Morgunblaðið - 26.08.1993, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 26.08.1993, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ PIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993 41 Hermes Massimo, heimspekingur frá Austurríki Morgunbiaðið/Þorkeii FERÐAMENN SKA Alltaf einn og alltaf að skoða Ahverju sumri undanfarin 20 ár hefur mátt sjá fáskipt- inn, lágavaxinn mann á gangi um landið með bakpoka og Ijald. Síðan sést hann kvölds og morgna ganga úr Fossvoginum upp í Háskólabókasafn og til baka. Þar fer Austurríkismað- urinn Hermes Massimo, doktor í heimspeki, nú kominn á eftir- laun, enda er hann orðinn 78 ára gamall. Aldrei hefur ár fall- ið úr síðan 1974 og það vekur forvitni hvað dregur hann hing- að. Þegar maður hittir hann svo á Háskólabókasafninu þá getur samtalið farið fram á íslensku. Og hann notar hér skírnarnafn- ið sitt, eins og íslendingur. “Þegar ég var 9-10 ára gamall fékk ég jólabók frá móður minni. Það var Nonni. Svo las ég allar Nonnabækurnar. Og ég ákvað að þegar ég yrði stór og ríkur þá skyldi ég fara til íslands. Ég varð stór, en ekki ríkur“, segir hann. Nægilega þó til að geta látið drauminn rætast. Þegar hann kom hingað fyrst 1974 þá gekk hann bara af stað frá Keflavík. Og síðan hefur hann á hverju sumri komið og gengið um landið, þvert yfir það og hring- inn í kring. Alltaf einn og alltaf að skoða.“Að fara í bíl er of hratt fyrir mig. Þá get ég bara séð pínu- lítið af landinu út um bílglugga. Það er ekki nóg fyrir mig. Stund- * um er ég að skoða fjall, stundum mosa á steini og stundum hraun- hellur. Jú, það er svolítið erfitt, en mjög fallegt“ útskýrir hann. En veður geta orðið býsna vond á íslandi. Nei, segir hann.“Mér líkar stormur og mér líkar rigning. Ég var á Látrabjargi í rigningu. Berg- ið er svart, en það er líka rautt og gult. Það er engu líkt. Land- mannalaugar líka og... ísland er svo skemmtilegt og fallegt, en þó svo stórkostlegt.“ Hann hefur gengið um allt landið, frá Reykja- vík til Hornstranda, tvisvar sinn- um yfir Kjöl, Kaldadal og allar byggðir. Þegar hann ætlaði Sprengisand réðu allir íslendingar honum frá því og svo sá hann í sumar, þegar hann í fyrsta skipti ferðaðist með áætlunarbíl þar yfir; að það var hreinasta fjarstæða. I sumar kom með honum frænka Ófárir dúítar I HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010 hans með 9 ára gamlan son sinn, svo þau fóru um landið með rútu- bílum í tvær vikur og voru í svefn- pokaplássi í Edduhótelum. Enda kvaðst Hermes hafa fengið tvö hjartaáföll og fara sér svolítið hægar. Varla hefur hann lært íslenskuna af því að ganga einn um landið? Ekki er það nú svo. Hann segir að þegar hann kom 1986 og 1987 hafí hann reynt að læra málið á íslenskunámskeiði fyrir útlendinga í Háskólanum.“Og lærði bara pínulítið. Norsku gat ég lært á 3 mánuðum, en íslenskan er erfið. Ég veit hvernig málfræðin á að vera, en það er svo erfítt að nota hana. Þegar ég kom fyrst til ís- lands og heyrði fólk tala, þá hljóm- aði það eins og miðaldaþýska, sem ég hafði lært hjá góðum kennara í skólanum heima. En það reynist alls ekki þannig, ég heyri ekki muninn á ð,s og f þegar íslending- ar tala hratt.“ Hvernig ætli standi þá á því að hann hefur alltaf viðdvöl í Há- skólabókasafninu og vinnur við að gera við gamlar bækur. Hann gef- ur þá skýringu á því að hluti af námi hans í menntaskóla heima í Tyrol hafi verið verklegt. Þá lærði hann að binda inn bækur, sem varð til þess að hann keypti mikið gamlar bækur og batt þær inn sjálfur. Þegar hann svo vann hjá útgáfufyrirtæki í Innsburg eftir stríð, þá bauð menningarfulltrúi Frakka honum að fara til Parísar til að velja og sækja franskar bækur þýddar á þýsku. Þá dvaldi hann á menningarstofnun í Frakk- landi, þar sem var unnið mikið með tæknibækur og þar fullkomn- aði hann sig í bókbandslist. Og það er ástæðan fyrir því að hann hefur síðan 1987 gert við bókband í Háskólabókasafni á íslandi.“Nú er ég kominn á eftirlaun og get stansað hér í þijá mánuði á ári við að binda bækur og gera við þær. Mér þykir svo notalegt að vinna hér. Allir eru svo elskulegir og vinalegir“, segir Hermes Mas- simo að lokum. Og þegar hann er spurður hvort hann komi aftur næsta sumar segir hann það áreið- anlegt, hann fái aldrei nóg af ís- landi. Kripalufóga Opið hús fró kl. 20.30-22.00. Allir velkomnir - enginn oðgangseyrir. Geshir næstu fimmtudaga verður Ken Bnxter, kennari írá Kripalumilstöðinni. Hann man m.a. kynna væntanleg kvöld- og helgornámskeið, sem hefjast i næstu viku. Hánari upplýsingar hjá JógasWðinni Heimsljósi í sima 679181 alla virka daga frákl. 17.00-19.00. Jógastöðin Heimsljós Skeifunni 19,2. hæð. Nú er 65 milljóna ára bið á enda. Vinsælasta mynd allra tíma. Bönnuð börnum innan 10 ára en getur valdið ótta hjá börnum upp að 12 ára aldri. ____.1 HASKÓIABIÖ Sýndkl. 5,7,9 og 11.10. SAMmj B í Ó H Ö L L I N Sýndkl. 5,7,9 og 11.15. FLJU<fPi FURÐUH I HASKOLABIOI LAUGAfflP 28.ÁGÚST 1993, KL.10:30 -1 ELDUR RAÐSTEFNA ÁVEGUM SNÆFELLSÁS DAGSKRÁ: 10.30 Setning ráðstefnunnar. 10.40 Inngangur. Helstu svid geimverurannsókna. 11.00 Hugmyndir manna um geimverur 11.20 Voru guðirnir geimfarar 11.40 AMI, barn stjarnanna 12.00 Matarhlé 13.00 Eldur á himni. Tilurð myndarinnar, og sýnishorn 13.20 Alþjóðleg ráðstefna um geimverurannsóknir, haldin í Reykjavík, og við Snæfellsjökul, dagana 4.- 6. nóv. Aðdragandi og framkvæmd. 13.40 Huglægt samband 14.10 Eru ferðalög milli sólkerfa möguleg ? Eru til óþekktar viddir 14.30 Kenningar Dr. Helga Péturs 14.50 Kynni af geimvetum 15.10 Kaffihlé 15.30 Reynslusögur um geimverur 15.50 Umræður og fyrirspurnir Miðasalan hefst kl. 9.30 Aðgangseyrir kr. 700.-, sama verð allan tímann.Ráðstefnan er öllum opin, og ágóði rennurtil uppbyggingará andlegri miðstöð við Snæfellsjökui.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.