Morgunblaðið - 19.09.1993, Page 24
, 24 B
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1993
wimfiíi
„pessc WeUinQ-toyi-steik bœgSast
eins og gúmmLséiguéL.'1
ótakmörkuð þolinmæði
TM Reg. U.S Pat Otf.—all rights reserved
® 1992 Los Angeles Times Syndicate
BRÉF TTL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
KAPLAKRIKI
Frá Sofusi Berthelsen:
í lægðinni milli Setbergs og Urriða-
kots er stöðuvatn, og úr því vatni
rennur lækur meðfram hraunjaðrin-
um, fyrst til norðvesturs, síðan til
suðvesturs þar sem myndast vinkil-
horn á lækinn og þar var stórt vik
inn í hraunið eða kriki (samanber
handar-kriki). Þessi kriki var grasi
gróinn og nokkuð loðinn í skjóli
hraunsins við norðanáttinni, og
bendir nafnið til að þarna hafi ver-
ið heyjað áður fyrr, en hestar voru
stundum kallaðir kaplar. Þegar
heyjað var fengust svo og svo marg-
ir kaplar af svæðinu, það er að segja
svo og svo margir hestburðir.
Beggja vegua lækjarins þar sem
hann rann til suðvesturs voru slétt-
ir og nokkuð breiðir grasbalar og
lækurinn rann lygn í bugðum og
mynduðust tvær eða þijár tjarnir
og á heitum sólskinsdögum á sumr-
um urðu þessar tjarnir volgar, því
þær voru það grunnar að dýpið
náði okkur strákunum átta til tíu
ára rúmlega í mitti. Þama lærði ég
að synda tilsagnarlaust. Þannig leit
þetta út þegar ég var stráksnáði.
Nú er búið að veita læknum í skurð
mikið austar og inn í Setbergshverf-
ið, en þar sem lækurinn var og
grasbalamir renna nú bflar eftir
breiðum vegi til Suðurnesja.
Nú er sjálfur Kaplakrikinn horf-
inn undir vegstæði þar sem mætast
vegurinn frá Mjódd og vegurinn frá
Engidal, en aðeins norðar er risið
íþróttamannvirki sem ber nafnið
Kaplakriki.
Onnur tilgáta um nafnið á Kapla-
krika er sú, að þegar ég var smá-
strákur og löngu fyrr, komu bænd-
ur úr Selvognum með ullina sína á
mörgum hestum til að leggja hana
inn hjá Hansen kaupmanni. Sel-
vogsbændur sameinuðust í þessa.
ferð, komu langri lest niður Grinda-
skörð og um Kaldársel og komu inn
i bæinn þar sem nú heitir Selvogs-
gata, og heitir svo þess vegna.
Meðan Selvogsbændur dvöldu í
bænum við ýmsar útréttingar,
þurfti að koma hestunum (köplun-
um) í haga, og þá var það kapps-
máí hjá okkur strákunum að bjóða
okkur fram til að koma hestunum
á beit og gæta þeirra, og auðvitað
fórum við með kaplana upp í krika.
Þetta var nokkuð langur vegspotti
frá Hansen og upp í Kaplakrika og
góður útreiðartúr, en þrátt fyrir það
er ekki víst að allir klárarnir hafi
fengið frið til að bíta grasið því það
var ekki á hveijum degi sem okkur
gafst kostur á að komast á bak.
Minningamar líða um huga mér
um veröld sem var.
SOFUS BERTHELSEN,
Hjallabraut 33, Hafnarfírði.
Vetrarstarf ITC að hefjast
Frá Guðrúnu Markúsdóttur:
NÚ ER vetrarstarf ITC að fara í
gang. ITC er skammstöfun fyrir
International Training in Com-
munication eða þjálfun í samskipt-
um, framkomu og stjórnun. Innan
samtakanna fer fram markviss
þjálfun í stjórnun, framkomu í
ræðustól, fundarsköpum, ræðu-
mennsku og fleiru. Markmið þjálf-
unarinnar innan ITC er að félagarn-
ir öðlist sjálfstraust og verði hæfari
til að takast á við ákveðin verk-
efni. Til dæmis þau verkefni sem
bíða einstaklingsins hvort sem er á
vinnustað, á heimilinu eða í félags-
lífinu. Hver hefur ekki upplifað að
geta ekki tjáð sig á foreldrafundi í
skóla barnsins, eða á kosninga-
fundi? Er ekki kominn tími til að
þú öðlist kjark til að láta skoðanir
þínar í ljós? Er ekki kominn tími
til að mark sé tekið á þér?
ITC er opið fólki á öllum aldri,
bæði konum og körlum. ITC starfar
í deildum víðs vegar um landið. í
hverri deild eru um 10-30 einstak-
lingar, fundir eru öllum opnir. Við
höldum bókakynningar, höfum
ræðukeppni, kynnum listamenn,
lesum ljóð og margt, margt fleira.
Við gerum hæfnismat að loknu
verkefni og skiptumst á um að leið-
beina hvert öðru á jákvæðan og
uppbyggilegan hátt. Deildirnar
halda fundi tvisvar í mánuði, fund-
artímar eru alltaf auglýstir í dagbók
dagblaðanna.
ITC starfar ekki að góðgerðar-
málum, kökubakstur og önnur fjár-
öflun tilheyrir ekki okkar samtök-
um.
í vetur mun ITC starfrækja nám-
skeið í ræðumennsku, framkomu í
ræðustól og fundarstjórn. Þessi
námskeið eru auglýst undir titlinum
„Breyttu áhyggjum í uppbyggjandi
orku“. Þau eru byggð upp á náms-
efni frá ITC. ITC hefur haldið þau
undanfarin ár og hafa þau verið
geysilega vinsæl bæði hjá félaga-
hópum og einstaklingum.
Það er góður félagsandi í ITC.
Við störfum saman að því að efla
og styrkja hvert annað, svo að
kraftar okkar nýtist sem best í þjóð-
félaginu. Við vitum um marga aðila
innan ITC sem hafa tekist á við
ábyrgðarstörf eftir þjálfun hjá ITC.
Komdu og vertu með!
GUÐRÚN MARKÚSDÓTTIR
Heiðarási 9, Mosfellsbæ
Víkverji skrifar
HOGNI HREKKVISI
Haustið er komið í hlaðvarpann
(fyrsti vetrardagur er 23.
október nk.) Myrkrið vinnur stærri
og stærri hluta af sólarhringnum
úr höndum birtunnar. Vetur kon-
ungur sezt senn í hásæti frosts og
fannar. Vonandi verður hann með
skárra mótinu að þessu sinni.
Víkveiji er þeirrar skoðunar að
við manneskjur séum eins konar
viðtæki, sem nema áhrif umhverfis-
ins, árstíða, árferðis og veðurfars.
Þetta á bæði við lundina og líkam-
ann. Líðan okkar - og viðmót -
ræðst að hluta til af þessum áhrif-
um.
Þegar grannt er gáð er það því
ekki hið minnsta undarlegt þótt
fólk á norðurslóðum, sem býr við
skammdegi, kulda og myrkur meir
en helft ársins, leiti sólar suður á
bóginn. Það má þvert á móti flokka
slík viðbrögð undir varnartilburði
og heilsurækt.
xxx
Víðar er sól en í suðri. Sól getur
verið í sinni okkar. Sólin sú
rís ef við ræktum hugarheim okkar
- jákvæð viðhorf til lífsins og tilver-
unnar, einnig vetrarins og alls þess
sem honum fylgir.
Það á að vera hygginna manna
háttur að glöggva sig á aðstæðum
öllum og haga seglum eftir vindi á
lífssiglingunni. Þess vegna ber okk-
ur að fagna vetrinum, sem öðrum
árstíðum, sem öðrum guðsgjöfum.
Við eigum að njóta kosta hans, sem
vissulega eru margir. Lítillega verð-
ur vikið að þeim síðar í þessum pisli.
Við erum og mun betur búin en
áar okkar til að mæta annmörkum
vetrarins. Stóraukin menntun og
þekking, bylting í samgöngum bæði
á landi og í lofti, gjörbreytt hús-
næði og vinnuaðstaða, fjarskipta-
tæknin (sjónvarp/útvarp/sími)
o.s.frv. hafa létt okkur róðurinn,
gert okkur auðveldara að þreyja
þorrann og góuna. Samt sem áður
er sjálfsagt að umgangast íslenzka
náttúru, veturinn og veðráttuna
með varkárni og virðingu.
xxx
Veturinn hefur upp á sitt hvað
gott að bjóða hér á norður-
slóðum að mati Víkveija. Veturinn
er tími menntunar og skólastarfs,
sem nær til tugþúsunda lands-
manna, en menntun og þekking eru
dýrmætustu auðlindir hverrar þjóð-
ar. Veturinn er tími listanna, sem
auðga líf okkar meira en flest ann-
að, leikhúsa, hljómlistar, myndlist-
arsýninga, að ógleymdu bókaflóði
síðustu mánaða ársins. Veturinn er
tími íjölbreytts félagsstarfs (klúbb-
ar, reglur og samtök), sem blómstr-
ar sérstaklega á þessum árstíma -
og skemmtana af ýmsu tagi, árshá-
tíða, þorrablóta og svo framvegis.
Og að sjálfsögðu er veturinn tími
vetraríþrótta, af margs konar toga,
sem færa æ fleiri einstaklingum
ánægju og heilsubót. Síðast en ekki
sízt er veturinn tími jólanna og
fagnaðarboðskaparins.
xxx
Ljósið skín skærast í myrkrinu.
Veturinn kennir okkur að
meta birtu og gróanda sumarsins.
Að auki gefur hann okkur fjöl-
breytt tækifæri til að auðga líf okk-
ar og njóta skemmtunar, samanber
framansagt. Það er hins vegar okk-
ar, hvers og eins, að nýta tækifær-
in, að sjá svo um að við séum á
vetur setjandi!
Það er sum sé engin ástæða til
að hleypa vetrarmyrkrinu inn í huga
okkar. Við eigum að huga að sól-
inni í sinni okkar. Og óska hvert
öðru gleðilegs vetrar! þegar gor-
mánuður byijar (laugardaginn 23.
október nk.).