Morgunblaðið - 31.10.1993, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 31.10.1993, Qupperneq 14
I I * \ 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1993 S6wl: bjJ £ótsSt> hjf_____ hUn^tta. f5aIfLjMfc %(*5«<t>Álj jvtbgf Vnmd.UA.*. .yfolvfejtQé- i Ka.ll,- JAas~, •Sfv0i : M/í| it/ f *13 "l/feA- r,Xl„ Uiri l.y » » » b Vésteinn Valgarósson og Bragi Sveinsson hafa skapaó nýja teikni- yndapersónu og heila veröld í kringum hana ATH. ev" <mic; / ' ' ’ . 0■ *■ «H»-' Uj: (,•>**. , K«lt«Wii'/ "«*</" **</*U.*. 6<J4,' U/ alli er götusópari og á sér erkióvin sem heitir fullu nafni Ivan Tsjuk Mac Gregor," segir Vésteinn. Þeir félag- ar taka að rekja fyrir mér helstu staðreyndir um til- veru Kalla. „Mac Gregor er skoskur og á þtjá bræður sem líka eru fúl- menni og þann fjórða sem er góður. Kalli sjálfur er góðhjartaður einfeldn- ingur sem óteljandi sinnum hefur verið rekinn úr vinnu. Hann hefur starfað við margt, allt frá því að vera vörubílstjóri upp í það að vera borgarstjóri og kóngur en götusóp- arastarfið er það eins sem hann get- ur með góðu móti stundað. „Lendir Kalli aldrei í ástarævintýr- um,“ spyr ég. „Nei, hann er giftur og þótt hann sé vitlaus þá er hann tryggur. Konan hans heitir Gunna og er algjör gribba. Þau eiga þijú böm, Lúlla, Dúllu og Púlla, sem er algjör kenn- arasleikja. Lúlli er hins vegar hrekkjusvín og vandræðabarn en Dúlla er pempíustelpa sem alltaf er að skreyta sig með einhveiju glingri, ekta plasti og svoleiðis. Húsið hans Kalla er upprunalega konungshöll, sem byggð var 1581, þakið er úr ekta gulli en Kalli hefur ekki hugmynd um það, þess vegna er hann sárafátækur en væri annars margfaldur milljónamæringur. Svo er líka hleri á þakinu ... Pamína, hættu að eyðileggja þetta úlfalda- teppi.“ Hér verður óvænt truflun á frásögninni. Meðan þeir félagar töluðu og flettu fyrir mig blöðunum hafði stór, gulbröndóttur köttur kom- ið inn í stofuna. Þetta er heimiliskött- urinn á Hóiatorgi 4, þar sem ég er stödd á heimili læknanna Katrínar Ijeldsted og Valgarðs Egilssonar. Vésteinn sonur þeirra tekur nú að skikka hina ósvífnu Pamínu til og rekur hana loks út úr stofunni, svo hún rífi ekki í tætlur ofna gólfmottu sem hún vill endilega brýna klærnar á. „Pabbi og mamma fóru til Egypta- lands og keyptu þá þessa mottu, þau keyptu líka nokkrar rúllur af papýrus og gáfu mér og Jórunni systur minni, ég ætla skrifa erfðaskrána mína á papýrusinn," segir Vésteinn. Þegar honum hefur tekist að reka Pamínu af höndum okkar heldur frásögnin áfram. Fyrir neðan hlerann á þakinu á húsi Kalla er lítið herbergi fullt af gulli, en það veit Kalli því miður heldur ekkert um og þess vegna heldur hann áfram að beijast sinni eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur Hæfileikinn til að skapa er dýrmætur. Sköpunarstarf fyllir hugann af gleði og fullnægju, ef vel tekst til. Um þetta er ég að hugsa þegar ég sit í stórum, rauðbrúnum sófa og horfi á tvo drengi önnum kafna við að teikna. Skrjáf heyrist í blöðum og annar þeirra sýgur upp í nef- ið. Síðan lítur hann á mig og segir: „ Við erum dálítið tauga- óstyrkir, það er stórt skref fyrir eina teiknimyndapersónu að vera birt opinberlega." Þeir Vésteinn Valgarðsson og Bragi Sveinsson hafa ekki aðeins skapað eina teiknimyndapersónu, heldur heilt þorp í kringum hana. Kalli og ibúar Kallabæjar horfa á mig úr plastmöppum sem drengimir rétta mér til þess að skoða. „Við höfum keypt mjög mikið af plastmöppum, ekkert er of gott fyrir Kalla,“ segir Vésteinn og horfir með ástúðlegu stolti á mynd af Kalla. „Ég byijaði að teikna Kalla árið 1989, þá gerði ég fyrstu söguna, sem var mjög frumstæð. A Þingvöllum i byijun ágúst ári seinna fékk ég innblást- ur og teiknaði aðra sögu.“ Bragi hóf um svipað leyti að teikna sögur um Uppfinn, sem var upp- findingamaður að sögn höfund- ar. „Síðan frétti ég af teikni- myndasögum Vésteins. Við slóg- um okkur saman og Uppfinnur gerðist vinur Kalla. Smám saman bættust inn í sögurnar fjölmarg- ar aðrar persónur," segir Bragi. / /Yeis^ Koulli (9oi«íof* (l)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.