Morgunblaðið - 31.10.1993, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 31.10.1993, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993 Valgerður Jónsdótt- ir frá Kollafjarðar- nesi - Minning Fædd 29. júlí 1918 Dáin 25. október 1993 Margt er það og margt er það sem minningamar vekur og þær eru það eina sem enginn frá mér tekur. (Davíð Stefánsson.) í dag kveðjum við elskulega vin- konu okkar, Valgerði Jónsdóttur. Ótímabært fráfall hennar kom á óvart þó að hún hafi fyrir skömmu greinst með sjúkdóm sem leggur svo marga að velli. Hugurinn leitar mörg ár aftur í tímann þegar flestar okkar voru að stíga sín fyrstu spor sem fóstrur eða starfsmenn í leikskólanum Kópasteini við Hábraut. Valgerður var að mörgu leyti sérstök kona sem gat jafnvel verið móðir eða amma okkar flestra, en í nálægð hennar hugsuðum við aldrei um aldur, við litum á hana sem eina af okkur og greindum ekki neinn aldursmun. Það sem vakti athygli allra var hve ákveðin, en jafnframt hlýleg og glaðleg hún var í garð þeirra sem hún átti samskipti við, hvort sem það voru böm eða fullorðnir. Valgerður var greind kona og víðlesin. Hún hafði lifandi áhuga á þjóðmálum og öllu því er varðar manneskjuna. Hafði einstaklega skemmtilega frásagnargáfu, söng- elsk og í barnahópnum var gaman að fylgjast með henni í samskiptum við börnin. Þau hændust að henni og hún var sérfræðingur í að segja þeim sögur frá eigin brjósti. Hún hafði þann hæfileika að láta hvem og einn finna að hann væri sérstakur. Hún var mikili mann- þekkjari og átti auðvelt með að gefa góð ráð og leiðbeiningar. Oft var nú sest út í hom í leikskólanum eða heima við eldhúsborðið, gler- augun sett upp og lesið úr kaffi- bolla. Ótrúlega oft rættist spádóm- urinn, hvort sem það vora nú mynd- imar í bollanum eða innsæið hennar Valgerðar. Arin iiðu og starfsmennimir fóra hver í sína áttina. Við vorum tólf sem ákváðum að hittast áfram og höfum gert í gegnum árin, gjaman nefnt okkur „hinar gömiu“. Val- gerður var með í hópnum en hélt þó áfram að vinna á Hábrautinni fram að síðastliðnum áramótum og hafði hún þá starfað í leikskólanum tæp þijátíu ár sem er lengsti starfs- aldur við leikskóla í Kópavogi. Það eru ekki bara þeir mörgu starfsmenn sem unnu með henni í gegnum árin sem minnast hennar af hlýhug í dag. Heldur þau fjöl- mörgu börn sem hún hefur miðlað af sínum viskubrunni. Hún var mikil fjölskyldumann- eskja og hafði ávallt eitthvað af hópnum sínum í kringum sig og kunni hún vel að meta það. Þeim öllum sendum við samúðarkveðjur. Við erum auðugri af kynnum okkar við Valgerði og kveðjum hana með hendingu sem oft hefur sótt á 'hugann síðustu daga. „Hvert ör- stutt spor var auðnuspor með þér.“ Fyrir hönd allra í hópnum þökk- um við samfylgdina. Anna, Heiðrún, Hildur, Kristjana, Sjöfn og Sigurlaug. Sár er sannleikurinn. Óskýr, ónæmur. Ónæmur þar til hann lemur þig í andlitið. Fastí, svo þig svíður og sannleikurinn verður áhugnanlega skýr, ...og næmur. Sjaldan eigum við kost á vali þegar við eigum við náttúruna að etja. Það særir okkur og við fínnum til eigin vanmáttar þegar við upp- götvum að lausn vandans er ekki fyrir okkur að ieysa. Við fáum ekk- ert að gert. Okkur finnst oft sem val náttúrunnar sé ósanngjamt og oft illgjamt en við verðum víst að sætta okkur við það að þáttur okk- ar er ansi lítill í slíku vali og lítið mark á okkur tekið. Afleiðing af þessu verður að við fyllumst tóm- leika og spyijum okkur stórra spurninga sem við vitum innst inni að aldrei verður svarað. Hún amma okkar var yndisleg kona sem gaf okkur öllum svo margt með góðvild sinni og hlýju. Með sínu góða hjarta hafði hún mikil áhrif á okkur. Áhrif sem við munum ávallt búa að. Þegar við voram börn passaði hún okkur á daginn meðan foreldrar okkar vora við vinnu. Hún vílaði sér ekki við að hætta tímabundið eigin vinnu til þess að passa okkur. Amma var fóstra á bamaheimilinu Kópasteini í Kópavogi og við eram viss um að öll þau böm sem hún gætti þar hafi unnað henni eins og við gerð- um. Jólin koma oft upp í hugann þeg- ar við hugsum um þær stundir sem við áttum með ömmu. Jólin héldum við alltaf heima hjá ömmu og afa í Melgerðinu og vorum við þá öll þar samankomin, böm þeirra og fjölskyldur. Jólin í Melgerði vekja upp margar minningar. Við minn- umst þess hvað það var hlýlegt að halda jólin þar. Við minnumst allra jóiasagnanna sem hún las okkur þegar við voram börn og áttum erfitt með biðina eftir pökkunum. Við minnumst einnig væntumþykju hennar fyrir smáum vinum á jólun- um. Á hveijum aðfangadegi sauð hún físk og gerði sér ferð niður í fjöra og gaf villiköttum þar dýrind- is máltíð og mjólk með. Þetta vita ekki margir enda var hún ekkert að flíka þessu, hógvær konan. í mannfögnuðum og samkomum ýmisskonar var hún ávallt hrókur alls fagnaðar, hress og kát og dreif allt slíkt áfram með krafti sínum. Hún var svolítill prakkari í sér og átti það til að vera svolítið stríðin og gerði góðlátlegt grín bæði að sjálfri sér og öðrum. Amma var kannski ekkert mjög hjátrúarfull en sið hafði hún þó tek- ið upp sem hún taldi nauðsynlegt að framfylgja. Hann útlagðist þann- ig að ef við systkinin vorum að fara í próf’í skólanum eða að keppa í íþróttum þá hrækti hún á okkur og sparkaði í rassinn á okkur. Þetta þótti okkur nú hálf undarlegt í fyrstu en ekki gaf hún sig og höfð- um við öll gaman af þessu. Hún var ávallt tilbúin að koma og fylgj- ast með okkur þegar við barnabörn- in voram að leik. Hún kom stundum og sá okkur leika handbolta og studdi vel við bakið á sínu liði þó að hún hafi nú ekki alltaf verið með það á hreinu hvort liðið það var. Hún var kannski ekki alltaf alveg inn í leiknum en lét það þó ekkert á sig fá og studdi okkur með ráð og dáð. Nú er hún amma fallin frá. Hún skilur eftir sig djúpa gjá í hjörtum okkar sem þekktum hana. Gjá sem verður seint fyllt upp í. Það eina sem við eigum eftir eru ótal falleg- ar minningar um þessa góðu konu. Það verður sárt að halda upp á jól- in án hennar. Það var ótrúlegt hvað þessa smávaxna kona gat gefið af sér. Amma er látin langt fyrir aldur fram og eftir sitjum við með ekkert nema minningarnar. Amma, takk fyrir allt sem þú varst okkur. Anna og Darri. Kveðja og þakkir til þín fyrir að opna heimili þitt fyrir mér og veita mér hlutdeild í samverustundum fjölskyldu þinnar. Það var ómetan- legt fyrir unga stúlku sem átti alla sína nánustu ættingja úti á landi, að finna velvild þína og væntum- þykju. Þakkir til þín fyrir að taka á móti börnurium mínum þegar þau komu í leikskólann feimin og kvíðin og leiða þau þar til þroska og örygg- is. Þakkir til þín fyrir að fylgjast með fjölskyidu minni öll þessi ár af heilum hug. Minning þín mun lifa með okkur öllum. Björk og fjölskylda. Okkur hjónin langar að minnast þessarar mannkostakonu með nokkrum línum. Góður vinur er gailli betri. Valgerður var þannig gerð að hún vildi láta verkin tala. I þeim anda er þetta skrifað. Það eru nú 50 ár síðan grunnur var lagður að þeirri vináttu sem síðan varð á milli okkar fjölskyldna. Það hófst með því að Inga réð sig í kaupavinnu til æskuvinkonu sinnar Ágústu Eiríksdóttur frá Dröngum í Strandasýslu og manns hennar Magnúsar Jónssonar. Þau voru þá að hefja búskap á Kollafjarðarnesi á móti foreldram Magnúsar, þeim séra Jóni Brandssyni og Guðnýju Magnúsdóttur. En Valgerður var dóttir séra Jóns og Guðnýjar. Með Ingu og henni tókst fljótt góð vin- átta, sem haldist hefur síðan, þótt alltaf hafí verið vík milli vina. Oft hefur verið minnst á þennan tíma í léttum dúr, sem Valla kunni vel að meta. Á heimilinu var einnig kaupamaður, Guðmundur Eiríks- son, sem síðar varð eiginmaður Valgerðar. Frá þeim tíma hafa leið- ir þeirra legið saman. Þau vora gefin saman í Kollafjarðarneskirkju af föður hennar 1943. Þau eignuð- ust fjögur börn, þijár dætur og einn son, sem öll eru uppkomin. Barna- börnin eru orðin sjö og öll mikið eftirlæti ömmu sinnar. Við vonum að þau feti sem mest í fótspor henn- ar. Þau hjónin hafa lengst af sínum búskap búið í Kópavogi, þar sem þau byggðu sér hús fyrir um það bil fjöratíu áram. Þar er ekki mikið húsrými miðað við nútímakröfur, en hjartarýmið þar innan dyra vann það margfaldlega upp. Við erum þess fullviss, að þaðan fóru margir með góðan stuðning út í lífið. Val- gerður var einhver skilningsríkasta kona sem við hjónin höfum kynnst, á annarra hagi. Það var oftast venjan hjá okkur þegar við komum tií Reykjavíkur að hafa samband við hennar heim- ili. Um miðan apríl síðastliðinn vor- um við stödd í Hafnarfirði og höfð- um þá samband við hana. Hún bauð okkur heim og bað okkur að hafa Sæmund son okkar með, en hann býr í Kópavogi og hefur oft fengið góðar móttökur á því heimili, sem hann er þakklátur fyrir. Við sáum þá að þar var kona, sem gekk ekki heil til skógar. Samt var bragðið á létta strengi. Það er okkar mat, að það hefi ekki verið tilviljun hvert hún leitaði, er hún taldi sér fært að fara út á vinnumarkaðinn, því að hún starfaði á barnaheimili þar til hún varð að hætta vegna aldurs. Ljúf var hönd þín, lögð í lítinn lófa, - leidd við götu eða bara móa. Blessuð bömin bljúg frá þessum stundum blessa þig frá ykkar fyrstu fundum. (Óþ. höf.) Valgerður tók mikinn þátt í söng- lífi í Kópavogi. Starfaði þar í kór um árabil, en það gaf henni mikla lífsfyllingu, enda margt af hennar fólki komið við sögu Ijóðs og laga. Hún dvaldist mest af sjúkdómsiegu sinni heima undir verndarvæng fjöl- skyldu sinnar og þar lést hún 26. október eftir stutt en ströng veik- indi, sem hún tók með æðruleysi eins og henni var líkt. Við vitum, Guðmundur vinur okkar, að þú, fjölskylda þín og allir nánustu ættingjar hafa misst mikið. En eigi má sköpum renna. Það er huggun harmi gegn að eftir standa ljúfar minningar um góða konu. Við hjónin og börn okkar vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Útför Valgerðar fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 1. nóvember. Guð blessi minningu hennar. Inga Bjarna og Kristján, ísafirði. í leikskólanum Kópasteini hafa starfað margir góðir starfskraftar í gegnum 29 ára sögu leikskólans. Munu þeir ljúka upp einum rómi um hve gott var að starfa með Valgerði og hve börnin vora elsk að henni. Iðulega mátti sjá einn og einn starfsmann bregða sér afsíðis með Valgerði í kaffitímanum á föstudagseftirmiðdegi og sátu þá tvær á hljóðskrafi. Stundum létu hún sækja betri gleraugun sín og færðu þær sig til í betra ljós, því það þurfti að kanna hvað kaffiboll- inn gæfi til kynna um atburði kom- andi helgar. Valgerður hafði gaman af þessu tali en vildi sem minnst gera úr því. Samt þótti nú vissara að láta hana rétt kíkja í bollann. Þegar ég hóf nám í Fósturskóla íslands haustið 1974 var ég í verk- legu námi í Kópasteini. Þá hófust kynni okkar Valgerðar. Mér er minnisstætt atvik á skreytingar- kvöldi leikskóians á seinni hluta aðventunnar fyrir jólin 1974. Boðið var í hangikjöt og uppstúf. Með matnum var drukkin blanda af malti og appelsíni sem enn í dag þykir í minni fjölskyldu eðaldrykkur hinn mesti og ómissandi á jólum. Þegar líða tók á kvöldið tók ég eft- ir því að fjörið í mannskapnum jókst. Ég var loks tekin út í hom og boðinn hinn ágætasti heima- lagaður jóiamjöður frá Valgerði. Ekki þótti við hæfi að hafa slíkt á borðum, en þegar líða tók á kvöldið var þetta haft með til að lyfta brún- um starfsmanna. Raunar var hún hrókur alls fagnaðar í félagslífi leik- skólans. Hún hafði góða kímnigáfu og taldi ekki eftir sér að taka þátt í og annast undirbúning og fram- kvæmd árshátíðar okkar. Satt að segja var Valgerður jafningi okkar allra og gilti það jafnt um unglings- stúlkurnar sem og fóstrur ungar sem aldnar í starfi leikskólans. Kynslóðabilið margfræga virtist vera henni óþekkt fyrirbæri. I fjöldamörg ár var sláturgerð eitt af haustverkum í leikskólanum. Þar naut hennar að sjálfsögðu líka við. Það þótti tilheyra að ljúka slát- urgerðinni með koníakstári sem kaupmaðurinn lét fylgja með inn- kaupunum í sláturtíðinni. Verkið gekk vel og gáfu sláturgerðarkonur sér tíma til að skála fyrir slátrinu. Aldrei hafði ég kynnst slíkum kúlt- úr við sláturgerð. Valgerði var trúað fyrir ýmsu sem starfsfólki lá á hjarta. Hún lét sér annt um fólk og bar umhyggju fyrir þeim sem af einhveijum sökum áttu bágt. Aldrei heyrði ég Valgerði bregð- ast trúnaði við nokkurn mann né tjá sig yfirleitt um þau einkamál sem við hana var rætt um. Þannig naut hún trausts og óskiptrar virð- ingar allra starfsmanna í leikskól- anum. Stundum var rætt um æskuslóð- irnar. Hún fór gjarnan norður á Strandir þegar tækifæri gafst. Eg átti það sameiginlegt með Valgerði að hafa verið nokkur sumur í sveit á Ströndum. Það var afar ánægju- legt að heyra hana segja frá fólkinu og mannlífinu þar norðurfrá. Hvað börnunum viðvék var hún ímynd hinnar mildu, kærleiksríku fóstru. Aðhlynningin og natnin var henni í blóð borin. Hún hlýjaði hend- ur og nuddaði yl í kalda fætur af stakri alúð. Hún strauk tárvotar kinnar, huggaði og hvatti til nýrra dáða. Hún sagði skemmtilega frá og kunni gnótt af sögum, þulum og söngvum. Hún var börnunum óþijótandi uppspretta margvíslegs fróðleiks. Valgerður var söngkona góð og tók virkan þátt í kórstarfi Samkórs Kópavogs fram undir það síðasta. Þegar litið er yfír farinn veg, er efst í huga mynd heilsteyptrar og traustrar manneskju sem þekkti tímana tvenna. Hún var víðlesin, margfróð og vel upplýst manneskja. Hún var trygglynd við leikskól- ann alla tíð. Valgerður var mann- þekkjari góður. Starfsmenn leik- skólans á öllum tímum í meira en aldarfjórðung leituðu til hennar jafnt á sorgar- sem gleðistundum. Ávallt mátti til hennar leita ef eitt- hvað bjátaði á. Hún var hollráð og hlý persóna. Valgerður var í hálfu starfi til vorsins 1991; þá kaus hún að minnka starfið í nokkra tíma á viku. Hún var síðast með okkur á sumar- hátíð starfsmanna leikskólans í júnílok og mátti þá sjá að hún var tekin að lýjast. Ekki lét hún það samt aftra sér frá því að vera með okkur og eins og ávallt áður og lék hún á alls oddi. Þannig þekktum við hana best og þannig munum við hana. Trausta, umhyggjusama, spaugsama og umfram allt vinur okkar allra. Með Valgerði er gengin einn tryggasti og ástsælasti starfsmaður Kópasteins frá upphafi. Hennar skarð verður seint fyllt. Ég vil fyrir hönd starfsmanna Kópasteins votta fjölskyldu Valgerðar Jónsdóttur okkar dýpstu samúð. Guð blessi ykkur öll. Jóhanna Thorsteinson, leik- skólastjóri Kópasteini. Það er komið haust, ég fínn það svo vel á svölum vindinum sem leik- ur um mig þar sem ég geng heim að húsinu hennar Valgerðar vin- konu minnar. Laufin af tijám og runnum, sem bylgjuðust fagurgræn i golunni á liðnu sumri, flögra nú um garðinn föl og dauðamerkt, þar til þau staðnæmast við kantsteina götunnar eða aðra mishæð. Þetta er hringekja lífs og dauða. Ég geng inn í húsið þar sem elsta dóttirin tekur á móti mér og leiðir mig inn að rúmi móður sinnar. Þarna liggur hún föl en falleg. Mér bregður að sjá hversu hratt tíminn hefur unnið. Það er svo stutt síðan ég heimsótti hana og þá var hún með hugann við verkefni vetrarins, pijónaskap o.fl. sem hana langaði til að gera. Ég settist við rúmið hennar en úr samtali varð ekki mikið, þrekið var svo lítið og lyfin sljóvguðu. Þó brá fyrir gömlu glettninni og gam- anseminni sem hún var svo rík að. Hugur minn tók að fljúga eins og laufin í garðinum, hugsanirnar þreyttust fram og aftur í tímanum. Valgerður Jónsdóttir frá Kolla- fjarðarnesi varð fyrst á vegi mínum haustið 1937 þegar við settumst báðar í Kvennaskólann á Blönduósi ásamt mörgum öðrum ágætum stúlkum. Þarna lifðum við saman heilan vetur við leik og störf og inikinn söng. Það var mikið sungið í skólanum þennan vetur. Um vorið réðum við Valgerður okkur í kaupavinnu norður í Mý- vatnssveit, ég fór að Gautlöndum, hún að Grænavatni. Þetta varð mikið ævintýrasumar í okkar lífi, fullt af sólskinsminningum. Sumarið 1939 réðum við okkur aftur saman til vinnu en nú á öðru Iandshorni. Kynni okkar vora orðin löng og góð. Upp úr þessu tímabili tók við langur kafli lífsbaráttu, hjónaband, húsmóðurstörf, barneignir og upp- eldi, ásamt öllu þvi sem fylgir slík- um störfum. Samfundir urðu fáir á þessum áram en alltaf vissum við hvor af annarri. Valgerður og mað- ur hennar Guðmundur Eiríksson frá Dröngum í Strandasýslu settust að í Kópavogi og byggðu sér þar hús að Melgerði 44. Þegar ég fluttist í Kópavoginn fyrir 12 árum tókum við upp gamla vináttuþráðinn og tengdum hann að nýju. Enn sem fyrr var gott að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.