Morgunblaðið - 31.10.1993, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SÚNNUDAGUR 31. ÖKTÓBER 1993
37
Var sýkn-
aður af
ákæruum
nauðgun
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað
mann, sem sakfelldur var í Hér-
aðsdómi, af ákæru um nauðgun.
í einróma niðurstöðu Hæstarétt-
ardómara segir að hvorki að-
stæður í íbúð mannsins né fatn-
aður konunnar hafi bent til þess
að átök hafi átt sér stað eða harð-
ræði verið beitt og þótt konan
hafi borið nokkra áverka sé ekki
óyggjandi að hún hafi sætt nauð-
un af hálfu mannsins enda hafi
læknir ekki treyst sér til að úti-
loka skýringu mannsins á áverk-
unum og verði að miða við að
þeir eigi sér eðlilegar orsakir.
Atburðurinn átti sér stað í fyrra-
sumar og neitaði maðurinn sakar-
giftum frá því að lögreglan var
kvödd að íbúð hans um nóttina,
kvaðst hafa átt samfarir við konuna
með vilja hennar og hefði hún hlot-
ið áverka sem hún var með á hnjám
á meðan á þeim stóð. Fólkið hafði
hist í veitingahúsinu í Glæsibæ þar
sem konan hafði verið með manni
sínum. Hún kvaðst hafa þegið boð
mannsins um bílfar heim til sín en
síðan þegið boð hans um að drykk
á heimili hans án þess að hafa talið
að hann hefði neitt kynferðislegt í
huga.
Gegn eindreginni neitun manns-
ins allt frá því að lögregla var kvödd
að heimili hans um nóttina, þar sem
konan var miður sín og bar á hann
nauðgun, og með hliðsjón af fyrr-
greindum atvikum og aðstæðum
taldi Hæstiréttur varhugavert að
telja sannað að maðurinn hafí
nauðgað konunni og var hann því
sýknaður.
RLR talið ekki hlutlægt
gagnvart manninum
'
NORDMEIMDE
Okkur tókst ab semja AFTUR sérstaklega um heilan gám af þessum vönduðu
Nordmende 29" sjónvarpstækjum. Nú getur þú gengið inn í þessi magn-
innkaup okkar vib Nordmende-framleiðendurna í Þýskalandi og tryggt þér 29"
stereo-litsjónvarpstæki á lægra verði en þekkst hefur áður hérlendis.
í dómi Hæstaréttar eru átaldir
annmarkar á rannsókn málsins,
m.a. staðhæfingar í auðkennum
rannsóknargagna RLR þess efnis
að nauðgun hafi verið framin um-
rætt sinn. „Það er ámælisvert og
brýtur í bága við grunnreglur [...]
varðandi hlutlægni rannsóknar-
valds,“ segir í dómi Hæstaréttar,
sem Hæstaréttardómararnir Þór
Vilhjálmsson, Guðrún Erlendsdótt-
ir, Haraldur Henrysson, Hjörtur
Torfason og Pétur Kr. Hafstein
kváðu upp.
------♦—♦—♦-------
M FRÍTT kvöldnámskeið í hug-
leiðslu fer fram dagana 2. og 4.
nóvember í hús-
næði Sri
Chinmoy-seturs-
ins, Hverfisgötu
74, Reykjavík.
Námskeiðið hefst
kl. 20 báða dag-
ana. Kenndar
verða einfaldar
hugleiðslu- og
slökunaræfingar
og rætt um heimspekina á bak við
hugleiðsluna.
-------♦ ♦ ♦------
■ Á 3. HÆÐ, fyrir ofan Hag-
kaup, Eiðistorgi, var í gær, laug-
ardaginn 30. október, opnuð vinnu-
stofa fyn’r alla, unga sem aldna. Á
340 fermetrum er vinnuaðstaða
fyrir u.þ.b. 30 manns í einu. Til að
byija með verður vinnustofan opin
frá kl. 18-23 mánudaga til fimmtu-
daga, frá kl. 10-18 á laugardögum
og kl. 11-17 á sunnudögum. Leið-
beinendur eru til staðar þá daga
sem ákveðin verkefni eru tilgreind
á dagskrá. Um helgar er dagskráin
tileinkuð börnum, ekki er þó ætlast
til að ung börn komi ein á vinnustof-
una, heldur er hugmyndin að for-
eldrar og börn komi og vinni saman
eða hlið við hlið. Hægt er að nálg-
ast dagskrá vlnnustofunnar fram
að jólum í Listfengi, Eiðistorgi,
170 Seltjarnarnesi.
, ■.
Spectra SC 72 NICAM er með 29" flötum glampalausum
Black Matrix Super Planar-skjá, S-VHS-tengi, 40W Nicam stereo-
magnara, 4 hátölurum, Stereo Wide, Surround hljómi (tengi fyrir
Surround-hátalara), tengi fyrir heyrnartól, 60 stöðva minni,
sjálfvirkri stöðvaleit, Pal-Secam-NTSC-video, fullkominni fjarstjr-
ingu, aögeröastýringu á skjá, innsetningu á stöövanafni á skjá,
tímarofa, 16:9 breiðtjaldsmóttöku, barnalæsingu, íslensku
textavarpi, 2 scart-tengi, tengi fyrir 2 auka hátalara o.m.fl,
Nordmende-sjónvarpstækin eru vönduð þýsk gæðaframleiðsla og
hafa um áraraðir verið í notkun á íslandi við góðan orðstýr.
VISA-raðgreiðslur: Engin útborgun og u.þ.b.
7 m200,- kr. á mán. í 18 mánuði
Fullur gámur af 29" sjónvarpstækjum seldist upp á
einum degi, áður en tækin komu í Radíóbúðina nf.
p.
EURO-raðqreiðslur: Engin útborgun og
1Í.437 kr. á mán. í 11 mánuöi
Munalán: 27^450,- kr. útborgun og
3.845,- kr. á mán. í 30 mánuði
Ath! Samskonar sjónvarpstæki kosta u.þ.b.
130.000,- til 150.000,- kr. hér á landi, en
þessi bjóðast ódýrari vegna magninnkaupa.
Verð aðeins 109.900,- kr. eða
lAiet uob í einum degi!
/Uh. Heillgámu'sddis PP
Frábær jreibslukjör vib allra hæfi
B^íwnhtn
wisslu
Munaián. sem et
greiðsludreéng á
veiftmælan
W alli ai 30 mán.
mmKxœmm
Við erum meö sýningartæki í versluninni,
en von er á næsta gámi til landsins eftir
u.þ.b. tvær vikur. Þaö er um takmarkað magn
að ræöa og við erum þegar byrjuð að taka á
móti pöntunum. Því er best ab hafa hraöann
á til að komast inn í þessi magninnkaup.
Komdu strax, þaö margborgar sig !