Morgunblaðið - 27.08.1993, Qupperneq 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1993
Gömul tímburhus hafa
mlkiö aödráttarafil
Gömul timburhús hafa verið eftirsótt undanfarin ár og margir, sem
eru að leita sér að litlu einbýli, taka þau fram yfír allt annað. Kom
þetta fram í viðtali við Magnús Einarsson, fasteignasala í Eignasöl-
unni, en þar er nú auglýst til sölu timburhús við Smyrlahraun í
Hafnarfirði. Húsið er byggt 1925 og er hæð, ris og kjallari. A það
eru settar 8-8,5 millj. kr.
etta hús er allt mikið endumýj-
að, sagði Magnús Einarsson.
— Á því er nýtt járn og ný einangr-
un undir járninu og ennfremur
nýjar vatns- og skolplagnir, ný
miðstöðvarlögn og nýjar raflagnir.
Húsið er nýkomið í sölu, en það
stendur neðarlega við Smyrlahraun
skammt fyrir ofan Hverfisgötu.
Magnús kvað miklar fyrirspumir
hafa komið um þetta hús og marg-
ir hefðu sýnt því áhuga og væru
þegar búnir að skoða það. — Það
er garður á bak við húsið með
hraundröngum og að sögn eigand-
ans býr þar mikið af góðu huldu-
fólki, sagði Magnús. Hann kvað
Hafnarfjörð vera eftirsóttan nú og
hefðu vinsældir hans verið að auk-
ast undanfarin ár.
— Það er viss hópur, sem vill
hvergi annars staðar búa en í Hafn-
arfirði. Það em bæði gamlir Hafn-
firðingar en einnig fólk annars
staðar að. Bærinn hefur breytzt
mikið á undanförnum ámm. Hann
er orðinn vinsamlegri og skemmti-
legri og mörgum finnst eins og þar
sé minni streita.
— Gömlu timburhúsin hafi visst
aðdráttarafl, sem þau nýju hafa
ekki náð, sagði Magnús ennfrem-
ur. — Timburhús, sem er hæð, ris
og kjallari, er það sem svo margir
sækjast eftir og þau þurfa helzt
að vera í gömlum og grónum hverf-
um til þess vera í réttu umhverfi.
Einnar hæðar timburhús i nýju
hverfunum em að sjálfsögðu ágæt-
is hús, en þau hafa ekki sama að-
dráttarafl.
Magnús Einarsson sagði að lok-
um, að fasteignamarkaðurinn hefði
tekið mjög vel við sér eftir verzlun-
armannahelgina en verið fremur
daufur þar á undan. — Það er miklu
fleira fólk úti á markaðnum nú og
eftirspurn hefur aukizt verulega,
sagði Magnús. — Ég geri mér von-
ir um, að það skili sér í meiri sölu.
En það er meiri eftirspum eftir
minni eignum en þeim stærri og
sala á eignum er gjarnan mjög
þung, þegar verðið er komið upp í
20 millj. kr. og þar yfir.
— Mörgum fínnast timburhúsin hlýlegri en steinhúsin, segir Magnús
Einarsson, fasteignasali í Eignasölunni. Þar er nú auglýst til sölu
timburhús við Smyrlahraun í Hafnarfirði. Húsið er byggt 1925 og
er hæð, ris og kjallari. Á það eru settar 8-8,5 millj. kr.
Fasteignasalan Hóll
hefur göngu sína
— Legg áherzlu á skjóta og ábyrga þjónustu, segir
Franz Jezorski, lögfræóingur og fasteignasali.
Ný fasteignasala, Fasteignasalan Hóll, hóf göngu sína í síðustu viku
og er aðsetur hennar að Borgartúni 18 í húsi Sparisjóðs vélstjóra.
Eigandi er Franz Jezorski, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali —
Við hér erum ekki hræddir við samdráttinn í þjóðfélaginu, sagði Franz
í viðtaii við Morgunblaðið. — Við munum leggja okkur fram við að
veita skjóta og ábyrga þjónustu byggða á reynslu.
Franz Jezorski er þrítugur lög-
fræðingur. Lokaritgerð hans
fyrir embættispróf fjallaði um galla
á fasteignum. Að loknu prófi starf-
aði hann í tvö ár á fasteignasölunni
Gimli og vann samhliða á lögmanns-
stofu, en fékk sjálfur löggildingu
sem fasteignasali sl. vor.
Auk Franz starfa tveir sölumenn
á fasteignasölunni Hóli. Annar
þeirra er Guðlaugur Þorsteinsson,
35 ára gamall rekstrarverkfræðing-
ur, en hann mun einkum annast
sölu á atvinnuhúsnæði. Guðlaugur
lærði vélaverkfræði við Washington-
háskólann í Seattle og síðan rekstr-
arhagfræði við tækniháskólann í
San Luis Obipo í Kaliforníu. Eftir
heimkomuna starfaði hann fyrst
sem ráðgjafi hjá félagi Iðnrekanda
en síðan sem framkvæmdastjóri
Hulu hf., plastiðnaðarfyrirtækis á
Flúðum.
Hinn sölumaðurinn er Finnbogi
Kristjánsson, sem er 34 ára gamall
og m. a. búfræðingur. Hann starf-
aði um árabil sem sölumaður á fast-
eignasölunni Húsvangi og hefur
undanfarin tvö ár sótt námskeið við
Háskóla íslands til löggildingar sem
fasteigna- og skipasali.
Mikill sölutími framundan
— Móttökur hafa farið fram úr
björtustu vonum, síðan við opnuð-
um, sagði Franz Jezorski. — Það
hefur verið mikið um fyrirspumir
og nýskráningar á fasteignum hjá
okkur. Fólk vill gefa okkur tæki-
færi. Margir gera sér grein fyrir
því, að það er mikill sölutími fram-
undan og sér, að hér eru ungir
menn á fe'rðinni, sem eru reiðubúnir
til þess að spreyta sig.
Þeir félagar hafa ákveðið að taka
ekkert skoðunargjald af þeim eign-
um, sem þeir fá í sölu, en það er
nú 9.089 kr. með virðisaukaskatti.
— Þetta er samkeppnisgrein og við
ætlum að halda kostnaði í lágmarki
fyrir viðskiptavini okkar, sagði
Franz.
— Við ætlum ennfremur að bjóða
upp á helgarþjónustu og lengri opn-
unartíma. Þannig verður opið hjá
okkur til kl. átta á föstudögum, en
þann dag kemur fasteignablað
Morgunblaðsins út. Síðan ætlum við
Hjá okkur nýtur þú ávallt
hagstæðs verðs
og góðrar ráðgjafar
í húsbréfaviðskiptum.
Vettvangur húsbréfaviðskipta.
L
Landsbanki
íslands
Banld allra landsmanna
&
LANDSBRJÉF HF.
Löggilt veröbrélafyrirtæki.
Aöili aö Veröbréfaþingi íslands.
Landsbróf hf. eru viðskiptavaki húsbréfa skv. sérstökum samningi við
Húsnæðisstofnun ríkisins.
að hafa opíð frá kl. 9-3 á laugardög-
um. Eftir lokun á laugardögum og
sunnudögum verður hér símavakt
fram til kl. sjö, þar sem fólk getur
fengið upplýsingar um eignir, sem
hér eru til sölu og látið skrá nýjar
eignir á söluskrá.
— Við ætlum að halda varanlegu
sambandi við þá, sem við seljum
fyrir og leggja mikla alúð við kaup-
endur og hjálpa þeim að finna réttu
eignirnar, sagði Franz Jezorski að
síðustu. — Fasteignasala er að
breytast mikið í makaskipti. Þeir
verða æ fleiri, sem eru reiðubúnir
til að þess að skipta á minni eignum
fyrir stærri og öfugt. Við ætlum að
leggja mikla áherzlu á að aðstoða
þetta fólk.
Leigumiðlun á atvinnuhúsnæði
Samhliða fasteignasölunni rekur
Guðlaugur Þorsteinsson leigumiðl-
un, sem hefur aðsetur á sama stað
og ber hún heitið Leigulistinn. Þjón-
ustugjaldið er sem svarar eins mán-
aðar leigu, en Guðlaugur einbeitir
sér að atvinnuhúsnæði.
— Það er mikið framboð á at-
vinnuhúsnæði og því mikil þörf á
leigumiðlun, segir Guðlaugur. —
Eftirspum er einkum eftir ca 100
fermetra atvinnuplássum. Margir
Fasteignasalan Hóll hefur aðsetur að Borgartúni 18 í Reykjavík,
húsi Sparisjóðs vélstjóra. Á myndinni eru talið frá vinstri: Finnbogi
Kristjánsson sölumaður, Guðlaugur Þorsteinsson sölumaður og Franz
Jezorski, lögfræðingur og fasteignasali.
eru að minnka við sig og aðrir eru
að fara út í nýjan rekstur. Þeir hafa
kannski þurft að hætta störfum
annars staðar vegna samdráttar í
þjóðfélaginu og þar sem það em
þrengingar á vinnumarkaðnum, þá
láta þeir drauminn rætast og fara
út í nýjan atvinnurekstur.
Hjá okkur er töluvert úrval af
leiguhúsnæði á boðstólum og yfir-
leitt hefur gengið vel að koma því
út. En það er mikil samkeppni um
leigjendur og því fer húsleiga lækk-
andi. Sem dæmi get ég nefnt verzl-
unarhúsnæði miðsvæðis í Reyjavík,
sem leigðist á tæpar 1.000 kr. á
fermetra árið 1990 fermetrinn. Nú
er það leigt á 550 kr. hver fermetri.
— Oll þjónusta er að færast til
í borginni austur á bóginn og það
hefur leitt til þess að atvinnuhús-
næði hefur farið hækkandi á vissum
svæðum eins og í Skeifunni og Fenj-
unum, en er nú sennilega að ná
hámarki, sagði Guðlaugur Þor-
steinsson að lokum. — Verzlunar-
svæðið fyrir innan Skeifuna hefur
verið mjög eftirsótt, en nú finnst
mér sem vaxandi eftirspurn sé eftir
atvinnuhúsnæði í gamla miðbænum
og ég spái því, að hann eigi eftir
að ná sér á ný. Margir, sem hafa
verið í úthverfunum, leita nú inn í
miðborgina með starfsemi sína og
sækjast þá eftir verzlunarhúsnæði í
hliðargötum út frá Laugavegi, Hafn-
arstræti, Lækjargötu eða annars
staðar, þar sem verzlunarumferð er.
Skoitur á lltíum ein-
býllshúsum á einni hæö
- scgir Svcrrir Kristjánsson fiasteignasali
— ÞAÐ er skortur á litlum einnar hæðar einbýlishúsum með bílskúr
á markaðnum nú, enda gengur vel að selja þau. Við hér erum búin
að selja fjögur slík hús í þessum mánuði. Þar af voru þijú í Rima-
hverfí en eitt í Garðabæ. Þetta er kannski ekki mikið, en sýnir samt,
að það er hreyfing á nýsmíðinni. Þessi hús eru á bilinu 140-180 ferm
með bílskúr og þau hafa verið seld ýmist fokheld eða tilbúin undir
tréverk.
Þannig komst Sverrir Kristjáns-
son fasteignasali i fasteigna-
miðluninni Suðurlandsbraut 12 að
orði, þegar hann var spurður, hvort
eftirspurn væri eftir nýju íbúðarhús-
næði í smíðum. Að sögn Sverris er
algengt verð á slíkum húsum fok-
heldum tæplega 8 millj. kr., en síðan
má gera ráð fyrir, að það kosti um
2 millj. til þess að gera þau tilbúin
undir tréverk og 2-3 millj. kr. til
þess að fullklára þau. Fullbúin með
frágenginni lóð ættu þau að kosta
12,5-14,5 millj. kr., allt eftir stærð
og frágangi.
— Það gengur hins vegar ekki
eins vel að selja stór hús í smíðum
nú, sagði Sverrir ennfremur. — Það
sem máli skiptir í fasteignasölunni
núna eru verðin. Þeir sem ætla að
spenna verðin upp, þeir selja einfald-
lega ekki.
Sverrir kvað þó nokkra hreyfingu
vera á atvinnuhúsnæði. — Við hér
erum nýbúin að selja húsið að Aust-
urstræti 3, sem er um 750 fermetr-
ar, en þar er m. a. aðsetur lögfræði-
deildar Búnaðarbankans. Einnig
höfum við selt tvær hæðir að Lauga-
vegi 26, sem Félag heyrnleysingja
keypti. Þessar eignir fóru á mjög
eðlilegu verði.
Sverrir starfrækir 100 ferm sýn-
ingarsal í fasteignasölu sinni að
Suðurlandsbraut 12, þar sem hann
sýnir myndir af þeim eignum, sem
hann hefur til sölu hverju sinni.
Sagði hann, að þessi salur hefði
komið að mjög góðu gagni fyrir
marga, sem væru í fasteignahugleið-
ingum. Þessi salur hefði verið opinn
frá kl. 9-7 á virkum dögum í sumar
en frá 1. september yrði hann opinn
til kl. 8,30 á kvöldin. Á sunnudögum
værii hann opinn til kl. 4, en yrði
opinn til kl. 5 eftir 1. september og
sömuleiðis á laugardögum. — Ég
tel, að ástandið á fasteignamarkaðn-
um sé gott miðað við ástandið í þjóð-
félaginu, sagði Sverrir Kristjánsson
að lokum. — Það er til staðar stór
hópur af fólki, sem er að leita sér
að húsnæði og getur keypt.