Morgunblaðið - 19.09.1993, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1993
W • A • M • A- M
í NÁMUNNI, námsmannaþjónustu Landsbanka íslands,
bíður þín m.a. eftirfarandi:
* Einkareikningurrtékkareikningur með dagvöxtum.
* Hagkvæmar sparnaðarleiðir með Reglubundnum
sparnaði.
* Námureikningslán á hagstæðum kjörum.
* Spariveltulán.
* Sveigjanlegar afborganir lána.
* 7 námsstyrkir árlega.
1 Námslokalán.
* Ráðgjöf og upplýsingaþjónusta.
* Þjónustufulltrúi sem aðstoðar við gerð fjárhagsáætlana.
* Greiðslukort, Euro eða VISA.
* Minnisbók, án endurgjalds, við upphaf viðskipta.
* Hressilegar tómstundir.
* Ýmis fyrirgreiðsla við námsmenn erlendis.
ÁLAFOSSB ÚÐIN
Utsala á postulíni,
, glervörum og öðrum
gjafavörum.
Ath. vegna hreytinga á búdinni
hcettum við með postulínsvörur
frá Arzberg.
ÁLAFOSSB ÚÐIN,
Vesturgötu 2, sími 13403.
Frá og með 1. september 1993 rekum við
undirritaðir, sem sjálfstætt starfandi lögfræðingar,
skrifstofu undir heitinu:
Lögmenn Skeifunni 19
Jón Magnússon hrl.
Gísli Gíslason hdl.
ÁsgeirÁ. Ragnarsson lögfr.
Þórarinn Jónsson lögfr.
Skeifan 19, 4. hæð, 108 Reykjavík,
sími 687403, fax 688317.
Öll almenn lögfræðiþjónusta og ráðgjöf,
málflutningur, uppgjör slysabóta,
eignaumsýsla, skilnaðarmál, skipti
dánarbúa og réttargæsla í refsimálum.
S________________________________________4
Fyrirlestur um
meðferð kyn-
ferðisafbrota
CHARLES B. Schudson mun halda
opinberan fyrirlestur við Félags-
vísindadeild Háskóla íslands
þriðjudaginn 21. september nk.
kl. 17 í stofu 101 í Lögbergi. Er-
indið ber heitið Börn sem þolend-
ur og verður þar m.a. fjallað um
meðferð kynferðisafbrota út frá
réttar- og barnaverndarsjónarm-
iðum.
Charles B. Schudson er staddur
hér á landi á vegum Bamavemdar-
nefndar Hafnarfjarðar, Barnavernd-
arráðs íslands og Endurmenntunar-
stofnunar Háskóla íslands. Schudson
er dómari í áfrýjunarrétti á sviði
barnaverndarmála í Wisconsin í
Bandaríkjunum. Hann hefur skrifað
fjölda greina, bókakafla og kennslu-
bóka um meðferð brota gagnvart
bömum fyrir dómi, haldið námskeið
og fjallað um þetta efni á alþjóðleg-
um ráðstefnum fyrir ýmsa fagaðila.
Fyrirlesturinn er ókeypis og öllum
opinn.
Orgeltónleik-
arí Hallgríms-
kii'kju í dag
og á morgun
í HALLGRÍMSKIRKJU verða org-
eltónleikar bæði í dag og á morg-
un. Síðdegis í dag leikur Werner
Dittmann, organisti frá Bre-
merhaven verk eftir Rheinberger
og Vierne. Annað kvöld leikur
Kári Þormar á burtfarartónleik-
um frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar
verk eftir ýmis tónskáld.
Kári Þormar er á förum til Þýska-
lands í frekara nám í kirkjutónlist,
við Robert Schumann Institut í Dus-
seldorf hann lauk prófi í píanóleika
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík í
vor og lýkur á morgun prófi frá
Tónskóla Þjóðkirkjunnar þar sem
Hörður Áskelsson hefur leiðbeint
honum. Lokaverkefnin verða eftir
Buxtehude, Bach, César, Þorkel Sig-
urbjörnsson og Jehan Alain. Tónleik-
arnir hefjast kl. 20.30 mánudags-
kvöld, eru öllum opnir og aðgangur
ókeypis.
Dittmann er organisti Smidt-
minningarkirkjunnar í Bremerhaven
hingað kominnn í boði Þýsk-íslenska
félagsins. Tónleikar hans í dag,
sunnudag, hefjast kl. 17 á þeim flyt-
ur hann tvö verk, Sónötu í A-dúr
nr. 18 eftir Josef Gabriel Rheinber-
ger og Orgel-sinfóníu nr. 2 op. 20
eftir Louis Vierne.
Rheinberger (1839-1901) er yfir-
leitt kenndur við Vaduz í Liechten-
stein og er aðaltónlistarskóli fursta-
dæmisins nefndur eftir honum. Fyrir
utan kennslu var hann mikilvirkt
tónskáld en eftir andlát hans féllu
verk hans mikið til í skugga stærri
meistara eins og Liszt og Brahms.
Breskar útgáfur hafa síðajj. h'aidið
nafni hans á lofti og hefur áhugi
fyrir verkum hans aukist á undan-
fömum árum. Sónatan, sem er í
þremur þáttum, er að mestu án
kontrapunkts, en mjög lagræn.
Vierne (1870-1937) var einn
þekktasti organisti og tónskáld síns
tíma í Frakklandi. Hann var blindur
og starfaði lengi sem organisti við
Frúarkirkjuna í París. Vierne skrif-
aði sex orgel-sinfóníur. Þrjár þær
síðari em lítt þekktar og sjaldan
spilaðar, mjög fijálsar í formi. Hinar
fyrri eru betur þekktar, samdar við
lok rómantíska tímabilsins, marka
að margra áliti lok franska orgel-sin-
fóníutímabilsins.
Dittmann fæddist árið 1952 í
Bremen. Hann stundaði nám í kirkju-
tónlist við tónlistarháskólann þar
með leiðsögn Erich Ehlers. Þá var
hann í námi í hljómsveitarstjórn hjá
Sergin Celibidache í Múnchen. Síðan
1979 hefur Werner Dittmann verið
organisti og kantor við Búrgermeist-
er-Smidt-Gedáchtniskirche í Bre-
merhaven og um leið stjórnandi
Bach-kórs Bremerhaven. Hann hefur
komið fram á fjölda tónleika, bæði
sem organisti, píanóleikari og stjórn-
andi og farið víða í tónleikaferðir.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Námsmenn sem vilja gera eitthvað skemmtilegt og
um leið eitthvað skynsamlegt, fara í NÁMUNA.
Hún er sniðin að þörfum skólafólks.
Þú finnur yfir 60 "NÁMUOP"1 Landsbanka íslands
á 43 stöðum hringinn í kringujn landið.