Morgunblaðið - 03.09.1993, Side 15
14 B
MORGUNBLAÐIÐ
FASTEIGNIR FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER
1993
MORGUNBLAÐIÐ
FASTEIGNIR
FOSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1993
B 15
Hefóbundnar byggmga-
aófferóir halda sildi síim
segir Örn Isebarn byggingameistari
ÍSLENZKA steinsteypan er gott byggingarefni, en svo hefur ekki
alltaf verið. Fyrst eftir að tekið var að nota innlenda sementið og
sjávarsandinn úr Hvalfirði, var steypan mun lélegri. Það er aftur á
móti full ástæða til þess að ætla, að sú steypa, sem notuð hefur
verið undanfarin fimmtán ár, sé ekki lakari að gæðum en sú steypa,
sem notuð var í hús í gamla bænum í Reykjavík á árunum 1920-
1940, sem var mjög góð steypa.
Þannig komst Örn Isebarn bygg-
ingameistari og fyrrverandi
formaður Meistarafélags húsasmiða
að orði í viðtali við Morgunblaðið. —
Við verðum því að varast að festast
í því viðhorfi, að
steypan okkar þoli
ekki íslenzkar að-
stæður og íslenzkt
verðurfar, ein-
göngu vegna þess
að hún var ekki
. nægilega góð á
ettir Magnus tímabili, segir
Sigurðsson hann. - Sem dæmi
get ég nefnt hús, sem ég byggði
árið 1979 fyrir fatlaða í Fossvogi.
Útlit þessara húsa er mjög gott og
á þeim sjást engar steypuskemmdir.
Sum þessara húsa er búið að mála
einu sinni á þessum fjórtán árum,
sum aldrei. Eg fullyrði því, að steyp-
an í þessum húsum hafi reynzt mjög
vel.
Öm er nú með fjórtán íbúðir í
smíðum í fjölbýlishúsi við Rauð-
hamra 12-14 1 Grafarvogi. Þetta eru
tvö stigahús með sjö íbúðum hvort.
Hönnuður var Eðvarð Guðmundsson
arkitekt, sem nú er látinn. — Sú
tækni og vinnubrögð, sem ég nota
hér eru mjög svipuð því og var við
lýði, þegar ég hóf byggingastarf-
semi 1965, segir Öm. — Það er sleg-
ið upp fyrir því með hefðbundnum
hætti. Ég tel þetta ágætt bygging-
arlag. Verð á íbúðum, sem byggðar
eru á þennnan hátt, er mjög svipað
og verð á þeim húsum, þar sem
nýrri aðferðum er beitt.
Fæddur inn í greinina
Örn Isebam er fæddur 1940 og
gekk ég í Meistarafélag húsasmiða
og hefur starfað sjálfstætt við húsa-
smíðar síðan.
— Ég sækist eftir því að nota
innlenda framleiðslu. Þannig hef ég
keypt innréttingar af HB-innrétt-
ingum í Kópavogi í tuttugu ár og
Morgunblaðið/Kristinn
Örn Isebarn fyrir framan 14 íbúða fjölbýlishús, sem hann er með í
smíðum við Rauðhamra í Grafarvogi. Þessar íbúðir eru 122 ferm
fyrir utan bílskúr og kosta 11,5 millj. kr. fullfrágengnar. Húsið er
byggt á hefðbundinn hátt, einangrað að innan og fínpússað. Að utan
er húsið sléttpússað. — Með þeim hætti verður til kápa utan um
húsið, sem hlífir því ágætlega, segir Örn Isebarn. - Eg tel þetta
næga vörn gagnvart íslenzka slagregninu og frostþíðunni, enda
hefur þetta reynzt mjög vel.
alinn upp í Reykjavík. — Ég er nán-
ast fæddur inn í þessa grein, því
að faðir minn, Ingólfur Isebarn, var
einnig byggingameistari, segir
hann. — Tólf ára gamall byijaði ég
að vinna í Vöiundi, en langafi minni,
Sveinn Jónsson, stofnaði það fyrir-
tæki. Hjá Völundi lærði ég húsa-
smíði og tók sveinspróf 1960, þá
tvítugur að aldri. Síðan vann ég hjá
ýmsum ágætum byggingameistur-
um í fimm ár, en 25 ára gamall
geri það enn, heldur Örn áfram. —
Eg flef einnig alltaf keypt íslenzkar
hurðir, fyrst hjá Völundi, á meðan
það fyrirtæki var starfrækt, síðan
hjá Tréex í Keflavík og nú hjá Selko.
Ég nota einnig innlenda málningu.
Ástæðurnar fyrir þessu er fleiri
en ein. í fyrsta lagi er það viss
hugsjón að kaupa innlenda fram-
leiðslu og verzla við mína gömlu
félaga í Meistarafélagi húsasmiða.
í öðru lagi tel ég innlendar iðnaðar-
vörur vera að minnsta kosti jafn
góðar og oft betri en innfluttar. Ég
nota t. d. málningu frá Málningu
hf. á þetta hús, sem ég' er með í
smíðum við Rauðhamra. Þessi máln-
ing nefnist Steinvari 2000. Þetta
er dýr málning, en ég hef tröllatrú
á henni og þess vegna nota ég hana.
Fjölbýlishúsið við Rauðhamra er
byggt á hefðbundinn hátt. Það er
einangrað að innan með 4ra tommu
einangrun og síðan pússað á venju-
legan liátt og loks fínpússað. Að
utan er húsið slettpússað. — Með
þeim hætti verður til kápa utan um
húsið, sem hlífir því ágætlega, segir
Örn. - Ég tel þetta vera næga vörn
gagnvart íslenzka slagregninu og
frostþíðunni, enda hefur þetta
reynzt mjög vel að mínu mati.
Örn skilar íbúðunum fullfrá-
gengnum til kaupenda. Þær eru 122
fermetrar fyrir utan bílskúr og er
þá miðað við utanmál hverrar íbúð-
ar ásamt helming af stigahúsi. Til
viðbótar koma stórar svalir á móti
suðri, en útsýni er til Bláíjalla og
meðfram öllum Reykjanesíjallgarð-
inum. — Stórar svalir á móti suðri
er eitt af því, sem fólk leggur hvað
mest áherzlu á varðandi íbúðir í fjöl-
býlishúsum, segir Örn.
Örn skilar íbúðunum fullfrá-
gengnum, í samræmi við óskir kaup-
enda. — Margir telja það mikinn
kost að geta breytt stofunni, segir
hann. — Hugsum okkur hjón, sem
þurfa á .einu herbergi að halda til
viðbótar vegna unglings á skóla-
aldri. Þá má bæta hér við þessu
herbergi. Svo kemur að því, að ungi
maðurinn flytur í burtu. Þá má
stækka stofuna á ný, sem því plássi
nemur, sem var hans herbergi.
Kaupandinn velur allar innrétt-
ingar sjálfur, bæði skápa og eldhús-
innréttingu. Hann fær litaspjald frá
Málningu og velur lit á íbúð sína
eftir því. Allt er þetta innifalið í
verðinu. Ef kaupandinn vill hin veg-
ar velja sér eitthvað alveg sérstakt,
t. d. postulínsflísar á baðherbergi,
þá kostar það aukalega.
— Hamrahverfið er mjög vel skipulagt hverfi, segir Örn Isebarn. — Það er rúmt um húsin og góðar
gönguleiðir neðfram sjónum. I miðju hverfinu er ágætt leiksvæði og leikskóli fyrir börnin. Þau þurfa
því lítið að fara út á umferðargöturnar.
Fastir milliveggir eru hlaðnir úr
þungum steini, þannig að lítið heyr-
ist á milli herbergja, en lausir vegg-
ir eru úr timbri og steinull. — Þess
er gætt að hafa plöturnar á milli
hæða þykkar, segir Örn. — Mörgum
finnst það miður, þegar mjög mikið
heyrist á milli íbúða. í sumum fjöl-
býlishúsum er jafnvel hægt að fylgj-
ast með öllum athöfnum nágrann-
ana, vegna þess að allt of hljóðbært
er á milli íbúðanna.
Hverri íbúð fylgir 10 fermetra
geymsla í kjallara. Síðan er sameig-
irrleg hjólageymsla og safngeymsla
og sérstakt herbergi. Alls er sam-
eignin um 17 fermetrar með hverri
íbúð. Þessar Ibúðir kosta 11,5 millj.
kr. fullfrágengnar. — Það er um
70.000 kr á fermetra, ef með er
tekinn bílskúr og sameign, segir
Örn.
Efstu íbúðirnar með
60 ferm risi
Ibúðirnar á efstu hæðinni eru að
því leyti frábrugðnar, að rýmið uppi
í risinu er nýtt. Þakinu er lyft um
70-80 sentimetra miðað við það sem
venjulegt er. Á þennan hátt fæst
um 60 ferm pláss til viðbótar. —
Þarna gæti verið aðstaða til þess
að hafa píanó eða vefstól, svo að
nokkuð sé nefnt, segir Örn.
Frárennslið frá húsinu er notað
til þess að hita upp alla göngustíga
og heldur þannig burt snjó á veturn-
ar og bleytu á sumrin. Stéttamar
verða þurrari og minna berst af
óhreinindum inn í húsið.
— Hamrahverfið er mjög vel
skipulagt hverfi, segir Örn. — Það
er rúmt um húsin og góðar göngu-
leiðir neðfram sjónum. Það eru fá
ný hverfi, sem tekizt hefur jafn vel
að skipuleggja. Þegar fólk kaupir
nýjar íbúðir, á það að fara á staðinn
og skoða umhverfið og bera saman
verð og gæði. Hér í miðju Hamra-
hverfinu er t. d. ágætt leiksvæði og
leikskóli fyrir börnin. Þau þurfa því
lítið að fara út á umferðargöturnar.
Örn var formaður í Meistarafélagi
húsasmiða í sjö ár eða frá 1985-
1992 og býr þar að auki yfir langri
reynslu sem húsasmiður. — Það er
stundum sagt um okkur iðnaðar-
menn, að við séum tregir til þess
að taka upp nýjungar, segir hann.
— En ástæðan er einmitt sú, að við
viljum fá reynslu af þeim aðferðum
og efnum, sem við notum, áður en
við bjóðum smíðina til sölu. Að mínu
mati þarf fólk að fara varlega. Það
eru alltaf að koma fram alis konar
nýjungar. Þær eru góðra gjalda
verða, en þær verða að sanna ágæti
sitt.
Það skiptir mjög miklu máli, að
ekki sé skorið á gamlar hefðir í
húsasmíðinni. Ég tel, að gamla fyr-
irkomulagið, þar sem vinna saman
meistari, sveinn og lærlingur, hafi
skilað mjög góðum árangri. Þar
lærir hver af öðrum. Þetta á ekki
bara við hér. Ég hef haft af því
margar spurnir, að vel sé látið af
íslenzkum iðnaðarmönnum, þegar
þeir taka að sér verkefni erlendis.
Þeir þykja kunna vel til verka og
eru álitnir fjölhæfir iðnaðarmenn.
Ég vil benda hér á, að Þjóðveijar
byggja á svipuðum grunni og ná-
grannar þeirra tala gjarnan um, að
þeir standi sig vel í samkeppninni
af þeim sökum. Þetta á ekki bara
við í byggingariðnaði, heldur í mörg-
um greinum öðrum.
Þegar kreppir að á nýbygginga-
markaðnum eins og nú, þá lækkar
íbúðarverð og sumir freistast til
þess að kaupa inn lélegri bygging-
arefni og vanda ekki eins til-verks-
ins í heild til þess að vera réttu
megin við strikið. Þetta verður að
sjálfsögðu að varast. Bygginga-
menn mega ekki láta slíkan hugsun-
arhátt ná tökum á sér.
Örn kveðst halda, að veturinn
verði erfiður fyrir byggingariðnað-
inn og segir: — Sala á nýjum íbúðum
er treg og verkefnaleysi blasir við
mörgum. Þegar kaupmátturinn
rýrnar jafp mikið og verið hefur
undanfarin ár, þá setur það mark
sitt á allt og neikvæð umræða í þjóð-
félaginu bætir ekki úr og smitar út
frá sér. Fólk heldur að sér höndum
og enginn þorir að gera neitt.
Fleiri eignist
sína eigin íbúð
Að mati Arnar er of mikið hlaðið
undir félagslega íbúðakerfið og það
verði til þess að draga úr sjálfsbjarg-
arviðleitni fólks. — Auðvitað þarf
að hjálpa því fólki, sem á mjög erf-
itt uppdráttar, segir hann. — Ég tel
hins vegar, að nota eigi hluta af því
fé, sem varið er í félagslega íbúðar-
kerfið til þess að gefa sem flestum
tækifæri til þess að eignast íbúð.
Það er mjög uppörvandi fvrir ungt
fólk sem aðra að eignast sína eigin
íbúð í stað þess að eiga allt komið
undir einhvetju kerfi og mönnum,
sem kosnir eru þangað af stjórn-
málamönnum og þurfa þá að hugsa
um sjálfa sig og þá menn, sem þeir
eru kosnir af.
Vegna samdráttar og minni eftir-
spurnar hefur verð á nýsmíðinni
lækkað. Að mati Arnar eru því samt
takmörk sett, hvað verðið getur
lækkað. — Það getur ekkert bygg-
ingarfyrirtæki borgað með íbúðum
sínum til lengdar, segir hann. —
Þess vegna fer verðið aldrei langt
niður fyrir kostnaðarverð. Þeir sem
eiga stór hús og vilja selja til þess
að komast í minna húsnæði, bíða
með að selja, ef verðið er orðið mjög
lágt. Bankarnir, sem veita lán út á
íbúðirnar, eiga sennilega margar
íbúðir, sem þeir hafa neyðzt til þess
að yfirtaka vegna vanskila lántak-
endanna. Þeir bíða líka með að selja,
unz verðið hækkar, þannig að þeir
nái sínu til baka.
Lækjartún - Mosfellsbæ
Nýkomið í sölu vel staðsett 130 fm parhús á þessum
eftirsótta stað. Eignin skiptist í stofu og 2-3 herbergi
og hentar vel fyrir eldri borgara. Góð, frágengin lóð
og bílastæði. Laust fljótlega.
Fasteignasalan Stakfell,
Suðurlandsbraut 6,
sími687633.
Opiö laugardag
kl. 12-14
íf BORGAREIGN
fasteignasala - Suðurlandsbraut 14
678221 fax: 678289
Glæsil. ca 146 fm efri sérh.
Hlíðarvegur - Kóp. - sérh.
í nýl. tvíbhúsi. Góðar stofur. 3-4 svefnh. Tvennar svalir. Allt fullfrág. og vandað.
Gott útsýni. Áhv. ca 2,4 millj. Laus fljótl. Verð 12,9 millj.
Sólheimar - sérh. Ca 130 fm neðri sérh. auk ca 25 fm bílsk. Góð-
ar stofur. 4-5 svefnh. Góð eign á vinsælum stað. Getur losnað fljótl. Verð 11,3 millj.
Kópavogsbraut. Til sölu skemmtil. ca 110 fm íb. á tveimur hæð-
um. Allt sér. Á neðri hæð góðar stofur, eldh. og snyrting. Efri hæð 3 herb. og
bað. Stór lóð. Verö 8,9 millj.
Langabrekka - sérhæð. Sórl. falleg og mikið endurn. ca
92 fm efri hæð í fjórb. Eign í mjög góðu ástandi. Verð 7,9 millj.
Krummahólar. 4ra herb. íb. meö bílsk. ca 92 fm endaíb. ásamt
góðum ca 25 fm bílsk. Glæsil. útsýni. Blokk og sameign í góðu ástandi. Áhv. góð
lán ca 4,1 millj. Verð 7,5 millj.
Klapparstígur 1 - háhýsi við Skúlagötu.
Glæsil. ca 120 fm íb. tilb. u. trév. Einstakt útsýni. Verð 8,2 millj.
Hraunteigur - 3ja-4ra. Glæsil. ca 125 fm íb. á jarðh.
Vandaðar innr. Parket og flisar. íb. hefur öll verið endurn. og er í toppástandi.
Sérinng. Áhv. húsbréf ca 2,9 millj. Verð 7,6 millj.
Hamraborg - 3ja herb. Góð ca 77 fm íb. á 2. hæð. M.a.
nýl. eldhús og bað. Suðursvalir. Áhv. hagst. lán ca 3,7 millj. Verð 6,9 millj.
Alftamýri. 3ja herb. ca 70 fm endaíb. á 3. hæð. Verð 6,6 millj.
Astún - Kóp. - 3ja 80 fm íb. á 1. hæð. Gott útsýni. Áhv. ca
1,4 millj. Verð 7,5 millj.
Rauðarárstígur - 3ja. Falleg ca 60 fm vel skipul. íb. á 1.
hæð. Mikið endurn. Áhv. 2,4 millj. Verð 5,3 millj.
Vallargerði - Kóp. 2ja herb. sérbýli, ca 65 fm á jarðh. Sérinng.
íb. er mikið endurn. Fallegur garður. Friðsæll staður. Verð 5,9 millj.
Vantar allar gerðir eigna á söluskrá
Skoðum og verðmetum eignir samdægurs
Karl Gunnarsson, sölustjóri, Kjartan Ragnars hrl.
Opið laugardag kl. 12-14
Túnhvammur — skipti
Fallegt fulib. 180 fm raðh. á tveimur hæð-
um auk 29 fm bílsk. Arinn. Vönduð eign.
Fallegt útsýni. Skipti mögul. á minni eign.
Strandgötu 33
SÍMI 652790
Furuberg. f einkasölu fallegt fullb.
150 fm endaraöh. á einni hæð ásamt 25
fm bílsk. Vandaðar innr. 4 svefnherb.
Gróin lóð. Áhv. veðdeild ca 3,0 millj.
Klausturhvammur — skipti.
Gott 202 fm endaraðh. m. innb. bílsk. 4
svefnh., sólskáli. Falleg gróin hornlóö,-
Skipti mögul. á minni eign. Áhv. góð lán.
Verð 13,9 millj.
Stuðlaberg. Fallegt 142 fm raðhús
á tveimur hæðum ásamt bilsk. Áhv. ca
5,0 miilj. húsnlán. Skipti mögul. á 3ja-4ra
herb. ib. Verð 11,4 millj.
Breiðvangur. I einkasölu falleg 140
fm efri sérhæð ásamt 33 fm bílsk. í góðu
tvíb. 4 svefnherb. Stutt í skóla. Stór gróin
lóð. Verð 12,2 millj.
Fagrakinn. Vönduð eftlr sér-
h«ð í tvíb. ésamt bílsk. Parket.
Kamina f atofu. Laus fljótf.
Básendi — Rvik. 4ra herb.
miðb. f þrfb. á ról. og góðum stað.
Verð 7,6 millj.
Erum meö fjölda eigna á
söluskrá sem ekki eru
auglýstar.
Póst- og símsendum
söluskrár um land allt.
Einbýli — raðhús
Smyrlahraun — skipti. Gott
talsv. endurn. 144 fm raöh. á tveimur
hæðum ásamt nýjum 30 fm bílsk. Nýtt
þak, gler o.fl. Áhv. góð lán ca 3,6 millj.
Verð 11,9 millj.
Lindarberg — skipti. í einka-
sölu 221 fm parh. á tveimur hæðum
ásamt innb. bílsk. Neðri hæð er íbúðar-
hæf. Á efri hæð er kominn hiti og gler í
glugga. Áhv. húsbr. ca 4 millj. Skipti
mögul. á minni eign.
Hlíðarbyggö - Gbæ - skipti
Fallegt 250 fm raðh. á tveimur hæðum
m. innb. bílsk. Vandaöar innr. 6 svefnh.
Mögul. séríb. á jarðh. Skipti mögul.
Eskiholt - Gbæ - skipti
í einkasölu þetta glæsil. einbhús sem er
á tveimur hæðum ásamt tvöf. bílsk. Vand-
aðar innr. Parket. Meiriháttar útsýni. Ve-
rönd m. heitum potti o.fl. Skipti á ódýrari
eign kemur til greina.
Fallegt 219 fm einb. á tveimur hæðum
auk 60 fm bílsk. Eignin er að mestu fullb.
5 góð svefnh. Góð staðs. Áhv. byggsj.
3,4 millj. Verð 16,9 millj.
Norðurtún — Álft. — skipti
Fallegt 142 fm einb. á einni hæð auk 42
fm bílsk. 4 góð svefnh. Suðurverönd.
Falleg eign. Áhv. góð lán 4,2 millj. Verð
12,5 millj.
Hnotuberg — skipti
Fallegt fullb. 177 fm einb. m. innb. bílsk.
4 góð svefnherb., vandaðar innr,, falleg
gróin lóð. Steinfl. á gólfum. Skipti mögul.
á minni eign.
Svöluhraun. Gott 164 fm raðh. á
einni hæó ásamt innb. bílsk. á þessum
fráb. stað. Skipti mögul. á góðri ib. í Suð-
urbæ Flfj.
Öldugata. Gott talsv. endurn. litið
einb. hæð og kj. Mögul. á stækkun m.
hækkun á risi. Bílskréttur. Áhv. húsbr. 3,1
millj. Verð 7,0 millj.
Vesturvangur. í einkasölu glæsil.
248 fm einb. ásamt 60 fm tvöf. bílsk.
Vandaðar innr. Falleg gróin lóð. Vönduð
og falleg eign. Verð 17,9 millj.
Garðabær — Flatir. Gott tals-
vert endurn. 193 tm einb. á einni hæö
ásamt 46 fm tvöf. bílsk. Áhv. góð lán.
Skipti mögul.
Furuberg. Fallegtfullb. 143fmparh.
ásamt 23 fm bílsk. 4 svefnherb. Góðar
innr. Parket og flisar. Gróinn garður. Verð
13,8 miilj.
Burknaberg. Fallegt einb. að
mestu fullb. alls ca 300 fm á tveimur
hæðum. Mögul. aukaíb. á jarðhæð.
Breiðvangur — skipti. Fallegt
172 fm raðh. á einni hæð m. innb. bílsk.
Fallegt hús á góðum stað. Sauna. Skipti
mögul. á minni eign.
Brattakinn. Lítlö, snoturt
endum. 84 fm einb. á ról. og góðum
stað. Endurn. gluggar, glar, raf-
magn, híti, ktæðning að gtan o.fl.
Verð 6,8 millj.
4ra herb. og stærri
Hverfisgata. 113 fm 5 herb. sérh.
á tveimur. hæðum í eldra timburh. Allt
sér. Áhv. húsbr. 2,7 millj. Verð 6,9 millj.
Sléttahraun. Falleg endurn. 4ra herb. íb.
á 2. hæð í nýviðg. og máluðu fjölb. Nýjar
innr., skápar, innihurðar, allt nýtt é baði.
Parket og flísar á gólfum. Toppeign. Áhv.
húsbréf 3,7 millj. Verð 7,6 millj.
Klukkuberg. Falleg ný og fullb.
4ra-5 herb. séríb. á tveimur hæöum
ásamt 26 fm bílsk. Vandaðar innr. Parket
og flísar. Sórinng. Frábært útsýni. Áhv.
góð lán 5,9 millj. Verð 11,5 millj.
Hvammabr./„Penthouse“
Falleg fullb. 109 fm íb. á tveimur hæöum.
Vandaðar innr. Parket. Aöeins 4 íb. á
stigagangi. Áhv. góð lán. Verð 9,5 millj.
Langeyrarvegur
Falleg talsv. endurn. 122 fm neðri sórh.
í góðu tvíb. Allt sér. Nýl. eldhinnr. Allt
nýtt á baöi. Parket. Útsýni út á sjóinn.
Áhv. húsbróf 4,4 millj. Verð 8,9 millj.
Reykjavíkurvegur. Góð ca 100
fm 4ra herb. sérhæð í góðu þríb. Suður-
lóð. Verönd. Áhv. húsbr. ca 4,0 millj.
Verð 6,8 millj.
Arnarhraun. Falleg, talsv. endurn.,
122 fm 4ra herb. neöri sérhæð í þríb.
Nýl. eldhinnr., parket o.fl. Góð áhv. lán
ca 3,9 millj. Verð 7,9 millj.
Kvíholt — skipti. Góð 142 fm
neðri sérhæð í góðu tvíb. ásamt 26 fm
bílsk. 4 svefnherb. Góð áhv. lán. Skipti
mögul. á ódýrari eign. Verð 10,9 millj.
Miðvangur — skipti. Efri sór-
hæö í tvíb. ásamt bílsk. Laus strax. Áhv.
veðdeild 4,2 millj. Skipti mögul. á 2ja-3ja
herb. íb. Verð 10,9 millj.
3ja herb.
Hvammabraut — skipti. Fal-
leg 91 fm 3ja herb. íb. á 2. hæð í góöu
fjölb. Góðar innr. Parket. Stórar svalir.
Gott útsýni. Áhv. byggsj. ca 3,2 millj.
Verð 7,9 millj.
Suðurbraut. Góö 91 fm 3ja herb.
íb. á efstu hæð í fjölb. Þvottah. og búr
innaf eldh. Suðursv. Fallegt útsýni. Verð
6,8 millj.
Miðvangur. Góð 97 fm 3ja herb.
íb. á 2. hæð. Þvottah. og búr innaf eldh.
Parket og flísar á gólfum. Verö 7,4 millj.
Háakinn. Góð, talsv. endurn., 3ja
herb. íb. á jarðhæð í þríb. ásamt 15 fm
vinnuaðst. í skúr á lóð. Áhv. góð lán 2,7
millj. Verð 5,5 millj.
Krókahraun. Falleg 94 fm 3ja herb.
íb. á 1. hæð í keöjuhúsi. Þvhús og búr
innaf eldh. Fráb. staösetn. Suðursv. Björt
og falleg eign. Áhv. góö lán ca 3,5 millj.
Verö 7,8 millj.
Grænakinn. Góð 3ja herb. íb. í kj.
Áhv. húsnstjlán ca 2,6 millj. Verð 5,7 millj.
Álfholt. Ný, falleg 75 fm neöri sérhæð
í litlu fjölb. Góðar innr. Parket, flísar. Sór-
lóð. Falleg eign. Verð 7,2 millj.
2ja herb.
Lyngmóar — Gbæ. 2ja herb. íb.
á efstu hæð í litlu fjölb. ásamt bílsk. Stór-
ar suðursvalir. Verð 6,9 millj.
I smíðum
Traðarberg — tvær íbúöir.
Ný 4ra herb. 125 fm íb. á 1. hæð í litlu
fjölb. tilb. u. trév. íb. fylgir 56 fm íb. á
jarðhæð m. sérinng. (tilb. u. trév.). Verð
11,0 millj.
Álfholt - skipti. 3ja-4ra herb.
atórar íb. Aukaherb. í kj. fylgir öllum íb.
Afh. tilb. u. trév. eða fullb. Sameign fráb.
Gott útsýni. Skipti möguleg á ódýrari
eignum. Verð frá 7,5 millj.
Úr þrotabúi steypu-
stöðvarinnar ÓSS hf.
Álfholt: 150 fm hæð og ris. Afh.
strax fullb. að utan og fokh. að Innan.
Klukkuberg: 4ra-5 hqrb. sérib.
Afh. strax fullb. aö utan og tilb. u.
trév að innan.
Hagamelur - Rvík. Góð
82 fm 3ja herb. íb. á jarðhæö í
góðu, litlu fjölb. Parket. Suður-
verönd og lóð. Verð 7,0 millj.
Álfaskeið — laus. Falleg talsv.
endurn. 3ja herb. 87 fm íb. ásamt 24 fm
bílsk. Nýjar huröar. Parket. Allt á baði.
Nýtt gler. Laus strax. Verð 7,5 millj.
Hörgsholt — tvær sérhæð-
ir. í einkasölu 144 fm efri sérhæð ásamt
bílsk. og 105 fm neðri sérhæð ásamt
. bílsk. Áhv. húsbr. á báðum íb. ca 5,6-5,8
millj. Afh. straxtilb. u. tróv., fullb. að utan.
Klukkuberg. 4-5 herb íb. á tveimur
hæðum. Tilb. u. trév. Til afh. strax.
Úthlíð. Falleg einnar hæöar raöhús á
fráb. stað. Húsin eru 107 fm ásamt 34
fm bílskúr. Skilast fullb. að utan og frá
fokh. uppí tilb. að innan. Verð frá 8,1 millj.
Fagrahlíð. 3ja herb. íbúðir í fjölb.
tilb. u. trév. Verð 6,9 millj.
Klapparholt - „Golfara-
húsið“. Vandaðar 112-132 fm íb.
með eöa án lyftu. Mögul. á bílsk. Tvennar
svalir.
Klapparholt — parhús
Atvinnuhúsnæði
Skútahraun - laust. 60 fm
fullb. bil með innkdyrum. Mögul. á milli-
lofti. Áhv. góð lán, 1250 þús. Verö 3,0
millj.
INGVAR GUÐMUNDSS0N lögg. fasteignas., heimas. 50992
JÓNAS HÓLMGEIRSS0N sölumaður, heimas. 641152.
Opið kl. 9-18
Laugardaga kl. 11-13
VALHÚS
FASTEIGNASALA
Reykjavíkurvegi 62
Vegna aukinnar sölu vantar all-
ar gerðir eigna á skrá þó sér-
staklega 2ja og 3ja herb. ibúðir
með langtímalánum.
Einbýli — raðhús
SÆVANGUR - EINBYLI
Vorum aö fá í einkasölu mjög vandað einb.
ásamt tvöf. bílsk. á einum stað í hverfinu.
Skipti mögu. ó seljanl. eign.
TÚNHVAMMUR - RAÐH.
Vandað og vel staðsett raðh. á tveimur
hæöum, ásamt bílskúr. Góð útiverönd. Til
greina kemur að taka 2ja-4ra herb. íb. uppí.
STEKKJARHV. - LAUS
Vorum að fá 4ra herb. 112 fm hæð og ris
ásamt bílsk. Allt sér. Góð lán. Verð 10,5
millj. Laus fljótl. Til greina kemur að taka
2ja-3ja herb. íb. uppí.
LJÓSABERG - PARH.
Vorum að fá parhús á tveimur hæðum. Á
efri hæð er 4ra herb. íb. ásamt innb. bílsk.
Neðri hæð er innréttuð sem tvær 2ja herb.
ósamþ. íb. m. sérinng. Áhv. góð langtlán.
Eignin getur losnað fljótl.
FURUBERG - EINBÝLI
Vandað 7 herb. 222 fm einbýli á einni hæð.
Bílskúr. Góð áhv. lán.
BREKKUHVAMMUR - HF.
5 herb. einbýli á einni hæð ásamt sólstofu.
Bílskúr. Verð 12,5 millj.
SMÁRAHVAMMUR - HF.
Nýtt og vandað einb. á einni hæð ásamt
rúmg. bílskúr. Góð staðsetn.
REYKJAVÍKURVEGUR - HF.
Vorum að fá 5-6 herb. 115 fm einbýli sem
skiptist í kjallara, hæð og ris. Húsið er mjög
mikið endurn. að utan sem innan.
ÁLFATÚN - KÓP.- LAUS
Vorum að fá 4ra-5 herb. fb. á 2. haeð
ásamt Innb. bdsk. f þessum vinsælu
húsum. Gaeti losneð fljótl.
HVAMMABRAUT
Vorum að fá til sölu 4ra-5 herb.
„penthouse“-íbúð f þessu vtnsæla
fjölþýli. Rúmgóðar svalir i suður.
HRAUNBRUN - HF.
Góð 5 herb. fb. á 1. hæð ásamt innb. bilskur.
HJALLABRAUT - HF.
5 herb. 122 fm íbúð á 1. hæð. Lækkað verð.
FLÓKAGATA - HF.
Góð 4ra-5 herb. neðri hæð í tvíbýli. Bílskúr.
MIÐVANGUR - SÉRHÆÐ
6 herb. 134 fm efri hæð í tvíb. Bílskúr. Góð
áhv. lán.
SUÐURGATA - HF.
Vorum að fá í einkas. 6 herb. 132 fm íb.
Fullbúin gullfalleg eign. á 1. hæð ásamt bíl-
skúr.
3ja herb.
FANNBORG - SERINNG.
Góð 3ja herb. íb. á 1. hæð í hjarta bæjar-
ins. Aðstaða fyrir aldraða s.s. bókasafn og
heilsugæsla. Verð 5,9 millj.
OFANLEITI - SÉRINNG.
Vorum eð fá 3ja herb. íb. á 1. hæð.
Sérinng. Sérlóð. Stæðl í bltskýll. Mjög
góð staðsetn.
BOÐAHLEIN
V. HRAFNISTU í HAFN.
Vorum aö fé til sölu íb. I þessu vin-
sæla hverfi f. eldri borgara. Bílskúr
fyfgir. Eígnin er laus nú þegar.
BREIÐVANGUR - LAUS
Vorum að fá mjög góða 4ra-5 herb.
112 fm (b. á 2. hæð f góðu fjölbýli.
Nýjar innr. i eldhúsi, þvottahúsi. Flís-
ar. Fullfrág. bílskúr.
HOLTSBUÐ - GBÆ
- EINB./TVÍB.
Vorum að fé mjög vel staðsett hús
sem skiptlst í 2 Ib. og tvöf. bflsk.
Upplýsingar á skrifst.
HNOTUBERG - EINB.
Vorum að fá 6-7 herb. 186 fm einb. Rúmg.
bílsk. Skipti mögul. á ódýrari eign.
HRAUNTUNGA - HF.
6 hb. einb. á einni hæð. Bílsk. Góð staðsetn.
HÁABERG - EINBÝLI
KLAUSTURHVAMMUR
RAÐHÚS
LYNGBARÐ - EINBÝLI
HEIÐVANGUR - EINBÝLI
MIÐVANGUR - RAÐHÚS
STEKKJAHVAMMUR
RAÐHÚS
SMYRLAHRAUN - RAÐHÚS
SMYRLAHRAUN - EINBÝLI
VESTURVANGUR - EINBÝLI
ÁLFTANES - EINBÝLI
4ra—6 herb.
ARNARHRAUN - SKIPTI
5 herb. 122 fm sérhæð. Björt og falleg íb.
Allt sér. Tjl greina kemur að taka 2ja-3ja
herb. íb. uppí.
ALFASKEIÐ - 4RA
4ra-5 herb. 110 fm (b. á 3. hæð, enda.
Bílskúr. Áhv. húsbr. 4,7 millj. Verð 8,2 millj.
LAUFVANGUR - 4RA-5
Góð 4ra-5 herb. endaíb. á 3. hæð í vin-
sælu fjölb. Gott útsýni.
ÁLFASKEIÐ - SÉRH.
4ra-5 herb. 109 fm hæð. Góð áhv. lán.
Verö 8,8 millj.
SUÐURGATA - HF.
Vorum 3Ö fá 4ro-5 herb. nýja nær
fullb. og fallega íb. á 1. hæð m. sér-
inng. Áhv. ca 6,0 miflj. húsbr. Laus
fljótl.
BREIÐVANGUR - 4RA
Góð 4ra herb. íb. á 2. hæð I góðu fjölb.
Verð 7,6 millj.
NORÐURBRAUT - SKIPTI
Gullfalleg 4ra herb. íb. í nýl. tvíb. Vönduð
eign. Skipti mögul. á 3ja herb. íb. í Hf.
HJALLABRAUT - 3JA
Talsvert endurnýjuð 92 fm ib. á 3. hæð í
vinsælu fjölb.
ÁLFASKEIÐ - BfLSKÚR
Vorum að fá 3ja horb. 90 fm ib. á
3. hæð ásamt bflskúr. Verð 7,2 millj.
MIÐVANGUR - 3JA
3ja herb. endaíbúð á 6. hæð í lyftuhúsi.
Verð 6,7 millj.
SKÚLASKEIÐ - 3JA
Vorum að fá 3ja herb. íb. á 2. hæð á falleg-
um stað v. Hellisgerði.
LAUFVANGUR - 3JA
Góð 3ja herb. íb. á 1. hæð/jarðh. i vinsælu
fjölb.
HRAUNHVAMMUR - HF.
Góð 3ja herb. neðri hæö I tvibýli. Allt end-
urnýjað að utan sem innan.
2ja herb.
BREIÐVANGUR - SER
Rúmg. 2ja herb. íb. á jarðh. Gæti verið 3ja.
ÖLDUGATA - HF.
2ja herb. efri hæð (ris) í tvíb. Verð 4,9 millj.
SUÐURVANGUR ~ 2JA
Vorum að fá mjög góöa 2ja herb.ib.
á 1. hæð í góðu fjölb. Góð lón.
HOLTSGATA — HF.
Góð 2ja herb. 52 fm miðhæð í þríbýli. Verð
4,2 millj.
LANGAMÝRI - GBÆ
Rúmg.. 2ja-3ja herb. íb. á 2. hæð ásamt
bílskúr.
GUNNARSSUND - HF.
2ja-3ja herb. ósamþ. risíb. Verð 3,6 millj.
I byggingu
SUÐURHV. - BÍLSK.
3ja herb. íb. Til afh. nú þegar tilb. u. trév.
FURUHLÍÐ - RAÐH.
Eigum aðeins eftir 1 hús af þessum vin-
sælu raðh. Teikn. á skrifst.
ÚTHLfÐ - RAÐH.
Til afh. nú þegar frág. að utan, fokh. að
innan.
BÆJARHOLT - 2JA OG 4RA
ÁLFHOLT - 4RA-5 HERB.
ÁLFHOLT - 3JA-4RA HERB.
Annað
HVALEYRARBRAUT
Vorum að fá verslunar- og iðnaðarhúsn. 554
fm ósamt 104 fm skrifsthúsn. Nýtt og að
mestu frág. hús. Mikil lofthæð og góðar
dyr. Húsið stendur á mjög góðum stað.
Teikn. á skrifst.
SKÚTAHRAUN
Vorum að fá 60 fm iðnhúsn. á einni hæð.
DALSHRAUN
120 fm iðnaðarhúsn. á einni hæð.
SUMARBÚSTAÐUR
Sumarbústaður i nágr. Borgarness, nær
fullbúin eign.
SUMARBÚSTAÐUR
40 fm sumarbústaður á eignarlandi í nágr.
Laugarvatns. Góð kjör.
SUMARBÚSTAÐALÓÐIR
Til sölu 5 eignarlóðir undir sumarbústað í
nágr. Laugarvatns. Uppl. á skrifst.
Gjörið svo vel að lita inn!
_ Sveinn Sigurjónsson sölustj.
Jp Valgeir Kristinsson hrl.