dæmis eytt síð-
ustu átján árum ævi sinnar í að
nálgast frægt fólk. Lætur hann
mynda sig með stjörnunum og
geymir myndirnar sem nokkurs
konar sönnunargagn. Myndabunki
Martins inniheldur nú um 6.000
stjömur af ýmsum toga' rokkara,
leikara, stjórnmálamenn og mafíu-
foringja. Martin ferðast landa á
milli til að hitta frægðarfólk og
hann vílar ekki fyrir sér að laumast
í gegnum hóteleldhúsið til að kom-
ast í tæri við stjörnurnar. Hann
hefur hitt Arnold Schwartzenegger,
Kevin Costner og Marlon Brando.
Donald Trump tók honum vel,
Kenny Rogers hafði ekkert á móti
því að vera með á mynd og ekki
heldur Hugh Hefner. Þá komst
Martin lífs af frá því að biðja mafíu-
foringjann John Gotti um að vera
með á mynd. Flestir hafa tekið
honum vel, utan kvikmyndaleikar-
inn Jack Palance sem fannst lítið
til koma. Fyrsta myndin sem tekin
var af Frank Culpepper Martin með
frægðarfólki var af honum og Cary
Grant fyrir átján árum. Efst á óska-
listanum nú eru Paul McCartney
og Anita Hill.
Eins og sjá má var Martin klædd-
ur við hæfi þegar hann hitti Jack
Nicholson.
Martin lætur nær ekkert tæki-
færi ónotað til að nálgast stórstjörn-
urnar. Fyrir fimm árum skildi hann
við eiginkonu sína og seldi verslan-
akeðju sína til að geta einbeitt sér
af fullum krafti að stjörnunum.
Hann þefar þær uppi á íþróttamót-
um, við verðlaunaafhendingar, jafn-
vel minningarathafnir. En sitji
fræga fólkið að snæðingi lætur
Martin það í friði. Grundvallarregl-
urnar við það að nálgast stjörnunar
eru aðeins þijár: mæta snemma,
vera klæddur á viðeigandi hátt og
gæta þess að virðast meinleysis-
grey.
Frank Culpepper Martin með Axl
Rose úr Guns ’n’ Roses. Svo að
Martin rugli Axl ekki saman við
hinar 6.000 stjörnurnar hefur
hann merkt myndina kyrfilega.
Cher lét sig hafa það að sitja
fyrir með Martin.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
um...
AKRANES
Stoltur sigurvegari
Ahveiju sumri eru haldin fjölmörg
knattspymumót fyrir unglinga
víða um land. Nokkur þeirra eru
geysifjölmenn og eru orðin árviss
Anna Moody sýn-
ir nýju linuna í
bijóstahöld-
viðburður í sumum bæjarfélögum. Á
Akranesi eru fjögur slík mót haldin
í sumar og er aðstaða til slíks móts-
halds mjög góð. Allir leikir fara fram
á grasvöfium og önnur aðstaða tii
afþreyingar bæði fjölbreytt og góð.
Mörg þessara móta eru kennd við
fyrirtæki sem taka að sér að vera
stuðningsaðilar við framkvæmd
þeirra.
Á dögunum fór fram á Akranesi
Lottó-mótið í 7. flokki en þar kepptu
börn yngri en 10 ára og í sumum
liðum voru bæði drengir og stúlkur.
Umboðsaðili Lottó-íþróttafatnaðar,
E.G. heildverslun hf., er annar af
tveim aðalstuðningsaðilum knatt-
spyrnunnar á Akranesi og voru öll
verðlaun mótsins gefin af fyrirtæk-
inu. Á meðfylgjandi mynd er stoltur
ungur knattspymumaður úr liði
íþróttafélagsins Fylkis, Hlynur
Gunnarsson, fyrirliði, að taka við sig-
urlaunum mótsins úr hendi formanns
Knattspyrnufélags ÍA, Gunnars Sig-
urðssonar, og ánægjan með laun
erfiðisins leynir sér ekki.