Morgunblaðið - 07.09.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1993
21
il og ómarkviss. Þar sem vel hefur
tekist til hefur skólastjórinn virkt
samráð og samvinnu við sitt kenn-
aralið og foreldra um stefnumið og
einstakar ákvarðanir. Kennara-
fundir, kennararáð og foreldrafé-
lagið mega og eiga að ræða mál-
efni skólans og nemenda hans án
þvingana eða sérstakrar stýringar
af hálfu skólastjórans. Hitt er líka
til að skólastjórinn líti á sig sem
valdsmann sem á að ráða öllu inn-
an skólans án afskipta annarra.
Ráðning kennara er hans einkamál
sem og stundatöflugerð, þ.e. hvaða
bekk hver kennari fær, hversu
marga tíma á viku hver fær að
kenna og hvenær vikunnar. Efni
kennarafunda er ákvarðað af skóla-
stjóranum og vandlega passað að
ekki sé hreyft við „óþægilegum"
málum. Fagleg umræða er tak-
mörkuð við þekkingarstig skóla-
stjórans. Kennarar vita sem er að
ef þeir ekki halda sig innan eðlilegs
ramma gætu þeir fengið minni yfir-
vinnu eða öðruvísi töflu en þeir
óskuðu eftir. Foreldrafélagið er á
„föndurstigi" og þess gætt að það
skipti sér ekki af „innri“ málum
skólans (það er velferð barnanna!)
eða eins og einn „þreyttur" skóla-
stjóri orðaði það á opnum fundi:
„Foreldrar eiga að vera heima hjá
sér og ala upp börnin sín, ég skal
sjá um skólann.“
Breytingar í átt til lýðræðis
Margt í yfirstjórn íslenska
grunnskólakerfisins þarf að breyt-
ast í takt við nútímakröfur um lýð-
ræði. Við eigum ekki að sætta okk-
ur við kerfi sem gengur út á að
vernda vanhæfa embættismenn.
Kerfi þar sem altalað er að embætt-
ismenn séu vanhæfir en enginn
segir frá af ótta við viðbrögð emb-
ættismannanna. Skólakerfið er fyr-
ir börnin og foreldra þeirra en ekki
fyrir embættismennina. í því ljósi
tel ég brýnt að eftirfarandi breyt-
ingar verði gerðar:
1. Stjórnunarleg afskipti ríkis-
Aðalsteinn Árnason
„Er raunhæft að ætla
að það verð sem fékkst
í þessum tilraunaút-
flutningi muni verða
meðalverð heildar-
framleiðslunnar sem
inniheldur marga mis-
munandi gæðaf!okka?“
verður um samkeppni að ræða frá
innanlandsmarkaði, munu þá ekki
erlendir kaupendur nota sér það
ástand til að ná fram lægra verði
héðan? Fram til þessa hefur greiðsl-
an verið tryggð með afurðalánum,
hvað með tryggingar og gjaldfrest
frá erlendum kaupendum? Einnig
verður að hafa í huga að það verð
sem hingað til hefur verið greitt
af innlendum aðilum er stað-
greiðsluverð og innt af hendi nán-
ast um leið og sláturtíð líkur. Þessa
þætti og vafalaust marga aðra verð-
ur að hafa í huga þegar fjallað er
ins af málefnum grunnskólans eiga
að minnka. Fræðsluskrifstofur á
að leggja niður og færa verkefni
og þjónustu þeirra til sveitarfélag-
anna eða haga starfseminni á ann-
an hátt. Smærri sveitarfélög geta
sameinast um rekstur skólaskrif-
stofu, rekstur skóla og annarra
úrræða eftir því sem þau telja þörf
á. Tryggja verður skólahald í fá-
mennum og fátækari sveitarfélög-
um með sérstökum greiðslum úr
ríkissjóði.
2. Leitað yrði leiða til að koma
í veg fyrir flokkspólitískar ráðning-
ar. ítarleg skilgreining á starfs-
skyldum skólastjóra, bæði fagleg-
um og stjórnunarlegum, verður að
koma til og í framtíðinni verði þeir
ráðnir m.t.t. hæfni til að fram-
fylgja þeim. Ráðningar í stöðu
skólastjóra, sem og aðrar stöður,
verði með þriggja mánaða upp-
sagnarfresti.
3. Endur-og framhaldsmenntun
skólastjóra og kennara verði stór-
efld. Jafnframt verði launamál
þeirra endurskoðuð m.t.t. aukinnar
menntunar.
4. Sérkennslumál grunnskólans
verði endurskoðuð af fagaðilum
eins og verið er að gera um alla
Evrópu. Leitað verði svara við því
af hveiju 15-20% af nemendum
þurfa sérkennslu, sem kostar
fimmtung heildarkostnaðar grunn-
skólanna. Umræður, athuganir og
fræðsla verði sett af stað um sér-
kennslu þar sem sálfræðileg þekk-
ing er nýtt.
5. Unnar verði skýrar reglur um
rekstur einkaskóla bæði hvað varð-
ar faglegar kröfur og skyldur og
hvað varðar fjárhagslegan grund-
völl þannig að kennarar, skólastjór-
ar, foreldrar eða félagasamtök geti
í auknum mæli tekið að sér rekstur
skóla á eigin ábyrgð.
Höfundur er s&lfræðingur, for-
stöðumaður við Fræðsluskrifstofi
Reykjavíkurumdæmis.
um mismun á hrágæruverði hé
heima og erlendis.
Höfundur áðurnefndrar greina
telur að auka hefði mátt tekjui
bænda á seinustu fimm árum urr
500 milljónir með útflutningi á hrá-
gærum (hefur hann tekið tillit til
áðurnefndra þátta í þeim útreikn-
ingi?), á þessu sama tímabili hefur
skinnaiðnaðurinn flutt út sínar af-
urðir fyrir um 3 til 4 milljarða og
þar að auki skapað yfir 200 ársverk
á hveiju ári.
Sala innanlands/erlendis
Haft var eftir formanni Land-
sambands sauðfjárbænda í svæðis-
útvarpi Norðurlands að hann telji
rétt að flytja út gærur til að fá
samanburð á verði innanlands og
erlendis. Þetta hlýtur að hafa i föi
með sér að tugir ársverka í skinna-
iðnaði verði flutt úr landi, því þac
er augljóst mál að ekki fæst réttui
samanburður nema töluvert mikic
magn af gærum sé flutt út þannij
að meta megi hvernig markaðurim
bregst við. Væri ekki mun hag
kvæmara fyrir alla aðila að ses
verði við samningsborðið og reyn
til hlítar að ná verðviðmiðun sen
allir geta sætt sig við svo ekki þurf
að koma til útflutnings. Ég er vísí
um að þegar upp verður staðið mur
þetta verða heillavænlegast fyrii
okkur öll. Útflutningur á hrágærum
gæti haft í för með sér að því mikla
markaðs- og þróunarstarfi sem
unnið hefur verið hér yrði kastað
fyrir róða um leið að grafið yrði
undan framtíð skinnaiðnaðar hér á
landi. Ég trúi því ekki að þetta sé
almennt vilji sauðfjárbænda og
vona að þeir horfi til framtíðar og
sjái þann hag sem felst í fullvinnslu
skinna innanlands.
Ég veit að staða bænda er mjög
erfið en vona þó áð þið skoðið þetta
mál ofan í kjölinn og sjáið ykkur
hag í því að taka þátt í að byggja
upp öflugan innlendan skinnaiðnað
um leið og þið aukið hróður og
bætið ímynd bændastéttarinnar
með ábyrgri afstöðu í þessu máli.
Höfundurinn cr kerfisfræðingiir
og starfar hjá Rekstrarfélagi ÍSI.
S E R H Æ F T
S KRIFSTOFUTÆKNINÁM
HNITMIÐAÐRA
ÓDÝRARA
VANDAÐRA
STYTTRI NÁMSTÍMI
Verð á námskeið
er 4.956,-krónnr
á mánuði!*
KENN SLU GREINAR:
- Windows gluggakerfi
- Word ritvinnsla íyrir Windows
- Excel töflureiknir
- Áætlanagerð
- Tölvufjarskipti
- Umbrotstækni
- Teikning og auglýsingar
- Bókfærsla - o.fl.
Sérhæfð skrifstofutækni er markvisst
nám íyrir alla, þar sem sérstök áhersla
er lögð á notkun tölva í atvinnulífinu.
Nýjar veglegar bækur íylgja með náminu.
Engrar undirbúningsmenntunar er krafist.
Innritun fyrir haustönn er hafin.
Hringdu og fáðu sendan bækling
eða kiktu til okkar í kaffi.
Tölvuskóli RevkJavíkur
BORGARTÚNI 28. 105 REVKJAUÍK. sífrii 616699. fax 616696
•Skuldabréf í 20 mán. (19 afborganir), vextir eru ekki innifaldir.
m viuum ,
MINNA MG A.
Merktu við þennan lista svo þú gleymir engu
□ Skólatöskur
□ Skjalatöskur
□ Leikskólatöskur
□ Rennaveski
□ Skrifundirlegg
□ Stílabœkur
□ Reikningsbcekur
□ Glósubœkur
□ Hringbœkur
□ Laus blöö
□ Fónablöö
□ Skýrslublokkir
□ Millimetrablokkir
□ Vélritunarpappír
□ Skrifblokkir
□ Minnisblokkir
□ Kiemmuspjöld
□ Plastmöppur
□ Plastumslög
□ Blekpennar
□ Kúlupennar
□ Kúlutússpennar
□ Filttússpennar
□ Glœrupennar
□ Áherslupennar
□ Reglustikur
□ Horn
□ Skœri
□ Bökaplast
□ Trélitir
□ Tússlitir
□ Vatnslitir
□ Vaxlitir
□ Blýantar
□ Teikniblýantar
□ Fallblýantar
□ Yddarar
□ Strokleöur