Morgunblaðið - 31.10.1993, Qupperneq 32
pior$íWuMíiMí>
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
itn#sMwSmmaí Ir^l v^/nIr^AR
■■ /v L / v_J// N/ NJ7A\ /\
Atvi n n utækif ær i
Alþjóða verslunarfélagið hf. ætlar að ráða
áreiðanlegt sölufólk í sérstakt verkefni, sem
er kynning á vistvænum vörum til heimilis-
þrifa. Þýska fyrirtækið, sem framleiðir þessar
vörur, þótti skara fram úr á sviði umhverfis-
mála í Evrópu árið 1993 og fékk sérstaka
viðurkenningu fyrir. Um framtíðarvöru er að
ræða. Sem dæmi má nefna vistvænt þvotta-
efni, sama efnið fyrir uppþvottavélina og
þvottavélina, en kostar 40% minna.
Sölufólkið eignast með tímanum viðskipta-
vinahóp, sem verslar aftur og aftur. Á lands-
bygginni kemur aðeins einn til greina á hverj-
um stað.
Upplýsingar í síma 91-676869 í dag, sunnu-
dag, og á mánudag.
Alþjóða verslunarfélagið hf.,
Skútuvogi 11,
104 Reykjavík.
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður
BARNASPÍTALI HRINGSINS
Forstöðumaður leikstofu
Fóstra óskast í stöðu forstöðumanns leik-
stofu. Starfið felst í endurskoðun og upp-
byggingu leikmeðferðarfyrir sjúk börn ásamt
umsjón og stjórnun ieikstofu.
Menntunarkrafa: Fóstrunám ásamt 1-2 ára
framhaldsnámi í sérmeðferð barna/unglinga
upp til 16 ára aldurs. Viðkomandi þarf að
hafa frumkvæði, geta unnið sjálfstætt og
vera laginn í mannlegum samskiptum.
Staðan veitist frá 1. janúar 1994.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 1993.
Upplýsingar veitir Hertha W. Jónsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 601033
eða 601300.
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru stöður á barnadeild 3, handlækn-
ingadeild fyrir 13 börn á aldrinum 2-6 ára.
Unnið er með einstaklingshæfða fjölskyldu-
hjúkrun. Þriðja hver helgi er unnin og fáar
næturvaktir. Góður aðlögunartími með
reyndum hjúkrunarfræðingi.
Uppýsingar gefa Anna Ólafía Sigurðardóttir,
hjúkrunardeildarstjóri, í síma 601030 og
Hertha W. Jónsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 601033.
RÍKISSPÍTALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaöur á íslandi meö starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri
meöferð sjúkra, fræöslu heilbrigöisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem viö störfum fyrir og með,
og leggjum meginóherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almennirtg og viö höfum
óvallt gæöi þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni aö leiöarljósi.
Hljómsveit ÍUSA
íslendingafélögin í Seattle, San Francisco
og Los Angeles vantar fjöruga 3-4 manna
hljómsveit með lög fyrir fólk á öllum aldri.
Um er að ræða síðustu helgina í febrúar og
fyrstu helgi í mars 1994.
Þið sem áhuga hafið vinsamlegast sendið fax
til Gunnars Electronics, Seattle, merkt
„Þorrablót" fax nr. 901-206-781-8657.
BORCARSPÍTAIINM
Tölvunarfræðingur
Staða tölvunarfræðings á tölvudeild Borgar-
spítala er laus til umsóknar. Leitað er eftir
tölvunarfræðingi með staðgóða þekkingu á
ULTRIX (UNIX) stýrikerfi. Boðið er upp á
gott starfsumhverfi og áhugaverð verkefni.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Umsóknareyðublöð fást hjá forstöðumanni
tölvudeildar, sem veitir jafnframt frekari upp-
lýsingar um starfið.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Deildarlæknir
Staða deildarlæknis við lyflækningadeild er
laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. febrúar 1994 til eins árs.
Umsóknarfrestur er til 20. nóv. nk.
Umsóknir sendast til yfirlæknis lyflækninga-
deildar sem veitir allar nánari upplýsingar.
Framkvæmdastjóri
Óskum að ráða framkvæmdastjóra til starfa
hjá félaginu Heyrnarhjálp. Starfið er áætlað
50-75% starf.
Starfssvið framkvæmdastjóra:
Rekstur skrifstofu félagsins þ.m.t. bókhald,
fjármál og uppgjör. Innkaup og sala á bún-
aði fyrir heyrnarskerta. Hagsmunagæsla fyr-
ir félagsmenn og aðstandendur þeirra.
Stefnumótun og uppbygging á starfsemi fé-
lagsins í samvinnu við stjórn.
Kröfur til umsækjenda:
Þekking á bókhaldi og fjármálum. Áhugi og
skilningurá málefnum heyrnarskertra, ásamt
reynsla af félagsmálastarfsemi nauðsynleg.
Sjálfstæði og staðfesta í starfi ásamt hæfni
til góðs samstarfs nauðsynlegir kostir.
Enskukunnátta ásamt kunnáttu í einu Norð-
urlandamáli nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðsson.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningaþjónustu Hagvangs hf. merktar:
„Framkvæmdastjóri 166“ fyrir 6. nóvember nk.
Hagvangurhf
Stígamót
Stígamót, fræðslu- og ráðgjafarmiðstöð um
kynferðislegt ofbeldi, óska eftir starfskrafti
P/2 starf. Starfið felst í ráðgjöf og stuðningi
við þolendur kynferðislegs ofbeldis ásamt
fræðslu og kynningu á starfsemi Stígamóta.
Umsækjandi þarf að hafa góða þekkingu á
málefninu og geta unnið sjálfstætt.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf skal skilað á skrifstofu Stíga-
móta á Vesturgötu 3, 101 Reykjavík, fyrir
8. nóvember nk.
Kirkjuvörður
Stór söfnuður í Reykjavík með öflugt starf
óskar að ráð kirkjuvörð til starfa sem fyrst.
í starfinu felst öll almenn umsjón með kirkj-
unni, s.s. þrif og viðvera er guðþjónustur eða
aðrar athafnir fara fram. Einnig annast kirkju-
vörður þrif og umsjón safnaðarheimilis.
Við leitum að samhentum miðaldra hjónum,
þar sem saman fara samviskusemi, um-
hyggja fyrir eigum safnaðarins sem og þægi-
leg framkoma í mannlegum samskiptum.
Starfinu fylgir afnot af fallegri 3ja herbergja
íbúð sem hluti af starfssamningi.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Skriflegum umsóknum um fyrri störf skal
skilað til Ráðningaþjónustu Hagvangs hf.,
Skeifunni 19, 3. hæð, fyrir 9. nóvember nk.
merkt: „Kirkjuvörður".
Hagvangur h f
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjðf Skoðanakannanir
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra
Reykjanesi
Meðferðarfulltrúar
óskast!
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykja-
nesi óskar eftir að ráða meðferðarfulltrúa til
starfa.
Um er að ræða störf á sambýlum og við
aðra starfsemi svæðisskrifstofu.
í starfsemi svæðisskrifstofu er lögð áhersla
á vönduð og framsækin vinnubrögð í þjón-
ustu við fatlaða. Vel er búið að starfsfólki
hvað varðar faglegan stuðning og möguleika
til símenntunar. Einnig er í allri starfsemi
lögð áhersla á skilvirkt skipulag starfshátta
og gæðasókn í vinnubrögðum.
Umsóknarfrestur er til 12. nóvember.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
eru veittar á Svæðisskrifstofu Reykjanes-
svæðis, Digranesvegi 5 í Kópavogi, sími
641822.