Morgunblaðið - 27.08.1993, Page 1
Aulaimg
i félags-
legum
lánum
Almenn byggingarlán voru
lengst af miklu meiri en
félagslegu byggingarlánin, en
á því hefur orðið mikil breyting
á síðustu árum. Árið 1987 voru
aimennu lánin liðlega 70% á
móti tæpl. 30% f félagslega
byggingakerfinu. Síðan hefur
hlutfall félagslegra byggingar-
lána verið að aukast jafnt og
þétt á kostnað hinna. í fyrra
voru almennu byggingarlánin
rúml. 50% en félagslegu bygg-
ingarlánin tæpl. 50% og mun-
urinn því nánast enginn. Fram
til júlfloka á þessu ári höfðu
félagslegu lánin enn sótt á og
voru þá 57,8% á móti 42,2 % í
almenna kerfinu. Tekið skal
fram, að nú nær almenna kerf-
ið til húsbréfakerf isins.
Samanlögð fjárhæð bygg-
ingarlána íbáðum kerfunum
varð hæst 1991, þegar hún
nam 10,2 milijörðum kr. í fyrra
varð hún aðeins lægri eða tæp-
lega 9,7 milljarðar og á fyrstu
7 mánuðum þess árs varð hún
rúml. 4,5 milljarðar. Með sama
áframhaldi ætti hún að verða
tæplega 8 milljarðar kr. á
þessu ári.
FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST1993
Meiraum
makaskipti
Makaskipti á fasteignum
verða stöðugt algengari.
Æ fleiri eru reiðubúnir til að
þess að skipta á minni eignum
fyrir stærri og öfugt. Þetta
kemur m. a. fram íviðtali við
Franz Jezorski, lögfræðing og
fasteignasala, sem fyrir
skömmu setti á fót nýja fast-
eignasölu, er ber heitið Fast-
eignasalan Hóll. í viðtali við
Guðiaug Þorsteinsson, sölu-
mann og leigumiðlara, kemur
fram, að verzlunarsvæðið fyrir
innan Skeifuna hafi verið mjög
eftirsótt, en nú sé vaxandi eftir-
spurn eftir atvinnuhúsnæði í
gamla miðbænum. — Ég spái
því, að Miðbærinn eigi eftir að
ná sér á ný, segir Guðlaugur.
2
Laugarnes
Borgarskipulag Reykjavíkur
hefur nú auglýst tillögu að
deiliskipulagi á athafnasvæð-
inu á Laugarnesi. Þetta svæði
er um 11,5 ha að stærð og nær
til suður- og vesturhluta at-
hafnasvæðisins næst Sæ-
braut. Það hefur verið í upp-
byggingu alit frá árinu 1947,
þegar Olís hóf þar starfsemi
sína, fram á þennan dag. Mörg
stór fyrirtæki eru á svæðinu.
Uppdrættir að deiliskipulaginu
og greinargerð verða til sýnis
í Borgarskipulagi fram til 17.
september. Fjallað er um þetta
nýja skipulag í grein hér f blað-
inu idag.
14