Morgunblaðið - 26.08.1993, Side 52

Morgunblaðið - 26.08.1993, Side 52
WhpI hewlett 1"HM PACKARD ------------UMBOÐIÐ HPÁ ÍSLANDI H F Höfdabakka 9, Reykjayík, sími (91) 671000 Frá möguloika til vcruleika MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK SÍMI 691100, SlMBSÉF 691181, PÓSTHÓLF 1565 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Fangaverðir í hættu í uppþoti í fangelsinu á Litla-Hrauni Tannlækn- ar leita að atvinnu erlendis ÞRIÐJUNGS samdráttur hefur orðið hjá tannlæknum á þessu ári að sögn formanns Tannlæknafé- lags íslands, Jóns Ásgeirs Eyjólfs- sonar. Samdrátturinn er rakinn til ahnenns samdráttar í þjóðfé- laginu auk þess sem tannlæknum hafi fjölgað of mikið á sama tíma og þeim hafi orðið mjög ágengt í baráttunni við tannskemmdir. „Tannlæknafélagið hefur verið að fylgjast með þessari þróun og þá höfum við unnið í því að reyna að skapa atvinnutækifæri erlendis fyrir hina ungu tannlækna sem eiga eftir að koma undir sig fótunum." Félagið hefur í því sambandi m.a. verið að kanna möguleikana í Norð- ur-Noregi, Hollandi, Spáni, Kúveit og Saudi-Arabíu. Sjá: „Tannlæknar bíta á jaxl- inn“, bls. B4-B5. Morgunblaðið/Júlíus Ur uppþoti í einangrun EINN forsprakka uppþotanna færður úr fangelsinu á Litla-Hrauni í lögreglubíl sem flutti hann og fjóra aðra í Síðumúlafangelsið. Fangar voru undir áhrifum lyfja og með vopn í klefum FANGAUPPÞOTI á Litla-Hrauni lauk síðdegis í gær án þess að nokkur úr hópi fanga eða fangavarða yrði fyrir teljandi meiðslum. Við klefaleit eftir uppþotið fannst tals- vert af bareflum og vopnum sem fangarnir höfðu útbúið. Þeir sem mest höfðu sig í frammi í uppþotinu voru, að sögn Gústafs Lilliendahls, forstjóra fangelsisins, undir áhrifum lyfja eða efna sem þeir höfðu fengið utan fangels- isins. Að sögn Haralds Johannessen fangelsismálastjóra voru starfsmenn fangelsisins í nokkurri hættu um tíma. Fangarnir hættu óeirðum þegar komið var á staðinn um 30 manna lögreglulið frá Reykjavík og Sel- og fossi, þar á meðal menn úr víkinga- sveit lögreglunnar og slökkvilið. Einnig voru allir fangaverðir fang- elsisins að störfum, um 25 manns, og höfðu sumir þeirra verið við störf í rúman sólarhring þegar um hægð- ist. Uppþotið hófst á þriðjudagskvöld þegar nokkrir fangar losuðu félaga sinn úr höndum fangavarða, sem talið höfðu nauðsynlegt að taka manninn úr umferð, þar sem hann var æstur og talinn í lyfjavímu. Um kvöldið fóru fangarnir til Brunaboð frá Herkastala Slökkviliðið í Reykjavík var í gærkvöldi kallað að húsi Hjálp- ræðishersins við Kirkjustræti. Þar hafði brunaboði farið í gang. Allt tiltækt lið var sent á stað- inn en í ljós kom að um bilun í kerfinu var að ræða og hvorki reykur né eldur í Herkastalanum. klefa sinna en þegar ljóst varð dag- inn eftir að þeir sem hindrað höfðu störf fangavarðanna yrðu beittir agaviðurlögum urðu uppþot. Fang- elsið var þó aldrei „á valdi“ fang- anna, en að sögn Gústafs er talið að 40 af 52 föngum hafi tekið þátt í því. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins gengu 8-10 fanga- verðir um á milli þeirra og reyndu að róa þá en var svarað með pústr- um og hótunum. Óánægja með aukna gæzlu Talið er að uppþotin megi rekja til óánægju fanganna með stórherta gæslu í fangelsinu í kjölfar endur- tekinna stroka þaðan í sumar, en engar kröfur voru settar fram af föngunum. Að sögn Gústafs Lill- iendahls hefur áður orðið vart við urg hjá föngum og þeir m.a. hótað að kveikja í fangelsinu þótt mál hafí ekki fyrr þróast með þeim hætti sem gerðist í gær. Sjá: „Mikið af vopnum..., bls 18. EGG hafði verið sorfin í glerbrot- ið og handfang gert úr grisju á þessu vopni sem fannst bak við gossjálfsala við leit í fangelsinu á Litla-Hrauni í gær. I bígerð að flokka unnar kjöt- vörur eft- ir gæðum MIKILL munur er á verði áleggs samkvæmt skyndi- könnun Morgunblaðsins. Svo virðist sem gæðamun- ur sé einnig talsverður og í bígerð er að setja reglur um flokkun á unnum kjöt- vörum eftir gæðum. Yfír 200% verðmunur var á dýrustu skinkunni og þeirri ódýrustu þar sem blaðið aflaði upplýsinga. í innihaldslýsingu kemur að einhverju leyti fram munur á hráefni 'og því hugs- anlega gæðum, en Jóhannes Gunnarsson formaður Neyt- endasamtakanna segir það „óþolandi að gerólíkar vörur skuli seldar undir heitinu skinka." Sjá nánar „Úrval af kjötáleggi" bls. 20. Átta íslenskir togarar voru að veiðum í Smugunni í gærkvöldi Birgðaskip á vegnm Olís á svæðinu en lítil viðskipti OLÍUFÉLÖGIN festu sér 700 þúsund lítra af olíu hjá erlendu fyrir- tæki sem sérhæfir sig í því að þjónusta skip á hafi úti og hugðust selja íslenska togaraflotanum sem hefur verið staðsettur í Smugunni svonefndu í Barentshafi. Oliubirgðaskip átti að vera á svæðinu í lok þessarar viku en nú er Ijóst að ekki verður þörf fyrir þessa þjónustu nema að litlu leyti þar sem 20 af 28 togurum hafa snúið heim á leið. Nokkrir af viðskiptamönnum 01- íuverslunar Islands gerðu fyrirspurn um hvort félagið gæti útvegað þeim olíu á hafi úti í Smugunni. Olís útveg- aði birgðaskip í gegnum fyrirtæki sem Olís hefur átt gott samstarf við til að geta þjónustað skipin með 700 þúsund lítrum. í framhaldi af því buðu þeir hinum olíufélögunum að eiga þátt í þessu sem þau þáðu. Forsvarsmenn Olís útiloka ekki að boðið verði upp á þessa þjónustu á ný ef til þess kæmi að flotinn héldi til veiða á fjarlægum slóðum á ný. Hörður Helgason, aðstoðarfor- stjóri Olís, sagði að fyrirtækið myndi ekki bera skarðan hlut frá borði vegna þessara viðskipta en það segði sig sjálft að viðskiptin hefðu orðið minni en efni stóðu til. „Það getur ekki lengi gengið í viðskiptum að menn panti olíu en kaupi hana svo ekki. Það getur ekki orðið hin al- menna regla en við björgum þessu máli fyrir hom,“ sagði Hörður. Átta skip voru enn á veiðisvæðinu í Smugunni í gær en aflabrögð voru lítil. Annars voru litlar fregnir af flotanum og ekki ljóst hvort skipin yrðu mikið lengur á svæðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.