Morgunblaðið - 19.09.1993, Síða 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
i
SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1993
HJONABÖND
Sundur saman ...
saman sundur
Það telst varla til tíðinda meðal
þotuliðsins í Hollywood að
hjónabönd bresti. Við látum samt
sem áður flakka þijár nýlegar
fréttir af sambúðarmálum. Leik-
konan Heather Locklear, sem
margir þekkja úr sjónvarpsþáttun-
um Melrose Place, á í brösum með
eiginmann sinn, þungarokkarann
Tommy Lee. Skömmu eftir að
hann kom úr tónleikaferðalagi
með hljómsveit sinni Mötley Cré
frá Kanada flutti hann frá stærðar
einbýlishúsi þeirra hjóna inn í
tveggja herbergja íbúð í Los Ang-
eles. I fyrstu sagði Heather að hér
væri um tímabundið ástand að
ræða, en nú herma sögur að hún
vilji ekki fá hann aftur heim.
Þá ganga þær sögur fjöllunum
hærra að Michael Bolton og Nicol-
ette Sheridan hafí sæst eina ferð-
ina enn. Nicolette hafði yfírgefíð
Michael og snúið sér til leikarans
Harry Hamlin. En aðeins fímm
vikum eftir aðskilnaðinn sáust þau
Michael og Nicolette saman á
hafnaboltaleik sem haldinn var til
styrktar góðgerðarmálum.
Þá hefur heyrst að leikstjórinn
Spike Lee, sem er 35 ára, ætli að
kvænast rúmlega tvítugum lög-
fræðingi, Tonyu Lewis, 2. október
næstkomandi í New York.
Ásdís vinnur mikið með steina sem mexikóskur vinur hennar slípar.
DANMORK
Ekki eru þessir kærleikar leng-
ur með Heather Locklear og
Tommy Lee.
Michael Bolton og Nicoletta
Sheridan eru farin að sjást sam-
an aftur.
Spike Lee ætlar að ganga í það
heilaga með Tonyu Lewis, tví-
tugum lögfræðingi.
LEIKARAR
„Fleksnes“ slasaðist illilega
Leikarinn Rolv Wesenlund sem
íslendingar muna kannski eftir
í hlutverki Fleksnes er illa hald-
inn af bakverkjum.
Sjálfsagt muna einhveijir eftir
norska leikaranum Rolv Wes-
enlund, en hann lék hrakfallabálk-
inn Fleksnes sem Sjónvarpið sýndi
fýrir einhveijum árum. Segja má
að Rolv sé nú í sömu sporum og
hrakfallabálkurinn, því nýlega var
hann að prófa „svifsenu" heima í
stofu. En hvers vegna skyldi 56
ára gamall maður vera að prófa
„að svífa“?
Þannig er mál með vexti að
Rolv hefur undanfarna mánuði
verið að viða að sér revýuefni úr
því besta frá sjónvarpsþáttunum
um Fleksnes, La Cauge Au Folle,
Bör Börssyni og fleiri. Frumsýning
revýunnar átti að vera laugardag-
inn 18. september og síðan átti
að fara til 24 bæja með sýning-
una. Ekki nóg með það, heldur
átti tékkneskur leikhópur frá Prag
að vera gestur þáttarins og það
var raunar í þeirra atriði sem
Rolv átti að svífa um. Þar sem
engin samæfing hafði orðið var
Rolv að prófa sig einn áfram heima
í stofu með álstiga þegar hann
hrasaði með þessum skelfilegu
afleiðingum, því eina tekjulind
hans í haust átti að vera revýan.
Hellaristutákn og
mexíkóskir steinar
hjá Galleri Asdísi
Kaupmannhöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
Ibindingsverkshúsi við Klaustur-
stræti, rétt við Strikið, er skilti
sem á stendur Galleri Ásdís. Innan-
dyra ymur Þursaflokkurinn og á
veggnum, í glugganum og á skart-
gripunum eru verur af fornnorræn-
um hellaristum og rúnir. Þessi sam-
setning er engin tilviljun, því gull-
smiðurinn heitir Ásdís og er ættuð .
frá_ Akureyri. Hún lærði gullsmíði
á íslandi en var í skóla í Kaup-
mannahöfn, eins og svo margir ís-
lenskir gullsmiðir. Þegar náminu
lauk fyrir rúmum tveimur árum
ákvað hún að verða eftir hér og
hefur nú rekið búðina í rúmt ár.
Staðurinn er firna góður, því
Klausturstræti er ein af þessum
heillandi og stemmningsþrungnu
litlu hliðargötum frá Strikinu í Ráð-
hússtorgsendann. Það var heldur
ekkert auðvelt að komast yfir þenn-
an afbragðs stað, en hafðist á end-
anum með smá heppni og útsjónar-
semi. Og nú fer firna vel um Ás-
dísi, þar sem hún hefur komið sér
upp bæði verkstæði og búð í einu
og sömu vistarverunni. í herberginu
inn af búðarverkstæðinu liggur
vinalegur hundur og þar eru líka
leikföng fyrir soninn Julian.
En fleira skemmtilegt er við
hverfið, því Ásdís segir að þama
þekkist allir og tali saman. í ná-
grenninu eru mörg verkstæði, með-
al annars bókbindari og leðursmið-
ur, auk fombókabúða og annarra
skemmtilegra sérbúða. Og skammt
frá er dönsk_ stelpa með gullsmíða-
verkstæði. Ásdís segist hafa það
sem fastan lið að drekka hjá henni
kaffí á morgnana, áður en hún tek-
ur sjálf til við vinnuna og í nágrenn-
inu eru fleiri gullsmiðir.,
Skartgripirnir seljast vel
Þrátt fyrir barlóm í Dönum, seg-
ist Ásdís bjartsýn á framtíðina og
álítur að hún sé komin yfír erfíð-
asta hjallann í rekstrinum. Skart-
gripirnir virðast falla í góðan jarð-
veg hjá Dönum, jafnt hjá karl- og
kvenþjóðinni. Bestu viðskiptavin-
irnir em strákar sem vilja fá arm-
bönd með þessum gömlu táknum
á. Auk armbanda og eyrnalokka
með hellaristutáknum selur hún
nælur, sem eru eins og kringlótt
box með nútíma víravirki. Minna
NOREGUR
Michelle Pfeiffer með verðandi eiginmanni sínum David E. Kelley.
STJÖRNIÆ
Michelle Pfeiffer
hefur ákveðið daginn
Nýlega skýrðum við frá því
hér í þáttunum, að leikkonan
Michelle Pfeiffer hafi ættleitt sex
mánaða stúlkubam, Claudiu
Rose. Hún stóð ein að ættleiðing-
unni, en nú hefur hún og kærasti
hennar, David E. Kelley, ákveðið
að ganga í það heilaga, þó ekki
fyrr en næsta vor. Þetta verður
annað hjónaband Michelle, en hún
skildi við eiginmann sinn Peter
Horton árið 1990. Peter lék m.a.
í sjónvarpsþáttunum Á fertugs-
aldri.
íslensku bræðumir slá í gegn
Islensku bræðurnir Arnar og Rún-
ar Kristinssynir hafa á undan-
fömum mánuðum vakið verulega
athygli í Noregi með söng sínum
og framkomu. Fyrsti geisladiskur
með þeirra söng eingöngu kom út
31. ágúst sl. Hefur hann selst í
rúmlega 60 þúsund eintökum, sem
þýðir að þeir era komnir með plat-
ínuplötu. Eins og Morgunblaðið
skýrði frá í júní hefur vegur bræðr-
anna farið vaxandi síðan þeir unnu
Varde/Busk söngvakeppni ungl-
inga í fyrra, en slík keppni fer fram
árlega á vegum Busk Records í
Noregi. Arnar og Rúnar, sem eru
11 og 12 ára eru synir Halldórs
Kristinssonar tónlistarmanns og
Eyrúnar Antonsdóttur lyfjatæknis.
Koma fram í Casino
Segja má að drengirnir hafi tek-
ið Noreg með trompi, því varia er
opnað tímarit að sé ekki minnst á
þá — og sjónvarpsstöðvarnar
standa í biðröðum eftir að fá þá til
að koma fram í skemmtidagskrám
sínum. Þessi aukna athygli varð í
kjölfar „Momarked-show“, en það
er einn vinsælasti skemmtiþáttur
sem ríkissjónvarpið í Noregi býður
upp á. Þá voru þeir með í beinni
útsendingu á TV2 4. september sl.
þegar Ungfrú Noregur 1993 var
kjörin og í gærkvöldi komu þeir
fram í vinsælasta skemmtiþætti
TVNorge, „Casino“.
Upphaflega sá Teije Busk, eig-
'andi Busk Records, um að koma
þeim á framfæri, en vegna um-
fangsins hafa þeir nú fengið eigin
umþoðsmann, Viggo Lund, sem
staðsettur er í Osló. Hefur hann
flesta af þekktustu skemmtikröft-
um Noregs á sínum snærum. Að
hans sögn er eftirspurnin eftir
drengjunum orðin svo mikil að kom-
ið er að því að velja og hafna. „Það
verður líka að taka tillit til þess að
þetta eru bara tveir litlir drengir,
sem þurfa líka að fá frí öðra hvora,“
bætti Eyrún við þegar Morgunblað-
ið hafði samband við hana.
Stúlkurnar standa í biðröðum
Vinsældir bræðranna hefur að
sjálfsögðu mikil áhrif á heimilislífið.
Síminn hringir látlaust frá kl. 6.30
á morgnana til kl. 9, en þá mynd-
ast smá hlé meðan ungu stúlkurnar
eru í skólanum. Síðan heldur hann
áfram að hringja frá kl. 11 og fram
á kvöld. „Nú erum við að fá okkur
kóda á símann, þannig að þeir ein-
** in-rtii
m ' ■
' "■">., <' :
Sextán síðna bæklingur fylgir
nýútkomnum geisladiski með
ýmsum upplýsingum um bræð-
urna Arnar og Rúnar Halldórs-
syni.
ir geta hringt í okkur sem vita kód-
ann,“ sagði Eyrún.
Aðdáendurnir era ekki bara í
símanum, heldur hefur fjölskyldan
þurft að koma sér upp pósthólfi því
rr