Morgunblaðið - 31.10.1993, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 31 OKTÓBER 1993
39
New York Knicks undir stjórn Pat Riley, fyrrum þjálfara Los Angeles Lakers,
er nú talið sigurstranglegast í austurdeildinni. Hér fer Riley yfir leikaðferð liðsins.
skólavalinu þeir fara og hve lengi
samningarnir gilda.
Webber mun efiaust styrkja lið
Golden State Warriors verulega, en
alvarleg meiðsl mun enn á ný setja
svip á lið Warriors. Hardaway er
mikill galdramaður með knöttinn
og á eflaust eftir að gera Shaquille
O’Neil enn betri með Orlando. Aðr-
ir nýliðar sem gaman verður að
fylgjast með eru Shawn Bradley
hjá Philadelphia 76ers, sem ekki
hefur leikið körfuknattleik í tvö ár
á meðan hann var í mormónatrú-
boði, Jamal Washburn hjá Dallas,
J.R. Rider hjá Minnesota og Calb-
ert Chaney hjá Washington, en
hann lærði hjá Bobby Knight í Indi-
ana.
Peningar
Það eru ekki einungis nýliðar sem
kosta liðin mikla peninga. Margar
af skærustu stjörnunum í deildinni
hafa þrýst á lið sín að gera nýja
samninga. Hakeem Olajuwon hjá
Houston og Karl Malone hjá Utah
eru dæmi um leikmenn sem hafa
gengið frá nýjum samningi við lið
sín. Þá hafa aðrir leikmenn staðið
í þrasi um nokkurn tíma án þess
að komast að samkomulagi. Þannig
neitaði Derrick Coleman hjá New
Jersey Nets átta ára samningi upp
á 69 milljónir dala!!! Kappinn sagði
að tilboð Nets væri ekki boðlegt
miðað við hvert launin myndu fara
í framtíðinni. Þá hefur Clyde Drexl-
er hjá Portland sagt að hann muni
ekki keppa fyrir liðið þetta keppnis-
tímabil fái hann ekki nýjan samn-
ing.
Hvað sem gerast mun í vetur í
deildinni, þá er víst að skrítið verð-
ur að fylgjast með framvindu mála
án Michaels Jordans. Einn leikmað-
ur hefur með ákvörðun sinni opnað
ótal möguleika og skemmtilegt
verður að sjá hvaða lið muni not-
færa sér þá.
lando Magic, Pat Williams. „Það
eina sem við getum verið ánægðir
með, er að nýju stórstjörnumar í
deildinni munu halda merki deildar-
innar á lofti þrátt fyrir fráhvarf
Jordans."
Fráhvarf Jordans getur haft
víðtækar afleiðingar
Þrátt fyrir orð Williams getur
fráhvarf Jordans haft víðtækar af-
leiðingar fyrir deildina. Það hefði
verið erfítt fyrir tveimur árum að
ímynda sér NBA-deildina án Jor-
dans, Larry Birds og „Magic“ John-
sons, sem allir eru nú hættir. Deild-
in hefur enga stórstjörnu lengur,
en margir halda því fram nú að
hún geti spjarað sig þrátt fyrir það
og að í raun sé ekki þörf fyrir aðr-
ar stórstjörnur á borð við Jordan,
Bird og Johnson, vegna þess hve
vel deildin hefur verið markaðssett
út um allan heim. Þar að auki em
margir skemmtilegir ungir leik-
menn sem munu halda merki deild-
arinnar hátt á loft í framtíðinni,
svo sem Shaquille O’Neil hjá Or-
lando Magic, Larry Johnson hjá
Carlotte Hornets, og Derrick Cole-
man hjá New Jersey Nets.
Áttunda undur veraldar
Fráhvarf Jordans kann þó að
hafa víðtækari afleiðingar í för með
sér en sumir halda. Deildin gerði
nýjan fjögurra ára samning við
NRC- og TNT-sjónvarpsstöðvarnar
upp á 1,1 milljarð dala, en þeir
fimm leikir sem höfðu mest áhorf
síðasta keppnistímabil voru allir
með Chicago og Michael Jordan.
Lokakeppni Chicago og Poenix í
júní hafði mest áhorf í sjónvarpi í
sögu deildarinnar, og undanfarin
átta ár hefur Chicago haft 17%
meira áhorf en önnur lið í sjón-
varpi. Þetta em miklir peningar
fyrir sjónvarpsstöðvarnar hér í
Bandaríkjunum þar sem mikil bar-
átta er um hvern einasta sjón-
varpsáhorfanda. Jordan var sá leik-
maður sem fékk áhorfendur að
sjónvarpsskjánum sem venjulega
horfðu ekki á íþróttir, en vildu sjá
áttunda undur veraldar við vinnu!
Chicago aðeins miðlungslið
án Jordans
Sú staðreynd að Jordan er ekki
lengur með Chicago hefur umturn-
að samkeppninni í deildinni. í stað
þess að vera það lið sem flestir
veðjuðu á að ynni deildina er nú
aðeins litið á Chicago sem miðl-
ungslið. Phoenix og New York
Knicks em nú þau lið sem flestir
veðja á, og Seattle, Cleveland,
Houston og Carlotte eru talin munu
geta blandað sér í baráttuna.
Ákvörðun eins einstaklings um
að leggja skóna á hilluna hefur
haft gífurleg áhrif og ef hann snýr
ekki aftur á fjalir hinna glæsilegu
íþróttahalla NBA-deildarinnar er
ekki loku fyrir það skotið að menn
munu seinna meir líta á ákvörðun
Jordans sem endi á gullaldartíma-
bili NBA sem erfitt verði að endur-
taka.
BANDARÍKIN, KANADA,
FRAKKLAND, RÚSS-
LAND, ÁSTRALÍA o.fl.
Stærsta alheims samskiptamiðl-
unin. Einlægir, ólofaðir menn og
konur óska eftir vinskap eða
hjónabandi.
Scanna International, POB 4-M,
Pittsford, NY 14534, USA.
(Sími +716-586-3170).
I.O.O.F. 3=1751118 = 1
□ GIMLI 5993110119 I H.v. 1
□ HELGAFELL 5993110119 VI
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
□ MÍMIR 5993010119 II11 Frl.
I.O.O.F. 10 = 1751118V2 =
Hvítasunnukirkjan
Vegurinn
Hafnargötu 84, Keflavík.
Samkoma kl. 11.00 árdegis.
Jesús Kristur er svarið.
Allir velkomnir.
Félag austfirskra
kvenna
Fundur mánudaginn 1. nóvem-
ber kl. 20.00 í Hallveigarstöðum.
Spiluð verður félagsvist.
Kristniboðsfélag karla
Fundur verður í kristniboðssaln-
um, Háaleitisbraut 58-60,
mánudagskvöldið 1. nóvember
kl. 20.30. Séra Siguijón Árni
Eyjólfsson flytur hugleiðingu um
bænina. Sagðar verða kristni-
boðsfréttir.
Allir karlmenn velkomnir.
Stjórnin.
VEGURINN
^ Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Fjölskyldusamvera kl. 11.00 eitt-
hvað við allra hæfi.
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.00. Gestur okkar Richard
Parenchief frá Bandaríkjunum
prédikar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar:
Munið bænastundirnar alla virka
daga kl. 8.00 og á mánudögum
og föstudögum einnig kl. 17.30.
Mánudaginn kl. 20.00:
Grunnfræðsla, framhalds-
fræðsla og kynningarfundur fyrir
nýja.
Miðvikudaginn kl. 18.00:
Biblíulestur með sr. Halldóri
S. Gröndal.
Kl. 20.30 Samkoma í Óskakaffi,
Selfossi.
Föstudaginn kl. 20.30:
Unglingasamkoma (13-15 ára)
Laugardaginn kl. 21.00:
Samkoma fyrir ungt fólk (16 ára
og eldri).
„Otti við menn leiðir í snöru,
en þeim er borgið, sem treysta
Drottni."
« >*
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Draumanámskeið
verða haldin dagana 6., 13. og
20. nóv. í húsi félagsins i Garða-
stræti 8. Leiðbeinandi er Guð-
mundur Mýrdal.
Meðal efnis er:
1. Kynningograbbumdrauma.
2. Að skilja hinar mismunandi
persónur og hvað af þeim eru
skuggar af okkar eigin per-
sónu, eða var þetta látið fólk?
3. Sjálfsheilunardraumar.
4. Draumar um fyrri æviskeið.
5. Draumar fyrir nútíðina.
6. Draumar fyrir framtíðina.
Bókanir í síma 18130 og
618130.
Stjórnin.
quí
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Ath. Brauðsbrotning færist fram
á næsta sunnudag. Almenn
samkoma kl. 16.30. Niðurdýfing-
arskfrn. Ræðumaður Svanur
Magnússon. Barnagæsla og
barnasamkoma á sama tíma.
Aðalfundur skiðadeildar KR
verður haldinn í félagsheimili KR
við Frostaskjól miðvikudaginn
3. nóvember kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • simi 614330
Dagsferð sunnud. 31. okt.
Kl. 10.30: Brautarholt-Saurbær.
Brottför frá BSl', bensínsölu.
Verð kr. 1200/1300.
Myndakvöld 5. nóv.
Sýndar verðar myndir úr ferðum
Útivistar í sumar á Fimmvörðu-
háls af ferð um Tröllaskagann
og víðar. Sýningin hefst kl.
20.30.
Haustblót 6.-7. nóvember
Gist verður í Nesbúð við Nesja-
velli. Gönguferðir um Grafning
og Hengilssvæðið. Sameiginleg-
ur matur. Ath. að þeir, sem vilja
taka þátt í lokaáfanga Þingvalla-
göngu, verða sóttir í Nesbúð.
Nánari upplýsingar og miðasala
á skrifstofu Útivistar.
Útivist.
Snmhjólp
Dorkas-samkoma
Almenn samkoma ií Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00.
Dorkas-konur sjá um samkom-
una með miklum söng og vitn-
isburðum. Stjómandi Ásta
Jónsdóttir.
Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
Svölurnar
Svölurnar halda félagsfund í
Síðumúla 11 (ath. breyttan fund-
arstað) þriðjudaginn 2. nóvem-
ber kl. 20.30. Gestur kvöldsins
verður Guðrún Jónsdóttir, fé-
lagsfræðingur og starfsmaður
Stígamóta. Kaffiveitingar.
Allar starfandi og fyrrverandi
flugfreyjur velkomnar.
Stjórnin.
í dag kl. 11.00: Helgunarsam-
koma. Sven Fosse talar.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
Kl. 20.00: Hjálpræðissamkoma.
Ingibjörg Jónsdóttir, talar.
Allir velkomnir.
Samkoma 1 Breiðholtskirkju 1
kvöld kl. 20.30.
Friðrik Schram prédikar.
Mikil lofgjörð og boðið upp á
fyrirbænir.
Guðs ríki er réttlæti, friður og
fögnuður i heilögum anda.
Allir velkomnir.
SÍK, KFUM/KFUK, KSH
Háaleitisbraut 58-60
„Lífið er mér Kristur"
Fil. 1, 12-30.
Almenn samkoma í Kristniboðs-
salnum í kvöld kl. 20.30.
Upphafsorð hefur Jóhanna Zim-
sen og ræðumaður verður Hildur
Sigurðardóttir.
Þú ert velkomin(n)
á samkomuna.
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Guðmundur Mýr-
dal, huglæknir,
starfar á vegum
félagsins frá og
með 5. nóv. Bók-
anir í símum
18130 og
618130.
Stjórnin.
Orð lífsins,
Grensásvegi8
Almenn samkoma og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Richard Perin-
chief prédikar. Allir hjartanlega
velkomnir! Sjónvarpsútsending
á OMEGA kl. 14.30.
LIFSSÝN
Samtök til sjálfsþekklngar
Félagsfundur i menningarmið-
stöðinni Gerðubergi, sal B,
mánudaginn 1. nóvember
kl. 20.15.
AuJéivfefcti 2 . Kopiuvdur
Almenn samkoma i dag
kl. 16.30.
Biblíulestur á þriðjudaginn
kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Sunnudagsferðir
31.október
1. Kl. 13.00: Gálgaklettur-Sýl-
ingarfell-Bláa lónið. Áhugavert
gönguland norðan Grindavíkur.
Bað í lok göngu ef vill.
Verð 1.100 kr., fritt f. börn.
Brottför frá BSÍ, austanmegin,
(og Mörkinni 6). Stansað viö
kirkjug. Hafnarfj.
2. Kl. 14.00: Óskjuhlíð, saga,
náttúrufar. Stutt ganga (1,5
klst.) í fylgd Helga M. Sigurðs-
sonar, sagnfræðings, en hann
er annar höfunda nýrrar bókar
um Öskjuhlfðina. M.a. skoðaðar
stríðsminjar, minjar um fjárborg
og selstöðu. Gangan er í tilefni
sýningarinnar Hugspil, leikir og
tómstundir í Perlunni. Ekkert
þátttökugjald. Mæting við aöal-
anddyri Perlunnar.
Þriðjudagskvöldið 2. nóv.
kl. 20.30: „Drekkið kaffi með
Eiriki" í opnu húsi í Mörkinni 6
(risi).
Mætið í góðan félagsskap.
Aðventuferð í Þórsmörk 26.-28.
nóvember.
Ferðafélag Islands.