Morgunblaðið - 26.08.1993, Side 47

Morgunblaðið - 26.08.1993, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. 'ÁGÚST 1993 47 VELVAKANDI ÞAKKIR TIL SIGGA OG KLEMMA GUÐRÍÐUR Jónsdóttir hringdi í Velvakanda og vildi koma á framfæri þakklaeti til Sigga og Klemma fyrir morgunþætti þeirra á Rás 2 sem henni þótti mjög fjölbreytilegir og fengu fólk til að brosa sem aldrei er of mikið gert af. Hún vonast til að heyra meira frá þeim í framtíð- inni. HVER SAMDI VÍSUNA KRISTÍN óskar eftir að fá að vita hver sé höfundur eftirfar- andi vísu: Mér það sagði móðir blíð, mætti færa í letur. Að eigirðu bágt um eina tíð, aðra reynist betur. TAPAÐ/FUNDIÐ Frakki tapaðist BRÚNN Wellington-frakki tapaðist frá Café Romance laugardagskvöldið 7. ágúst. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 691307. Úr tapaðist INEX-karlmannsúr, gyllt með brúnni ól, tapaðist á milli Bíóhallarinnar og Fossvogsins fyrir þremur vikum. Skilvís finnandi vinsamlega hringi í síma 46022. Hringoir tapaðist BLANDAÐUR gull-kopar- hringur með hvítum steini tapaðist á skemmtistaðnum Berlín sl. laugardagskvöld. Skilvís finnandi vinsamlega hringi í 71860 eða komi honum á skemmtistaðinn Berlín. Hettupeysa tapaðist DÖKKRAUÐ og grá hettupeysa með mynd af Michael Jordan tapaðist hjá Digranesskóla í sl. viku. Eigandinn er fimm ára. Skilvís finnandi hringi í síma 45153. Fjallahjól tapaðist GULT Peugeot-fjallahjól tapaðist frá Baldursgötu 11 aðfaranótt laugardags. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 620402. Fundarlaunum heitið. Jakki tapaðist FJÓLUBLÁR jakki (Leopard) með hvítu og grænu í og frotté-fóðri nr. 128 tapaðist í Kvennahlaupinu 19. júní sl. Skilvís finnandi vinsamlega hringi í síma 15772 eða 93-41172. Sjalhyrna tapaðist DÖKKVÍNRAUÐ sjalhyrna tapaðist í Leifsstöð 3. júní sl. Þetta er stórt og mikið sjal úr ull en þó fínlegt. Skilvís finnandi vinsamlega hringi í síma 691324. Gullhringur fannst GIFTINGARHRINGUR með nafni og dagsetningu fannst nýlega við Brautarland. Uppl. í síma 812181. Tveir gullhringir töpuðust TVEIR gullhringir, einbaugur og steinhringur, töpuðust á Suðurnesjum 12. ágúst, hugsanlega við fjölbrautaskólann, í Sandgerði við Arnarhól eða við Garðvang. Skilvís finnandi hafi samband við íjölbrautaskólann í síma 92-13100. GÆLUDYR Týnd læða GRÁBRÖNDÓTT læða með hvíta bringu, ca 6 mánaða, týndist frá Bollagötu sl. fimmtudag. Hún er ómerkt. Hafi einhver orðið hennar var er hann beðinn að hringja í síma 625280 eða 12952. Páfagaukur fannst GULUR páfagaukur með grænni slikju á stélfjöðrum og bringu fannst í Garðabæ á mánudagskvöld. Eigandinn getur vitjað hans í síma 656339. Læða fæst gefins MJÖG blíð grábröndótt kassavön læða fæst gefins. Uppl. í síma 13193. Högni fannst HÁLFVAXINN svartur högni, hvítur upp við augu og niður við bringu, fannst í Glæsibæ 17 fyrir um það bil þremur vikum. Eigandinn getur vitjað hans í síma 814901. Páfagaukur fannst GULGRÆNN páfagaukur fannst við Engjasel á þriðjudag. Eigandinn getur vitjað hans í síma 72641. Kettlingur fæst gefins GULUR og hvítur 12 vikna kettlingur sem er kassavanur og yndislegur fæst gefins. Uppl. í síma 626423. Páfagaukur týndist GRÁBLÁR páfagaukur týndist í Sigtúni á þriðjudag finnandi vinsamlegast hringi í síma 678466 Kettlingar fást gefins TVO gullfallega, barngóða kettlinga, fress og læðu, bráðvantar heimili. Þeir eru kassavanir. Upplýsingar í síma 38101. mstii ma PARÍSARbúðin AVSTVKTRJtTI 8 - SÍMIH2M Siæsiiem nýiar tosstrim TIZKAN LAU6AVEGI 71,2. HÆÐ Sími 10770 TIL SÖL 11 • Framköliunarfyrirtæki • Lítil ölkrá (miðsvæðis) « w cindiauy • Bílasala • Söluturnar • Sólb verslun og m.m.fl. Vantar aiiar tegundir fyrirtækja á skr ur af góðum fyrirtækjum af öllum s Fyrirtækjasí mj.ri—2jí aðstofur • Heild- á. Höfum kaupend- tærðum. alan Baldur Brjanss Laugavegi 95, 101 Reykjavík, on, sími 62 62 78. Pokasjóður Landvemdar Frá Stefáni Aðalsteinssyni: í frásögn í þriðjudagsblaði Morgunblaðsins um starf Sjálfboð- aliðasamtaka um náttúruvernd var talað um „pokasjóð Landgræðslu ríkisins". Sá sjóður er ekki til, held- ur mun þarna hafa verið átt við Pokasjóð Landverndar, sem hefur styrkt Sjálfboðaliðasamtökin til endurbóta á vinsælum ferða- mannastöðum, þ.ám. við Skógar- foss. Landvernd eru frjáls samtök yfir 70 félaga og eru algerlega óháð öllum ríkisafskiptum. Tekjur hafa samtökin eingöngu af poka- sjóðnum og árgjöldum aðildarfé- laganna. Á undanförnum 4 árum hafa íslendingar sýnt umheiminum hvað hægt er að afreka, þegar góður málstaður og almennur vilji leggjast á eitt. Um leið og pokasjóður Land- vemdar þakkar honum fyrir þann skilning, áhugaogvelvilja, sembirt- ist í kaupum á burðarpokum í versl- unum, vilja samtökin þakka sérstak- lega öllum þeim fjölda kaupmanna og eigendum verslunarfyrirtækja, sem með stórmennsku og einhug þorðu að ríða á vaðið átímum harðn- andi samkeppni og lögðu vinsældir sínar á vogarskálarnar til þess að landverndarhugsjónin gæti orðið að veruleika. En björninn er ekki unninn. Þó að landsmenn hafi minnkað plastpokanotkun sína verulega með þessu móti á liðnum árum og stuðlað þar með að fyrirbyggjandi meng- HEILRÆÐI Kennum bömunum að varast nýjar hættur r 1 umhverfmu. KOMUM HEIL HEIM IÐNSKOLINN I HAFNARFIRÐI REYKJAVÍKURVEGI 74 OG FLATAHRAUNI SÍMAR 51490 OG 53190 Meistaraskóli Nemendur meistaraskóla eru beðnir að koma í skólann miðvikudaginn 1. sept. kl. 16.30. Þeir iðnsveinar, sem hafa hug á að hefja nám við skólann nú, en hafa ekki skráð sig, þurfa að gera það fyrir mánudaginn 30. ágúst. unarvörnum og umhverfisvemd, ásamt því að gera Landverndar- samtökunum kleift að styðja örlítið við bakið á þeim fjölmörgu aðilum, sem hafa heill landsins okkar og jákvæða framtíð þess að leiðar- ljósi, verðum við öll að haldast áfram í hendur. Umhverfisvernd, mengunar- varnir, uppgræðsla landsins og betra mannlíf er ekkert skamm- tímaverkefni, sem við hristum fram úr erminni einhvern tíma þegar við erum í góðu skapi, held- ur þrotlaus barátta komandi kyn- slóða gegn eyðandi náttúruöflum og myrku hugarfari. Góðir íslendignar. Stöndum allir saman og fylgj- umst vel með því í framtíðinni að þeir burðarpokar, sem við kaupum, hafi áprentun og auðkenni Land- verndar í haldinu og gerum sam- tökunum viðvart, ef svo er ekki. Með því móti hjálpum við hvert öðru og börnunum okkar til þess að skapa betri lífsskilyrði í landinu okkar um ókomin ár. STEFÁN AÐALSTEINSSON Landvemd Skólavörðustlg 25, Reykjavík LEIÐRÉTTING Yfirvinnu undir- menn í Ijóði Baldurs Hafstað, Undirvinnu, sem birtist í Bréfum til blaðsins í gær, urðu tvær villur: A - hlutinn átti að byrja: Yfirvinnu undirmenn hjá yfirvöldum snapa Á sama hátt átti B - hlutinn að byrja: Yfirvinnu undirmenn óska sér... Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum Nýkomið frd Italíu! ÓBREYTT VERÐ Fransisca sófasettið: 3ja sæta sófi + 2 stólar + 2 dömustólar + borð. Allt settið á aðeins kr. 177.000 stgr. Litir: Ljósdrapp, bleikt. Viður: Hnota. Borð + 4 stólar, aðeins kr. 81.000 stgr Áklæði: Ljósdrapp, bleikt, rautt. VALHÚSGÖGN Ármúla 8, símar 812275 og 685375.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.