Morgunblaðið - 07.09.1993, Blaðsíða 1
64SIÐUR B
201. tbl. 81.árg.
ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Volvo og Renault sameinast um áramótin
Sameiningin mun
ekki leiða til fækk-
Reuter.
Borinn til grafar
unar starfsmanna
Billancourt. Reuter.
SÆNSKA bifreiðafyrirtækið Volvo og franska bifreiðafyrirtækið
Renault tilkynntu í gær að þau hygðust sameinast í eitt fyrirtæki
1. janúar nk. Verður hið nýja fyrirtæki sjötta stærsta bifreiðafyrir-
tæki veraldar og tuttugasta stærsta fyrirtæki í heimi. 65% af hluta-
fé fyrirtækisins verður í eigu franska ríkisins og 35% í eigu Volvo.
Carl Bildt, forsætisráðherra Svíþjóðar, fagnaði þessum tíðindum
í gær og sagði að nú hefði sænski bílaiðnaðurinn öðlast nauðsyn-
lega evrópska tengingu.
Forystumenn verkalýðsfélaga
voru einnig jákvæðir í garð samein-
ingarinnar og sögðu hana auka sam-
keppnishæfni fyrirtækisins og
tryggja atvinnuöryggi starfsmanna.
„Samkeppnishæfnin er það sem
skiptir máli og þar höfum við for-
skot á Frakkana. Líklega höfum við
aldrei verið eins vel undir þetta bún-
ir og einmitt nú,“ sagði Olle Ludvigs-
son, fulltrúi verkalýðsfélags iðnaðar-
manna hjá Volvo.
„Við stefnum að því að verða eitt
arðbærasta fyrirtækið í þessum iðn-
UNGUR palestínskur drengur lætur sorg sína í ljós er hann fylgir hinum sextán ára gamla Chazina Itah
til grafar á Gaza-svæðinu í gær. Itah var skotinn til bana af ísraelskum hermönnum er til uppþota kom í
EI Bureij-flóttamannabúðunum.
Talsmaður Frelsissamtaka Palestínu í Túnisborg vongóður
Vænta viðurkenningar
á næstu sólarhringxim
Túnisborir, Damaskus, Jcrúsalcm. Reuter.
aði,“ sagði Pehr G. Gyllenhammar,
stjórnarformaður Volvo, á blaða-
mannafundi í Frakklandi þar sem
tilkynnt var um sameininguna. Lagði
hann áherslu á að áfram yrðu fram-
leiddar bifreiðar undir vörumerkjum
jafnt Volvo sem Renault. Með sam-
einingunni áforma fyrirtækin hins
vegar að spara um 300 milljarða
króna fram til aldamóta. Hagnaður
Renault á fyrri helmingi þessa árs
nam 7,3 milljörðum króna og hagn-
aður Volvo 3,8 milljörðum króna.
Gyllenhammar sagði að starfs-
fólki yrði ekki fækkað vegna samein-
ingarinnar og að engin hætta væri
á að Volvo myndi hætta starfsemi
sinni í Svíþjóð.
Að mati sérfræðinga hefur sam-
eingin mesta þýðingu fyrir Volvo en
án hennar hefði framtíð fyrirtækis- '
ins verið í óvissu.
Ein helsta ástæða þess að samein-
ingin á sér stað nú eru áform frönsku
ríkisstjórnarinnar um að einkavæða
Renault og sagði Gerard Longuet,
iðnaðarráðherra Frakklands, að nú
hefði verið tekið nauðsynlegt skref
til þess að hægt væri að selja hluta-
bréf í fyrirtækinu.
ISRAEL og Frelsissamtök Palestínu, PLO, munu undirrita samning
um gagnkvæma viðurkenningu innan tveggja sólarhringa, að sögn
ónefnds talsmanns PLO í Túnis í gær. ísraelar krefjast breytinga á
stofnskrá PLO, vilja að samtökin hætti að boða eyðingu Ísraelsríkis
og mæla með hryðjuverkum. Er talsmaður PLO í Kaíró var spurður
hvort þjóðarráðið, útlagaþing samtakanna, þyrfti að koma saman
til að samþykkja slíkar breytingar svaraði hann að Yasser Arafat,
leiðtogi PLÓ, hefði fullt vald til að staðfesta breytingu á stofnskránni.
Deiluaðilar munu skiptast á bréf-
um þar sem viðurkenningin verður
staðfest. „Við erum að leggja síð-
ustu hönd á orðalag þessara bréfa,“
sagði Yoel Zinger, lögfræðilegur
ráðgjafi ísraelsstjómar í Jerúsalem.
Sendiherra ísraels í Bandaríkjun-
um, Itamar Rabinovitch, sagði í
viðtali við CAW-sjónvarpsstöðina í
gær að báðir deiluaðilar gerðu sér
grein fyrir þvi að framtíð hernumdu
svæðanna væri óráðin. Ekki væri
víst að niðurstaðan yrði sjálfstætt
ríki Palestínumanna „en það gæti
gerst“. Það hefur verið opinber
stefna ísraels um langa hríð að vísa
á bug hugmyndinni um sjálfstætt
Palestínuríki.
Arafat hélt til Egyptalands í gær
og mun eiga fund með Hosni Mu-
barak forseta í dag. Hann ræddi
við Hafez al-Assad, forseta Sýr-
lands, á sunnudag og mistókst að
fá hann til að lýsa yfir stuðningi
við samninginn. I yfirlýsingu stjórn-
valda í Damaskus sagði aðeins að
Palestínumenn hefðu rétt til að taka
þær ákvarðanir sem þeim sýndist.
Sýrlendingar og fleiri arabaþjóðir
hafa gagnrýnt leiðtoga Palestínu-
manna harðlega fyrir að hafa engin
samráð um samninginn við ísraela.
Assad hefur þó forðast að gagnrýna
sjálfan samninginn.
Ýmis harðlínusamtök Palestínu-
manna, er vilja enga samninga við
ísraela og telja Arafat hafa svikið
málstaðinn, hafa aðalstöðvar í
Damaskus. Fulltrúar þeirra neituðu
að ræða við Arafat sem vildi út-
skýra sjónarmið sín.
Leiðtogar sex arabaríkja við
Persaflóa, þ. á m. Saudi-Arabíu,
lýstu í gær yfir fullum stuðningi
við samninginn og sögðu að með
þessu væri stigið fyrsta skrefið til
þess að frelsa öll hernumdu svæðin,
einnig Jerúsalem. Flóaríkin hafa að
mestu hundsað Arafat síðan í
Persaflóastríðinu er PLO studdi
Saddam Hussein íraksforseta gegn
bandamönnum. Enn er óljóst hvort
ríkin sex, sem flest hafa miklar
tekjur af olíu muni styðja við bakið
á væntanlegum sjálfstjórnarsvæð-
um með fé.
í dag heldur Yasser Arafat til
flóaríkisins Óman til að leita eftir
fjárhagslegum stuðningi við vænt-
anlegt sjálfsstjórnarsvæði Palest-
ínumanna.
Reuter.
Páfi í Litháen
JÓHANNES Páll páfí er nú á ferð um Eystrasaltsríkin og er þetta
fyrsta heimsókn hans til fyrrum Sovétlýðvelda. Á sunnudag mess-
aði hann í Vilnius, höfuðborg Litháen, og hlýddu 100 þúsund
manns á messu hans þrátt fyrir hráslagalegt veður. Páfi vottaði
þeim 20 Litháum, sem létu lífið er sovéskir hermenn reyndu að
beija niður sjálfstæðisbaráttu Litháa í janúar 1991, virðingu sína.
Sagði hann þá hafa sýnt mikið hugrekki í baráttunni gegn kommún-
isma, sem væri hugmyndafræði er „virti Guð að vettugi og van-
virti hið mannlega". í gær messaði páfi í borginni Kaunas og hlýddu
aftur á annað hundrað þúsund manns á messu hans. Beindi hann
orðum sínum til yngri kynslóða og varaði þær við þeim hættum
sem fylgdu öfgakenndum trúarhópum og því nútíma samfélagi sem
leyfði allt.
Kasparov
með hvítt
í fyrstu
skákínni
London. Frá Margeiri Péturssyni.
GARY Kasparov heimsmeistari í
skák stýrir hvitu mönnunum í
fyrstu einvígisskákinni gegn Eng-
lendingnum Nigel Short sem hefst
hér í London í dag. Þeir tefla 24
skákir í Savoy-Ieikhúsinu í hjarta
borgarinnar. Mikið er fjallað um
einvigið i enskum fjölmiðlum.
Þeir Kasparov og Short tefla ein-
vígið á vegum eigin skáksambands
atvinnumanna sem þeir nefna svo.
Alþjóðaskáksambandið FIDE hefur
svipt Kasparov heimsmeistaratitlin-
um og Short áskorunarréttinum og
gengst fyrir eigin heimsmeistaraein-
vígi sem hófst í Hollandi í gær.
Það heyja þeir Jan Timman, Hol-
landi, og Anatólí Karpov, fyrrum
heimsmeistari frá Rússlandi, en Short
sigraði þá báða í einvígjum er hann
vann sér réttinn til að skora á Ka-
sparov. Fyi-stu skák þeirra í bænum
Zwolle lauk með sigri Karpovs, sem
hafði svart.
Sjá skákskýringu á bls. 55.