Morgunblaðið - 07.09.1993, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1993
55
Einvígi einvíganna
Skák_______________
Margeir Pétursson
ÁÐUR ókunn staða er komin upp
í skákheiminum nú þegar tvö
einvígi um heimsmeistaratitilinn
eru að hefjast á sama tíma.
Keppnin á milli þeirra Kasp-
arovs og Shorts í London virðist
vera sú eina rétta, en þeir hafa
sagt sig úr lögum við alþjóða-
skáksambandið FH)E og það
átti ekki annarra kosta völ en
að fara eftir eigin reglum og
halda einvígi varamanna um
heimsmeistaratitilinn, sem verið
hefur undir lögsögu sambands-
ins frá því eftir seinni heims-
styijöld. Skipuleggjendur þess-
ara tveggja einvíga heyja nú
hatramma baráttu um athygli
fjölmiðlanna. Sigurvegarinn,
hvort sem það verður FIDE eða
atvinnumannasambandið, getur
átt von á auknum auglýsinga-
tekjum og stuðningi styrktarað-
ila við keppnir sínar í framtíð-
inni.
FIDE varð um helgina að játa
sig sigrað á mikilvægu sviði áróð-
ursbaráttunnar. Það kom í ljós að
fullyrðingar sambandsins um að
verðlaunasjóðurinn hjá þeim Timm-
an og Karpov væri hæiri en í ein-
víginu í London voru rangar. Ekki
tókst að afla neins teljandi verð-
launafjár í Hollandi og það er ljóst
að Arabaríkið Óman fjármagnar
hann allan, en þar verður seinni
hlutinn tefldur. Samt verður um
himinháa fúlgu að ræða, eða tæp-
lega eitt hundrað milljónir íslenskra
króna, sem er u.þ.b. helmingi minni
en hjá þeim Kasparov og Short.
Keppendumir hér í London hafa
ekkert sparað í undirbúningi sínum
fyrir einvígið. Aðstoðarmenn Kasp-
arovs eru allir frá fyrrum Sovétríkj-
unum, þeir Zurab Azmaiparashvili
frá Georgíu, Alexander Beljavskí
frá Úkraínu og Rússinn Sergei
Makarisjov, sem á árum áður var
hjálparkokkur Karpovs. Auk þess-
ara hefur Kasparov m.a. kokk og
tvo íþróttaþjálfara í þjónustu sinni.
Hann hefur dvalið í æfingabúðum
í Króatíu í sumar og m.a. náð að
lyfta hundrað kílóa lóðum.
Short hefur einnig lagt mikla
áherslu á líkamlega þjálfun en eng-
ar sögur fara þó af lyftingaafrekum
hans, enda maðurinn ekki sérlega
kraftalegur, heldur hár og renglu-
legur. Hann hefur sett það á odd-
inn að auka úthaldið. Aðstoðar-
menn hans standa liði Kasparovs
síður en svo að baki. Þeir eru
Lubomir Kavalek, Tékki sem hefur
búið rúm 20 ár í Bandaríkjunum,
nágranni hans og félagi úr enska
landsliðinu, nærsýna grænmetis-
ætan Jonathan Speelman og nýj-
asti liðsaukinn er dr. Robert Hubn-
er, fremsti skákmaður Þjóðveija
um áratuga skeið. Hubner er
þekktur fyrir afar fagmannleg og
nákvæm vinnubrögð við skákrann-
sóknir og hann er sá skákmaður
sem síðast sigraði á alþjóðaskák-
móti.
Skákæðið frá 1972
endurvakið
Fram að þessu hefur skáklistin
staðið í skugga miklu vinsælli
keppnisgreina hér á Englandi, en
einvígishaldið virðist þó hafa farið
framhjá fáum eins og pistlahöfund-
ur staðreyndi strax við komuna til
landsins. Eftir að hafa sagt að ég
væri að fara á einvígið þurfti ég
ekki að svara ferkari spurningum
frá starfsmenni útlendingaeftirlits-
ins. „Auðvitað veit ég allt um ein-
vígið, þetta er nú meira hvað þeim
er illa hvorn við annan,“ sagði
hún. Lítilsvirðandi ummæli þeirra
Kasparovs og Shorts í hvors ann-
ars garð höfðu greinilega ekki far-
ið framhjá henni. Englendingurinn
hefur tekið algera forystu í móðg-
unum. Á meðan heimsmeistarinn
hefur látið duga að segja að and-
stæðingurinn væri ekki verðugur
mótheiji hefur Short sakað hann
um að hafa notað tengsl sín við
leyniþjónustu kommúnista, KGB,
sér til framdráttar og að líta út
eins og api á sundskýlu.
Fjölmiðiar kunna vel að meta
þetta. Forsíðan á því kunna viku-
blaði Spectator er helguð einvíginu
og ritstjóri þess er kominn í tveggja
mánaða leyfi frá störfum til að
skrifa bók um það.
íslands er víða getið í sambandi
við einvígishaldið vegna keppni
þeirra Fischers og Spasskís í
Reykjavík 1972. Dálkahöfundur í
stórblaðinu The Times, George
Steiner, háskólaprófessor í Genf,
lætur ekki nægja að rifja upp Is-
landsdvöl sina frá 1972, heldur
telur hann upp bókmenntaverk þar
sem tafl kemur við sögu og hefur
þar íslendingasögurnar efstar á
blaði.
Tveggja mánaða samfelld skák-
hátíð er fyrirhuguð hér í London á
meðan á einvíginu stendur. Meira
að segja einvígismennirnir sjálfir
hafa tekið þátt í uppákomum til
að auka áhugann og til styrktar
góðgerðarstarfsemi. Stórmeistarar
tefla sýningarskákir, teflt er með
lifandi mönnum og sérstök áhersla
lögð á mót barna og unglinga.
Skólameistarar Bandaríkjanna,
ungir blökkumenn frá Harlem-
hverfmu í New York, eru í borg-
inni og kalla sig „Raging rooks“
eða Hrókana hræðilegu. Það vakti
athygli á landsvísu í Bandaríkjun-
um þegar þessir drengir frá einu
ömurlegasta fátækrahverfí Banda-
ríkjanna unnu óvæntan sigur á
sviði sem nemendur betri skólanna
höfðu einokað.
Rétt eins og á íslandi 1972 hef-
ur ótrúlegasta fólk fengið áhuga á
skák. Hingað á einvígið hafa verið
Timman og Karpov settust að skákborðinu í gær og Karpov fór
með sigur af hólmi í fyrstu einvígisskákinni.
sendir blaðamenn sem vita sumir
afar lítið um skák. Vinalegur blaða-
maður frá ensku sveitablaði vildi
vita hvað þeir Kasparov og Short
tefldu margar skákir. Hann spurði
mig: „Tefla þeir ekki tíu skákir
hvor?“ Blaðið hans birtir sinn fyrsta
skákþátt á morgun og það er
greinilegt að hann verður að læra
mikið á stuttum tíma.
Raymond Keene, aðalskipuleggj-
andi einvígisins í London og skák-
dálkahöfundur The Times sem
stendur fyrir keppninni ásamt
Teleworld í Hollandi sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að nú væri í
gangi „mesta áróðursherferð í sögu
skáklistarinnar". The Times hefur
látið prenta tvær milljónir skák-
korta með reglunum og daglega
keppa lesendur blaðsins um þúsund
punda verðlaun fyrir að ráða skák-
dæmi. Keene sagðist mjög ánægð-
ur með viðbrögð almennings og
miðar á fyrstu skákina eru uppseld-
ir.
Fyrsta skák FIDE-einvígisins
Anatóli Karpov, sem flestir spá
öruggum sigri á Timman, vann
fyrstu skákina í gærkvöldi. Hol-
lendingurinn tefldi byijunina afar
frumlega og fékk hættuleg sóknar-
færi. Karpov varðist af nákvæmni,
náði að hrinda sókninni eftir æsi-
legar sviptingar og fá betra enda-
tafl. Það bendir fátt til þess að ein-
vígið verði spennandi:
Hvítt: Jan Timman
Svart: Anatólí Karpov
Caro-Kann vörn
1. e4 - c6, 2. d4 - d5, 3. Rd2
— dxe4, 4. Rxe4 — Rd7, 5. Bc4
— Rgf6, 6. Rg5 — e6, 7. De2 —
Rb6, 8. Bd3 - h6, 9. R5f3 - c5,
10. dxc5 — Bxc5,11. Re5 — Rbd7,
12. Rgf3 - Dc7, 13. Bf4 - Bb4+,
14. Rd2 - Bxd2+, 15. Kxd2 -
0-0, 16. Hhdl - Db6, 17. Rc4 -
Dc6, 18. Df3 - Rd5, 19. g3 -
Rc5, 20. Bxh6 - gxh6, 21. Dg4+
- Kh8, 22. Re5 - Da4, 23. Dh5
- Kg7, 24. Rg4 - Hh8, 25. Re5
- Hf8, 26. Rg4 - Hh8, 27. Re5
- De8, 28. Dg4+ - Kf8, 29. Dd4
— Rxd3, 30. Rg6+ — fxg6, 31.
Dxh8+ — Ke7, 32. Dxe8+ —
Kxe8, 33. Kxd3 - b5, 34. Hel -
Ke7, 35. He5 - g5, 36. Hael -
Kf6, 37. H5e4 - Bd7, 38. h4 -
Hf8, 39. c3 - a5, 40. Kd4 -
Hc8, 41. f3 - a4, 42. Hcl -
Re7, 43. Kd3 - e5, 44. Ke2 -
Be6, 45. Kf2 - Bxa2, 46. Hcel
— Hc5, 47. hxg5+ — hxg5, 48.
f4 — Rg6, 49. fxe5+ — Rxe5, 50.
Hd4 - IId5, 51. Hxd5 - Bxd5,
52. Ke3 - Bc4, 53. Hdl - Kf5,
54. Hd4 - Rd3, 55. g4+ - Ke5,
56. He4n— Kf6 og Timman gafst
upp.
Harlem Globe-
trotters koma
í október
KÖRFUBOLTALIÐIÐ Harlem
Globetrotters kemur til íslands
11. október nk. og keppir tvisvar
við landa sína í liðinu Washington
Generals. Fyrri leikurinn verður
í Reykjavík og sá seinni á Akur-
eyri.
í fréttatilkynningu kemur fram
að leikmenn Harlem Globetrotters
séu þekktir fyrir skemmtilegan leik
og mikla leiktækni. Liðin tvö hafi
oft att kappi, en til þessa hafi Harl-
em Globetrotters borið sigur úr
býtum. Washington Generals hygg-
ist hefna harma sinna hér í október
og megi því vænta baráttuleikja.
Harlem Globetrotters ferðast
víða um heim og hafa sýnt listir
sínar í 110 þjóðlöndum. Liðið er að
hefja keppnisferð um Evrópu og
verður þetta í annað skiptið sem
Harlem Globetrotters heimsækja
ísland.
U nglingaklúbburinn Sporið
endurvakinn hjá Hermanni
Körfubolti
ÆRSLABELGURINN „Sweet“
Lou Dunbar í Harlem Globetrott-
ers deilir hér við dómarann.
Leikmenn liðsins eru þekktir fyr-
jr skemmtileg uppátæki á keppn-
isvellinum.
Morgunblaðið/Kristinn
Nær tvöföldun rýmisins
SETBERGSSKÓLA hefur nú bæst við 1.600 fermetra rými, sem
meðal annars mun hýsa verkmenntastofur og mötuneyti nemenda.
Ný álma við Setbergsskóla
NÝ ÁLMA hefur verið tekin í
notkun í Setbergsskóla í Hafnar-
firði. Viðbótin er um 1.600 fer-
metrar að stærð, eða um 40% af
heildarrými skólans. Auk þess
var í sumar gengið frá skólalóð-
inni. Að sögn Lofts Magnússonar
skólas^óra hefur skólastarfið
gengið vel, en börnin komu hvert
úr sinni áttinni í hið nýja hverfi.
Setbergsskóli var opnaður árið
1989, en með hinni nýju álmu bætt-
ist við skólann mötuneyti nemenda,
heimilisfræði-, smíða- og hannyrða-
stofur, myndlistarstofa og raun-
greinastofa, auk sjö almennra
kennslustofa og rýmis fyrir sér-
kennslu.
í skólanum er boðið upp á að
börn geti verið allan daginn í skól- T , ,
anum, en boðið verður upp á hið EyklílVOlCllIl VGltt
sama í haust í Hafnarfirði. Alls INGVAR Viktorsson, bæjarstjóri
stunda 475 börn nám við skólann, í Hafnarfirði, veitir hér Lofti
á aldrinum 6-16 ára, og kennarar Magnússyni skólastjóra lykla-
eru 33. völdin að hinni nýju álmu.
DANSSKÓLI Hermanns Ragnars
er nú að hefja 36. starfsár sitt.
I vetur verður sérstök áhersla
lögð á danskennslu unglinga. I
því skyni hefur unglingaklúbb-
urinn Sporið verið endurvakinn
og hefst starfsemi hans með
opnu kynningarkvöldi annað
kvöld.
Sporið er ætlað unglingum á
aldrinum 13 til 15 ára. Innan
klúbbsins gefst unglingum tækifæri
til að æfa dans og njóta leiðsagnar
um mannleg samskipti, kurteisi og
framkomu þegar skemmtistaðir eru
heimsóttir. Klúbburinn er fyrir
unglinga sem vilja læra að dansa
og skemmta sér án áfengis. Haldin
verða tíu klúbbkvöld á skemmti-
staðnum Ömmu Lú og verður sér-
stakt kynningarkvöld miðvikudag-
inn 8. september klukkan 19.30.
Aðgangur að kynningarkvöldinu er
ókeypis en þátttöku verður að til-
kynna í dag. Námskeiðinu lýkur
með skemmtiferð í Nesbúð við
Nesjavelli.
Auk unglingaklúbbsins býður
Dansskóli Hermanns Ragnars upp
á jassleikskóla fyrir börn, kennslu
í barnadönsum, steppi, samkvæm-
isdönsum fyrir alla aldurshópa og
keppnisdönsum svo nokkuð sé talið.
(Úr frcttatilkynningu)
7.9. 1993 Nf. 346
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4100 0004 0072
4543 3718 0006 3233
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4506 43**
4543 17**
4560 09**
4938 06**
4506 21**
kort úr umferö og sendið VISA íslandi
sundurklippt.
VERÐLAUN kr.5000,-
fyrir að klófesta kort og visa á vágest.
Höfðabakka 9 • 112 Reykjavlk
Slmi 91-671700
4507 46**
4560 08**
4920 07**
4988 31**
efþ ú spilar tíl að vinna!
35Jieikvika^^^^eptenib«^99^J
Nr. Leikur: Röðin:
1. Assyriska - Luleá 1 - -
2. Spánga - UMEÁ - - 2
3. IFK Sundsvail - OPE 1 - -
4. Elfsborg - Kalmar FF - - 2
5. GAIS - Myresjö 1 - -
6. Gunnilse - Lund - X -
7. Hassleholm - Oddevold 1 - •
8. Landskrona - MjSllby 1 - -
9. Birmingham - Derby 1 - -
10. Bolton - C. Palace - - 2
11. Middlesbro'- Leicester 1 - -
12. Watford - Chariton - X -
13. WBA - Wolves 1 - -
HeUdarvinningsupphseðin:
83 milljón krónur
13 réttir: í
12 réttir:
11 rcttir:
10 réttir:
39UI00
5.580
620
] kr'
-I
2kr-
2kr