Morgunblaðið - 07.09.1993, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1993
33
Auglýsingar
Paul Arden á íslandi
AUGLÝSINGAMAÐURINN og hugmyndasmiðurinn Paul Arden er
væntanlegur hingað til lands í boði auglýsingastofunnar Góðs fólks.
Arden mun halda hér fyrirlestur þar sem hann fjallar m.a. um list-
ina að gera góða auglýsingu og samstarf auglýsenda og auglýsinga-
fólks. Þá mun Arden ræða þá þróun sem hefur átt sér stað í auglýs-
ingaheiminum undanfarin ár ásamt því að kynna verk sín, ræða til-
urð þeirra og svara fyrirspurnum.
Þeir sem starfa að auglýsinga-
og markaðsmálum þekkja flestir til
Pauls Arden og verka hans, enda
einkennast þau af frumleika og
ferskum vinnubrögðum eins og seg-
ir í frétt frá Góðu fólki. Arden hef-
ur samið og stjórnað margverðlaun-
uðum herferðum undanfarinn ára-
tug og verið í sveit fremstu auglýs-
ingamanna í heiminum. Meðal
þekktra verka hans má nefna aug-
lýsingar um Silk Cut sígarettur,
British Rail og British Airways.
Paul Arden stjórnaði hugmynda-
smíði hjá Saatchi & Saatchi í Lond-
on um árabil, en rekur nú sitt eigið
fyrirtæki, Arden Sutherland-Dodd.'
Fyrirlestur Ardens verður í A-sal
á Hótel Sögu, fimmtudaginn 9.
september og hefst kl. 13.30. Verð
aðgöngumiða er 3.500 krónur og
eru innifalin fyrirlestrargögn og
léttar veitingar. Fyrirlesturinn er
öllum opinn og má panta miða hjá
Góðu fólki.
Bandarísk ferðaskrifstofa óskar eftir
EINUM starfsmanni til að opna útibú á íslandi.
Þarf að tala ensku og geta gert greiðslukortasamning við íslenskan banka
(Visa, Mastercard). Engrar starfsreynslu krafist, við sjáum um þjálfun.
Byrjar smátt - vex hratt. Sendið persónulegar upplýsingar til:
Innovative Travels
P.O. Box 6, Jackson, Wisconsin, 53037 USA
U
FYRIRLESARINN -
Paul Arden verður með fyrirlest-
ur hér á landi fimmtudaginn 9.
september nk.
Norðurlönd
Góð afkoma Skandia afleið-
ing verðhækkunar á eignum
HAGNAÐUR af rekstri tryggingafélagsins Skandia var um 7,3 millj-
arðar króna fyrstu sex mánuði ársins, en á sama tíma í fyrra var
tap um 3,4 milljarðar. Stjórnarformaður fyrirtækisins þakkar betri
afkomu verðhækkun eigna og hagstæðum gengisbreytingum.
Skipasmíði
Stálsmiðjan fær 90
milljónir króna til
endurlána íRússlandi
Tryggingadeild útflutningslána
ábyrgist endurgreiðslu
FYRSTI rússneski togarinn af þremur er væntanlegur í Stálsmiðj-
una innan fárra daga, en fyrirtækið hefur tekið að sér breytingar
á þremur skipum. Útflutningslánasjóður hefur lánað 90 milljónir
króna til verksins, en Stálsmiðjan endurlánar féð til eigenda togar-
anna sem er fyrirtækið Karelrybflot í Múrmansk. Tryggingadeild
útflutningslána hefur gert samninga við Iðnlánasjóð um ábyrgð á
lánunum, sem nær til vanefnda hvort heldur af pólitiskum eða við-
skiptalegum orsökum.
Iðnlánasjóður tók við rekstri Út-
flutningslánasjóðs í mars, en hann
var áður í eigu Landsbanka íslands
og Seðlabankans. Meirihluti lána
sjóðsins eru samkeppnislán til inn-
lendra framleiðenda véla og tækja
fyrir íslenskan sjávarútveg. Féð er
endurlánað kaupendum í samvinnu
við viðskiptabanka lánþega Iðn-
lánasjóðs.
Heildarútlán Iðnlánasjóðs á árinu
eru áætluð um 215 milljónir króna.
Á síðasta ári lánaði sjóðurinn 232
milljónir króna. Megin orsök sam-
dráttar í útlánum eru minni fjárfest-
ingar í sjávarútvegi, ekki síst minni
smíði á trefjaplastbátum til trilluút-
gerðar. Vextir af útlánum sjóðsins
hafa lækkað úr 8,1% í upphafi árs
í 7,0% nú.
Markaðsvirði fjárfestinga fyrir-
tækisins hefur vaxið um 15% frá
áramótum, en á sama tíma óx eigic'
fé um fjórðung. Bjöm Wolratl
stjórnarformaður segir í fréttatil
kynningu frá Skandia að mikil verð
hækkun eigna hafi stuðlað að þess
ari góðu afkomu. „Afkomubatan:
má einnig þakka nýrri stefnu
rekstri fyrirtækisins og viðleitr
okkar til þess að „breyta rétt“ oj
nota þá þætti sem við höfum úr a>
spila á hagkvæman hátt. Við sjáun
greinilegan árangur stefnumótuna
fyrirtækisins sem miðar að því ac
draga úr áhættu og minnka umsvii
á alþj óðavettvangi. “
Tveir stærstu hluthafar í Skan-
dia, UNI Storebrand í Noregi og
Hafnia Holding í Danmörku, seldu
nýlega hlutabréf sín. Hlutur fyrir-
tækjanna í Skandia var um 40%.
Kaupendur voru um eitt hundrað
stórir alþjóðlegir íjárfestingasjóðir.
Stjórnendur Skandia lýsa ánægju
sinni með þessi viðskipti, þar sem
þau hafi eytt þeirri óvissu sem ríkti
um eignarhald fyrirtækisins.
Hinn frægi breski hugmyndasmiður og
auglýsingamaður Paul Arden heldur fyrirlestur
á Hótel Sögu fimmtudaginn 9. september nk.
Paul Arden hefur samið og stjórnað
margverðlaunuðum auglýsingaherferðum
undanfarinn áratug og verið í sveit fremstu
auglýsingamanna f heiminum.
Á fyrirlestrinum mun Paul Arden m.a. fjalla
um „listina að gera góða auglýsingu", samstarf
auglýsenda og auglýsingagerðafólks, ræða þá
þróun sem átt hefur sér stað í auglýsinga-
heiminum undanfarin ár, vanda hans, kosti
og galla. Þá mun Arden kynna verk sín, ræða
tilurð þeirra og svara fyrirspurnum.
Verð aðgöngumiða er 3.500 kr. og innifalið
eru fyrirlestrargögn og léttar veitingar.
Þátttökuskráning á fyrirlesturinn er hjá
auglýsingastofunni Góðu fólk í síma 685466.
Fyrirlesturinn, sem er öllum opinn, verður
í sal A á Hótel Sögu og hefst kl. 13:30.
G □ T T F □ L K
I FÉLAG ÍSLENSKRA TEIKNARA
Flug
Samstarf Flugleiða
og FN ekki útilokað
BÆJARSTJÓRNIR Sauðárkróks og Húsavíkur hafa sent Halldóri
Blöndal samgönguráðherra erindi þar sem lýst er yfir megnri
óánægju vegna skertrar þjónustu Flugleiða við bæinn. Sömuleiðis
hafa fulltrúar Húsavíkurbæjar lýst yfir óánægju með þróun mála.
Flugleiðir útiloka ekki að tekið verði upp samstarf á flugleiðinni til
Sauðárkróks við Flugfélag Norðurlands.
Ráðuneytið hefur ekki tekið af-
stöðu til erindisins, að sögn Þór-
halls Jósepssonar, deildarstjóra í
samgönguráðuneytinu.
Flugleiðir hafa sérleyfi á flugleið-
inni Reykjavík-Sauðárkrókur-
Reykjavík. Félagið hefur átt í við-
ræðum við fulltrúa Sauðárkróks-
bæjar og kom sú umræða upp á
þeim fundi hvort það myndi leiða
til betri þjónustu ef svipað fyrir-
komulag yrði haft um flug þar og
viðgengst á Húsavík þar sem Flug-
leiðir og Flugfélag Norðurlands
deila með sér flugleiðinni.
Þjónustan meginatriðið
Kolbeinn Arinbjamarson hjá
Flugleiðum segir um vanda Sauð-
krækinga að óski bæjarstjórn þess
að annar aðili komi til hliðar við
Flugleiðir á flugleiðinni muni félag-
ið skoða það gaumgæfilega hvort
það gangi upp. „Væntanlega yrði
það þá aðili úr þessum landsfjórð-
ungi,“ segir Kolbeinn. Tæknileg
útfærsla á því væri ekki meginatrið-
ið heldur þjónustan við svæðið.
Hann útilokar hins vegar ekki þann
möguleika að Flugleiðir og Flugfé-
lag Norðurlands taki upp einhvers
konar samstarf á þessari flugleið.
#
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSNÆÐISBRÉF 1. FLOKKUR 1993
8. Uppboð - 7. september 1993
Áttunda uppboð húsnæðisbréfa fer fram 7. september
n.k. Frestur til þátttöku rennur út kl. 14:00 þann dag og
þurfa bindandi tilboð í bréfin að hafa borist Húsnæðis-
stofnun ríkisins. Húsnæðisbréf eru gefin út í tveimur
einingum, 1 m.kr. og 10 m.kr. að nafnverði. Húsnæðis-
bréf eru verðtryggð með lánskjaravísitölu til 20 ára með
39 jöi'num greiðslum vaxta og afborgana. Upplýsingarit
ásamt tilboðsgögnunt liggja frammi hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins, Suðurlandsbraut 24, Reykjavík og
nánari upplýsingar um útboðið veitir verðbréfadeild
stofnunarinnar.
HANQSALJ
Z
o
xhvsonvh
HANDSAL H F
LÖGGILT VEROBICÉrAFYRIRT/tKl ■ AÐILI AÐ VERDBRf.FAHNGI ÍSLANDS
ENGIATEIGI 6 ■ 105 REYKJAVÍK ■ SÍMI 686111 ■ FAX 687611