Morgunblaðið - 26.08.1993, Side 46

Morgunblaðið - 26.08.1993, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993 mnmn * Ast er... Með morgnnkafiinu 3-2C að deila sama hengirúmi TM Reg. U.S Pat Otl.—all rights reserved ° 1993 Los Angeles Times Syndicate HÖGNI HREKKVISI // TAKTU/€•£>!SKAST... ASTÆPAN BfZ RJÓMAÍS..." BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Athugasemd Frá Herbert V. Baldurssyni: í grein eftir Hrafn Gunnlaugs- son í Morgunblaðinu 14. ágúst síð- astliðinn koma fram nokkrar rang- færslur um fjármál Ríkisútvarps- ins sem ég vil leiðrétta: 1. Tölur sem Svavar Gestsson vitnar í í sinni grein um rekstrarn- iðurstöðu og samanburð við rekstraráætlun innlendrar dag- skrárdeildar undir stjóm Hrafns Gunnlaugssonar voru útbúnar að beiðni Útvarpsráðs í mars síðast- liðnum af undirrituðum. Þær era eftirfarandi: Áætlun og rauntölur IDD, í þús. kr. á verðlagi 1992 Ár Raun- Áætlun Mism.í Mism. tölur % þús. 1986 149.398 125.307 -19,2 24.091 1987 205.832 141.075 -45,9 64.757 1988 219.625 202.692 -8,4 16.933 Þessar tölur era m.a. byggðar á ársreikningi og öðrum gögnum Hagdeildar um fjárhag og fjár- hagsáætlanir Ríkisútvarpsins. Töl- ur í skýrslu Hugverks hf. um sama efni eru á misskilningi byggðar og standast ekki. Þetta hafði und- irritaður leiðrétt við Hugverk hf. sem viðurkenndi að skýrsla þess var ekki rétt. Þetta vissi Hrafn Gunnlaugsson einnig áður en hann ritaði þessa grein. 2. í skýrslu Hugverks hf. sem Hrafn vitnar í, er gengið út frá því sem vísu að sú rekstraráætlun IDD sem undirritaður notar til samanburðar við rekstramiður- stöðu sé upphafleg og óendurskoð- uð áætlun ársins og að eftir sé að taka tillit til breytinga á rekstr- arforsendum innan ársins. Þetta er rangt. Við gerð íjárhagsáætlun- ar í upphafi árs er gert ráð fýrir þeim afnotagjaldahækkunum sem líklegt er að verði á árinu og búið er að samþykkja í fjárlögum. Inn í fjáhagsáætlunina er einnig reikn- að með áætluðum verðlagsbreyt- ingum ársins í rekstraráætlun ein- stakra deilda. Ef hins vegar for- sendur breytast, í verðlagsmálum sem öðram, era gerðar breytingar á íjárhagsáætluninni, í tekjum og í gjöldum og til hækkunar eða ’ lækkunar eftir því sem við á. Við þessa endurskoðuðu áætlun er auðvitað miðað við uppgjör ársins og þegar samanburður var gerður á rekstrarniðurstöðu og ijárheim- ild Innlendrar dagskrárdeildar undir stjórn Hrafns Gunnlaugs- sonar. Fullyrðingar um að átt hafi eftir að reikna inn verðlagsbreyt- ingar og afnotagjaldshækkanir til hækkunar á fjárheimild IDD og fullyrðing um að IDD hafi verið innan ramma árið 1988 era því rangar. 3. í greininni segir Hrafn að Hugverk hf. hafi sinnt þeim störf- um sem Hagdeild sér um nú, áður en Hagdeild var stofnuð. Þetta er rangt. Hugverk hf. hefur unnið að einstökum, afmörkuðum verk- efnum fyrir Ríkisútvarpið. Hag- deildin var stofnuð við Ríkisút- varpið árið 1982 og Hugverk hf. hefur auðvitað ekki sinnt störfum hennar frá þeim tíma. 4. í greinargerð Hugverks hf. sem fylgir með grein Hrafns er reynt að láta Iíta svo út að ákvarð- anir yfírstjórnar um breytingar á dagskrár hafí gefið dagskrárstjóra heimild til að fara umfram sam- þykktar fjárheimildir sinnar deild- ar. Þetta er rangt. Engar slíkar heimildir til að fara fram úr fjár- hagsáætlun lágu fyrir á þessum tíma. 5. Eins er í greinargerð Hug- verks hf. látið að því liggja að fjár- hagur Ríkisútvarpsins hafi verið með blóma eftir þetta tímabil umbyltinga, árin 1986 og 1987. Þetta er einnig rangt. Þessi tvö ár fóra saman mun minni tekjur en árin á undan vegna samkeppni á auglýsingamarkaðnum og um- framkeyrsla dagskrárdeilda, og þar fór fremst í flokki IDD. Út- koman var gríðarlegt tap þessi tvö ár, tap sem enn í dag er verið að greiða niður, m.a. með minni fram- lögum til innlendrar dagskrárgerð- ar en ella. HERBERT V. BALDURSSON, deildarhagfræðingur Ríkisútvarps- ins, Efstaleiti 1, Reykjavík. Yíkveiji skrifar Víkverji í gær fjallaði um um- sögn aðstoðarlandlæknis hér í blaðinu sl. sunnudag um auka- verkanir vegna geðlyfsins Fontex í tóntegund, sem ekki hæfir og er aðstoðarlandlæknir beðinn velvirð- ingar á því. Umíjöllun í ijölmiðlum um mál af þessu tagi er vandasöm. Annars vegar hvílir á ijölmiðlum sú skylda að segja frá fréttum, sem kunna að berast eins og í þessu tilviki um hugsanleg alvarleg áhrif af töku þessa lyfs. Hins vegar verð- ur að gæta þess, að valda ekki svo mikilli hræðslu hjá því fólki, sem hugsanlega notar þessi lyf að það valdi tjóni. í þessu tilviki taldi Morgunblaðið óhjákvæmilegt að ijalla um fréttir, sem höfðu borizt um tilgátur um alvarlegar auka- verkanir hins umrædda lyfs, þótt blaðinu væru vissulega ljósar hugs- anlegar afleiðingar slíkrar umfjöll- unar. xxx Almennt talað er æskilegt að fólk, sem notar lyf sé vel upplýst um aukaverkanir lyfja. Að því er varðar geðlyf geta þau haft margvíslegar aukaverkanir. í sum- um tilvikum fylgir þeim mikill munnþurrkur, skjálfti í höndum, jafnvel titringur í andliti og ógleði, svo að dæmi séu nefnd. Þá er vara- samt að drekka áfengi ofan í geð- lyf og stundum beinlínis hættulegt. Nú er hægt að fá í apótekum lyijahandbækur, sem veita upplýs- ingar um einstök lyf, áhrif þeirra og aukaverkanir og er full ástæða til að benda þeim, sem nota lyf reglulega, hvort sem það eru geð- lyf eða önnur lyf á að kynna sér efni þessara handbóka. I sumum tilfellum fylgja lyijum upplýsingar um aukaverkanir. Æskilegt er að slíkar upplýsingar fylgi öllum lyfj- um og á íslenzku vegna þess, að ekki er víst, að allir notendur lyija geti lesið erlend tungumál. Er ekki óeðlilegt að gera þá kröfu til lyfja- fyrirtækjanna eða umboðsmanna lyijanna, að þeir sjái til þess að upplýsingar fylgi með á íslenzku. Þá gera læknar sjúklingum sínum oft grein fyrir hugsanlegum auka- verkunum og er auðvitað æskilegt, að læknar geri það kerfisbundið. I raun og veru á læknir ekki að gefa sjúklingi nýtt lyf án þess að upplýsa hann um það, hvaða áhrif lyfið getur haft. Víkveiji hefur heyrt getið um lækna, sem prófa lyf á sjálfum sér til þess að geta sagt sjúklingum af eigin reynslu frá því, hver áhrif þeirra eru. Þeir, sem taka geðlyf fá gjarnan sérstök lyf með sem eiga að draga úr aukaverkunum. xxx ótt fréttir komi í fjölmiðlum bæði hér og erlendis um hugsanleg neikvæð áhrif ein- stakra lyfja hljóta sjúklingar þó fyrst og fremst að byggja á um- sögn lækna sinna um lyfin. Sjúk- lingur verður að treysta því, að læknir ráðleggi ekki töku ákveðins lyfs nema að vandlega athuguðu máli. í raun og vera á sjúklingur ekki annan kost en að fylgja ráðum læknis síns og treysta honum í þessum efnum. Heilbrigðisþjónustan hér á Is- landi er þrátt fyrir allt svo fullkom- in að ætla verður að lyf séu ekki tekin hér í sölu nema að vandlega athuguðu máli. En enginn er alfull- kominn. Það á bæði við um heil- brigðisþjónustuna -og einstaka lækna. Umræður hljóta að koma upp um lyf og áhrif þeirra, en máli skiptir að ijölmiðlar fjalli um þessi málefni af ábyrgð og var- kárni. x x x * Ur því að hér er fjallað um lyf á annað borð er ástæða til að fagna því framtaki að kaupandi lyija fái yfírlit yfir það, hvað lyfið raunverulega kostar, þótt hann sjálfur greiði margfalt lægra verð fyrir. Víkveiji hefur ekki kynnzt öðra en því, að apótek prenti út miða, sem sundurliðar kaupverðið á milli sjúklings og hins opinbera. Hins vegar hefur verið haft orð á því, að þetta sé ekki gert í öllum apótekum. Ef einhveijar undan- tekningar era frá því er ástæða til að hvetja þau apótek, sem ekki hafa tekið upp þennan hátt að gera það. Fátt er meira upplýsandi fyrir fólk en einmitt það að sjá hvað lyf geta verið óheyrilega dýr. Þá sjá menn a.m.k. hvert skatt- greiðslur þeirra renna. Hið sama mætti gera í öðrum greinum heilbrigðisþjónustunnar. Það er ekki úr vegi, að fólk, sem þarf á margvíslegri þjónustu að halda í heilbrigðiskerfinu og greið- ir ákveðna upphæð fyrir fái afhent- an reikning, þar sem tilgreint er hvert raunverulegt verð þjón- ustunnar er.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.