Morgunblaðið - 31.10.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 31.10.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993 13 Mót- mælt á Orly STARFS- MENN Air France mót- mæltu fyrir- huguðum brevtingum á rekstri fyrirtækis- ins með því að stöðva flugumferð um París. Hér sjást verkfalls- menn mót- mæla á Orly-flug- velli. einkavæðingu og endurskipulagn- ingu ríkisfyrirtækja nái fram að ganga. Ef ríkisstjórnin gefur eftir um leið og hún mætir andstöðu eru þá ekki allar áætlanir um að hætta eða breyta rekstri franskra ríkisfyrirtækja, sem mörg hver tapa tugum milljarða króna, dauðadæmdar? Vandi Air France Air France var fyrsti prófsteinn- inn í þessum efnum. Flugfélagið er eitt þeirra 21 ríkisfyrirtækja sem stjórn Balladurs hefur sett á sölulista. Það hefur hins vegar alltaf verið ljóst að enginn mun falast eftir fyrirtækinu á meðan það er rekið með jafn miklu tapi og nú. Gera áætlanir ráð fyrir að hallarekstur fyrirtækisins á þessu ári muni nema um 55 milljörðum íslenskra króna. Attali taldi meginvanda fyrir- tækisins vera í kostnaðarhliðinni og því nauðsynlegt að fækka starfsmönnum og draga úr yfír- vinnugreiðslum. Flest önnur stærstu fiugfélög Evrópu og Bandaríkjanna hafa þegar dregið verulega úr kostnaði sínum með skipulagsbreytingum og standa því mun betur að vígi en Air France. Þetta hefur veikt markaðs- stöðu fyrirtækisins verulega og má nefna sem dæmi að á milli áranna 1991 og 1992 jókst flutningageta Air France milli Frakklands og Norður-Ameríku um 8% en flutn- ingageta bandarískra flugfélaga um 30%. Það hefur einnig háð flug- félaginu hversu háð það er heima- markaðinum en 40% farþega fé- lagsins koma frá Frakklandi. Stjórnendur Air France hafa líka verið gagnrýndir fyrir að líkj- ast fremur pólitískt skipuðum embættismönnum en yfirmönnum flugfélags. Breska dagblaðið Fin- ancial Times segir Attali ekki hafa verið neina undantekningu hvað þetta varðar. Hann tók við stjórn fyrirtækisins fyrir fjórum árum ekki síst fyrir tilstilli Francois Mitterands Frakklandsforseta en Jacques Attali var þá náinn að- stoðarmaður hans. Financial Tim- es segir Attali hafa gert sér grein fyrir að breytingar væru nauðsyn- legar en lengi vel reynt að fara meðalveg endurskipulagningar og pólitískrar samstöðu. Markaðsað- stæður hafí hins vegar knúið hann til að grípa til róttækari aðgerða. Við stöðu Attalis hjá Air France tók Christian Blanc, sem starfaði með ríkisstjórn sósíalista á síðasta kjörtímabili. Hann hefur það orð á sér að vera snjall sáttasemjari og ekki veitir af. Sum stéttarfélög hafa krafíst þess að stjórnendur fyrirtækisins verði að lofa því að störfum verði ekki fækkað, eigi starfsemi Air France að færast í eðlilegt horf á ný. Hneyksli og uppgjöf Fjölmiðlar í Frakklandi hafa gagnrýnt stjórn Balladurs harð- lega fyrir að hafa skyndilega látið af stuðningi við þær aðgerðir sem Attali lagði til og sögðu þetta vera hneyksli og jafngilda uppgjöf. Meira að segja hið íhaldssama dagblað Le Figaro spurði Balladur í viðtali hvers vegna hann hefði stutt við bakið á Attali annan dag- inn en látið af stuðningi þann næsta. „Ég hef trú á breytingum. Breytingamar verða hins vegar að vera framsæknar, þær verður að útskýra til hlítar og þær verða að vera ásættanlegar," svaraði forsætisráðherrann. Fjölmiðlar utan Frakklands hafa ekki síður verið gagnrýnir í garð stjórnarinnar. Leiðarahöf- undur Financial Times segir stjórnina ekki hafa getað sýnt betur fram á veikleika sinn og í forystugrein í þýska dagblaðinu Frankfurter Ailgemeine Zeitung segir að stjórnin hafi „glatað öllum myndugleika“. Réttilega er bent á að sam- starfsþjóðir Frakka í Evrópu- bandalaginu hafi ástæðu til að hafa áhyggjur. Hvers vegna að beijast fyrir því að reyna að gera iðnað bandalagsríkjanna sam- keppnishæfan þegar sumar þjóðir hika ekki við að grípa til ríkis- styrkja eða leggja til innflutnings- hindranir? Vandanum skotið á frest Ríkisstjórn Balladurs hefur ekki leyst neinn vanda með því að hætta við Attali-áætlunina. Hún hefur einungis skotið vandanum á frest og líklega magnað hann upp. Skilaboðin frá ríkisstjórninni hafa ekki farið fram hjá forráðamönn- um stéttarfélaga hjá öðrum opin- berum fyrirtækjum. Næstu skref einkavæðingará- ætlunarinnar verða líklega ekki mjög erfið, þar sem um er að ræða fyrirtæki, sem standa frekar vel. Þegar er búið að selja Banque Nationale de Paris og næst á dag- skrá eru efnafyrirtækið Rohne- Poulenc og olíufyrirtækið Elf Aqu- itaine. Það má hins vegar fastlega búast við vandamálum þegar kem- ur að tölvufyrirtækinu Groupe Bull, rafeindafyrirtækinu Thom- son-TCE, bankanum Crédit Ly- onnais eða þyrluframleiðandanum Aerospatiale. Þessi fyrirtæki hafa verið rekin með miklu tapi og þurfti ríkisstjórnin fyrr í þessum mánuði að veita Bull um 70 millj- arða króna styrk til að mæta tap- inu. Er talið að fækka þurfi störf- um hjá fyrirtækinu um 2.500 ef það eigi að skila hagnaði. Hvernig á að fækka starfsmönnum hjá Groupe Bull ef ekki má fækka þeim hjá Air France? Ef ekkert verður aftur á móti gert til að draga úr taprekstri ríkisfyrirtækja mun það hafa mjög slæm áhrif á franskt efnahagslíf. Hallinn á rekstri ríkissjóðs er þegar mjög mikill og Balladur hefur sagt að einkavæðing væri forsenda þess að hægt væri að koma ríkisfjár- málunum í lag. Sértilboð í ndvember: Með öllu því sem þig dreymir um! Það er sama hvort þú leitar að spennu stórborgarinnar, friðsœld sveitaþorpsins, kröftugri heimsmenningu, litríkri sérvisku, vönduðum veislumat eða safaríkum skyndibitum; Amsterdam lumar á þessu öllu. Og mörgu fleira! Hótelin okkar eru ekki af verri endanum:1 SAS Royal Hotel, fyrsta flokks hótel búið öllum þægindum og Memphis Hotel er sömuleiðis fyrsta flokks í seilingarfjarlægð frá merkum söfnum, verslunum og veitingastöðum. OATþASA Sam vinnularðir -Lanásj/n Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsterðir S. 91 - 69 10 70 • Slmbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60 Hafnarfjörður: Reykjavíkurvegur 72 • S. 91 - 511 55 Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 92 - 13 400 • Símbréf 92-13 490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 93 - 1 33 86 • Slmbréf _ r „ , ^ . - * .,, , , 93-1 11 95 Akureyri: Ráðhústorgi 1 -S. 96 - 27200 • Slmbréf 96-1 10 35 Vestmannaeyjan Vestmannabraut 38 »S. 98-1 12 71 •Símbréf 98-1 27 92 Verð her að otan miðast við staðgreiðslu. Barnaafslattur 2-12 ara er 8.000 kr. Innifalið: Flug, gisting með morgunverði og skattar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.