Morgunblaðið - 03.09.1993, Side 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGIMIR FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1993
Gamia Hamarshúsið stendur á
homi Norðurstígs og Tryggva-
götu í Reykjavík. Það er byggt
1907 og er samtals um 930 ferm.
Á húseignina em settar 25,5 millj.
kr., en í boði em góð greiðslu-
kjör. 1 húsinu er 320 ferm götu-
hæð, 320 ferm miðhæð, en að
auki vörugeymsla, rishæð og
mjög sérstæður tum. Eigninni
fylgir ennfremur vöraport. Efri
myndin er af Tryggvagötu um
1917. Gamla Hamarshúsið er yzX,
til hægri. (Ljósm. Magnús 01.).
Neðri myndin sýnir húsið eins og
það lítur út nú.
Gamla Hamars-
húsiö ttö Norö-
urstig til sölu
Á horni Norðurstígs og Tryggvagötu í Reykjavík er nú til sölu
sögufrægt hús, sem lengi hefur sett svip á umhverfi sitt. Húsið er
byggt 1907 og þar var m. a. til húsa fyrsta smiðjan hjá vélsmiðj-
unni Hamri. I húsinu er 320 ferm götuhæð, 320 ferm miðhæð, en
að auki vörugeymsla, rishæð og mjög sérstæður tum. Eigninni
fylgir ennfremur vöraport. Samtals er húseignin um 930 ferm. Á
eignina era settar 25,5 millj. kr., en í boði era góð greiðslukjör.
essi eign gæti hentað vel und-
ir ýmiss konar atvinnurekstur,
sagði Þórólfur Halldórsson, fast-
eignasali í Eignamiðluninni, sem
hefur eignina til sölu. Núverandi
eigandi er Steinavör hf., heildsölu-
fyrirtæki, sem verzlar með útgerð-
arvörur og fatnað. Jarðhæðin er
notuð undir lager, á annari hæð
eru skrifstofur, en rishæðin og
útsýnisturninn eru ekki í notkun
eins og er.
— Húsnæðinu mætti skipta á
marga vegu og nota með ýmsum
hætti, sagði Þórólfur. — Það mætti
í fyrsta lagi nota húsið með sama
hætti og áður, jarðhæðina undir
lager en aðra hæðina undir skrif-
stofur. í öðru lagi gæti jarðhæðin
hentað vel fyrir veitingarekstur
og ölstofu og efri hæðin þá sem
gistiheimili. í risinu og turninum
gætu verið vinnustofur eða íbúðir
fyrir listafólk. Við Norðurstíg er
geysimikil skemma í efsta hlutan-
um og mikil lofthæð. Þar gæti
verið ágætis aðstaða fyrir mynd-
höggvara.
Astand hússins er að sumu leyti
gott, en sá hluti, sem ekki hefur
verið í notkun, þarfnast þó stand-
setningar. — Þetta er mjög heil-
steypt hús og verður væntanlega
selt í einu lagi, en það væri vel
hægt að skipta því upp síðar meir,
sagði Þórólfur Halldórsson að lok-
um. — Það er mikill sjarmi yfir
þessu húsi og ég geri mér vonir
um að selja það fljótlega. Nú er
verið að færa Geirsgötuna og þá
verður aðkoman greiðari og meiri
möguleikar á góðum bílastæðum.
Lelgjcndasamtökln
Æ meiri ásokn í
míóbæ Kcykjavíkiir
MHCIL eftirspurn er nú eftir leiguhúsnæði og er þar fyrst og fremst
yngra fólk á ferðinni. Mikil ásókn er í miðbæ og vesturbæ Reykja-
víkur. Þessu veldur m.a. nálægðin við Háskólann og æ fleiri, sem
vinna í miðbænum, vilja búa þar til þess að geta sparað sér ferða-
kostnað.
Ljósmynd/Pétur Á. Óskarsson
Þórir Steingrímsson, formaður Hamraborgarráðs, kynnir íbúum í Hamraborg hið nýa sjónvarpskerfi.
Kópavogur
AuglýsmgasjóiiTarp sett
upp lyrir Hamraborgíua
Bílageymslan vöktuö allan sól
arhringinn á sömu rásinni
í Hamraborg í Kópavogi hefur verið komið upp sjónvarpskapal-
kerfi, sem nær til 212 íbúða þar og er reiknað með, að um 600
manns geti horft á það að staðaldri. Þjónustuaðilum og verzlunum
í miðbæ Kópavogs hefur nú verið boðið að kynna bæði vöru og þjón-
ustu í þessu sjónvarpi og era undirtektir þeirra góðar. Kom þetta
fram þjá Þóri Steingrímssyni, formanni Hamraborgarráðsins, sem
era samtök eigendajafnt íbúðarhúsnæðis ogþjónustuhúsnæðis i
etta kom fram hjá Pjetri Haf-
stein Lárussyni, fram-
kvæmdastjóri leiguþjónustu Leigj-
endasamtakanna, þegar hann var
spurður um ástandið á leigumark-
aðnum. — Það færist í vöxt, að
námsfólk, einkum utan af landi,
leigi saman stórar íbúðir, sagði
Pjetur. — í þessum hópi er bæði
háskólastúdentar, nemendur í Iðn-
skólanum, Sjómannaskólanum og
myndlistamemar.
Pjetur kvaðst verða var við til-
hneigingu til hækkunar á leigu á
minnstu íbúðunum, enda væri mest
eftirspurn eftir þeim. Nú væri al-
geng mánaðarleiga fyrir 2ja herb
íbúðir 30-35 þús. kr, fyrir 3ja herb.
íbúðir 35-40 þús. kr. og 4ra herb.
íbúðir 40-45 þús. kr. Einbýlishús
leigðust gjarnan á 60-65 þús. kr.,
en ef hærri leigu væri krafizt, væri
ekki auðvelt að leigja þau út.
Pjetur kvaðst ennfremur verða
þess var, að ungt fólk flyttist síðar
burt úr föðurgarði nú en áður og
það væri greinilega gert til þess að
spara sér að borga húsaleigu eða
það treysti sér ekki til þess að kaupa
eigið húsnæði. Þá væri það líka til,
að ungt fólk hygðist fresta því að
festa sér kaup á eigin húsnæði, þar
sem það gerði sér vonir um, að íbúð-
arverð ætti eftir að lækka.
— Yfirleitt er ástand á því leigu-
húsnæði nokkuð gott, sem við fáum
til meðferðar, sagði Pjetur Hafstein
Lárusson að lokum. — Leigjendur
eru fyrst og fremst láglaunafólk,
sem heldur húsaleigu niðri, því að
þetta fólk getur ekki borgað háa
leigu. Vegna þess að ásóknin er
mest í miðbæ og vesturbæ, er húsa-
leiga hæst þar. Það er erfiðara að
leigja út íbúðir, sem eru fjær mið-
bænum og leigan líka lægri þar.
Hamraborg.
Upphaf þessa máls má rekja til
þess, að endurnýja átti loft-
netsbúnaðinn á öllum þeim 13
stigahúsum, sem eru í Hamraborg-
inni, sagði Þórir. — Þá kom sú
hugmynd upp að hafa hér gervi-
hnattardisk, en síðan tekin sú
ákvörðun að láta hann bíða en setja
upp okkar eigið kapalkerfi með
samtengingu allra þessara stiga-
húsa í eitt stórt loftnet. Síðan var
þetta loftnet tengt í stúdíó, sem er
í félagsaðstöðu Hamraborgarbúa í
100 fermetra sal.
í stúdíóinu er fullkomin skjá-
myndatölva ásamt tilheyrandi út-
búnaði, videómyndavélum og öðru
slíku til þess að taka myndir og
þannig er hægt að búa til sambæri-
legar auglýsingar og þær sem birt-
ast í Ríkissjónvarpinu og Stöð 2.
Þessar skjámyndaauglýsingar voru
kynntar sl. föstudag og fengu þá
mjög góðar undirtektir hjá íbúum
Hamraborgarinnar og einnig hjá
þeim forráðamönnum verzlana og
þjónustuaðila í Hamraborg, sem
voru á kynningunni. Hafa ýmsir
þeirra þegar óskað eftir birtingu á
auglýsingum í þessu sjónvarpi.
Einföld textaskjámynd í þessu
sjónvarpi kostar 2.000 kr. Inni í
þessu verði er falin birting auglýs-
ingarinnar tvisvar sinnum á klukku-
stund allan sólarhring í hálfan mán-
uð. Þess á milli eru lesnar upp upp-
lýsingar og fróðleikur til gagns fyr-
ir íbúa og húseigendur í Hamra-
borginni varðandi framkvæmdir við
endurgerð bílageymslu Hamraborg-
arinnar, en Hamraborgarráðið gerði
samning við Kópavogskaupstað upp
á 50 millj. kr um framkvæmdir
þar, sem eiga að fara fram á næstu
tveimur árum.
Á sömu rás verður tenging við
16 öryggismyndavélar, sem settar
verða upp í bílageyslunni á næstu
dögum. Þá getur hver íbúi í hvaða
Mð sem er, horft niður í bflageymsl-
una á opinni rás allan sólarhringinn
og fylgzt með því, sem þar gerist.
Síðan verður öryggiskerfíð tengt inn
í stúdióið og allt tekið upp, sem
gerist í geymslunni. Ef eitthvað ger-
ist þar, sem skoða þarf betur, má
einfáldlega snúa spólunni til baka
og skoða það, sem þar gerist. Secu-
ritas mun annast uppsetninguna á
þessu öryggiskerfí á næstunni.
— Við hveija innkeyrslu og
hvem inngang í bílgeymslunni verð-
ur auglýst greinilega, að bíla-
geymslumar séu vaktaðar allan
sólarhringinn með myndavélum á
opinni rás í kapalkerfí Hamraborg-
ar, sagði Þórir Steingrímsson að
lokum. — Með þessu á að vera kom-
ið í veg fyrir, að gengið verði á
persónufrelsi fólks.
Hjá okkur nýtur þú ávallt
hagstæðs verðs
og góðrar ráðgjafar
í húsbréfaviðskiptum.
Vettvangur húsbréfaviðskipta.
m
LANDSBRÉFHF.
löggílt veröbréfafyrirtæki.
Aöili aö Veröbréfaþingi íslands.
Ijndsbréf hf. eru viðskiptavaki húsbrcfa skv. scrstökum samningi við
Húsnæðisstofnun ríkisins.
L
Landsbanki
ísiands
Bankl allra landsmanna